Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 MININIINGAR MORGUNBLAÐIÐ d ARNBJÖRGINGA JÓNSDÓTTIR + Arnbjörg Inga Jónsdóttir fædd- ist á Hvalnesi í Stöðvarfirði 28. febrúar 1934. Hún andaðist á Reykja- lundi 6. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Sigtryggs- dóttir og Jón Jó- hannsson, bóndi á Hvalnesi. Kristín og Jón eignuðust sex dætur: Þóru, Stein- unni, Nönnu, Krist- ínu og Emu, auk Arnbjargar Ingu, en tvær síðast- nefndu era látnar. Arabjörg ólst upp á Stöðvarfirði en fluttist ung að árum til Reykjavíkur. Ara- björg giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Sverri Kolbeins- syni kennara, 26. desember 1959. Þau eignuðust einn son, Guðjón Steinar Sverrisson. Hann er kvæntur Patriciu E. Velasco de Sverrisson frá Ekvador. Út- för Arnbjargar fer fram lyá Bústaðakirkju í dag. ARNBJöRG Inga Jónsdóttir, eða Adda eins og hún var jafnan kölluð, fæddist 28. febrúar 1934 að Hvals- nesi í Stöðvarfírði og ólst þar upp. Enda þótt bæði værum við Austfírð- ingar kynntist ég Öddu fyrst á stúd- entsári mínu í Menntaskólanum á Laugarvatni. Þann vetur var hún ein í hópi námsmeyja húsmæðraskólans þar á staðnum. Þær stöllur í „Lind- inni“ voru jafnan í hávegum hafðar meðal okkar menntskælinga fyrir *»- sakir mannkosta sinna ýmissa, að- stöðu varðandi sjaldséðar fæðuteg- undir og svo náttúrlega af þeirri ein- földu ástæðu að kynjahlutfall var um það bil ein stúlka á hveija 10 stráka eða svo í menntó. Ég minnist Öddu þessa vetrar sem glaðværrar stúíku sem gaman var að dansa við og bak- aði þessar líka indælu ijómatertur. Og hér hefðu kynni okkar Öddu trúlega endað. Sú varð þó ekki raun- in, því Adda trúlofaðist fljótlega eft- ir Laugarvatnsdvölina bekkjarbróður mínum, Sverri Kolbeinssyni, sem ég hafði þá og raunar lengi síðan sálufé- lag við umfram aðra menn. Þau byij- uðu að bolloka saman, fyrst í leigu- húsnæði en síðan í þriggja herbergja íbúð í Álftamýri 10, þar sem þau ' bjuggu uns flutt var í Furugerði 13. Við Kolbrún urðum fljótlega tíðir gestir hjá þeim hjónum og voru það jafnan góðir fagnaðir og margt til umræðu. Á árunum kringum 1960 mynduðust þannig náin og merkileg tengsl milli okkar íjögurra. Þessi tengsl leiddu til þess að þau Adda og Sverrir tóku eldri dóttur okkar, þá tæplega ársgamla, í fóstur um eins árs skeið eins og ekkert væri sjálfsagðara, meðan ég var að klífa erfíðan hjalla í námi úti í Skotlandi og þriðja bamið á leiðinni. Eftirá að hyggja var þetta í meira lagi vafa- samt fyrirtæki, vegna þess að heimil- ið var bamlaust fyrir. Þau færðu okkur fósturdótturina til Skotlands sumarið 1964 og síst þurfti að kvarta yfír uppeldinu. Sú stutta leit rétt á okkur Kolbrúnu, tilkynnti að þar færu pabbi sinn og mamma og sló sér síðan til rólegheita. Sverrir og Adda hurfu síðan heim til íslands aftur eftir stutta en skemmtilega dvöl. Ekki mun viðskilnaðurinn hafa verið sársaukalaus, en í félagi við Sverri sá Adda við því eins og svo mörgu öðru. Þau eru nefnilega orðin æðimörg „fósturböm" þeirra hjóna og svo eignuðust þau soninn Guðjón Steinar í fyllingu tímans, líklega mót velflestum náttúrulögmálum eins og heilsufari Öddu var þá háttað. Adda var einstakur og heilsteyptur persónuleiki og kom því meira á óvart sem maður kynntist henni betur. Hún hafði sínar skoðanir á mönnum og málefnum, vel rökstuddar oftast og lét sér fátt um mótbárur. Líklega var ekki ýkja auðvelt að komast á stall heldrimanna á hennar bæ, en mikið þurfti