Morgunblaðið - 14.10.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.10.1994, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ VATNAVEXTIR I SVARFAÐARDAL Morgunblaðið/Rúnar Þór Svarfaðardalsá flæddi yfir bakka sína eins og í mestu vorleysingum Búfénaði bjarg- að með aðstoð björgunarsveita TÍU hross þar af tvö folöld lentu í nokkrum hrakningum þegar Svarfaðardalsá flæddi yfir bakka sín í geysimiklum leysingum í gær. Um klukkutíma tók að ná hrossunum í land með aðstoð félaga úr Björgunarsveit Slysavarnafélags íslands á Dalvík, en áður höfðu þeir unnið við að ná hópi kinda sem flætt hafði að neðan við bæinn Grund. Einn þeirra skrámaðist í andliti þegar hann skall ofan á bens- íntank gúmbáts sem þeir voru á þegar brot reið yfir bátinn. „Mér var að verða svolítið kalt, aðeins að byija að kólna á löppun- um,“ sagði Zóphanías Jónmunds- son á Hrafnsstöðum sem við annan mann fór á dráttarvél út á bakk- ana að ná í hestana. Hann reyndi til að byrja með að reka hrossin af flóðasvæðinu en tókst ekki fyrr en aðstoð barst frá björgunarsveit- armönnum sem komu að með gúmbát. Tvö þeirra, eitt fullorðið og folald, lentu út í ánni en tókst að krafla sig að landi. Eins og vorleysingar „Ég er búinn að hafa hestana þarna á bökkunum neðan við bæinn frá því fyrri hlutann í september og átti alls ekki von á þessu, ég man ekki eftir svona flóðum í ánni að hausti til, þetta er eins og mestu vorleysingar það fór allt á kaf,“ sagði Zóphanías, en í þann klukkutíma sem þeir voru á bökkunum taldi hann að flætt hefði um hálfan metra að dráttarvélinni. „Við áttum ekki von á að vatnið væri svo djúpt þannig að við tókum ekki með okkur beisli þarna út, þá hefðum við getað teymt eitthvert hross- anna að landi og hin fylgt á eft- ir,“ sagði hann. Folöldin sem voru í hópnum stóðu sig að sögn vel, en hross þola vatn ekki sérlega vel og hafa til að mynda mun minna úthald en kýr. Eftir volkið voru hrossin sett í hús og hlúð að þeim. Félagar úr Björgunarsveit Slysavarnafélags íslands á Dalvík voru kallaðir út til aðstoðar nokkru fyrir hádegi en þá hafði flætt að hópi kinda á bökkunum neðan við bæinn Grund í Svarfaðardal. Að sögn björgunarsveitarmanna gekk vel að ná kindunum í land, en þær voru 38 talsins. Þær stóðu í nokk- uð djúpu vatni er að var komið en vatnið í ánni var í örum vexti allan gærmorguninn. Kindurnar voru reknar yfir álana og beindu björgunarsveitarmenn þeim stystu leið yfir að landi. Laugartíaginn 15. oktober KKD - UMFC - FE5TI MtífurstaKmarh 1B ár Vegurinn grófst í sundur við brúna STÓRT stykki grófst undan vegin- um við brúna yfir að Koti í Svarfað- ardal í gær og var stórgrýti keyrt í skarðið þannig að undir kvöld var búið að fylla upp í það og bærinn kominn í vegasamband á nýjan leik. „Við tókum eftir því um áttaleyt- ið í gærmorgun að þetta var að byrja og létum mjólkurbílstjórann vita að vegurinn væri að byija að grafast í sundur við brúna,“ sagði Anna Lísa Stefánsdóttir á Koti en það má segja að rétt hafi sloppið tíl að mjólkurbíllinn kæmist yfir áður en vegurinn lokaðist. Hún sagði að þegar skólabíllinn hefði komið að hefðu vatnavextir ágerst mjög í ánni en síðan upp úr hádegi hefði stórt stykki við brúna grafist burtu og þar með hefði bærinn farið úr vegasambandi. „Það var 10 stiga hiti hér í gær- morgun, hlýtt í veðri og mikil rign- ing, en strax eftir hádegi var hitinn kominn í tvö stig og vatnið í ánni fór þverrandi eftir því sem kóln- aði,“ sagði Anna Lísa. „Það er langt í frá að þetta angri mig, en ég vona auðvitað að þetta gerist ekki aftur,“ sagði hún en bætti við að svipaður atburður hefði átt sér stað árið 1985. Litlu munaði að skriða lenti á húsi Steypt- ist fram eins og- snjóflóð „ÞAÐ urðu ægileg djöfulsins læti þegar skriðan steyptist eins og snjóflóð fram af klett- unum,“ sagði Hallur Stein- grímsson bóndi á Skáldalæk í Svarfaðardal en hann varð vitni að því er skriða féll nið- ur hlíðarnar, yfir veginn og niður á tún skammt frá bæn- um Hreiðarstöðum í Svarfað- ardal í gærmorgun. Hann var í allan gærdag með hjóla- skóflu á svæðinu til að halda veginum opnum. Munaði litlu „Það munaði ekki nema um hálfum metra að skriðan lenti á íbúðarhúsinu, en hún sveigði rétt framhjá og niður eftir öllu túninu,“ sagði Hall- ur og bætti við að hann hefði naumlega getað stöðvað skólabílinn áður enn hann keyrði inn í skriðuna. „Ég sá þegar stærsta skriðan kom æðandi niður hlíðina rétt í þann mund sem skólabíllinn kom að, sem betur fer gat ég gefið bílstjóranum merki þannig að hann stöðvaði bíl- inn, en hann hefði annars lent inni í miðri skriðunni,“ sagði Hallur. Hann sagði að fyrsta spýj- an hefði komið úr fjallinu kl. 7.30 í gærmorgun og síðan hefðu smáskriður verið að falla fram eftir degi, sú stærsta um kl. 9.30 skömmu áður en skólabíllinn var á ferðinni en síðdegis hefði far- ið að hægjast um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.