Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 36

Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 + Rudold Thorar- ensen fæddist f Berlín í Þýskalandi 4. desember 1937. Hann lést 5. október síðastliðinn. Hann var sonur Mariu Brose og Ragnars Skúla Thorarensen. A barnsaldri missti hann móður sína, en faðir hans var þá búsettur á íslandi. Vegna heimsstyrj- aldarinnar síðari var engin Ieið fyrir föð- ur hans að sækja drenginn til Berlín- ar fyrr en einu og hálfu ári eft- ir móðurmissinn. Sendiherra Is- lands í Berlín tók drenginn inn á sitt heimili á meðan þetta ástand varði. Árið 1947 komst Ragnar til að ná í barnið. Þeir feðgar fóru síðan til Islands og Rudolf ólst upp hjá föður sínum og föðurömmu, Louise Marie. Þau eru bæði látin. Rudolf ELSKU pabbi minn. Hvað get ég sagt? Hvað get ég gert? Ég sit sem lömuð og horfi á blaðið og tárin blinda mig. Mikið eigum við eftir að sakna þín, brand- aranna þinna, flautsins, sem allir þekktu og vissu að einkenndi þig, og létta skapsins. Þú varst með skipulagðari mönn- um og kenndir mér það. Þú varst einn af þeim sem gerðir kröfur til þeirra sem þú umgekkst en þó aldr- ei eins miklar og til sjálfs þín. Alltaf varstu boðinn og búinn að rétta fram hjálparhönd, sama hvað um var beð- ið, stórt sem smátt. Snyrtimennska þín var þér í blóð borin, það er sama hvert litið er, allt snyrtilegt og skipu- lagt. Elsku pabbi minn, stórt skarð hefur verið höggvið í okkar litlu íjöl- skyldu með fráfalli þínu og ekkert fær því breytt, en ég vil trúa því að við hittumst einhvem tíma aftur þó að þú tryðir nú ekki á neitt slíkt. Megi góður Guð gefa okkur styrk til að komast í gegnum sorgargöng- kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Eddu Emilsdóttur, f. 15. október 1941, í júlí 1963. Þau eign- uðust eina dóttur, Stellu Maríu Thor- arensen, f. 1960. Hún er gift Skúla Agústssyni. Börn þeirra eru Ragnar Már, f. 1982, Edda Rós, fædd 1987, og Ástrós, f. 1991. Ru- dolf starfaði sem léttadrengur á Gull- fossi á unglingsár- um og sigldi um heimsins höf og minntist hann oft þeirra ferða. Síðar starfaði hann hjá Pósti og síma í Kefla- vík um árabil, samhliða starfi hjá Slökkviliði Keflavíkurflug- vallar. Nú hin síðari ár gegndi hann eingöngu starfi við slökkviiiðið. Utför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag. in og sérstaklega elsku mömmu. Ég kveð þig nú, elsku pabbi, með sár í hjarta. Nú til þín, faðir, flý ég, á föðurhjartað kný ég, um aðstoð ég bið þig. Æ, vert með mér í verki, ég veit þinn armur sterki í stríði lífsins áyður mig. En verði, Guð, þinn viiji, þó veg þinn ei ég skilji, ég fús hann fara vil. Þó böl og stríð mig beygi, hann brugðist getur eigi, hann leiðir sælulandsins til. (Guðm. Guðm.) Þín einkadóttir, Stella María. Kveðja til afa Við kveðjum þig, kæri afi, og minnumst hinna kærleiksríku stunda er við áttum með þér. Margrs er nú að minnast á þessari kveðjustund. Við drúpum höfði hljóðlát er þú kem- ur á Guðs þíns fund. Ragnar Már, Edda Rós og Ástrós. Komin er kveðjustund. Þessu sinni kveðjum við mág minn, Rudolf, góð- an og glaðværan dreng, sem nú fer í þá ferð sem bíður okkar