Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 39

Morgunblaðið - 14.10.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994 39 að eitt og annað í fari þeirra líktist nú ansi mikið fjörulöllunum hennar á Þingeyri. Þá var sú hugsun í óra- fjarlægð að þetta væri kveðjustund- in. Það er því með miklum trega, sem við kveðjum góða frænku allt • of snemma. Kæru Guðmundur, Guðrún, Edda og Gunnar. Við sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Agúst og Rafn Ragnarssynir. „Einstakur" er orð sem notað er þegar iýsa á því sem engu öðru er líkt faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur" lýsir fólki sem stjómast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur" á við um þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orðið sem best lýsir þér. (Teri Fernandez) í dag kveðjum við elsku Möggu frænku sem okkur systkinunum þótti óskaplega vænt um. Það væri hægt að skrifa heila ljóðabók um þessa fallegu og skemmtilegu konu, en ljóðið hér fyrir ofan lýsir henni fylliiega. Hafi orðin „góð mann- eskja“ einhveija meiningu, þá var enginn að þessum orðum betur kominn en hún Magga frænka. Það var alltaf gaman að koma á Heiðarbrautina þar sem móttökurn- ar voru hlýjar og andrúmsloftið hressilegt. Oft var setið í eldhúsinu og skrafað í góðum félagsskap og þá bar Magga alltaf eitthvað gott á borð. I okkar fjölskyldu var hún sam- einingartákn, hún passaði upp á að halda sambandi við alla og við erum mörg sem syrgjum hana. Elsku Gummi, Guðrún, Edda, Gunnar og fjölskyldur, við systkinin vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að gefa ykk- ur styrk til að sætta ykkur við þenn- an mikla missi. Guð blessi minningu hennar. Petrína, Guðmundur og Elfa. Kveðja frá Kirkjukór og kirkjustarfsfólki Akraneskirkju Sumir kveðja og síðan ekki söguna meir. Áðrir með söng sem aldrei deyr. (Þ.Vald.) Það er skarð fyrir skildi i Kirkju- kór Akraness, stórt skarð sem lengi mun opið og ófyllt standa, þegar Margrét Ágústsdóttir hverfur á braut. Þó að hún ætti fleiri starfsár að baki á söngloftinu í Akranes- kirkju en nokkur annar núverandi kórfélagi, rúmlega 40 urðu þau, þá skipaði hún þar alla tíð þann sess, bæði sem söngkraftur og félagi, að þar komast fáir með tærnar þar sem hún hafði hælana. Hún hafði mikla og einstaklega blæfagra sópran- rödd, sem gaf kórsöngnum styrk og gæddi hann aukinni fegurð. Það var alltaf trygging fyrir því að vel mundi takast, þegar hún var með í hópnum. Sem félagi og vinur átti hún fáa sína líka. Vart mun of- mælt þótt sagt sé, að í gegnum árin hafi hún verið vinsælasti kórfé- laginn og skal þó á engan hallað í þeim ágæta hópi. Hún var svo já- kvæð og fundvís á björtu hliðarnar í hvetju máli. Alltaf var hún fús og reiðubúin til liðsemdar og hvers konar þjónustu á vettvangi kirkju- söngsins, væri til hennar leitað. Svo var hún líka svo bráðskemmtileg, að það var unun að vera í návist hennar. Hún var logandi húmoristi og hlátur hennar var svo smitandi, að ekki var hægj. annað en að hlæja með henni. Slíkir gleðigjafar eru ómetanlegir í hvetjum góðum fé- lagsskap. Margrét var góð kona, ljúf í við- móti og hjartahlý. Hún var sannur vinur vina sinna, heilsteypt og traust í smáu og stóru. Ástvinum sínum var Margrét framúrskarandi umhyggjusöm og góð. Þess nutu systkini hennar og háöldruð móðir, sem látin er fyrir fáurn árum, í ríkum mæli. Eigin- mann sinn, Ársæl Jónsson, missti hún 18. mars 1988 eftir 35 ára hamingjuríka samleið. Börnum sín- um fjórum og íjölskyldum þeirra var hún sú ástríka móðir, sem aldr- ei brást. Við þökkum Margréti samleiðina bæði á sorgar- og gleðistundum í kirkjustarfinu. Við þökkum óbrigð- ula vináttu hennar og hlýhug í okk- ar garð. En síðast og fyrst þökkum við Guði fyrir kæra og elskaða fé- lagssystur, sem nú hefir kvatt okk- ur svo alltof fljótt. En það er hugg- un harmi gegn, að minningin, sem hún lætur eftir sig, er ósegjanlega ljúf og björt. Og söngurinn hennar himinbjarti hljómar áfram, af því að hún er ein þeirra, sem kveður „með söng, sem aldrei deyr“. Guð blessi börnunum og öðrum ástvinum minninguna um góða og göfuga móður. Þegar Margrét sagði okkur að hún þyrfti að fara í læknisaðgerð og yrði fj arverandi aðeins í nokkrar vikur hvarflaði ekki að nokkru okk- ar að þetta væri í hinsta sinn sem við hefðum hana hjá okkur. Það setti síðan að okkur óhug þegar við fréttum að veikindi hennar væru alvarlegri en í fyrstu var búist við og hún væri orðin fársjúk. Við lifð- um í voninni og báðum þess að hún næði yfirhöndinni