Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MEG frá ABET UTANÁHÚS FYRIRLIGGJANDI Þ.ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 íslenska einsöngslagið á sunnudag Eitthvað ósagt í Hlaðvarpanum ALHEIMSLEIKHUSIÐ sýnir ein- þáttunginn „Eitthvað ósagt“ eftir Tennessee Williams í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum í kvöld klukkan 21.00. Leikþátturinn var frumsýndur á Listasunm á Akureyri í ágúst síð- astliðnum. íslenska þýðingu gerði Vilborg Halldórsdóttr. Leikstjóri er Hlín Agnarsdóttir, en leikendur eru þær Anna Elísabet Borg og Steinunn Ólafsdóttir. í fréttatilkynningu segir: Leikurinn gerist við morgunverðarborðið á heim- ili frökenar Scott snemma á sjötta áratugnum í suðurríkjum Bandaríkj- anna. Fröken Scott og einkaritari hennar, Grace Lancaster, hafa búið saman í 15 ár og fröken Scott, sem er meðlimur í stórum kvennasamtök- um, er að bíða eftir niðurstöðum í formannskjöri innan samtakanna, þar sem hún hefur boðið sig fram. A milli símtala frá formannskjörinu fer fram óvenjulegt persónulegt uppgjör milli hennar og einkaritarans þar sem eitt- hvað ósagt kemur í ljós. Alheimsleikhúsið varð til á Lista- sumri á Akureyri í sumar. Önnur sýn- ing í Hlaðvarpanum verður laugardag- inn 15. október klukkan 21.00 Skógarmenn og hverful- leikinn GÍSLI Magnússon píanóleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Selló og píanó í Kirkjuhvoli GUNNAR Kvaran sellóleikari og Gisli Magnússon píanóleikari halda tónleika í Kirkjuhvoli í Garðabæ á sunnudaginn, 16. októ- ber. Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 og á efnisskrá eru tilbrigði Beethovens um stef úr Júdasi Makkabeus eftir Handel, Sónata op. 38 eftr Brahms, Myndir á þili eftir Jón Nordal og Sónata op. 40 eftir Sjostakovits. Báðir hafa þeir Gunnar og Gísli haldið fjölda tón- leika sem einleikarar og í kammer- tónlist. Samstarf þeirra nær aftur til ársins 1973. Tónleikarnir eru á vegum Tón- listarskóla Garðabæjar og er að- gangur, 600 kr., seldur við inn- ganginn. Agóðinn rennur í Lista- sjóð skólans sem m.a. styrkir efni- lega nemendur til framhaldsnáms. TVÆR listsýningar verða opnaðar í Hafnarborg á morgun: Á Skógarmönn- um Sæmundar Valdimarssonar og mynda Gísla Sigurðssonar. Sýningam- ar standa til 31. október og eru opnar frá 12-18 alla daga nema þriðjudaga. Sæmundur fæddist árið 1918 á Krossi á Barðaströnd og bjó þar til fullorðinsára. Hann fluttist til Reykjavíkur 1948 og hefur frá árinu 1988 eingöngu unnið að listsköpun. Sýning Gísla ber yfirskriftina Tíminn og hverfulleikinn. Á henni verða 30 verk unnin með blandaðri tækni, frá síðustu fjórum árum. Flest eru unnin með olíulit á léreft, en einn- ig notar Gísli blaðgull og samklippur úr pappír. Unglist ’94 Ljósmynda- og stutt- myndamaraþ on UNGLIST 94, listahátíð ungs fólks, hefst í ár á ljósmynda- og stutt- myndamaraþoni á morgun, laugar- dag kl. 12, að lokinni setningu há- tíðarinnar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þátttaka er opin öllu ungu fólki sem áhuga hefur á ljosmyndun og kvik- myndagerð. Urslit keppninnar verða birt á Ijósmynda- og stutt- myndasýningu í Háskólabíói mánu- daginn 17. október kl. 20 en þar verða einnig sýndar aðrar áhuga- verðar stuttmyndir eftir ungt fólk og sýnishorn úr myndum eldri og reyndari kvikmyndaleikstjóra sem nú eru í vinnslu, segir í fréttatil- kynningu. Keppendur í ljósmyndamaraþoni eiga að mæta með 35 mm mynda- vélar í Ráðhús Reykjavíkur og fá þeir 12 myndverkefni, 12 mynda filmu og 12 klukkustundir til að leysa verkefnin. Það er því ekkert svigrúm fyrir mistök og keppendur þurfa að vanda vinnu sína. Dómefnd skipa Gunnar Finnbjörnsson frá Hans Petersen, Gunnar