allra, en bara alltof snemma — hann var að- eins 56 ára gamall. En erum við nokkurn tímann tilbúin þegar ástvin- ur er kallaður í burtu — ég held ekki. Þegar ég var látin vita að mágur minn, Rúdi, eins og hann var kallað- ur, væri dáinn kom yfír mig ein- hvers konar doði, ég skildi þetta ekki almennilega og verð örugglega lengi að átta mig til fulls á þvf. Hann hafði farið til vinnu sinnar þennan morgun glaður og hress að vanda, en dáinn nokkrum klukku- stundum síðar. Ég sat eftir þetta símtal í doða og undrun, en sjálfsagt síast þetta endanlega inn með tíman- um. Kynni okkar hófust 1958 er hann trúlofaðist systur minni og fluttist til Keflavíkur. Frá fyrstu tíð urðum við góðir vinir svo aldrei bar skugga á og eiginmenn okkar systra góðir félagar uns yfir lauk. Áttum við saman margar góðar stundir á heim- ilum hvort annars og eins á ferðalög- um heima og erlendis. Hann hafði skemmtilega kímni- gáfu og gerði sífellt að gamni sínu og gat alltaf komið fólki til að hlæja, bömum sem fullorðnum. Þegar hann var í fjölskylduboðum, jafnvel þar sem allir þekktust ekki eða sáust sjaldan, varð hann fljótt miðjan í hópnum fyrir kímni sína og hláturinn hristi fólkið saman. Snyrtimennska hans var einstök og áttu þau hjónin afar fallegt heim- ili þar sem gott var að koma. Svo var og um alla þá hluti sem hann umgekkst, allt bar það vott um ein- staka snyrtimennsku. Starfí sínu hjá Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli var hann afar stoltur af og setti allan sinn metnað í að sinna því sem best hann mátti og efast ég ekki um að þar var hann sami fullkomnunarsinninn sem og á öðrum sviðum, hvergi mátti vera blettur eða hrukka. En núna var uppskerutíminn í lífi hans. Hann átti þijú yndisleg barna- börn sem hann elskaði afar heitt, en er nú kallaður burtu frá þeim, frá yndislegri dóttur og tengdasyni, sem hann unni sem hans sonur væri og eiginkonu. En hans hljóta að bíða áríðandi störf á öðrum stöðum sem okkur eru ókunnir, fyrst hann var kallaður í burtu svona skyndilega. Árið 1985 fékk hann fyrst þann sjúkdóm sem nú leiddi hann til dauða. En þá fékk hann góðan bata sem entist í nokkur ár. En fyrr á þessu ári fór sjúkdómurinn að gera vart við sig aftur, en Rúdi fór dult með það og lét ekki á neinu bera — alltaf sama glaðværðin. Hreifur fram á hinstu stund hann um mein sitt þagði, faldi sína opnu und undir glöðu bragði. (St. G. St.) Á þessari kveðjustund viljum við, ég og fjölskylda mín, þakka þér, Rúdi kæri vinur, fyrir samfylgdina og þér, Edda mín, Stellu Maríu, Skúla og afabörnum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Emilía S. Emilsdóttir. Þegar mér barst sú harmafregn að Rudolf Thorarensen væri látinn reikaði hugurinn yfír farinn veg og þeirra góðu kynna sem ég varð að- njótandi af hálfu þeirra hjóna Eddu og Rudolfs. Ég kynntist Stellu einkadóttur þeirra hjóna á unglingsárum mínum. Alltaf fékk ég góðar móttökur á heimili vinkonu minnar og minnis- stæðar eru stundimar sem ég og Stella sátum með kalda mjólk og djöflatertu og spjölluðum við Eddu og Rudolf. Rudolf var einstakur ná- kvæmnismaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Það var alveg sama hvort hann annaðist bílinn sinn eða tók sér pensil í hönd, öll hans verk voru vel unnin. Frásagnarsnilld Ru- dolfs var mikil og oft var glatt á hjalla þegar hann hafði orðið. Hann talaði oft um að hann vildi lifa lífínu _________________MIMMIMGAR RUDOLF THORARENSEN SVERRIR EINARSSON + Sverrir Einars- son fæddist í Reykjavík 3. októ- ber 1933. