Morgunblaðið - 05.10.1994, Side 44
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiic
44 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
16500
Stórmyndin ÚLFUR (Wolf)
DÝRIÐ GENGUR LAUST.
Vald án sektarkenndar. Ást án skilyrða. Það er gott að vera
... úlfur! Jack Nicholson og Michelle Pfeiffer eru mögnuð í
þessum nýjasta spennutrylli Mike Nichols (Working Girl, The
Graduate). Önnur hlutverk: James Spader, Kate Nelligan,
Christopher Plummer og Richard Jenkins.
„Úlfmaðurinn endurvakinn og settur í fyrsta flokks umbúðir
Hollywood-snillinga. Sjálfsagt stendur varúlfsgoðsögnin í
mörgum, þar fyrir utan er Úlfur afar vönduð f alla staði og
Nicholson í toppformi".
★★★ S.V. Mbl.
★★★ Eintak
★★★ Ó.T. Rás2
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.20.
B.i. 16 ára.
AMANDA-VERÐLAUNIN 1994
BESTA MYND NORÐURLANDA
SÝND KL. 5, 7 og 9.
GULLÆÐIÐ (city Slickers II) sýnd ki. n.
★★★★★ STJORNUBIOLINAN ★★★★★
Sími 991065.
Verð kr. 39,90 mínútan. „Flóttinn frá Absolom"-getraun. 70
vinningshafar verða dregnir út miðvikudaginn 5. okt. og fá
miða á forsýningu myndarinnar „Flóttinn frá Absolom"
fimmtudagskvöldið 6. okt. Einnig fá 3 heppnir vinningshafar
mánaðarkort í líkamsrækt hjá World Class.
„GUÐI sé lof fyrir vini,“ segir Burt Reynolds sposkur á svip við
núverandi unnustu sína, Pam Seals.
A4MBI61N A4MBI6BN A4MBI6IM
iiniiiiiiiiTm
3*5» |
FRUMSYND 14. OKTOBER.
maov h/i»«
aauiNEYM
jaimut jbnes
111111111111111111111111111111111111111111
Kvennagullið
Burt Reynolds
ÓTRÚLEGT en satt, fyrir langa,
langa löngu var Burt Reynolds
óviss með sig jiegar kvenfólk var
annarsvegar. Arið 1961 var hann
tuttugu og fimm ára og nýliði á
sviði á Broadway í leikritinu „Look:
We’ve Come Through".
Eftir frumsýninguna tók hann
matarboði leikritaskáldsins William
Inge. „Ég bjóst við fámennum hópi,
en þegar ég mætti á staðinn voru
þar aðeins Inge og ægifögur kona
í silkiblússu og engum brjóstahald-
ara,“ skrifar Burt í væntanlegri
ævisögu sinni „My Life“.
Burt fannst þessi kona „sem af
öðrum heimi“ og hrökk í baklás
þegar hún sagði: „Segðu mér allt
um ævi þína. Og það sem þú segir
mér ekki hér, geturðu sagt mér
seinna."
Burt skrifar að hann hafi brugð-
ist afar „heimskulega" við. „Ég
leit á klukkuna, á Inge, á brjóst
konunnar, og sagði: „Fyrirgefið,
en ég trimma á hverju kvöldi um
þetta leyti.“ Síðan lét hann sig
hverfa.
Rúmum áratug síðar þegar Burt
rakst á Inge í Los Angeles og innti
hana eftir því hvort hún myndi
eftir honum, svaraði Inge: „Hvort
ég man! Hvernig gæti ég gleymt
þeim unga manni sem hafnaði
Gretu Garbo?“
Burt Reynolds skrifar um mörg
slík ævintýri í ævisögu sinni. Auk
Loni Anderson, Sally Field og
Dinah Shore segir hann frá ástar-
ævintýri með Catherine Deneuve,
Farrah Fawcett og Candice Berg-
en. Bókin er tileinkuð sex ára göml-
um syni Burts, Quinton, sem hann
á með Loni Anderson.
í byrjun þess kafla sem fjallað
verður um hér kynnist hann sjón-
varpskonunni Dinah Shore þegar
hann kemur fram í viðtalsþætti
hennar og býður henni í beinni
útsendingu að koma með sér til
Palm Springs yfir helgina. „Eftir
þáttinn töluðum við saman í marga
klukkutíma. Ég hafði aldrei fyrr
hitt neinn með hennar gáfur, skop-
skyn, hlýju eða þekkingu. Þegar
við skildum ... vissi ég að ég var
ástfanginn.“
Burt Reynolds talar mjög hlýlega
um Dinah í bókinni, en samband
þeirra vakti mikinn úlfaþyt á sínum
tíma. Hún var nefnilega 54 ára-
gömul en hann 35 ára. A endanum
gat Burt ekki sætt sig við aldurs-
muninn og þremur árum eftir að
þau hittust var sambandinu lokið.
Árið 1976 hitti Burt Reynolds
Sally Field þegar þau áttu að leika
saman í „Smokey and the Bandit“.
