Morgunblaðið - 06.01.1995, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dregur
úr ávís-
anafalsi
TALSVERT hefur dregið úr
ávísanafalsi. Kærufjöldi til
Rannsóknarlögreglu ríkisins
náði hámarki árið 1992 en
kærum hefur fækkað veru-
lega sl. tvö ár.
Samkvæmt upplýsingum
frá RLR bárust kærur vegna
2.043 tékka að upphæð 16,5
milljóna árið 1992. Árið 1992
voru þetta 3.168 tékkar að
upphæð 20,5 milljónir, 1993
2.216 tékkar að upphæð 18,7
milljónir og á síðasta ári 1.763
tékkar að upphæð 14,1 millj-
ón.
Á milli áranna 1993 og
1994 nam fækkun tékkanna
20% og á upphæðum þeirra
munaði 24,5%.
Svo virðist sem minnkandi
notkun ávísana með tilkomu
debetkorta sé þegar farin að
skila sér í minna ávísanamis-
ferli.
Námsbraut í
MH fyrir
heyrnarlausa
í MENNTASKÓLANUM við
Hamrahlíð er verið að setja á
stofn sérstaka námsbraut fyr-
ir heyrnarlausa og heyrnar-
skerta. Hefst kennslan í þéss-
um mánuði og verður til að
byija með boðið upp á ís-
lenskt táknmál, íslensku fyrir
heyrnarlausa og ensku.
■ Námsbraut/Cl
Kveikt í
öskubílum
REYNT var að kveikja í þrem-
ur öskubílum sem stóðu í porti
Vélamiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar í fyrrinótt með því að
hella yfir þá eldfimum vökva
og kveikja í.
Lögreglumenn í eftirlits-
ferð urðu varir við reyk frá
Vélamiðstöðinni við Skúlatún
1 um klukkan hálftvö í fyrri-
nótt. í ljós kom að eldur var
laus í þremur öskubílum. Lög-
reglumönnum tókst að
slökkva eldinn en einhveijar
skemmdir urðu þó á bílunum.
Málið er í rannsókn hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Aldamótin 1.
janúar 2001
• DR. ÞORSTEINN Sæmunds-
son, stjörnufræðingur hjá
Raunvísindastofnun Háskól-
ans, segir að engin spurning
sé um að 21. öldin heíjist 1.
janúar árið 2001, og um það
séu allir tímatalsfræðingar
sammála.
„Ef við reiknum frá fæð-
ingu Krists, eins og við höfum
reiknað, þá er öldin ekki liðin
fyrr en hundraðasta árið er
liðið. En menn rangtúlka
þetta ævinlega og það verður
víst þannig áfram. Ég þykist
vita að það verða ýmsir sem
halda upp á aldamótin 1. jan-
úar árið 2000, alveg sama
hvaða rökum verður beitt,“
sagði Þorsteinn.
FRETTIR
Umboðsmaður um skattheimtu í bága við úrskurð ríkisskattanefndar
Úrskurðiir bíndandi
þrátt fyrir málshöfðun
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að skattyfírvöld-
um beri að fara eftir úrskurði yfirskattanefndar,
áður ríkisskattanefndar, þrátt fyrir að þau freisti
þess að fá úrskurðinum hnekkt fyrir dómstólum,
á meðan skýrri lagaheimild í gagnstæða átt sé
ekki til að dreifa.
Hann telur því að fyrirmæli ríkisskattstjóra til
allra skattstjóra í landinu, um óbreytta skattfram-
kvæmd þrátt fyrir úrskurð ríkisskattanefndar,
hafi ekki átt sér stoð í lögum og fer fram á að
þau séu afturkölluð.
Forsaga kærunnar, sem umboðsmaður fjallaði
um, var sú, að ríkisskattanefnd úrskurðaði í
máli skattgreiðanda árið 1991, en málið fjallaði
um skattmeðferð hlutabréfaeignar utan atvinnu-
rekstrar. Ríkisskattanefnd féllst á kröfu skatt-
greiðandans, en sú niðurstaða var andstæð þeirri
framkvæmd sem viðgengist hafði. í framhaldi
af úrskurði nefndarinnar fór ríkisskattstjóri fram
á það við fjármálaráðuneytið, að tekin yrði sem
fyrst afstaða um málshöfðun og féllst ráðuneytið
á það. Þá sendi ríkisskattstjóri öllum skattstjórum
bréf, þar sem segir að óvissa hafi skapast í fram-
haldi af niðurstöðu ríkisskattanefndar. Meðan
dómsmálið sé rekið fyrir dómstólum haldist fram-
kvæmdin óbreytt.
„Ái'éttar því ríkisskattstjóri hér með að áfram
gilda áður fram settar reglur um meðferð á hluta-
fé til eignar í skattskilum, nema niðurstaða dóm-
stóla komi til með að leiða til annars,*1 segir í bréfinu.
Bindandi úrskurður
Skattgreiðandinn var ekki sáttur við, að ekki
skyldi tekið tillit til úrskurðar ríkisskattanefndar,
en fjármálaráðuneytið bar það fyrir sig að al-
menna reglan um skattframkvæmd væri sú, að
hún héldist óbreytt þar til deila um hana hafi
endanlega verið til lykta leidd. Umboðsmaður
segir, að eftir að úrlausn sé fengin hjá ríkisskatta-
nefnd, nú yfirskattanefnd, og fyrir liggi úrskurð-
ur gjaldanda í hag, sé alveg ótvírætt að skattyfir-
völd hafi ekki heimild til að halda uppi skatt-
heimtu gagnvart honum, sem fer í bága við úr-
skurðinn. „Réttarstaðan á þessu sviði er því ótví-
rætt sú, að úrskurðúr ríkisskattanefndar í hveiju
máli bindur nefndina sjálfa, önnur skattyfirvöld
á hlutaðeigandi sviði svo og gjaldanda. Þar til
ríkisskattanefnd hefur sjálf löglega breytt úr-
skurði sínum eða honum hefur verið hnekkt af
dómstólum, er úrskurður ríkisskattanefndar bind-
andi um úrlausn málsins.**
Morgunblaðið/Kristinn
Minnstur
blóðþrýst-
Mörg handtökin við sjávarsíðuna
FLESTIR gerðu hlé á veiðum um hátíðarnar og notuðu margir
tækifærið til að huga að veiðarfærum eða skipta um þau. Hér
er verið að taka veiðarfæri frá borði og setja á vörubílspall.
