Morgunblaðið - 14.10.1994, Page 46
„ 46 FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
';/aW»S
Sniðnar að þínum þörfum
GULU
S í Ð U R N A R
...í símaskránni
PÓSTUR
OG SlMI
Word námskeið
94026
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1991
3. flokki 1991
1. flokki 1992
2. flokki 1992
1. flokki 1993
Innlausnardagur 15. október 1994.
1. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.415.619 kr. 141.562 kr. 14.156 kr.
3. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 500.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.259.628 kr. 629.814 kr. 125.963 kr. 12.596 kr.
1. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.203.175 kr. 1.240.635 kr. 124.063 kr. 12.406 kr.
2. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.105.825 kr. 1.221.165 kr. 122.116 kr. 12.212 kr.
1. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.623.148 kr. 1.124.630 kr. 112.463 kr. 11.246 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka Islands
Suðurlandsbraut 24.
Csfcl HÚSNÆÐISSTOFKUN RÍKISINS
HÚSBRÉFADEILD • SUDURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00
ÍDAG
Með morgunkaffinu
ur með nýja bílinn
sinn að hann eyddi
allri nóttinni í að
sprauta hann og
skipta um númera-
plötu á honum.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Vitni óskast
Vitni óskast að
árekstri Nissan-fólksbif-
reiðar og Nissan-jeppa á
Hofsvallagötu á móts við
Vesturbæjarapótek kl.
15.45-á þriðjudag. Vin-
samlegast hringið í síma
19994 eða 629999.
Gæludýr
Páfagaukur í
óskilum
STÓR páfagaukur er í
óskilum síðan sl. þriðju-
dag í Kjalarlandi. Upp-
lýsingar í síma 38648.
Týndur köttur
SÍAMSFRESS tapaðist
frá Ásgarði 22 fyrir
nokkrum dögum. Það er
ólarlaust en eyrnamerkt
4096. Viti einhver um
það er hann vinsamlega
beðinn að láta vita í síma
686581.
Tík í heimilisleit
SKOSK-íslensk þriggja
mánaða tík óskar eftir
góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 15664 eftir
kl. 18.
Tapað/fundið
Bankabók tapaðist
BANKABÓK frá ís-
landsbanka tapaðist 10.
október á leið frá Fjöl-
brautaskóla Breiðholts
yfir í Seljahverfi.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 71929 eftir
kl. 18. Fundarlaun.
COSPER
ÞÚ verður að viðurkenna að þú ert orðinn svolít-
ið fjarsýnn.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
•*
ÞESSI staða kom upp í ,
svissnesku deildakeppninni
í haust. 19 ára gamall
Svisslendingur, Richard '
Forster (2.380), hafði hvítt
og átti leik en öflugasti
stórmeistari Þjóðverja,
sjálfur Robert Hiibner
(2.605), var með svart.
Hiibner var peði yfir, en var
að gefa færi á sér með 27.
- Db7-c6?
sjá stöðHipynd
28. Rh6+! - gxh6, 29. Df5
- Bg7, 30. Df7+ - Kh8,
31. gxh6 - De4+, 32. Kal
- Dg6, 33. hxg7+ - Dxg7
(Eða 33. - Rxg7, 34. Df8+
og mátar) 34. De6 og
Hiibner gafst upp því eftir
34. - Hd8, 35. Bh6 tapar
hann drottningunni. Forst-
er er sannkallaður kónga-
bani, í sumar sigraði hann
öflugasta skákmann Arm-
ena, Rafael Vaganjan, á
móti í Biel. Það gerðist ann-
ars helst markvert i keppn-
inni að Viktor Kortsnoj, 63
ára, vanp Frakkann Joel
Lautier í annað skiptið á
einum mánuði.
Um helgina: Keppni í
unglingaflokki á Haustmóti
Taflfélags Reykjavíkur,
fyrir 14 ára og yngri, hefst
laugardaginn 15. október
kl. 14 í félagsheimili TR,
Faxafeni 12. Keppnin
stendur yfir tvo laugardaga
og lýkur 22. október.