Andrésson frá DV, Már Guðlaugsson frá Hinu Húsinu og Bára Kristinsdóttir ljós- myndari. Verðlaun fyrir bestu myndirnar gefur Hans Petersen hf. glæsilegar Canon EOS og Canon Prima myndavélar. Keppenduf í stuttmyndamara- þoni eiga að mæta með myndbands- tökuvélarar sínar (VHS, S-VHS, Video-8 mm, Hi-8) í Ráðhúsi Reykjavíkur og fá þar úthlutað myndverkefni og 5 mínútna mynd- bandsspólu. Skilafrestur er til kl. 18 sama dag. Bæði einstaklingar og lið geta tekið þátt í keppninni. Verðlaun fyrir bestu stuttmyndina eru 50.000 úttekt í einu besta SP- Beta klippistúdíói landsins, Nýja bíói. Fyrir aðrar áhugaverðar myndir verða veitt verðlaun frá Myndbandavinnslunni. Skráning í ljósmyndamaraþonið og stuttmyndamaraþonið er í Hinu húsinu, Brautarholti 20 (s.: 624320) og í Ráðhúsinu frá kl. 11 laugardag- inn 15. október. Þorsteinn Gylfason talar um ljóð við lög Signý Sæmundsdóttir syngur Iferti með í lukkupotti áfefe! Á Bylgjunni frá 1. - 29. * Italskt kvöld Kvenna- kórs Reykjavíkur Þátttökuseðlar leiksins eru á Ágætis kartöflupokum. Það eina sem þátttakendur þurfa að jgera er að klippa miðann af pokanum og setja hann í Agætis póstkassa eða senda til Bylgjunnar, Lynghálsi 5, frá 1. til 29. október. Dregið verður úr lukkupottinum á hverjum virkum degi á Bylgjunni. Þrjú hundruð heppnir þátttakendur fá 1000 kr. úttektarmiða á Hard Rock Cafe. Og sá allra heppnasti fær nýjan Renault Twingo frá Bílaumboðinu hf. að verðmæti kr. 838.000.-, sem dreginn verður út laugardaginn 5. nóvember í beinni útsendingu á Bylgjunni. KVENNAKÓR Reykjavíkur hefur ítalskt kvöld sunnudaginn 16. októ- ber. Það verður í húsnæði kórsins á Ægisgötu 7 og hefst það kl. 20. Fyrir hlé munu nemendur ítölsku óperusöngkonunnar Eugeniu Ratti, sem nú heldur námskeið í Reykja- vík, flytja atriði úr óperunni Ninu eftir Pai'sello. Óperan verður flutt í heild sinni seinna í mánuðinum. í hléi verða veitingar að ítölskum sið og dregið í happdrætti að- göngumiða. Að því loknu syngja kennarar söngdeildar Kvennakórs- ins ítalskar aríur. Söngdeildin var stofnuð í haust af Margréti Pálmadóttur og Guð- björgu Siguijónsdóttur. Við hana starfa níu kennarar og tveir undir- leikarar. ÞORSTEINN Gylfa- son, heimspekingur, heldur þriðja erindið af sjö í röð fyrirlestra um íslenska einsöngs- lagagerð og flutning einsöngslaga í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi sunnu- daginn 16. október kl. 14. Ljóð við lög er heiti erindisins sem fjallar um þau atvik að skáld yrki ljóð við lög, frek- ar en tónskáld lög við ljóð, og ýmsan vanda sem þá er við að etja fyrir skáldið. Tekin Þorsteinn Gylfason Signý Sæmundsdóttir verða fáein dæmi af íslenskum sönglögum sem eru svona til komin, og einnig dæmi af frumortum Ijóðum og þýddum við útlend lög. Flutt verða ljóð eftir Davíð Stef- ánsson, Tómas Guðmundsson, Jón- as Árnason og Halldór Laxness og þýðingar eftir Þorstein Gylfason við lög eftir Pál ísólfsson, Sigfús Hall- dórsson, Jón Múla Árnason, Jakoþ Hallgrímsson, Skúla Halldórsson, Atla Heimi Sveinsson og Richard Wagner. Að þessu sinni sjá Signý Sæmundsdóttir, sópran, og Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanóleikari, um flutning laganna. Nú stendur yfir yfirlitssýningin íslenska einsöngslagið í Gerðu- bergi. Mikil vinna var lögð í sýning- una og er þetta í fyrsta sinn sem sett er upp sýning sem sérstaklega er tileinkuð sönglífi og einsöngs- lagagerð á íslandi. Einnig var út- búin vegleg sýningarskrá með ævi- ágripum íslenskra tónskálda og rit- gerðum um sönglíf. Sverrir Guðjónsson, söngvari, annast leiðsögn um sýninguna á sunnudögum kl. 13. ðtófeg® GOTT ÚTVARP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.