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 6. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðfinna Jó- hannsdóttir (f. 1903, d. 1980) og Einar Ingvar Pálsson (f. 1900, d. 1984). Systkini Sverris eru: Sigríður, f. 1922, Jónas, f. 1925, d. 1926, Jóhann, f. 1927, d. 1992, Jónas Haukur, f. 1929, d. 1983, og Hjördís, f. 1938. Eftirlifandi eig- inkona Sverris er Katrín Elsa Jónsdóttir, f. 6. júní 1936 í Innri- Fagradal í Dalasýslu, áður gift Ragnarí P. Bjarnasyni, f. 1932, d. 1958. Saman áttu þau tvö börn, sem Sverrir gekk í föð- urstað, Bjarna Ragnarsson, f. 1954, og Ölmu Ragnars- dóttur, f. 1955. Dæt- ur Sverris og Katr- ínar eru Anna Mar- ía, f. 1959, og Guð- finna Inga, f. 1962. Barnabörin voru fjögur, Melissa Katrín, Brynja Björk, Gísli Ragnar og Sverrír Tómas. Sverrir Einarsson starfaði mestan hluta ævi sinnar í Nýju blikk- smiðjunni hf. sem blikksmiður, en tók síðan við starfi föður síns sem forstjóri árið 1983. Útför hans verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag. MIG LANGAR í stuttu máii að kveðja föður minn, Sverri Einarsson. Ég var vön að nefna hann „pása minn“. En núna er hann „pási“ far- inn frá okkur, en á yndislegan stað þar sem ríkir ljós og friður. Pabbi var mikið fyrir einfaldleikann og vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér. Hann var mjög líkur föður sínum, Einari Pálssyni, sem ég veit að hefur opnað fyrir honum himnahliðið þegar hann skildi við. Líkt og afi opnaði alltaf hliðið fyrir okkur þegar við vorum í sumarbústaðnum okkar á Þingvöll- um. Einar sælustu minningar mínar um pabba eru einmitt tengdar sum- arbústaðnum. Hann var mjög laghentur og lék flestallt í höndunum á honum og útkoman var sannkölluð „lista- smíði“. Þegar ég hugsa um hann sé ég hann fyrir mér lítinn og smágerð- an. Hann var svo ósköp fínlegur og alltaf svo snyrtilegur. Hann var mik- il tilfinningavera og viðkvæmur, en það var einmitt það sem gerði hann svo hlýlegan og einlægan. Hann var heiðarlegur og sérstaklega hvað varðaði fjármál og var hann mér og systkinum mínum fyrirmynd í þeim málum. Við áttum oft góðar stundir í eldhúskróknum í „Hvassó“, þegar pabbi lagði hönd undir kinn og horfði íhugull á mig og umræðuefnið var oftast um lífið og tilveruna og and- leg málefni. Ekki vorum við alltaf sammála, en skilningur hans leynd- ist í djúpu augnaráði þegar hann strauk á sér hnakkann um leið og hann sagði: „Lífíð er einn skóli, við erum alltaf að læra.