Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 19 ERLENT S3 Kommún- isti yfir dómsmál BORÍS Jeltsín Rússlandsfor- seti skipaði í gær kommúnist- ann Valentín Kovaljov í emb- ætti dóms- málaráð- herra. Kov- aljov er vara- forseti neðri deildar þingsins og hefur stutt hernaðarað- gerðir Jelts- íns í uppreisnarhéraðinu Tsjetsjníju. Skömmu fyrir áramót skipaði forsetinn Kov- aljov í embætti yfirmanns nýrrar mannréttindanefndar sem varið hefur stefnu stjóm- valda er sökuð era um brot á mannréttindum Tsjetsjena. Tölvuskjáir hættulausir BARNSHAFANDI 'konur geta óhikað unnið við tölv- uskjái og þurfa ekki að óttast fósturskaða af völdum geisl- unar frá þeim, segir í niður- stöðum rannsóknar danskra lækna í Árósum. Rannsókn þeirra stóð yfir Y tíu ár og fundust engin tengsl milli fósturskaða og tölvustarfa, að sögn Berlingske Tidende. SÞ-liðar mis- jafnt metnir BRESKA tímaritið Jane’s Defence Weekly segir að Sameinuðu þjóðirnar greiði að jafnaði 85.300 Banda- ríkjadollara, tæpar sex millj- ónir króna, í bætur fyrir gæsl- uliða frá iðnríkjum falli þeir við skyldustörf en aðeins 19.500 dollara fyrir gæsluliða frá þróunarríkjum. Farið er eftir reglum um skaðabótur í landi gæsluliðans, þær eru yfirleitt lágar í fátækum þró- unarríkjum. Fulltrúar hinna síðarnefndu vilja nú breyta þessum viðmiðunum SÞ. Reuter Friður í Sarajevo DAGLEGT líf í Sarajevo hefur tekið breytingum frá því samið var um fjögurra mánaða vopnahlé á gamlársdag eftir rúmlega þúsund daga umsátur Serba um borgina. Á myndinni, sem tekin var í gær, er fjölskylda á gangi við varðstöð franskra friðargæsluliða í miðborginni. Blindir skynja ljós Boston. Reuter. SUMIR þeirra sem eru alger- lega blindir virðast skynja ljós, samkvæmt rannsókn sem sagt er frá i nýjasta hefti New England Journal of Medicine. Er talið að þar sé komin skýr- ingin á því hvers vegna líf- fræðileg klukka sumra blindra fer úr lagi og veldur því að þeir þjást af svefnleysi en aðr- ir blindir eigi ekki í neinum slíkum erfiðleikum. Vísindamennirnir mældu magn melatóníns í blóði en það fellur þegar horft er í mikla birtu. Sú varð raunin hjá þrem- ur af þeim ellefu blindu mönn- um sem prófaðir vora. Þegar augu þeirra voru hulin, dró hins vegar ekki úr melatónín- magninu. Það bendir til þess að augu þeirra skynji ljós, þó að þau sjái það ekki. Ekki er hins vegar vitað hvernig það gerist. Hinir átta, sem ekki sýndu nein viðbrögð, hafa allir átt við svefnleysi að stríða, ólíkt þremenningunum. „Þettajafn- gildir því að þjást af síendur- tekinni flugþreytu," segir í grein vísindamannanna. Snurða hleypur á þráðinn í viðræðunum um Bosníu Mikil tortryggni einkenndi fund full- trúa múslima og Bosníu-Serba Sarfýcvo. Reuter. SNURÐA hljóp á þráðinn í friðar- umleitunum Sameinuðu þjóðanna í Bosníu í gær þegar reynt var að ná samkomulagi um mikilvæg tæknileg atriði vopnahléssamkomu- lags múslima og Bosníu-Serba. Stjórnarerindrekar í tengslahóp fimmveldanna - Bandaríkjanna, Rússlands, Þýskalands, Frakklands og Bretlands - komu saman í Bonn til hefja að nýju viðræður um hvern- ig binda mætti enda á stríðið í Bosníu, sem hefur staðið í 33 mán- uði. Viðræðurnar snerust um frið- aráætlun, sem samin var í júlí og skiptir Bosníu því sem næst til helminga. Múslimar og Króatar hafa fallist á áætluna en ekki Serbar. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna sögðu að dregið hefði verulega úr bardögunum, einkum í Bihac. Ástæðan er talin mikið fannfergi á þessum slóðum, ekki síður en samn- ingurinn um fjögurra mánaða vopnahlé sem undirritaður var 31. desember. Djúpstæð tortryggni Fulltrúar Bosníustjórnar og Bos- níu-Serba ræddu ýmsa lausa enda vopnahléssamningsins á flugvellin- um í Sarajevo í sjö klukkustundir í gær án þess að ná samkomulagi um veigamikil tæknileg atriði. Alexander Ivanko, talsmaður Sam- einuðu þjóðanna, sagði að þeir hefðu ekki fallist á tillögur í átta liðum frá sir Michael Rose, yfir- manni friðargæsluliðsins. Deilan snerist um aðferðir við að sann- reyna brottflutning hersveita og um eftirlit með því að þær virði vopna- hléið. „Það er skiljanlegt að djúpstæð tortryggni ríki milli þeirra og það tekur tíma að eyða henni,“ sagði Ivanko. Dole vill afnema bannið Bob Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, kynnti frumvarp um að aflétta vopnasölubanni á stjórnarher Bosn- íu þrátt fyrir andstöðu Bills Clint- ons forseta og nokkurra Evrópu- ríkja. Bandaríska utanríkisráðu- neytið gagnrýndi framvarpið harð- lega, sagði tímasetninguna mjög slæma þar sem vopnahléið héldist enn. mundu! ____ MM [...Í.stafa stmanúmor Frá og með 1. janúar 1995 breyttist val til útlanda. í stað 90 kemur 00 PÓSTUR OG SÍMI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.