Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 234. TBL. 82. ÁRG. FÖSTUDAGUR14. OKTÓBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Heilinn æfir hreyf- ingar London. Reuter. MANNSHEILINN æfír hreyf- ingar, jafnvel þó að aðeins sé horft á aðra hreyfa sig. Þetta er niðurstaða franskra, ítal- skra og bandarískra lækna, sem könnuðu heilastarfsemi sex manna með sneiðmynda- tæki og birtu niðurstöður sínar í vísindatímaritinu Nature. Teknar voru sneiðmyndir af heila mannanna á meðan þeir horfðu á handahreyfingar annarra og að því búnu þegar þeir ímynduðu sér að þeir framkvæmdu sömu hreyfing- ar. Sögðu iæknarnir að sömu svæði heilans hefðu verið örv- uð í hvert skipti. Mældu blóðstreymi Aðallega var um að ræða starfsemi á því svæði heila- barkar sem tengist sjóninni en einnig á svæðum sem stýra hreyfingu, svo sem litla heila. Sneiðmyndir mæla breyt- ingar á blóðstreymi til hinna ýmsu hluta heilans. Að sögn læknanna sýna þessar niður- stöður fram á að þegar fólk lærir nýjar hreyfingar, æfir heilinn fyrst hvemig eigi að framkvæma þær. * Vopnahlé hryðjuverkamanna mótmælenda á Norður-Irlandi Táknar lok 25 ára blóð- ugra átaka Belfast, Dyflinni, Bournemouth. Reuter. HREYFINGAR öfgamanna úr röðum mótmælenda á Norður-írlandi lýstu í gær yfir vopnahléi sem tók gildi um miðnætti í nótt. Albert Reynolds, forsætisráðherra írlands, lét svo um mælt að þar með væri endi bundinn á 25 ára átök kaþólikka og mótmælenda í héraðinu sem hafa kostað 3.200 manns lífið. Hann hvatti John Major, forsætisráðherra Bretlands, til að falla frá fyrirvörum sínum um viðræður við Sinn Fein, stjórnmálaarm írska lýðveldishersins (IRA), sem lýsti yfír vopnahléi 1. september. Frelsisliðar Ulsters (UFF) og Sjálfboðaliðasveit Ulsters (UVF), öfgahreyfingar sem hafa verið bannaðar, sögðust ætla að hætta árásum sínum meðan írski lýðveld- isherinn stæði við vopnahlésyfirlýs- ingu sína. Hreyfingarnar hafa drep- ið hundruð kaþólikka í baráttu sinni fyrir því að Norður-írland verði áfram undir yfirráðum Bretlands. „Ákvörðunin merkir í raun enda- lok 25 ára átaka og lok blóðugs kafla í sögu okkar,“ sagði Reyn- olds. „Það er von mín og vissa að aldrei komi til pólitísks ofbeldis á þessari eyju aftur.“ „Þetta eru afar gleðileg tíðindi,“ sagði John Major en bætti við að hann yrði ekki knúinn til vanhugs- aðra viðræðna við Sinn Fein. Óánægja innan IRA Vopnahléið kemur í kjölfar sam- komulags sem Reynolds og Major undirrituðu í desember um friðar- áætlun fyrir Norður-írland. Vopna- hléið er mikil uppörvun fyrir Major, sem hefur átt undir högg að sækja og leitast nú við að snúa vöm í sókn á flokksþingi breskra íhalds- manna í Bournemouth. Heimildarmenn innan IRA segja að óánægju sé farið að gæta á meðal herskárra félaga í hreyfing- unni vegna tregðu bresku stjórnar- innar til að hefja viðræður við Sinn Fein. Breska stjórnin kveðst ekki vilja gera það nema vopnahlé IRA sé varanlegt en heimildarmenn segja að stjórnin sé að búa sig und- ir að falla frá fyrirvörum sínum. LEIÐTOGAR sambandssinna, undir forystu Gusty Spence (t.h.), kynna vopnahlésákvörðun hryðjuverkamannasveita mótmæl- enda á Norður-írlandi í Belfast í gær. Reuter Álverð með því hæsta í fjögur ár Brussel. Reuter. VERÐ á áli er nálægt því hæsta, sem fengizt hefur í fjögur ár, og eftir því sem efnahagsbati eykst í heiminum má búast við meiri uppgangi í greininni að sögn Evr- ópska álfélagsins, EAA. Vaxandi eftirspurn Gert er ráð fyrir að álfram- leiðsla aukist um 7,5% á þessu ári og aukningin vegi að mestu upp samdráttinn 1993. Þó enn liggi fyrir miklar birgðir er framboð og eftirspurn smám saman að færast í meira jafnvægi. Álið seldist á 1.668,50 dollara tonnið í London á fimmtudag, eða því sem næst hæsta verði sem fengizt hefur í fjögur ár. Verðið fór niður í 1.050 dollara 1993 og hafði ekki verið lægra í tæp 10 ár. Vaxandi eftirspurn er eftir áli í bílaiðnaði, sem talið er að muni tvöfalda álnotkun sína í fimm millj- ónir tonna árið 2000. Rúblan hækkar aftur RÚSSNESKA rúblan hækkaði í verði um 19,9% í gær gagnvart dollar fyrir tilstuðlan rússneska seðlabankans en hún féll um 21,5% á þriðjudag. Kostaði doll- arinn 2.994 rúblur miðað við 3.926 á þriðjudag. Borís Jeltsín forseti vék Sergej Dúbínín fjár- málaráðherra vegna gengisfalls- ins og skipaði Andrej Vavílov, 33 ára aðstoðarmann fjármála- ráðherrans, sem eftirmann hans. Myndin var tekin í Moskvu í gær þar sem fólk beið í biðröð til að skipta gjaldeyri. Dularfullu fjöldamorðin í sértrúarsöfnuði í Sviss og' Kanada Lík forsprakkans fundið Gcnf. Rcutcr. LJÓST er orðið að Luc Jouret, leiðtogi sértrúar- hópsins Reglu sólmusterisins, lét lífið ásamt 24 lærisveinum sínum í Alpaþorpinu Granges-sur- Salvan í liðinni viku. Svissneska lögreglan sagði í gær að rannsókn á líkamsleifum hefði leitt þetta í ljós en Jouret hefur verið leitað vegna gruns um aðild að morðum á alls 53 lærisveinum safn- aðarins í Sviss og Kanada. Enn er verið að greiða úr ýmsum flækjum í tengslum við fjárhag safnaðarins. Yfirvöld sögðu að iiðið gætu nokkrar vikur áður en rannsókn á brunnum líkamsleifum fólksins lyki. Búið er að upplýsa hver sendi innanríkis- ráðherra Frakka vega- bréf Josephs Di Mam- bros, „páfa“ safnaðar- ins, og eiginkonu hans í pósti og kom jafnframt á framfæri undarlegum sjálfsmorðsbréfum frá safnaðarfólkinu. Það var Patrick Vuarnet, 26 ára gamall sonur fransks, fyrrverandi skíðakappa sem nú er kaupsýslumaður en Vuarnet yngri og móð- ir hans voru virkir safnaðarfélagar, að sögn lög- fræðings fjölskyldunnar. Vuarnet segir Di Mambro hafa afhent sér skjölin fjórum stundum fyrir andlátið. Mæðginin segjast vera undrandi á því að hafa ekki verið kvödd á hinsta fund safnaðarins en leiðtogarnir hefðu að undanförnu orðið æ upp- teknari af dauðanum. Vuarnet eldri mun ekkert hafa vitað um safnaðarstörf eiginkonu sinnar og sonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.