Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 2

Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 2
FRETTIR Milljónatjón af völdum vatns og aurs í vatnavöxtum í Siglufirði í fyrrinótt Flæddi inn í þrjú hús og' vegur lokaðist Siglufirði. Morgunblaðið. MILLJÓNATJÓN vegna aur- og vatnsflaums varð í fyrrinótt í Siglu- firði. M.a. flæddi inn í þijú íbúðarhús, frárennslisrör bæjarins stífluð- ust og þjóðvegurinn til Siglufjarðar lokaðist um tíma vegna aurs. Gríðarleg úrkoma varð í fyrrinótt í Siglufírði. Mældist hún 80 mm á 15 klst. og er þetta með mestu úrkomu frá því að mælingar hófust. Menn urðu fyrst varir við að farið var að flæða inn í hús um kl. hálffjögur um nóttina og voru bæjarstarfsmenn þá þegar kvaddir til vinnu. Unnu þeir í allt að sólar- hring sleitulaust. Þettá hófst er litl- ar aurskriður tóku að falla og stifla niðurföll bæjarins. Svpkallaður Hafnarlækur rann yfir bakka sína og flæddi um götur og garða og eru lóðir víða illa farnar og skemmdar vegna aurs og leðju sem barst með læknum. upp einhverjar götur til að ná að hreinsa kerfið. Holræsabíll var fenginn frá Ólafsfirði. Xjónið bætt Holræsakerfið stíflaðist Skemmdir urðu talsverðar í þremur húsum þar sem flæddi inn á teppi og parket. Malbikað plan við Höfn skolaðist hreinlega burt. Að sögn Björns Valdimarssonar bæjarstjóra á Siglufirði er aðaltjón- ið þó í holræsakerfi bæjarins sem er nú mjög víða stíflað af eðju og aur og nemur það tjón milljónum króna. Það hefur gengið frekar illa að hreinsa holræsakerfið og búist er við að þurfi jafnvel að brjóta Að sögn Bjöms mun Viðlaga- sjóðstrygging greiða kostnað vegna tjóns sem varð á holræsa- kerfinu og hreinsun á því og einnig mun Viðlagasjóður greiða skemmd- ir á þeim húsum sem eru bruna- tryggð. Ljóst er að mikil vinna er framundan hjá bæjarstarfsmönn- um við að hreinsa bæinn. Þjóðvegurinn til Sigluíjarðar lok- aðist um tíma sl. nótt er umtals- verðar aurskriður féllu á tíu stöðum á veginn. Mest var um skriður á leiðinni frá gangamunna að vestan og inn að svokölluðum Mánárskrið- um, en vegurinn var orðinn vel fær öllum bílum upp úr klukkan níu í morg-un. Að sögn Hreins Júlíusson- ar hjá Vegagerð ríkisins tók að snjóa upp úr hádegi og því festist jarðvegurinn betur og er því lítil hætta á ferðum nú. Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir AURSKRIÐUR féllu á tíu stöðum á þjóðveginn til Siglufjarðar. Úrkoman mældist um 80 miilimetrar á fimmtán klukkustundum og er það með því mesta frá því mælingar hófust. Víkiiigalottó Danir happa- sælastir DANIR hafa verið happasæl- astir Norðurlandaþjóða í Vík- ingalottói og fengið um 25% hærri upphæð til baka í vinn- inga en þeir hafa lagt til í fyrsta vinning. Nú síðast skiptu tveir Danir með sér fyrsta vinningi og komu 23,8 milljónir í hlut hvors þeirra. Bónusvinningur að verð- mæti 1,1 milljón gekk ekki út. Hins vegar skiptu fjórir með sér þriðja vinningi og komu 65.095 kr. í hlut hvers þeirra. Tvöhundruð þijátíu. og fjórir fengu §óra rétta og 1.770 kr. hver og áttahundruð fjörutíu og sex fengu þijá rétta og bónustölu og 210 kr. hver. Finnar fengið minnst Danir hafa látið um 1,5 milljarða af höndum rakna til fyrsta vinnings og fengið um 1,9 milljarða til baka. Mismun- urinn er um 400 milljónir eða um 25%. íslendingar koma næstir á eftir Dönum. Héðan hafa farið 73,1 milljón í fyrsta vinning og svipað hlutfa.ll, eða um 71,5 milljónir, komið til baka. Mismunurinn er því að- eins um 1,6 milljónir. Næstir á eftir okkur eru Norðmenn. Þeir hafa fengið 87,23% vinn- ingsfjár til baka. Svíar hafa fengið 82,32% til baka og Finnar minnst eða 73%. 