áreiðanlega til að velta þeim sem þangað komust á annað borð ofan aftur. Á sama hátt var um hana sjálfa, í hennar prívat orðabók var ekkert hugtak yfír það sem við hin köllum ómögulegt. Til dæmis varð Adda snemma illa haldin af liðagigt, eink- um í höndunum og varð í raun óvinnufær af þessum sökum strax á fertugsaldri. Ekki sá þessa samt stað í heim- ilishaldi eða öðru sem hún hafði umleikis. Þvert á móti var allt fágað og fínt hjá Öddu og hannyrðir hennar og kúnstverk ýmiss konar eru vel kunn okkur sem nutum. Og loks þegar ekki var leng- ur hægt að ráða við nema tvo fingur eða svo komu pensill og litir í stað nálar og þráðs. Það er misskipt láni mannanna eins og við verðum vitni að daglega. Og Adda fór svo sannarlega ekki varhluta af því að því er líkamlegt heilsufar varðar, því um svipað leyti og sonur þeirra Guðjón fæddist greindist hún með afar sjaldgæfan og ólæknandi lungnasjúkdóm sem að lokum varð henni að aldurtila. En einmitt þá kom ósérhlífni Öddu best í ljós, því hún vílaði ekki fyrir sér að gangast undir erfiða skurðað- gerð í því skyni einu að læknavísind- in mættu kynnast sem best þessu sjúkdómstilfelli strax í upphafí grein- ingar. Hún var hins vegar lánsöm að eiga góða að þar sem voru Sverr- ir maður hennar og einkasonur þeirra, Guðjón Steinar. Þeir hafa létt henni lífið eftir getu og raunar um- fram það. Fyrir nokkrum árum var svo kom- ið að Adda gat ekki lengur borið sig um nema með súrefniskút. Hún var jafnframt sárþjáð af liðagigtinni og hefði þetta tvennt orðið hveijum meðalmanni um megn og hann lagt árar í bát. En það vantaði í orðabók Öddu eins og fyrr segir og það var engu líkara en hún yrði því athafna- samari sem erfiðara varð um vik. Gestagangur smáfólksins hennar hélt áfram með líku sniði enn um hríð og maður mætti þeim hjónum á ólíklegustu stöðum með súrefniskút- inn í fararbroddi. Þetta vakti að von- um athygli margra, enda engan veg- inn dagleg sjón og ófá voru þau skipti að Adda bauð forvitnum upp á nán- ari skoðun á fyrirbærinu. Boðið var að sjálfsögðu aldrei þegið, en kom að tilætluðum notum, enda tilgang- urinn að útskýra fyrir mönnum að þetta fyrirkomulag væri svo sem ekkert merkilegt. Þegar litið er til baka fínnst mér raunar að athafnasemi Öddu og fjöi- skyldunnar hafí vaxið í öfugu hlut- falli við heilsu hennar. Hún og Sverr- ir fóru meira að segja í tvígang til Bandaríkjanna í félagsskap kútsins margnefnda, til þess að heimsækja Guðjón Steinar, sem var þar við nám fyrir skömmu. Þetta var þó engan veginn auðvelt viðfangs, því flugfé- lög eru óvön slíku farteski og þurfti nokkuð til að sannfæra starfsmenn um að farþeginn væri hættulaus öðr- um og færi á eigin ábyrgð. Þá eru ótaldar fjölmargar lengri og skemmri ferðir um landið okkar, seinast í átt- hagana fyrir austan á liðnu sumri. Auðvitað var allt þetta óframkvæm- anlegt nema með aðstoð Sverris og þeirra feðga og hún var aldrei talin eftir. Hins vegar nægði aðstoð Sverr- is ekki til þess að Adda mætti vera við giftingu Guðjóns Steinars og Pattyar heitkonu hans úti í Ekvador á liðnum vetri. En þá var gripið til annarra ráða og unga fólkið kom til íslands og gifti sig aftur með tilheyr- andi viðhöfn eins og ekkert væri eðlilegra. Enda þótt Adda ræddi vitanlega stundum vandræði sín í kunningja- hópi var það ævinlega á léttu nótun- um. Ég hitti Öddu seinast nú fyrir skömmu, á afmælisdegi Guðjóns Steinars. Þá var hún sjáanlega sár- þjáð og leið af súrefnisskorti. Mér