Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 23
Ljúkum við hringveginn
fyrir aldamót
ÞAÐ var skrítin umræða á AI-
þingi á dögunum. Hún endurspeglar
þann mikla áherslumun sem er á
milli þessarar ríkisstjórnar og hinn-
ar síðustu í samgöngumálum. Aðal-
árásarefnið er, að ég vilji beita mér
fyrir því, að lokið verði við veginr.
yfir Ilólsfjöll og Möðrudalsöræfi
fyrir aldamót. Sú veglagning var
ekki á dagskrá síðustu ríkisstjórnar
fyrr en eftir 2002.
Auðvitað er kominn tími til þess
að traustur og uppbyggður vegur
sé lagður milli Norðlendinga- og
Austfirðingafjórðungs. Þegar
Skeiðará var brúuð fyrir 20 árum
höfðu margvísleg viðskipti þróast
milli Norðurlands og Austurlands,
Með samþykkt vega-
áætlunar fyrir árin
1993-1996 var ákveðið,
að vegurinn yfír Hóls-
fjöll og Möðrudalsöræfí
niður að Skjöldólfsstöð-
um félli undir stórverk-
efni segir Halldór
Blöndal samgöngu-
ráðherra.
sem síðan drógust verulega saman
eða duttu niður með öllu, einfald-
lega vegna þess að akvegasamband
var ekki milli fjórðunganna yfir
veturinn nema ekið væri um
Reykjavík suður um land. Ég tók
ákvörðun um það, eftir að ég varð
samgönguráðherra, að leiðin yrði
mokuð á miðvikudögum og fimmtu-
dögum. Síðan hafa viðskipti milli
ijórðunganna vaxið jafnt og þétt,
en lélegt akvegasamband stendur
þeim eðlilega fyrir þrifum.
Með samþykkt vegaáætlunar
fyrir árin 1993-1996 var ákveðið,
að vegurinn yfir Hólsfjöll og Möðru-
dalsöræfi niður að Skjöldólfsstöðum
F A R - OG FISTOLVUR
<Ö>
NYHERJI
F/EST ■■■
í 6LAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁDHÚSTORGf
félli undir stórverkefni. Með þeirri
samþykkt tók Alþingi af skarið og
það varð skyndilega raunhæft að
hugsa sér, að lagningu hringvegar-
ins lyki fyrir aldamót. Liður í þeirri
áætlun var sú ákvörðun að taka
brúna yfir Jökulsá á Dal inn í fram-
kvæmdaátak ríkisstjórnarinnar. Sú
brú verður tekin í notkun á allra
næstu mánuðum. Síðasta ríkis-
stjóm hugsaði sér, að sú fram-
kvæmd yrði látin bíða aldamótanna.
í umræðunum á Alþingi á dögunum
lýsti Jóhannes Geir Sigurgeirsson
að vísu yfir stuðningi sínum við
tó
<
Q
O
CL
veginn yfir Möðrudalsöræfi; — „ég
hins vegar óttast það,“ sagði hann,
„að með einstrengingslegum vinnu-
brögðum og strákslegu orðfæri,
þegar kemur að umræðu um þetta
mál, sé hæstvirtur samgönguráð-
herra að tefja fyrir og skemma fyr-
ir rnálinu."
Það er ekki gott í efni, ef satt
er, en bót í máli að mér heyrist
þingmaðurinn segja: „Nefndu mig
ef þér liggur lítið við. Ég heiti Jó-
hannes Geir.“
Nú hefur það ennfremur gerst,
að stjórn Verkalýðsfélags Húsavík-
ur samþykkti 4. októ-
ber sl. ályktun, sem
ekki verður skilin öðru
vísi en svo, að hún vilji
ekki bundið siitlag milli
Mývatnssveitar og Eg-
ilsstaða í fyrirsjáan-
legri framtíð. Áður
skuli slíkur vegur iagð-
ur með ströndum fram
um Melrakkasléttu og
Vopnafjörð til Egils-
staða.
Nú er sjálfsagt að
reyna að gera sér grein
fyrir hvernig þessar
hugmyndir horfa við
Norðurlandskjördæmi
eystra. Ólokið er 43 km
frá Námaskarði að Biskupshálsi,
sem kostar 400 millj. kr. Af því
greiðist 30% af kjördæmafé eða 120
millj. kr., en eftirstöðvarnar af stór-
verkefnafé. Á vegaáætlun eru 133
millj. kr. til þessa verks á árunum
Halldór Blöndal
1995 og 1996.
Vegurinn frá Bisk-
upshálsi að Skjöldólfs-
stöðum kostar 800
millj. kr. Þar af kostar
Háreksstaðaleið, ef
farin verður, 400 millj.
kr.
Strandaleiðin um
Melrakkasléttu og
jarðgöngin í Jökulsár-
hlíð kostar á hinn bóg-
inn 4-4,5 milljarða
króna og er 200 km
lengri. Mér liggur við
að halda, að stjórn
Verkalýðsfélags Húsa-
víkur sjái það fyrir sér,
að nokkuð verði farið
að halla á næstu öld áður en til
þess komi, að bundið slitlag verði
lagt milli Norður- og Austurlands.
Höfundur er samgönguráðherra.
Hjá okkur færðu allt
sem þarf til að skapa fegurð
og samræmi á heimilinu.
Þjónusta • Hönnun* Ráðgjöf • Tilboð
Eigið saumaverkstæði
Úrval vandaðra og góðra efna
mmn
FYRIR H EIMIIIÐ
A besta stoö i bœnum
SKIPIIOLT 17A • 105 REVKJAVIK • SIAIl 91-12323