“ Eftir það stóð hann yfírleitt upp frá eldhúsborðinu og kvaddi mig með kossi á kinn og faðmlagi. Núna hefur hann yfirgefíð jarð- neskt líf og er kominn á æðra tilveru- stig og við munum halda áfram að spjalla saman. En það er söknuð- urinn eftir manneskjunni sjálfri. Hláturinn hans, bilin á milli tann- anna þegar hann brosti, þegar hann hnerraði, allir „kækimir", hans sér- staka lag á að elda góðan físk, frétt- imar í útvarpinu, reiknivélin uppi á skrifstofu, tölvan, gráa úlpan og hatturinn og bláu joggingbuxumar. Elsku „pási minn“, ég veit að þú verður alltaf hjá okkur og fylgist með þegar við erum að fást við lífíð og tilveruna. Og það er mín trú að sálin haldi áfram að þroska sig á æðra tilverustigi og við höldum áfram að læra. Þannig að skólagang- an er endalaus. Ég kveð föður minn með erindum úr ljóði Sigurbjöms Einarssonar sem heitir „Mig dreymdi mikinn draum". En þetta ljóð ásamt fleiri ljóðum og ritningum gaf ég honum á blöðum sem lágu á hillu við hliðina á skrif- borðinu hans og fannst mér það táknrænt að þetta ijóð lá þar efst ofan á bunkanum. Mig dreymdi mikinn draum: Eg stóð með Drottni háum tindi á og horfði yfir lífs míns leið, hann lét mig hvert mitt fótspor sjá. Þau blöstu við. Þá brosti hann. „Mitt bam“, hann mælti „sérðu þar, ég gekk með þér og gætti þín, í gleði og sorg ég hjá þér var. Hvíl þú í friði, pabbi minn. Þín, Guðfinna Inga. Ekkert varir að eilífu og einn daginn stöndum við frammi fyrir þeirri staðreynd, að tími góðra vina er liðinn. Hún kom fyrirvaralaust fregnin um að Sverrir frændi minn og vinur væri dáinn. Lífsganga okkar var samtvinnuð. Mæður okkar voru systur og vinkon- ur og mikill samgangur alla tíð. Sverrir lærði rafvirkjun, en staldr- aði stutt við í þeirri iðn, því hann fór að læra blikksmíði hjá föður sín- um, sem átti og rak Nýju blikksmiðj- una í Reykjavík. Konu sinni, Katrínu E. Jónsdótt- ur, kynntist hann árið 1958 og eru árin þeirra saman orðin 36. Þau eignuðust saman tvær dætur, auk þess gekk hann tveimur börnum Katrínar í föðurstað. Átta sinnum fórum við Sverrir ásamt konum okkar í sumarfrí út fyrir landsteinana og tókum á leigu sumarhús eða íbúð á yndislegum stöðum á meginlandi Evrópu. Við skoðuðum næsta nágrenni, hvíldum okkur frá daglegu amstri og nutum þess að vera saman. Þau hjónin voru góðir ferðafélagar og ljúf í samúð. Árið 1988 og aftur 1989 fengum við leigða íbúð við Bodensee, Þýska- landsmegin, hjá áttræðri konu, sem hafði í sinni umsjá fatlaða systur sína nokkru eldri. Þarna var gott að vera. Á kveðjustund voru teknar myndir. Þær eru skemmtilegastar myndirnar af Sverri, þar sem hann kveður systurnar og undir þær myndir höfum við skrifað: „Það þarf ekkert að vera fær í þýsku til að geta tjáð sig, þvl svona blíðu skilja allir.“ Hann kvaddi þessar góðu kon- ur á því alheimsmáli, sem hann kunni svo vel. Við frændurnir tókum upp á því, þegar við nálguðumst fímmtugsald- urinn, að læra að fljúga og rugluðum þá saman fjármálum okkar að hluta. Keyptum okkur saman flugskýli og deildum saman flugvélinni TF-NES. Nú flýgur hann ekki Nesinu oft- ar. Hann er farinn í lengri ferð. Ferðina sem við förum öll að lokum. Við Fríða og börnin okkar þökkum MORGUNBLAÐIÐ lifandi og það gerði hann svo sannar- ' lega. Það var gaman að fylgjast með ( Rudolf og Eddu þegar barnabörnin fæddust. Það var greinilegt að þau nutu þess að horfa á þessi yndislegu börn vaxa og dafna. Afastrákurinn hans líkist honum í mörgu og leitaði