Þau fóru á stefnumót kvöldið áður
en tökur hófust og um það skrifar
Burt: „Ég vissi að ég gæti orðið
ástfanginn af henni. Raunar vissi
BURT skrifar um Sally Field:
„Hún var ástarævintýri lífs
míns.“
„EKKI var annað hægt en að
töfrast af hlýju hennar,“
skrifar Burt um Dinah.
ég að ég var þegar orðinn ástfang-
inn.“
Þrátt fyrir að miklar ástir tækj-
ust á milli þeirra vildi Burt ekki
giftast henni. „Það var í rauninni
spurning um lífsstíl. Eina vikuna
var ég sáttur við að dveljast heima
hjá Sally og mála herbergi tvisvar,
þá næstu vildi ég leggjast í ferða-
lag með Willie Nelson.“
Sally og Burt léku saman í
„Smokey and the Bandit 11“ árið
1979. I kjölfarið fylgdi ástríðu-
fyllsti tími sambands þeirra, sem
einkenndist af „hamslausu kynlífi",
en eftir það sagði Sally skilið við
Burt.
Þau hittust einu sinni aftur þeg-
ar Sally var tilnefnd til Óskarsverð-
launa fyrir myndina „Norma Rae“
og ákváðu að fara saman út að
borða. „Á leiðinni lentum við í heift-
úðugu rifrildi — ég get ómögulega
munað um hvað. Um leið og við
komum að veitingastaðnum stökk
hún út úr bílnum og flýði á harða-
hlaupum. Ég stirðnaði upp og
fylgdist með henni hverfa í myrkr-
ið.“
Ég hljóp síðan á eftir henni,
hrópaði „Sally, Sally“ og fann hana
loks í skuggasundi. Hún lét tilleið-
ast og leyfði mér að keyra sig heim,
en var þögul alla leiðina. Þar með
var það búið.
Næst sá ég hana í sjónvarpinu
meðan á Óskarsverðlaunaafhend-
ingunni stóð. Ég hafði sest að í
Flórída, eins og ég gæti hrist af
mér stærsta kvöld Hollywood með
því að yfirgefa fylkið. Löngu eftir
að útsendingu lauk, um eittleytið,
kveikti ég á sjónvarpinu. En ekki
var undankomu auðið. Guð sendi
beint inn í svefnherbergi mitt um
loftbylgjur þá stund þegar Rona
Barrett var að spyija Sally út í
hennar stóra kvöld. Sally var spurð
hvað hún hugsaði þegar hún gekk
upp á sviðið til að taka við Óskars-
verðlaununum og svaraði: „Ég
hugsaði: Farðu til fjandans Burt
Reynolds, farðu til fjandans Burt
Reynolds, farðu til fjandans Burt
Reynolds".
Það hafði verið sónað yfir dóna-
legu orðin, en ég heyrði þau. Mér
leið eins og flutningabíll hefði keyrt
yfír mig. Ég kynntist öllum bestu
hliðum Sally, en ég iðrast þess
mest að hún sá aldrei mínar. Það
eina sem hún sá var stráklingur-
inn.“
Burt kynntist Loni Anderson
árið 1981. Hann var þá að taka
við sjónvarpsverðlaunum sem
„skemmtikraftur ársins“, þegar
„hún laumaðist til mín og hvíslaði
andstuttri röddu í eyrað á mér: „Ég
vil eiga barnið þitt.“
Þau voru saman árið 1984 þegar
Burt lék á móti Clint Eastwood í
„City Heat“. Við tökur á slagsmála-
atriði í upphafi myndarinnar
slasaðist Burt illilega þegar
áhættuleikari sló járnstól í kjálkann
á honum. Hann hlaut alvarlegan
skaða á innra eyra og næstu tvö
árin var hann lystarlítill og sárþjáð-
ur. Hann horaðist, varð háður
verkjalyfinu Halcion og orðrómur
komst á kreik um að hann væri
með eyðni. Við það var hann skilinn
eftir einn á báti af vinum sínum.
Sú eina sem stóð með honum í
gegnum þykkt og þunnt var Loni
Anderson.
Árið 1986 ætlaði Burt að hætta
á lyfinu, en það var meira en líkam-
inn þoldi. Hann var fluttur í hasti
á spítala nær dauða en lífi og það
tók hann langan tíma að jafna sig
og ná fyrri heilsu.
Burt þurfti ekki aðeins að ná
aftur fyrri heilsu, heldur þurfti
hann líka að vinna sig í álit aftur.
„Guði sé lof fyrir vini eins og Jo-
hnny Carson. Ég tók boði hans um
að koma fram í sjónvarpsþættinum
„Tonight Show“ haustið 1986.
Ég hafði hugsað mér að hrekja
viðvarandi orðróm um að ég væri
með eyðni, með því að segja að ég
væri aðeins með lítinn vott. í stað-
inn dró ég upp svarta nótnabók og
sagði Johnny að í henni væru nöfn
allra þeirra sem hefðu staðið með
mér í erfiðleikum mínum.
Síðan opnaði ég bókina. Blaðsíð-
urnar voru auðar. „Það er alltaf
gott að vita hvar maður hefur vini
sína,“ sagði ég og þótt ég hefði
kannski ekki verið upp á mitt besta
heyrði ég fagnaðarlæti í salnum
og var kominn aftur á ról.“'