sýndist næsta ljóst að hveiju stefndi og það var Öddu áreiðanlega líka. En hún var samkvæm sjálfri sér, hlakkaði til gesta kvöldsins og lét mig vita að betra kaffí fengi ég inn- an tíðar, þegar hann Björn hennar hefði lappað svolítið upp á sig. Það tókst þó ekki og eftir örfáa daga var Adda dáin. Hún kvaddi sem sé þenn- an heim nánast standandi og sjálfri sér samkvæm þar eins og ævinlega. Við Kolbrún kveðjum kæra vin- konu og sendum feðgunum, Patty og öðrum aðstandendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Hjálmar Vilhjálmsson. Þrátt fyrir veikindi í seinni tíð ríkti ávallt mikil gleði og umhyggja í kringum hana Ambjörgu eða Oddu eins og hún var alltaf kölluð. Heim- ili hennar var heimili okkar allra og ætíð tók hún vel á móti gestum og þá ekki síst okkur af yngri kynslóð- inni. Heimabakaðar kökur og nýlag- að súkkulaði þóttu sjálfsagður hlutur þar á bæ og oft voru fjörugar og skemmtilegar umræður sem áttu sér stað við eldhúsborðið hjá Öddu. Föndurstundimar fyrir jólin vom nauðsynlegur þáttur í tilveranni hjá okkur öllum á yngri áram og stjóm- aði Adda þeim með glæsibrag. Megi góður guð hugga eftirlifandi eigin- mann, Sverri, son hennar, Guðjón, minn besta vin, tengdadóttur, Patric- iu, og ástvini í sorg þeirra. Ambjörg var engri lík. Þetta undurblíða hjarta sem hugsaði svo vel um alla er horf- ið á braut. Slíkra er sárt saknað, en gott að minnast. Bergsveinn og Hrönn. Það var bjart yfír okkar fyrstu fundum. Við voram stödd á sólar- strönd í fjarlægri heimsálfu. Þar kynntumst við fjölskyldu, sem hafði til að bera óvenjulega elskulegt við- mót. Hlýjan og alúðin sem frá þeim stafaði var á einhvem hátt í svo miklum takt við umhverfíð allt, birt- una, hlýjuna og ölduniðinn. Þetta vora þau Adda, Sverrir og Guðjón. Nú hefur skarð verið rofíð í þessa samheldnu og elskulegu fjölskyldu. Hún Adda, sem alltaf var svo glöð og kát, er ekki lengur á meðal okk- ar. Er við kynntumst henni fyrst var baráttan við erfíðan sjúkdóm þegar hafín. En hún var ekki þeirrar gerð- ar að gefast upp fyrir slíkum vá- gesti. Geislandi af gleði hélt hún ótrauð áfram og aldrei var kvartað. Hún hélt heimili sitt af reisn og myndarbrag og eiginmaðurinn og sonurinn vora henni allt í orðsins fyllstu merkingu. En þeir feðgar kunnu líka að meta elsku hennar og endurguldu henni á fegurri hátt en orð fá lýst. Það var svo einstakt með hana Öddu, hvað hún var fundvís á það sem glatt gæti aðra. Því fengum við svo margoft að kynnast. Hún hugs- aði aldrei um eigin hag heldur hvem- ig hún gæti glatt og fært birtu inn í líf okkar hinna samferðamannanna. Fómfýsi hennar og velvilji var tak- markalaus. Slíkra er einmitt gott að minnast. Að leiðarlokum viljum við þakka henni Öddu fyrir allt. Nú hefur hana borið að annarri strönd en við fyrst hittumst á. Þar mun sólin aldrei ganga til viðar og þar mun ríkja ei- líft sumar. Við biðjum Guð að blessa hana og vaka yfir henni um alla ei- lífð. Fullviss þess að minningin um hana muni verma og varða ykkur veginn áfram, sendum við ykkur, kæru vinir, Sverrir, Guðjón og Patric- ia, innilegustu samúðarkveðjur. Eraa, Einar og synir. Þegar haustar og lauf tijánna föln- ar og fellur til jarðar berst okkur andlátsfregn Arnbjargar Ingu Jóns- dóttur, Öddu. Þrátt fyrir erfið veik- indi nokkur undanfarin ár og minnk- andi líkamsþrótt, þá bárum við þá von í bijósti að við mættum njóta samvista við hana lengur. Dauðinn fer ekki í manngreinarálit og tekur