2 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Fékk tund- urdufl í dragnótina GUÐMUNDUR Þór SU fékk tund- urdufl í dragnótina þegar báturinn var á veiðum í Reyðarfirði í fyrra- dag. Kom tundurduflið í dragnótina á um 70 faðma dýpi og vegna þyngsla tókst ekki að draga hana inn. Var þá haldið til hafnar og þar kom í ljós hvað var í nótinni. Sprengjusérfræðingar Landhelg- isgæslunnar, þeir Sigurður As- grímsson og Gylfi Geirsson, voru fengnir til að gera tundurduflið óvirkt, en sprengihvellhettan reynd- ist vera eins og ný þrátt fyrir að hafa verið rúmlega hálfa öld í sjó. . Morgunblaðið/Benedikt SERFRÆÐINGAR Landhelgisgæslunnar skoða tundurduflið. Bann við Smuguveiðum ekki talið rétta leiðin Nefnd geri tillögur um öryggismál í Smugunni AÐ TILLÖGU Halldórs Blöndals samgönguráðherra hefur verið skip- uð nefnd til að vinna tillögur eða skila greinargerð um áframhaldandi veiðar í Smugunni með tilliti til ör- yggismála. Þetta var niðurstaða fundar samgönguráðherra í gær með hagsmunaaðilum í sjávarútvegi og fleirum um öryggismál í sam- bandi við veiðar íslendinga í Smug- unni. Samgönguráðherra boðaði til fundarins að beiðni Sjómannasam- bands íslands og Farmanna- og fiskimannasambandsins. Halldór Blöndal sagði í samtali við Morgunblaðið að á fundinum í gær hefði hann gert grein fyrir því að í framhaldi af áskorun, sem bor- ist hefði um að veiðum í Smugunni yrði hætt yfir vetrarmánuðina, hefði verið fjallað um málið í samgöngu- ráðuneytinu, sjóslysanefnd, Sigl- ingamálastofnun, siglingaráði, Veð- urstofunni og sjávarútvegsráðu- neytinu og undirstofnunum þess. Ekki rétt að banna Á fundinum hefðu menn lýst skoðunum sínum á málinu, og þeir virtust vera sammála um að það væri ekki rétt leið að banna veiðar í Smugunni, en á hinn bóginn væri nauðsynlegt að reyna að gæta ýtrustu varúðar, endurskoða örygg- isreglur og bæta veðurþjónustu. „I lok fundarins bar ég fram þá tillögu að undir stjórn siglingamála- stjóra, Benedikts Guðmundssonar, myndi undirnefnd skipuð fulltrúum sjómanna, útgerðarmanna, Veður- stofu og sjávarútvegsráðherra vinna tillögur eða skila greinargerð um þetta áhyggjuefni og að við myndum síðan reyna að hittast í næstu viku,“ sagði Halldór. Auk fulltrúa samtaka sjómanna sátu fundinn með samgönguráð- herra fulltrúar útgerðarmanna, Veð- urstofunnar, Landhelgisgæslunnar, Siglingamálastofnunar, Slysavama- félagsins og umhverfisráðuneytis. Óhöpp SÖgð fylgja hverri uppsetn- ingu áValdi örlaganna „ÆFINGASTJÓRINN laum- aði því út úr sér rétt fyrir frumsýningu að þessari óperu fylgdu gjarnan ákveðnir örð- ugleikar hvar sem hún væri sýnd svo okkur létti,“ segir Stefán Baldursson þjóðleik- hússtjóri í samtali við Morg- unblaðið, en heyrst hefur að sýningar á óperunni Valdi örlaganna hafi ekki gengið alveg snurðulaust fyrir sig. „Við höfum verið að henda gaman að þessu, en það hafa elt okkur ýmis óhöpp í kring- um sýninguna, meiðsl, veik- indi og fleira. Til dæmis meiddist Kristján Jóhannsson í skylmingum á einni af loka- æfingunum og svo urðum við að fella niður eina sýningu þegar hann missti röddina vegna veikinda," segir Stefán. Brotnaði í slagsmálum „Og söngvarinn Keith Reed, sem ráðinn var á móti Norð- manninum Trond Halstein Moe, til að syngja á þremur síðustu sýningunum, meiddist í þeirri fyrstu. Það gerðist í slagsmálaatriði þar sem hon- um var kastað fram ogtil baka, meðal annars í gólfið. Hann fingurbrotnaði og marð- ist eitthvað en kláraði sig í gegnum sýninguna. Þetta var rétt fyrir hlé, þannig að það var bundið um fingurinn á Morgunblaðið/Krístínn honum það sem eftir var sýn- ingar. Síðan fór hann upp á slysavarðstofu þar sem kom í ljós að hann hafði brotnað, eða brákast mjög illa á þumal- putta á hægri hendi og átti því erfitt með að skylmast á hinum sýningunum, en kláraði það þó,“ segir hann. „En við erum að verða öllu vön. Það er sagt að þessari óperu fylgi ákveðnir örðug- leikar. Hún hefur það orð á sér í óperuheiminum, líkt og Macbeth í leikhúsunum. Þegar æfingastjórinn okkar, Peter Locke, vann við uppsetningu á sömu óperu í Feneyjum fyr- ir nokkrum árum gekk á ýmsu, til dæmis fótbrotnaði tenórinn í sýningunni og einn- ig kviknaði í húsinu,“ segir Stefán. Óperan verður flutt átta sinnum í viðbót og hefjast sýn- ingarnar aftur 25. nóvember en uppselt er á þær flestar að sögn Stefáns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.