Tryggingastofnun
Hugsanlega
byggt undir
starfsemina
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTI berst
formlegt svar frá Sameinuðum
verktökum um kauptilboð á rúmum
4.000 fm í Höfðabakka 9 fyrir
Tryggingastofnun i dag. Þórhallur
Arason, skrifstofustjóri í fjármála-
ráðuneytinu, segir að fram hafí
komið að lítill áhugi væri fyrir til-
boðinu af hálfu eigendanna. Hann
segir að komið geti til greina að
byggja undir stofnunina.
Hann sagði að Sameinaðir verk-
takar hefðu ekki áhuga á að taka
hluta af húseign Tryggingastofnun-
ar á Laugavegi 114 upp í kaupverð-
ið og vildu fremur leigja en selja
húsnæðið. Hann sagði aðspurður
að skoða mætti hvort leiga gæti
komið til greina.
Þórhallur sagði að aðrir mögu-
leikar yrðu skoðaðir um leið og
hann benti á að erfítt gæti reynst
að fínna nægilega stórt húsnæði í
borginni. Því gæti komið til greina
að byggja undir Tryggingastofnun.
Stefnt er að því að flytja alla skrif-
stofustarfsemi stofnunarinnar, sem
nú er á þremur stöðum, á einn stað.
Hjálpartækjabanki verður hins veg-
ar áfram til húsa í Kópavogi.
Bjórgjaldið verð-
ur fellt niður
mgur a
vinnustað
RANNSÓKN sem gerð var í Há-
skóla íslands á blóðþrýstingi 95
karla á aldrinum 25-65 ára leiddi
í ljós minnstan slagæðaþrýsting á
vinnustað.
Ástæða rannsóknarinnar er
fjöldi óvissuþátta sem tengjast
túlkun á blóðþrýstingsmælingum.
Var þrýstingur ákvarðaður milli
15 og 17 með sjálfvirkum mæli á
hægri handlegg karlanna og
mælt á stofu/göngudeild, vinnu-
stað og í heimahúsi. Þijár mæl-
ingar voru gerðar hjá sama ein-
staklingi á hverjum stað en aðeins
ein á dag og reiknað meðaltal
mæligilda fyrir hvem einstakling.
í Ijós kom að slagæðaþrýstingur
á stofnun mældist 150,2,127,7 á
vinnustað og 134,7 heima fyrir
og kom það á óvart, eins og segir
í niðurstöðu.
Hún er kynnt í tengslum við
ráðstefnu um rannsóknir í lækna-
deild HI sem hófst í gær og stend-
ur til laugardags en þar verða
kynnt 204 rannsóknarverkefni.
■ Sjúkdómar/5
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir að stjómvöld muni fara
að tilmælum Eftirlitsstofnunar
EFTA (ESA) og fella niður 35%
aukagjald á innfluttan bjór. Það
muni falla niður sjálfkrafa, verði
lagafrumvarp um afnám einkarétt-
ar ríkisins á innflutningi áfengis
samþykkt á Alþingi. Hljóti frum-
varpið ekki samþykki, verði gjaldið
afnumið með sérstakri ákvörðun.
Friðrik sagði í samtali við
Morgunblaðið að ESA yrði svarað
og tjáð að farið yrði að tilmælum
hennar, en stofnunin telur gjaldið
bijóta í bága við EES-samninginn.
Ráðherra sagði að innlendum bjór-
framleiðendum hefði verið tjáð að
þeir ættu í vændum að missa þessa
vernd.
Innfluttur bjór
gæti lækkað
íverði um 12%
„Innlendir framleiðendur hafa
haldið því fram að þeir verði að
sætta sig við óhagræði, vegna
þess að pantanir til ÁTVR fari
beint í hús, en innlendir framleið-
endur verði sjálfír að bera dreifíng-
arkostnað innanlands,** sagði Frið-
rik. „Þeir telja þetta óhagræði
nema 10-15%, sem ég tel reyndar
ofmetið. Með nýju Iögunum breyt-
ist þetta hins vegar, og allir standa
jafnfætis. Þá er eðlilegt að gjaldið
falli niður.“
Að sögn Syövu Bernhöft, inn-
kaupastjóra ÁTVR, myndi kippa
af sex hálfs lítra dósum af hol-
lenzkum Heinekenbjór lækka úr
1.260 krónum í 1.110 krónur, eða
um 12% ef gjaldið yrði aflagt, en
það er lagt á cif-verð bjórsins áður
en önnur álagning kemur til.
Svava sagði að búast mætti við
svipaðri verðlækkun, eða um 12%,
á öðrum bjórtegundum við aflagn-
ingu gjaldsins.
Hins vegar útilokaði hún ekki
aðspurð að innflutningskostnaður
hækkaði eitthvað á sumum bjór-
tegundum þegar innflutningur á
áfengi yrði gefínn fijáls sam-
kvæmt fyrirliggjandi frumvarpi
fjármálaráðherra.
J-
I
I
»
í
i
i
i