ekkert tillit til aldurs né mannkosta. Aldrei framar knýr maður dyra hjá þeim báðum Öddu og Sverri, nýtur gestrisni hennar og hlýlegrar mót- töku. Skarð er fyrir skildi ævibraut tek- ur snöggan endi, heimilið aldrei samt og var. Minningar lifa og ylja og deyfa sársauka. Hún var hreinskilin og náði þess vegna vel til bamssálar- innar. Smjaður og fals var ekki til í orðabók hennar. Hún kom til dyrra eins og hún var klædd og sannleikur- inn var í hávegum hafður. Upphaf kynnar okkar urðu að við byggðum saman í Furagerði 13. Á hæðinni fyrir ofan okkur bjó hún Adda, Þor- steinn sonur okkar var þar tæpt ár í dagvist. Hún hafði gætt margra bama og átti eftir að gæta enn fleiri er árin liðu. Hún kenndi þeim margt, hún sá um þau sem sín eigin. Hún þroskaði þau og fylgdist með þeim. Óil urðu þessi börn vinir hennar og fjölskyldumar einnig. Hún gerði litl- ar kröfur og virtist alltaf taka fyrst tillit til annarra en persónuleiki henn- ar gerði það að verkum að flestir viltu allt fyrir hana gera. Meðan við dvöldumst erlendis fengum við stöku sinnum frá henni bréf og heimsottum hana þegar við komum í frí. Viðhorfíð til lífsins var einstakt eftir að hin alvarlegu veik- indi komu upp og hún varð að ferð- ast um allt með súrefniskútinn sinn. Hún kvartaði aldrei yfir aðstæðum heldur reyndi að njóta lífsins. Adda stundaði hannyrðir og aðra handa- vinnu eins lengi og hún gat og eftir hana liggja margir fallegir munir. Minning um góða konu gefur að- standendum styrk, Sverrir, Guðjón og Patresia horfast í augu við lífið af sama hugrekki og alltaf hefur einkennt þau. Það var gaman að sjá hve vinátta fjölskyldunnar var djúp og einlæg, en ánægjulegast var þó að heyra hve þau vora öll samhent. Ljúfmennska hennar gagnvart dag- vistarbörnum og greiðvikni og ein- stakt lundarfar var við bragðið, þess vegna hændust litlu bömin að henni. Að mér hvarflaði sl. laugardag að þetta yrði í síðasta sinn sem ég hitti Óddu er ég hitti hana á Reykja- lundi. Hún ræddi þá um lífíð og til- verana og Bjöm Magnússon lækni sem hún taldi að hafi haldið sér gang- andi á síðustu áram með frábærri læknisaðstoð. Þannig vill það verða og nú á þessum fögra haustdögum kveðjum við hana hinstu kveðju. Sorgin heldur áfram að knýja dyra og þar eins og fyrri daginn er ekki farið í manngreinarálit. Við fjölskylda.a í Ljósamýri 3 eram þakklát fyrir öll árin sem við fengum að njóta vinskapar Öddu og Ijöl- skyldu hennar. Við sendum Sverri, Guðjóni og Patresíu og öðram aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum góð kynni. Jón Bjarni Þorsteinsson og fjölskylda. Þó að fðlni blöð og blóm og blikni sérhvert strá, og vindar kveði - köldum róm, kviði ég engu þá - þvi ég á sól í sinni - sumrinu frá. (G.V.G.) Mér þykir vænt um hve sterkt Adda tengist bemskuminningum mínum, því í bemskunni er grannur- inn lagður. Ég ímynda mér því að hún hafí lagt sitthvað í minn grann; með það væri ég ósegjanlega ánægð, því hún hafði ómælt af þeim eigin- leikum sem mér fínnast eftirsóknar- verðastir í lífínu. Við bjuggum í sömu blokk í Álfta- mýrinni, þau hjónin Adda og Sverrir ásamt Guðjóni syni sínum á númer 10, en ég á númer 14. Við Guðjón voram jafnaldrar og vinir og á núm- er 10 var mér alltaf tekið opnum örmum. Adda var einstaklega við- mótsþýð við okkur börnin og það var svo notalegt að koma til hennar, því maður fékk það alltaf á tilfínninguna að það væri henni virkileg gleði að fá í heimsókn svona hnátu frá