Víkveiji skrifar...
Inýjasta tölublaði Víkurfrétta í
Keflavík er afmæliskveðja til
15 ára stúlku, væntanlega frá vin-
konum hennar. Með kveðjunni er
birt mynd af stúlkunni, þar sem hún
heldur á bjórflösku. Víkveiji telur
forkastanlegt að birta slíka mynd
af unglingi og blaðinu til skammar.
xxx
Eftirfarandi athugasemd barst
Víkverja frá formanni félaga-
skiptanefndar HSÍ, Ilelga Sigurðs-
syni.
Víkverji gerir að umtalsefni fé-
lagaskipti Rúnars Sigtryggsonar sl.
föstudag og úrskurð félagskipta-
nefndar í málinu. Félagaskipta-
nefnd taldi þrátt fyrir mótmæli
Rúnars sannað að hann hygðist
ganga til Iiðs við Víking en það
gæti hann ekki gert nema því að-
eins að lögboðið félagaskiptagjald
yrði greitt. Úrskurðurinn byggist
ekki á neinum vangaveltum um það
hvað myndi gerast í framtíðinni eins
og Víkveiji segir í sinni umíjöllun
heldur þeirri staðreynd að nefndin
taldi upplýst að Rúnar ætlaði að
leika með Víkingi á keppnistímabil-
inu. Þessi niðurstaða byggir á regl-
um HSÍ um félagaskipti sem sett
voru á ársþingi HSÍ 1993 en þar
var viðurkenndur réttur féiaga til
greiðslu vegna félagaskipta. Það
hefur lengi þótt góð regla og grund-
völlur faglegra vinnubragða þegar
gagnrýna á einstaka úrskurði að
kynna sér þau málsgögn og for-
sendur sem úrskurðurinn byggir á.
Þessi regla virðist hins vegar ekki
trufla Víkveija mikið sl. föstudag.
x x x
Með athugasemd Helga fylgdi
úrskurður félagaskipta-
nefndar í heild og ýmis fylgiskjöl.
Eiqþað fróðleg lesning.
í úrskurði félagaskiptanefndar
segir orðrétt: í lögum og reglum
HSÍ er ekki að finna nákvæma skil-
greiningu á valdsviði og verksviði
félagaskiptanefndar. Fram kemur í
áðurgreindu ákvæði að félaga-
skiptanefnd á að úrskurða
greiðslufjárhæð og aðra þætti er
varða félagaskiptin. Telja verður
að orðalag greinarinnar gefi til
kynna að valdsvið félagaskipta-
nefndar sé allverulegt og verksvið
nefndarinnar mjög víðtækt.
Þarna er nefndin sem sagt að
skilgreina sjálf valdsvið sitt og verk-
svið. Auðvitað átti ársþing HSÍ, sem
ákveður lög og reglur sambandsins,
að skilgreina þetta strax og nefndin
var sett á laggirnar. Það er þetta
sem Víkveiji átti við þegar hann
sagði að alls konar vandræði hafi
komið upp í handknattleiksforyst-
unni vegna túlkunar á lögum og
reglum.
X x x
Ffréttablað Nýrra tíma barst á
borð Víkverja fyrir skömmu.
I raðauglýsingum blaðsins var
margvísleg þjónusta auglýst og
hafði Víkveiji minnstu hugmynd
um að margt af þessu væri til.
í blaðinu er m.a. boðið uppá heil-
un, reiki, áruteikningu, tarotspá,
stjörnuspeki, kristallaheilun,
hreinsun orkustöðva, jöfnun orku-
flæðis, líföndun, upplausr. sjúk-
dóma, fyrra líf(I), indíánaspil,
mannrækt, persónuleika- og sálar-
kort, andlitslyftingu, sogæðanudd,
hugslökun, aðstoð að handan, ind-
verska stjörnuspeki, íslenzka
blómadropa og loks er fólki boðið
uppá að losa sig við fíkn og vanlíð-
an með því að heila barnið hið innra.