Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 38

Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör Sjálfstœðisflokksins í REYKJANESKJÖRDÆMI 5. nóv. nk. Veljum KRISTJÁN PÁLSSON í eitt af efstu sætum listans. Nýja bensínið frá Olís eykur kraft bílsins HreintSystem 3 bensínið frá Olís minnkar útfellingar í brunahólfi bílvélar, þannig að afköst og kraftur bílsins aukast. 80kW 60kW I 40kW c 10 o § '1 20kW jð > w I OkW Hámarksafköst vélarinnar. Akstur 1 var meö nýja HreintSystem 3 bensíninu. Akstur 2 var hins vegar meö evrðpsku tilraunabensíni án Iblöndunarefna. Meiri kraftur, hreinni útblástur, minni eyösia. Sjá nánar í kynningarbækling! Olís um HreintSystem 3. IDAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Leiðrétting á vísukorni SIGRÍÐUR Sigurðardóttir hringdi til að biðja Velvak- anda að koma á framfæri leiðréttingu vegna fréttar í Ríkissjónvarpinu laugar- dagskvöldið 1. október. Þar var sagt frá vígslu á Kúðafljótsbrúnni nýju í Vestur-Skaftafellssýslu og fór Halldór Blöndal ráð- herra með vísukorn eftir Sverri Sigurðsson. Ein- hverra hluta vegna var rangt farið með vísu þessa en hana er að finna í „Vestur-skaftfellsk ljóð“ sem Setberg gaf út árið 1962, og hljóðar svo: Hollt er að koma heim til þín, hröktum ferðalöngum. Sauðakjöt og valið vín, veittir okkur svöngum. Tapað/fundið Tveir gullhringir töpuðust TVEIR gullhringir, annar með hvítri perlu, hinn þykkur og mikill skraut- hringur, töpuðust í búningskiefa í Laugar- dalslaug 17. september sl. Skilvís finnandi vinsam- lega hafi samband í síma 33264. Leðurjakki tapaðist SVARTUR mótorhjóla- leðurjakki tapaðist á veitingahúsinu 22 sl. laugardagskvöld. Skilvís finnandi er vinsamlega beðinn að skila honum þangað. Gullhringur tapaðist GULLHRINGUR með fjólubláum steini tapað- ist mjög líklega í mið- bænum eða í þjónustu- miðstöðinni Vesturgötu 7. Skilvís finnandi vin- samlega hafi samband í síma 11806 og er fund- arlaunum heitið. Hjól fannst FJALLAHJÓL af gerðinni Mongoose, 21 gírs, fannst aðfaranótt sunnudagsins í Bólstaðarhlíð. Finnandi telur að eigandinn gæti verið lítill drengur og ætti hann að hafa samband eftir kl. 18 í síma 32344. Silfurhringur tapaðist SILFURHRINGUR tapaðist með rauðum steini mánudaginn 26. september, líklega í Tón- listarskóla Kópavogs eða nágrenni. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 46413 eða í Tón- listarskólann. Hringur tapaðist CARTIER-hringur tapað- ist í september fyrir utan Iðnskólann í Reykjavík. Skilvís finnandi vinsam- lega hringi í síma 625769 og er fundarlaunum heitið. Gleraugu töpuðust GLERAUGU í brúnni mjórri umgerð, með spöngum með brúnu sebramynstri, töpuðust í miðbænum laugardaginn 24. september sl. Skilvís fínnandi vinsamlega hafi samband í síma 30437 eftir kl. 18 og er fundarlaunum heitið. Gæludýr Páfagaukur fannst GULUR páfagaukur fannst sl. sunnudag við Nýlendugötu. Eigandinn má vitja hans í síma 12672 á kvöldin. Kettlinga vantar heimili ÞRJÁ fallega kettlinga, kassavana og vel vanda, vantar að komast á góð heimili. Uppl. í síma 73990. SKAK Umsjön Margcir Pétursson ÞESSI staða kom upp á Int- erpolis-útsláttarmótinu í Til- burg í Hollandi í september í viðureign tveggja rúss- neskra stórmeistara. Aleks- ei Drejev (2.650) hafði hvítt og átti leik gegn Valdímir Episín (2.650). Drejev braust nú skemmtilega í gegn á hvítu reitunum: sjá stöðumynd 21. Rxf7H - Hxf7, 22. Hxc8! - Dxc8, 23. Rd6 - Dc7, 24. Rxf7 (Hvítur hefur unnið hrókinn til baka og svarta staðan er í rúst) 24. - Kf8, 25. Dxe6 - Bxd4, 26. Re5 - Bxe5, 27. Hxe5 og svartur gafst upp. Um helgina: Deildakeppni Skáksambands íslands hefst á föstudagskvöld kl. 20. í Reykjavík er tefit í Skákmið- stöðinni, Faxafeni 