núm- er 14. Þess vegna tengi ég alltaf öryggiskennd við Öddu, því ekkert veitir bömum meiri öiyggistilfínn- ingu en að finna að þau séu velkomin. Þegar ég var átta ára flutti ég ásamt fjölskyldu minni í Fossvoginn. Um svipað leyti fluttu Adda og Sverr- ir í Furagrandina. Skrefunum á milli heimilanna fjölgaði því nokkuð, en þó héldum við góðu sambandi í all- mörg ár, eða þar til við Guðjón kom- i I I « 4 I 4 4 4 4 4 4 i i i BRAGIGEIRDAL + Bragi Guð- mundsson Geir- dal fæddist á ísafirði hinn 7. apríl 1927. Hann andaðist á Landsspítalanum hinn 7. október 1994. Foreldrar hans voru Guð- mundur Eyjólfsson Geirdal, skáld, hafn- argjaldkeri og kennari og Vilhelm- ína Steina Péturs- dóttir frá Hafnardal nú Iátin. Bragi lærði rafvirkjun, var um skeið í siglingum, hóf síðan störf í iðngrein sinni, öðlaðist meist- araréttindi og var um langt skeið umsvifamikill rafverktaki í Reykjavik. Síðustu árin var hann húsvörður í Hólabrekku- skóla. Bragi kvæntist hinn 2. apríl 1955 Ragnhildi Þorbjarn- ardóttur. Foreldrar hennar voru Þorbjörn G. Bjarnason pípulagn- ingameistari og kona hans Guð- ríður Þórólfsdóttir. Þau voru bæði ættuð úr Skaftafellssýslum. Börn Ragnhildar og Braga eru Björk Geirdal, sjúkraliði í Kópa- vogi, og Guðmundur Rafn Geird- al, skólastjóri og sjúkranuddari í Reykjavík. Eiginmaður Bjarkar er Axel Sölvason rafvirki og tæknifræðingur. Börn þeirra eru Ivar Þór og Ragnhildur Þóra. Guðmundur Rafn er frá- skilinn. Sonur hans heitir Kári Svan. Bragi verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag. Faðir minn, Bragi Geirdal, er lát- inn. Hann lést á Landspítalanum klukkan tíu mínútur yfír ellefu síð- astliðið föstudagskvöld. Andlát hans var friðsamt og án sársauka. Það eina sem breyttist eftir langvarandi svefn var að hann andaði nokkram sinnum dýpra en gaf ( síðan upp andann. Sem betur fer var eiginkona hans og við börnin hans öll viðstödd þegar hann skildi við okkur hinsta sinni. Um mig fór tilfinning fegin- leika, því með því var hann að lokum fijáls undan líkama sem gat ekki lengur hýst hann sem persónu eða sál. | Ég fann í mér gleði yfir að sál hans fengi að streyma inn á andlegri svið. Mín tilfinning er statt og stöðugt sú að hann hafí farið á góða staði, himnaríki og dvelji þar í góðri vemd. Með hveijum deginum sem líður verð ég sannfærðari um að sálin lifí líkamsdauðann. Það er ekki aðeins að mér fínnist að ég fínni fyrir hon- um daglega síðustu dagana, heldur rifjast upp fyrir mér svo mikið af þekkingu sem ég hef kynnt mér á undanfömum áram. Þannig hafa vís- indamenn staðfest að líkami þeirra sem látast léttist um 20 grömm, þó svo að allir efnislegir þættir hafi verið einangraðir. Þó svo að sálin sé þannig léttvæg í grömmum talið, vegur hún mun þyngra í andlegum verðmætum ... sem betur fer. Jafnframt hef ég lengi vitað af rannsóknum Elisabeth Kubler-Ross, sem er bandarískur læknir, en hún kannaði reynslusögur margra sjúkl- inga sem höfðu verið skilgreindir látnir af læknum en lifnuðu við aft- ur, til dæmis við lífgunartilraunir. Yfírleitt var reynsla þeirra sú að þeir svifu fyrst yfír líkama sínum og sáu lækna og aðstoðarfólk hlaupandi í kringum sig og gátu lýst atburða- rásinni, þó svo að augu þeirra hefðu verið lokuð og læknar skilgreindu þau sem dáin. Síðan hefðu flestir séð Ijós og sogast upp eftir göngum í átt til upplifunar sem einkenndist af himneskum friði; en siðan skyndilega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.