Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.10.1994, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Æ ÞJOÐLEIKHUSIÐ sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00: • VALD ÖRLAGANNA eftir Giuseppe Verdi Fös. 25. nóv., uppselt, sun. 27. nóv., uppselt, - þri. 29. nóv., nokkur sæti laus, - fös. 2. des., uppselt, - sun. 4. des., nokkur sæti laus, - þri. 6. des. - fim. 8. des. - lau. 10. des., örfá sæti laus. Ósóttar pantanir seldar daglega. • GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Á morgun lau., örfá sæti laus, - sun. 16. okt. - fim. 20. okt., nokkur sæti laus, - iau. 22. okt, nokkur sæti laus, fim. 27. okt. • GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman ( kvöld - fös. 21. okt. - fös. 28. okt. - lau. 29. okt. Litla sviðið kt. 20.30: • DÓTTIR LÚSIFERS eftir William Luce í kvöld, uppselt, - á morgun lau., örfá sæti laus, - fim. 20. okt. - lau. 22. okt. Smíðaverkstæðið kl. 20.00: • SANNAR SÖGUR AF SÁLARLÍFI SYSTRA eftir Guðberg Bergsson í leikgerð Viðars Eggertssonar. í kvöld - þri. 18. okt. - fös. 21. okt. - fös. 28. okt, örfá sæti laus, - lau. 29. okt. Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Græna linan 99 61 60 - greiðslukortaþjónusta. STÓRA SVIÐIÐ KL. 20: • LEYNIMELUR 13 eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage. Sýn. í kvöld, lau. 15/10, fim. 20/10, lau. 22/10. • HVAD UM LEONARDO? eftir Evald Flisar Frumsýning fös. 21/10, 2. sýn, sun. 23/10, grá kort gilda. ISLENSKA LEIKHÚSIÐ • BÝR ÍSLENDINGUR HÉR — minningar Leifs Muller. Sun. 16/10 aðeins þessi eina sýning. LITLA SVIÐIÐ KL. 20: • ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson Sýn. i kvöld uppselt, lau. 15/10 uppselt, sun. 16/10, uppselt, mið. 19/10 upp- selt, fim. 20/10 uppselt, lau. 22/10, sun. 23/10, þri. 25/10 uppselt, fim. 27/10, örfá sæti laus, fös. 28/10, lau. 29/10, fim. 3/11 uppselt, fös. 4/11 örfá sæti laus, lau. 5/11. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. kl. 13-20. Miðapantanir í síma 680680 frá kl. 10-12 alla virka daga. Munið gjafakortin, vinsæl tækifærisgjöf! LEIKFELAG AKUREYRAR • KARAMELLUKVÖRNIN Sýn. sun. 16/10 kl. 14, þri. 18/10 kl. 17, fim. 20/10 kl. 16. Örfá sæti laus. • BarPar sýnt í Þorpinu Sýn. í kvöld kl. 20.30, lau. 15/10 kl. 20.30, fös. 21/10 kl. 20.30, lau. 22/10 kl. 20.30. Takmarkaður sýningafjöldi. Miðasalan opin dagl. kl. 14-18, nema mánud. Fram að sýningu sýningar- daga. Sími 24073. # á tilboðsverði kl. 18-20, ætlað leilíhilsgestum, áaðeinskr. 1.860 Skólflbril Borðapantanir í síma 624455 ÍSLENSKA LEIKHÖStD „BÝR ÍSLEHDINGUR HÉR“ Borgarleikhúsið sunnud. 16. okt. kl. 20.00. Ath. aðeins þessa eina sýning Uppl. í síma 680 680 KaffiLeihhnsib Vesturgötu 3 IHLAÐVARPANUM r 4 . aýníllg ap a 2i. okt 5 • aýnillg 28. okt. Sérstakt tilboð á leiksýningu Og kvOldverö: aðeins l4oO ámallun. Eitthvað OSagt 2. aýning l5. okt. 3. sýHing 20. okt. I Allar sýningar hefjast kl. 81.001 Sýnt f íslensku óperunni. Sýn. í kvöld kl. 20, örfá sæti. Sýn. í kvöld kl. 23, örfá sæti. Lau 15/10 kl. 24, örfá sæti. Bjóðunt fyrirtækjum, skólum og stærri hópum afslátt. Ósóttar pantanir eru seldar 3 dögum fyrir sýningu. Miðapantanir í símum 11475 og 11476. Ath. miðasalan opin virka daga frá kl. 10-21 og um helgar frá kl. 13-20. Ath. Sýningum fer fækkandi! -kjarni málsins! FÓLK í FRÉTTUM Bjöggi í fínu formi Safnplata frá Sade ►BRESKA söngkonan Sade send- ír frá sér safnplötu í október með vinsælustu lögum sínum í gegnum tíðina. A geislaplötunni verða lög sem spanna tíu ára feril hennar, meðal annárra „Your Love Is King“, „Diamond Life“ sem var heilar 98 vikur á breskum vin- sæidalistum, „Smooth Operator", „Love is Stronger Than Pride“ og „No Ordinary Love“. Plötur Sade, sem er fyrrum listaskólanemi, hafa selst í 27,5 milljónum eintaka um allan heim. Safnplötunni verð- ur fylgt eftir með útgáfu á mynd- bandi frá tónleikum söngkonunn- ar í San Diego. Robin Williams í ævintýrum ► ROBIN Williams hefur ákveðið að leika aðalhlutverkið í ævintýra- myndinni Jumanji, sem gerð verð- ur á næstunni og fjallar um ofvax- inn dreng. Robin Williams er nú vinsælli en nokkru sinni fyrr eftir hina miklu velgengni sem myndin um Mrs. Doubtfire naut og fyrir hlutverk Jumanjis