12. Mikið hefur verið um félagaskipti að undanfömu, sveit Taflfé- lags Kópavogs sem kom upp úr 2. deild í vor hefur náð að styrkja sig mest. Með morgunkaffinu Nei, mamma mín. Það er alls ekkert athugavert við að þú skulir búa hjá okkur í nokkrar vikur. Víkverji skrifar... Sem betur fer verður umræðan um auðlindagjald eða veiði- leyfagjald talsverð hér í íslensku þjóðfélagi alltaf öðru hvoru. Vík- veiji er þeirrar skoðunar, að á með- an menn ræða þessi mál, að meiri vonir standi til þess, að á hinu óréttláta fyrirkomulagi, sem viðhaft er við stjórnun fiskveiða og úthlutun veiðileyfa, verði breyting í réttlætis- átt fyrir alla þjóðina. Það fer ekk- ert á milli mála, að þjóðin á í sam- einingu okkar helstu auðlind, fiski- miðin umhverfis ísland, og því er það hróplegt óréttlæti að hluta þjóð- arinnar skuli ár eftir ár úthlutaður ókeypis aðgangur að sameigninni. xxx Fyrir skömmu horfði Víkveiji á athyglisverða fréttaskýringu hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC, sem að mati Víkveija gæti verið gott innlegg í umræðuna hér á landi um auðlindagjald. Þátturinn var um hinn víðfræga og fagra Yellowstone-þjóðgarð í Bandaríkj- unum, nánar tiltekið í Klettafjöllum. Þjóðgarðurinn er geysilega stór, eða tæpir 9 þúsund ferkílómetrar og að mestu leyti í NV-Wyoming. Þetta geysilega mikla svæði var gert að þjóðgarði í Bandaríkjunum fyrir 122 árum, árið 1872. Garðurinn er á skógi vöxnu eldvirknisvæði og er rómaður fyrir sérstæða náttúrufeg- urð, fjölbreytt dýralíf og fjölda vatns-, leir og goshvera. Goshverinn Old Faithful er frægastur góshver- anna og gýs hann á hálftíma til eins og hálfs tíma fresti. xxx að sem var hvað athyglisverð- ast í þessum þætti, var frá- sögn af dýrmætum þörungum, sem vaxa í ákveðnum hverum í Yellow- stone-þjóðgarðinum. Þörungum, sem að hluta til hafa um áratuga skeið verið nýttir af lyfjafyrirtækj- um vestra og koma að góðum not- um í fjölmörg lyf, sem gefin eru við margskonar sjúkdómum. Fram kom að iyi'jafyrirtækin hafa getað gengið í þessa auðlind, án þess að nokkurt auðlindagjald kæmi fyrir, svo áratugum skiptir og hagnast af þörungatekjunni um mörg hundruð milljónir dollara, líkast til á bilinu 200 til 300 milljónir dollara á ári, samkvæmt því sem fram kom í sjónvarpsþættinum. xxx Heyra mátti á einum þjóðgarðs- varðanna, að hann hefði áhyggjur af því að lífríki í þessari náttúruparadís Bandaríkjamanna kynni að raskast, yrði gengið of nærri þörungagróðrinum og um rányrkju yrði að ræða. Jafnframt var frá því greint að nú væru komn- ar fram háværar kröfur á hendur lyfjafyrirtækjunum, frá almenningi og ákveðnum þrýstihópum neyt- enda, að lyfjafyrirtækin greiddu fyrir þörungatekjuna í þjóðgarðin- um og mætti í þessu tilviki nefna slíka greiðslu auðlindagjald. xxx Röksemd gjaldtökumanna var sögð sú, að þjóðgarðurinn all- ur, með skógum sínum, hverum og öðrum náttúruundrum, væri sam- eign þjóðarinnar. Þjóðin hefði staðið straum af kostnaði við rekstur garðsins í 122 ár, ríkissjóður greiddi þjóðgarðsvörðum laun og annaðist allt viðhald og endurbætur sem fram þyrftu þar að fara. Því væri það sjálfsögð og eðlileg krafa, að þær tekjur sem væri hægt að hafa af afurðum úr Yellowstone-þjóð- garðinum, rynnu einnig til þjóðar- innar og í því sambandi var nefnd- ur sá möguleiki að tekjur af þör- ungatekju, í formi auðlindagjaids, yrðu nýttar til lækkunar skatta hjá almenningi. Ekki var að heyra á fréttaskýranda ABC-sjónvarps- stöðvarinnar, að forsvarsmenn lyfjafyrirtækjanna væru ýkja hrifn- ir af þessari kröfu almennings, ekki frekar en útgerðarmennirnir okkar hér á íslandi, sem ekki mega heyra á slíka gjaldtöku minnst.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.