Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær sonur minn og bróðir okkar, ZÓPHÓNÍAS ÁRNI GYLFASON, Miðgörðum 6, Grenivík, lést 1. janúar í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Minningarathöfn fer fram frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 7. jan- úar kl. 14.00. Jarðsett verður frá Stokkseyrarkirkju þriðjudaginn 10. janúar kl. 14.00. Helga Magnúsdóttir, Þröstur Gylfason, Lovfsa Gylfadóttir, Ragnheiður Björg Svavarsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN BJÖRNSSON prentari, Flúðaseli 94, andaðist í Landspítalanum að morgni 5. janúar. Halla Guðbjörnsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Dagný S. Jónsdóttir, Magnús Jóhannsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÁSGERÐUR ÓLAFSDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum að kvöldi miðvikudagsins 4. janúar. Ásdfs Sveinbjörnsdóttir, Hannes Sveinbjörnsson, Ingvar Sveinbjörnsson, Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Elfn Hallveig Sveinbjörnsdóttir, ívar Sveinbjörnsson, Ólafur Hrafn Sveinbjörnsson, Ásgerður Marfa Ragnarsdóttir, Bjarni Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Gissur Geirsson, María Einarsdóttir, Eygló Óskarsdóttir, Örn Bragason, Haraldur Guðmundsson, Kristín Magnúsdóttir, Vilma Ágústsdóttir, Stefnir Ólafsson, t Ástkær litla dóttir okkar og systir, SVANDÍS UNNUR SIGURÐARDÓTTIR, Foldahrauni 40, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju laug- ardaginn 7. janúar kl. 14.00. Sólrún Helgadóttir, Sigurður Friðrik Karlsson, Sylvfa Dögg Sigurðardóttir. t Jarðarför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, THEÓDÓRS SIGURJÓNS NORÐKVIST sem lést af slysförum 18. desember sl., fer fram frá ísafjarðarkapellu laugar- daginn 7. janúar nk. kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á ísafjarðarkirkju. Ingibjörg Marinósdóttir Norðkvist, Margrét Norðkvist Theódórsdóttir, Sigurður Óli Sigurðsson, Ása Norðkvist Theódórsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Jón Sigurður Norðkvist, Theódór Norðkvist yngri og elskuleg barnbörn hins látna. + Elskuleg trúsystir okkar og frænka okkar, ÞÓRHILDUR BJÖRG JÓHANNESDÓTTIR, Hátúni 2, Reykjavfk, verður jarðsungin frá Fíladelfíu, Hátúni 2, mánudaginn 9. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Minningarsjóð Ásmundar Eiríkssonar. Fíladelffusöfnuðurinn og frændfólk. KRISTÍN D. THORARENSEN + í dag, föstudag- inn 6. janúar 1995, verður jarð- sett frá Garða- kirkju, Garðabæ, kl. 13.30, Kristín D. Thorarensen, sem andaðist fimmtudaginn 29. desember sl. í Hafn- arbúðum. Kristín var fædd í Reykja- vík 4. ágúst alda- mótaárið 1900 og var því á 95. aldurs- ári er hún lést. Hún var yngst þriggja dætra Nielsínu A. Ólafsdóttur og eiginmanns hennar Daníels Benedikts Daníelssonar. Systur hennar, Guðrún, elst, og Sól- veig eru löngu látnar. A vor- dögum 1919 gekk Kristín að eiga Egil Gr. Thorarensen, síð- ar kaupfélagssfjóra á Selfossi, en leiðir skildu 1942, eftir fcep- lega aldarfjórðungs hjúskap. Egill lést 15.1. 1961. Kristín og Egill áttu fjögur börn: Grímur E. Thorarensen, f. 6.6. 1920, d. 3.8. 1991. Hann var kvæntur Bryndísi G. Thorarensen, sem lifir mann sinn. Þau áttu átta börn. Erla E. Thorarens- en, f. 29.4. 1923, gift Ólafi Sveins- syni og eiga þau eina dóttur. Bene- dikt Thorarensen, f. 1.2. 1926, kvænt- ur Guðbjörgu M. Thorarensen, barnlaus. Jónína Guðrún Thorar- ensen, f. 15.3.1928, gift Gunnari Páls- syni og eiga þau þijár dætur. Barnabörnin eru nú orðin 28. Móðurætt Kristínar lá um Hafnarfjörð í Ölfus og er hún í sjötta ættlið frá Guðna Jóns- syni, bónda í Reykjakoti, f. 1716. Föðurætt Kristínar má rekja um Húnavatnssýslu í Eyjaförð og er hún fimmti ætt- liður frá Andrési Ólafssyni, f. 1749, Sláttu-Andrési, frá Ás- gerðarstöðum, héraðsfrægum sláttumanni. Frá Guðna Jóns- syni er komin fjölmenn ætt, Reykjakotssætt, um Ölfus og Suðurland. MÓÐIR MÍN Kristín fékk hægt andlát um hádegisbil 29. des síðast- liðinn í Hafnarbúðum, þar sem hún hafði