Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Lögregla að- stoðaði í vonskuveðri Héraðsdómi Norðurlands bárust 123 gjaldþrotabeiðnir á nýliðnu ári Úrskurðum fjölgar milli ára VONSKUVEÐUR var einkum í utanverðum Ej'jafirði í gærdag og lokaðist vegurinn milli Dalvík- ur og Ólafsfjarðar og þá var þung- fært milli Akureyrar og Dalvíkur. Lögreglumenn á Dalvík og Ólafs- firði aðstoðuðu fólk að komast leiðar sinnar og reynt var að halda götum í bæjunum opnum fram eftir degi eða þar til fólk var kom- ið heim úr vinnu. Þá aðstoðaði lögregla í Ólafsfirði bíla sem höfðu farið út af við Múlagöng áður en hann lokaðist. Á Akureyri urðu tvö óhöpp í umferðinni. ALLS bárust 123 gjaldþrotabeiðn- ir til Héraðsdóms Norðurlands eystra á liðnu ári, sem er nokkur fjöigun frá fyrra ári. Að sögn Erlings Sigtryggssonar fulltrúa í Héraðsdómi Norðurlands eystra komu til meðferðar hjá dómnum 145 beiðnir um gjaldþrot en nokkrar beiðnir færðust yfir á árið frá árinu á undan. Beiðnirnar skiptust þannig að 91 þeirra varð- aði einstaklinga en 54 lögaðila. Um nokkra fjölgun mála er að 35 einstaklingar og 25 lögaðilar úrskurðaðir gjaldþrota ræða, ef borið er saman við fyrra ár, en þá bárust 112 beiðnir um gjaldþrotaskipti til Héraðsdóms Norðurlands eystra og alls það ár voru 120 slíkar beiðnir til meðferð- ar hjá dómnum. Beiðnir vegna ein- staklinga voru 63 það ár eða tölu- vert miklu færri en var á nýliðnu ári og vegna lögaðila 49 samtals. s Morgunblaðið/Rúnar Þór EINS gott af hafa haldreipi þegar válynd veður geysa, eins og þessir ungu drengir sem áttu fullt í fangi með að komst heim úr skólanum í veðrinu í gær. Þrett- ándagleði Þórs ÞRETTÁNDAGLEÐI íþrótta- félagsins Þórs verður haldin í 59. sinn í kvöld, föstudags- kvöldið 6. janúar, og hefst hún kl. 20.00. Þrettándagleðin fer fram á félagssvæði Þórs við Skarðs- hlíð. Kveikt verður í bálkesti og álfakóngur og drottning mæta á svæðið ásamt fríðu föruneyti, en að venju verða ýmsar furðuverur á ferðinni, púkar, álfar, tröll og jóla- sveinar svo einhveijar séu nefndar. Margskonar skemmtiatriði verða á þrettándagleðinni, söngur og sprell. Jóhann Baldvinsson organisti leiðir söng en hann verður með Kór Glerárkirkju sem mun ásamt fleirum syngja nokkur lög. Már Magnússon tenórsöngv- ari syngur einnig nokkur lög og þá koma félagarnir Kalli kúla og Siggi sílati fram í fyrsta sinn. Alli Bergdal syngur nokkur popplög, m.a. í rólegri kantinum en hann var einmitt á kantinum í fót- bolta hjá Þór í eina tíð. Þrettándagleðinni iýkur með veglegri flugeldasýn- ingu, en á eftir verður boðið upp á kakó í félagsheimilinu. Brennuball verður að skemmtuninni lokinni, húsið opnar kl. 20.30. Hljómsveitin Örvænting leikur fyrir dansi. Tveir á slysadeild eftir aftanákeyrslu Veghefill ruddi leiðina á slysstað TVEIR menn voru fluttir á slysa- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gærdag eftir að flutn- ingabíll ók aftan á bíl sem þeir voru í. Slysið varð í Fnjóskadal, skammt sunnan við bæinn Víði- velli, nokkru eftir hádegi í snarvit- lausu veðri. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins voru tveir menn á ferð í fólksbíln- um, en vegna vonskuveðurs og lé- legs skyggnis höfðu þeir stöðvað bílinn. Bflstjóri flutningabílsins sá kyrrstæðu bifreiðina of seint og skall aftan á henni. Mennimir tveir voru báðir með áverka í andliti og þá kvörtuðu þeir einnig um meiðsl 60 úrskurðir Á árinu 1994 voru kveðnir upp 60 gjaldþrotaúrskurðir, en af- greiðslu annarra mála lauk með öðrum hætti, að sögn Erlings. Ekki gafst tóm til að ljúka 23 beiðnum sem bárust embættinu á árinu, Af þeim sem úrskurðaðir voru gjaldþrota í fyrra voru ein- staklingar alls 35 og lögaðilar 25. Fleiri einstaklingar voru því úr- skurðaðir gjaldþrota á árinu sam- anborið við fyrra ár þegar þeir voru 26 talsins. Lögaðilum sem úrskurðaðir eru gjaldþrota fækk- aði hins vegar lítillega milli ára, en