í baráttu sinni fyrir lífinu. En sú von brást og Margrét andaðist að kvöldi 8. októ- ber sl. Margrét Ágústsdóttir starfaði í kaffistofunni hjá okkur í Lands- bankanum á Akranesi og hafði séð um hana sl. 12 ár. Hún var einstak- lega vinsæl hjá starfsfólkinu enda hafði hún góðan mann að geyma. Bar hún hag okkar og velferð ætíð fyrir bijósti og fylgdist vel með framvindu okkar allra, bæði núver- andi og fyrrverandi starfsmanna bankans. Hún var svo sannarlega ein af okkur. Það var margt skrafað og rætt í kaffitímunum hjá henni og alltaf var stutt í glettnina því hún var mjög glaðvær og fljót að sjá spaugi- legu hliðar hversdagsleikans. Hún var vel að sér og það var ekki kom- ið að tómum kofunum hjá henni þegar hin margvíslegu dægurmál bar á góma. En það fór samt eng- inn í grafgötur með að tónlistin var hennar sanna áhugamál. Hún var um árabil starfandi í kirkjukór Akraness, hafði afbragðs söngrödd og hefði örugglega náð langt í söng- listinni hefði hún lagt hana enn frekar fyrir sig. Þótt Margrét hafí búið á Akranesi í yfir 40 ár þá var hún sannur Vestfirðingur og fór ekki leynt með það. Æskustöðvar hennar á Þingeyri við Dýrafjörð voru henni afar hugleiknar. Ætíð sagði hún „heim í Dýrafjörð" þegar þær bar á góma. Hún lét okkur líka oft heyra það að þau sem ættu ennþá eftir að fara um Vestfirði ættu sannarlega mikið eftir og þeir sem höfðu þegar um þá farið gátu upplifað ferðina öðru sinni og þá af vörum fræði- mannsins sjálfs, Margrétar Ágústs- dóttur. Við trúum því að Margrét hafi farið hjá firðinum sínum fagra á leið sinni til almættisins í fang genginna ástvina sinna. Það var mikil gæfa okkar allra sem störfuðum með Margréti að fá að kynnast henni. Að leiðarlokum viljum við þakka henni samfyigdina og vottum börnum hennar, systkin- um og öðrum ástvinum dýpstu sam- úð okkar. Gleðin er léttfleyg og lánið er valt. Lífið er spurning sem enginn má svara. Vinirnir koma og kynnast og fara, kvaðning til brottfarar lífið er allt. (Fr. G.) Blessuð sé minning Margrétar Ágústsdóttur. Starfsfólk Landsbankans á Akranesi. Fleiri minningargreinar um Margréti Ágústsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Baldvin Jónsson, Anna og Jóhann Möller. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer 691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að Iengd greinanna fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví- verknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCIl-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. + Bróðir okkar, SVAVAR NÍELSSON frá Fáskrúðsfirði, Skúlagötu 62, Reykjavík, lést í Landakotsspítala 13. október.' Systkinin. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN HJÖRTUR JÓHANNSSON, lést 13. október í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði. Ingibjörg Jónsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Gísli Guðjónsson, Sævar Örn Jónsson, Heiðveig Guðmundsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Óskar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móður minnar, BJARNEYJAR SIGRIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík laugardaginn 15. október kl. 14.00. Jarðsett verður í isafjarðarkirkjugarði. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Kristín Jóna Jónsdóttir. + Elsku eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, LAUFEY SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Naustahlein 17, Garðabæ, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, föstudaginn 14. októ- ber, kl. 13.30. Stefán Jóhann Þorbjörnsson, Pálmi Stefánsson, Svanhildur Guðmundsdóttir, Kristján Stefánsson, Soffía Arinbjarnar, Ingibjörg Stefánsdóttir, Massimo Scagliotti, Þorbjörn Stefánsson, Inga E. Káradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vin- semd við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföð- ur og afa, HELGA JÚLÍUSSONAR úrsmiðs, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11 E á Landspítalan- um. Einnig þökkum við félögum í Oddfellowstúkunum á Akranesi fyrir alla aðstoð. Hulda Jónsdóttir, Pjetur Már Helgason, Sigurbjörg E. Eiríksdóttir, Hallfriður Helgadóttir, Sfmon Jón Jóhannsson, Sigríður K. Óladóttir, AgnarGuðmundsson og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, RAGNHEIÐAR BJÖRNSDÓTTUR, Kirkjúvegi 1, Keflavík. Elfn Hafdfs Ingólfsdóttir, Karl Sigurðsson, Inga Hrönn Ingólfsdóttir, Haraldur Kristinsson, Dóra Björk Ingólfsdóttir, David Bobrek, Björn Reynald Ingólfsson, Sigríður B. Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.