dvalið um 14 ára skeið eða frá áttræðisaldri. Rúmföst að mestu leyti síðari árin en gat þó sest dag- lega að matborði með hjálp. Vil ég hér færa starfsfólki og læknum innilegar þakkir okkar ættmenna Kristínar fyrir fábæra umönnun, sem móðir okkar naut svo lengi á stofnuninni. Þrátt fyrir dvínandi lík- amsburði, hélt hún skýrri hugsun fram í andlátið, þekkti ættingja sína og rifjaði upp liðin atvik, sem gjam- an tengdust æsku og unglingsárum. Hún naut mikils ástríkis ágætra foreldra og systra og minntist þeirra ætíð með gleði og þakklæti. Árin á Brautarholti á Kjalamesi 1909-1914 voru henni hugleikin, en þar bjó Daníel þessi ár við marg- háttaðan búskap og síðar að Lága- felli. Þar lærði móðir mín umgengni við búsmalann og hestfær varð hún með ágætum. Fuglatekja var mikil á Brautarholti, enda matbjó móðir mín fugla betur en aðrir, sem ég hef kynnst. Móðir mín var elsk að tónlist og naut tilsagnar í píanóleik, m.a. hjá Sigfúsi Einarssyni. Tólf ára gömul var hún organisti við Lágafellskirkju og lék talsvert á píanó fram yfir miðjan aldur, sjálfri sér og okkur til gagns og ánægju. Það fór ekki framhjá neinum, sem kynni höfðu af Kristínu, að hún var listfeng. Það sást strax af því um- hverfi sem hún skóp sér og heimili sínu á ýmsan hátt, svo sem með hannyrðaföndri og fleiru, sem án tildurs bar smekkvísi gott vitni. Hún hafið yndi af góðum bókum og las mikið Norðurlandaskáldin á frum- máli og fleiri skáld innlend sem útlend. Bækur sveitunga síns „Dóra í Laxnesi" las hún mamma fyrst, tel ég, austanfjalls og í pukri, óef- að. Mat hún sagnamanninn strax að verðleikum. Árið 1917 flytur afi Daníel að Sigtúnum við Ölfusársbrú með fjölskyldu sína og veldur með því straumhvörfum í lífi móður minnar. Þar kynnast þau móðir mín og faðir, Egill Gr. Thorarensen, og ganga í hjónaband vorið 1919. Daníel selur Agli Sigtún og segist leiður orðinn á hóglífi og vilji til- breytingu. Sennilegra sýnist mér að Daníel hafi með sölunni viljað sýna trú sína á framtíð ungu hjón- anna og traust á tengdasyninum, til farsælla verka. Honum varð að trú sinni. Um árabil rak Egill verslun sína á Selfossi. Bú ungu hjónanna óx og dafnaði og börnin uxu úr grasi. Heimilið að Sigtúnum stóð um þjóð- braut þvera, í orðsins fyllstu merk- ingu og annir hlóðust á ungu hús- freyjuna. Heimilið var jafnan mann- margt en hjúasæld ungu hjðnanna einstök, utan stokks sem innan, og gestir ávallt velkomnir. Heilsuleysi föður míns, á köflum, reyndi á þrek móður minnar, sem unni sér ekki hvíldar í hjúkrun hans, en stóð sem klettur við hlið hans. Fjölskyldan flutti síðan í nýbyggt íbúðarhús kaupfélagsins og átti þar meiri friðsæld að fagna, en í gömlu Sigtúnum, verslunarmiðstöðinni, með sínum önnum og erli, nótt sem nýtan dag. Grímur frá Kirkjubæ og Jónína frá Múla, afi og amma byggðu sér snoturt íbúðarhús í næsta nágrenni, en Grímur vann síðustu ár sín á kontór K.Á. Þau voru móður minni sem bestu for- eldrar, enda öndvegismanneskjur. Á Selfossi kynnist móðir mín mörgu ágætisfólki, sem of langt yrði upp að telja í stuttri minningar- grein. Hef ég oft verið minntur á vinsemd þessa góða fólks, á liðnum árum, þegar það bað mig að skila góðum kveðjum til móður minnar en minntist um leið ánægjulegra kynna. Eins og geta má nærri eru flestir kunningjar móður minnar löngu látnir og bið ég þeim blessun- ar. Ég verð fáorður um síðustu ár móður minnar. Af nógu er þó að taka. Hún bjó sér heimili á Guðrún- argötu 6 í Reykjavík, á ágætri og rúmgóðri efri hæð. Þar hafði hún slaghörpuna sína og bækurnar og kunningja átti hún nokkra, m.a. Ragnheiði mágkonu sína, sem bjó í nágrenni og var henni tryggur vinur. En mamma gerði það ekki endasleppt. Við yngri börnin, Grím- ur hafði staðfest ráð sitt austan- fjalls, áttum hjá henni athvarf gott, á milli skólaúthalda og í skóla. Undirbúningur að stofnun heimila var næsta skref og ekki þýðingar- minnst. Þessi ár eru ungmennum viðkvæm og oft erfið. Móðir mín gegndi sínu hlutverki með sóma, bæði sem móðir og uppalandi. Hún