fær Williams 15 millj- ónir dala, rúman milljarð króna, og ágóðahiut að auki. Eins og launa- kjör Williams sýna verður ekkert til sparað við gerð myndarinnar og segir sagan að auk þess verði mikið lagt í hvers konar tæknib- rellur við gerð myndarinnar en tökur hefjast nú í haust. Jumanji fjallar um lítinn dreng sem lendir í þeim álögum að fest- ast í einhvers konar slönguspili og ráfa þar um í 25 ár eða þar til tveir drengir leysa hann úr álögunum. Með tímanum hefur drengurinn eðlilega stækkað en er samt lítið breyttur og nú bíður hans það erfiða verkefni að bjarga sínum heimabæ frá því að lenda í klóm þeirra óargardýra sem elta hann úr heimi spiisins og yfir í raunveruleikann. „Robin er fullkominn í hlutverk- ið og það verður dásamlegt að sjá í myndinni þegar hann snýr til baka úr spilinu og heim til sín. M0GULEIKHUSI0 uið Hlemm Barnasýningar Laugardagur 15. okt. kl. 15.00 Furðuleikhúsið sýnir HLINA KÓNGSSON Sunnudagur 16. okt. kl. 15.00 Möguleikhúsið sýnir UMFERÐARÁLFINN MÓKOLL 121. sýning. Sími 622669 allan sólarhringinn. SKEMMTANIR llólcl ísland ÞÓ LÍÐIÁROGÖLD Björgvin Halldórsson lítur yfir dagsverkið sem dægurlagasöngvari í aldarfjórðung BJÖGGI er einn sá besti. Um það er varla hægt að efast eftir að hafa horft á skemmtidagskrána „Þó líði ár og öld“ á Hótel íslandi, en þar fagnar Björgvin Halldórsson 25 ára söngafmæli sem dægurlagasöng vari. Frá því Björgvin kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir 25 árum hefur hann verið í fremstu röð ís- lenskra dægur- lagasöngvara, sama á hvaða tón- listarsviði hann hefur reynt fyrir sér. Hann var kos- inn Poppstjarna íslands 19 ára, hefur síðan sungið kántrítónlist, létt popp, negrasálma, bamalög, rokk og voldug dægurlög en þar nýtur rödd Björgvins sín einna best. Rætur Björg- vins sem tónlistar- manns virðast liggja frekar í sí- gildri dægurlaga- hefð en poppi eða rokki og Björgvin undirstrikaði þetta raunar á Hótel ís- landi með því að syngja syrpur af lögum Hauks Morthens, Nat King Coles og Elvis Presleys. En sjálfur hefur hann hljóðritað yfir 400 lög á ferli sínum og á söng- skemmtuninni mátti heyra þversnið af þeim. Björgvin var i fínu formi á frum- sýningunni síðasta laugardag og fór létt með að bera uppi tæplega tveggja tíma skemmtidagskrá. Sig- ríður Beinteinsdóttir söng með hon- um í nokkrum lögum og hafði hress- andi áhrif á sýninguna. Þá fékk Björgvin óvæntan gest, söngvarann Donovan sem söng eitt lag. Hljómsveitin sem Gunnar Þórðarson stjórnaði var ekki síðri en söngvararnir enda valinn maður í hveiju rúmi. Jóhann Helgason og Erna Þórarinsdóttir sungu bakradd- ir óaðfinnanlega að venju. I nokkrum lögum dönsuðu tvær stúlkur í kringum Björgvin, og þótt þær hafi gert það vel fannst undirrit- uðum dansinn ekki bæta neinu við flutning laganna. Þá var textinn sem Jón Axel Ólafsson fór með í kynning- um milli laga held- ur hástemmdur og raunar spurning hvort yfirleitt sé þörf á sérstökum kynni þar sem Björgvin og Sig- ríður sáu einnig ágætlega um þá hlið mála. En framrtiistaða tón- listarmannanna yfirgnæfði þetta og sýningin fær því hin bestu með- mæli. Áhorfendur á Hótel íslandi virt- ust á sama máli, en húsfyllir var á frumsýningunni. Sjálfsagt hafa ein- hvetjir, sem gerðu allt vitlaust í Laug- ardalshöllinni eða á Klambratúni árið 1969, setið þarna í salnum. Þeir hafa, eins og Björgvin, heldur stillst og þroskast síðan, þótt Björgvin hafi ekki fengið síðri viðtökur þeirra nú aldarfjórðungi síðar, ef látbragð- ið er lagt undir annað mæliker. Guðm. Sv. Hermannsson ,\V IV' ii 01 ÍAff'*g f// u0 iUi£rcíc)i aooou OT' I október Villibráðarhlaðborð okkar um síðustu helgi vakti mikla hrifningu og við þöklcum frábærar viðtökur. Nú endurtökum við leikinn! Gestgjafi verður Rúnar Guðmundsson matreiðslumeistari. Halldór Gunnarsson (Þokkabót) leikur á píanóið föstudags- og laugardagskvöld. Njótið lífsins yíir úrvalsréttum úr íslenskri náttúru. Borðapantanir í síma 17759 Veitingahúsið Naust ■l/rf/)f//- //trr) .irfl Robin Williams Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞÓ líði ár og aldarfjórðung- ur stendur Björgvin Hall- dórsson á sviðinu og syngur fyrir þakkláta áhorfendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.