hann oft til afa síns. Síðastliðin ár hef ég oftast hitt Eddu og Rudolf á heimili dóttur þeirra og tengdasonar og það eru aðeins nokkrir dagar síðan við hitt- umst þar. Það er sárt til þess að 1 hugsa að það hafí verið í síðasta i sinn sem við sáum Rudolf. En þannig er þetta líf, við vitum aldrei hvenær kallið kemur. í mínum huga mun Rudolf bíða okkar hinum megin og segja okkur nokkrar grín- sögur þegar við hittumst að nýju. Elsku Edda, Stella, Skúli, Ragn- ar, Edda Rós og Ástrós, megi Guð vernda ykkur og styrkja í sorginni. Guðbjörg M. Sveinsdóttir og fjölskylda. Elsku hjartans Rúddi minn, nú kveð ég þig með döpru hjarta en ég veit að hinum megin mun Guð skína á þitt góða hjarta. Ég hefði ekki getað hugsað mér betri mág. í öll þau skipti sem ég heimsótti þig og Eddu systur tókst alltaf á móti mér með brandara og bros á vör og reyndir alltaf að koma öðrum í gott skap og var oft hlegið. Vertu sæll, elsku mágur, og megi Guð vera með þér og þinni fjölskyldu og okkur öllum á þessari stóru stund. Þín, Kolbrún og Harry. Að kvöldi dags 5. september 1994 hringdi síminn, sorgarfregn, hann Rudolf er látinn. Við vorum fæddir á sama árinu, 1937, ég í janúar, hann í desember. Við ólumst upp í sama hverfínu í Reykjavík, á Berg- staðastræti á mótum Laufásvegar og Hellusunds. Ég minnist Rudolfs alveg frá því við vorum um tíu ára gamlir í hverfinu þar sem við lékum okkur ekki beint saman en svona í grenndinni. Hann var alltaf sérstak- ur þannig að eftir honum var tekið fyrir hvað hann var vel klæddur og glettinn. Sérstaklega man ég eftir honum samfylgdina og óskum hon- um góðrar landtöku í nýjum heim- kynnum. Guð blessi Katrínu og bömin þeirra. Hans Linnet. Skjótt skipast veður í lofti, Sverr- ir mágur minn er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu. Er ég nú kveð hann, koma ýmsar minning- ar upp í hugann. Sverrir var bara 11 ára þegar ég kom fyrst á heim- ili foreldra hans, Guðfinnu Jóhanns- dóttur og Einars Pálssonar blikk- smíðameistara, með stóra bróður hans Jóhanni. Fljótlega tókst með okkur Sverri vinátta sem hefur alla tíð haldist þó oft hafí verið vík milli vina. Hann kom oft á heimili okkar Jóhanns og var góði frændinn í fjöl- skyldunni, sem börnin mín elskuðu. Þegar verið var að byggja Flóabúið á Selfossi var Sverrir að vinna þar og hann átti nú erindi þangað. Hann kynntist þar ungri ekkju, Katrínu Jónsdóttur, sem átti tvö lítil börn, Bjarna og Ölmu. Þau felldu hugi saman og gekk Sverrir börnunum í föður stað. Síðar eignuðust þau dæturnar Önnu Maríu og Guðfínnu Ingu. Öll eru börnin elskulegt fólk. Nú fyrir skemmstu stofnuðu Sverrir og Katrín ásamt ísak syni mínum og Ingu konu hans Nýju efnalaugina í húsakynnum Nýju blikksmiðjunn- ar, sem hafði verið starfsvettvangur allra bræðranna, en nú hafa þeir allir kvatt þetta jarðlíf. Minningin lifir um góðan dreng. Björg ísaksdóttir. í dag kveðjum við kæran vin, mág og svila. Sverrir Einarsson var mað- ur framkvæmda, rak ásamt bróður sínum blikksmiðju um árabil. Hann var lærður blikksmiður og rafvirki og þótti afburða góður fagmaður á sínu sviði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.