var stefnuföst og lítt slegin út af laginu, hvort sem beitt var fagur- gala eða þrýstingi. Hún setti velferð barna sinna í fyrirrúm. Árið 1991 missti hún son sinn Grím, sem ásamt systrum sínum hafði verið hennar stoð og stytta í ellinni. Bar hún skaða sinn af drenglund og minntist ætíð elsku sonarins í sinn garð og jákvæðu minninganna. Við söknum þín öll móðir mín. Við þökk- um þér ljúfu stundirnar, æsku og unglingsáranna, berjaferðir um sumardægur og aðra sæludaga lífs okkar. Þú skynjaðir augnablik ham- ingjunnar og hún féll þér í skaut, í meira mæli, en flestir ætla. Vertu blessuð móðir mín. Þinn sonur, „ ... ., Benedikt. Með eftirfarandi orðum langar mig til að kveðja ömmu Bómu, eins og Kristín langamma hét og mun alltaf heita í huga mínum. Bómu- nafnið gaf ég henni er ég var þriggja ára, flutti það með mér frá Lúxemborg, þar sem ég bjó ásamt foreldrum mínum. Það vakti með henni kátínu, þar sem nafnbótin var henni alls óskiljanleg, en hún ans- aði því nú alltaf með bros á vör. Á sínum yngri árum bjó hún í Sigtúnum á Selfossi, ásamt manni sínum Agli Thorarensen og börnum þeirra. Þar var hún í orðsins fyllstu merkingu sönn hefðarfrú, eða dama, og var ákveðin reisn yfir henni allt fram á síðustu stundu. Þegar ég var yngri heimsóttum við hana þangað sem hún bjó á Austurbrúninni. Þangað var ávallt gott að koma og mikið að skoða og heyra, hún var dugleg að segja frá á þeim árum og hafði gaman af. Undanfarin ár hefur hún verið rúmföst og búið í Hafnarbúðum, þar sem allir hafa verið henni sér- lega góðir. Minnið var ekki eins gott og á hennar yngri árum, en hún var samt með á nótunum, á það að þakka ömmu Nínu og systk- inum hennar, sem dvöldu hjá henni tímunum saman og sögðu henni frá því sem fjölskyldan var að gera og rifjuðu upp með henni gamla og góða tíma. Hún vissi alveg hvar hennar fólk var og hvað það var að gera. Þó svo að ömmu hafi fund- ist alveg eðlilegt að konur ækju bílum, vakti sú staðreynd, að ég flygi um á flugvélum líka, með henni undrun og hún minntist oft á það við mig og sagði: Ja, Ragn- heiður, og þú flýgur, og svo horfði hún á mig brosandi út að eyrum. Amma Bóma var orðin 94ra ára er hún kvaddi þetta líf og enn hugs- aði hún um útlitið, passaði uppá hárið, kremin sín, ilmvatnið og síð- ast en ekki síst fötin sín. Við höfð- um öll mjög gaman af þessu. Á jóladag kvaddi ég hana í síð- asta sinn á lífi, þá vorum við, ég og mamma, við guðsþjónustu með henni. Hún var ekkert öðruvísi en hún átti að sér að vera, hún méira að segja söng fyrir okkur lag. En er við kvöddum hana, fékk ég yfir mig einhverskonar tómleikatilfinn- ingu og ég kyssti hana bless hágrát- andi, sem er hálfskrítið vegna þess að venjulega læt ég ekki tilfinning- ar mínar berlega í ljós. Vakti þetta með mér spurningar. Var dauðinn að gera vart við sig? Var verið að láta mig vita að 3 dögum síðar yrði hún dáin? Elsku amma, með þessum orðum og broti úr bæn eftir Matthías Joch- umson, kveðjum við þig, ég og Gunnar bróðir minn. Ó, sólarfaðir, signdu nú hvert auga en sér í lagi þau, sem tárin lauga, og sýndu miskunn öllu því, sem andar, en einkum því, sem böl og voði grandar. Guð blessi minningu þína og taki vel á móti þér. Ragnheiður Arngrímsdóttir. í dag kveðjum við hana ömmu okkar Kristínu Daníelsdóttur Thor- arensen. Amma var aldamótabarn, fædd árið 1900, og dó því í hárri elli, níutíu og fjögurra ára gömul. Þegar við systurnar vorum yngri og amma sprækari, kunni hún frá mörgu að segja frá æsku sinni. Hennar ljúfustu bernskuminningar virtust vera frá þeim tíma sem hún bjó með foreldrum sínum í Brautar- holti á Kjalamesi. Þær vom ófáar sögurnar sem hún skemmti okkur með frá þeim stað, sögur um seli í sjónum og lífið í sveitinni. Þegar við minnumst ömmu Krist- ínar mun það alltaf bera hæst að þar fór sannkölluð hefðarkona. Við kveðjum þig elsku amma með þakk- læti fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Guð blessi minningu þína. Hrabba, Sissa og Ragga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.