þeir voru 28 árið 1993. Áf þeim 60 úrskurðum sem gengu á síðastliðnu ári var skipt- um lokið í 25 málanna, en 35 þeirra er ólokið. í öxlum, baki og höfði. Ökumann flutningabílsins sakaði ekki. Veghefill ruddi leiðina Leiðinda færi var á Víkurskarði er slysið varð, en svo heppilega vildi til að starfsmenn Vegagerðarinnar voru staddir á Svalbarðsströnd þar sem þeir unnu að hreinsun og fóru þeir fyrir sjúkrahílnum og ruddu brautina þannig að ferðin sóttist vel. Sjúkrabifreið þurfti reyndar ekki að fara alla leið á slysstað, þar sem skólabíll Fnjóskdælinga kom aðvíf- andi skömmu eftir óhappið og ók hann hinum slösuðu á móts við sjúkrabílinn. Þriggja ára áætlun bæjarsjóðs Miður að horfið sé frá stefnu um lækkun skulda GENGIÐ var frá endurskoðun á frumvarpi að þriggja ára áætlun bæjarsjóðs Akureyrar um rekstur, fjármál og framkvæmdir árin 1995-1997 á fundi bæjarráðs í gær og var því vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn en fundur verður haldinn í næstu viku. Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, bókaði á fundi bæjar- ráðs að fyrst og fremst sé um áætlun meirihlutans í bæjarstjórn að ræða. „Um margt er enginn ágreiningur, en að mínu mati þarf að leita allra leiða til að unnt verði að ná meiri árangri í framkvæmd- um og þjónustu við bæjarbúa," segir m.a. í bókun Sigríðar. Óraunhæft í bókun Sigurðar J. Sigurðsson- ar, Sjálfstæðisflokki, kemur fram að hann telji miður að horfið sé frá því markmiði í áætluninni að stefna að lækkun skulda bæjarins. „Framlag til framkvæmda á veg- um íþróttafélaga er lækkað veru- lega á árinum 1996 og 1997, sem ég tel óraunhæft. Með þessum hætti eru rekstrargjöld lækkuð, sem leiðir síðan til þess að sú fjár- hæð sem ákveðið er að veija til framkvæmda verður þá heldur ekki raunhæf," segir í bókun Sig- urðar um þriggja ára áætlun bæjarsjóðs. Unnið að skipulag’i nýs háskóla- svæðis HÁSKÓLAREKTOR hefur ritað bæjarráði bréf þar sem hann greinir m.a. frá samþykkt Alþing- is um heimild til fjármálaráðherra til kaupa á húsnæði að Sólborg og nauðsynlegar breytingar á því, en þangað er fyrirhugað að flytja starfsemi Háskólans á Akureyri. Jafnfram leitaði rektor upplýsinga frá bæjarstjórn um væntanlega áfangaskiptingu framkvæmda við Borgarbraut og Dalsbraut og ann- arra áætlaðra samgönguleiða á Sólborgarsvæðið. Bæjarráð upplýsti í tilefni af bréfi rektors, að áætlun um gatna- gerðarframkvæmdir á árinu 1995 er til umfjöllunar í bæjarstjórn jafnframt því sem unnið er að skipulagsvinnu á væntanlegu há- skólasvæði. Að lokinni skipulags- vinnu mun bæjarráð ákveða hver verður áfangaskipting við fram- kvæmdirnar. Gjöld afskrifuð SAMÞYKKT var á fundi bæjar- ráðs í gær að afskrifa 18,2 milljón- ir króna í bæjargjöld en lagður var fyrir ráðið listi bæjargjaldkera um gjöld sem bæjarlögmaður telur með öllu glötuð. Að meginhluta er um að ræða aðstöðugjöld sem tapast hafa við gjaldþrot fyrir- tækja. Þá ákvað bæjarráð á fundinum að nýta sér ekki forkaupsrétt bæjarins í mb. Sunnu EA ásamt veiðiheimildum upp á tæp 8 tonn. Morgunblaðið/Rúnar Þór TVEIR menn voru fluttir á slysadeild eftir að flutningabíll ók aftan á bifreið þeirra í Fnjóskadal í vonskuveðri í Fnjóskadal í gær. Aukning hjá Flugleið- um í farþega flutningi VERULEG aukning var á farþega- flutningum til og frá' Akureyri á liðnu ári, en fluttir voru 106.656 farþegar til og frá Akureyri saman- borið við 100.374 árið 1993, en þetta er um 6,2% aukning. Einnig varð aukning í fragtflutn- ingum, en flutt voru 574 tonn af fragt á móti 560 tonnum árið á undan. Ástæða þess að farþegum hefur fjölgað segja Flugleiðamenn vera betri markaðssókn, sérstaklega er- lendis en einnig innanlands og einn- ig góð stundvísi. Aukning var alla mánuði ársins nema í janúar, en vegna veðurs gekk illa að fljúga þann mánuð. I janúar var til að mynda ekki flogið fimm heila daga af tíu sem féllu niður á árinu. Farþegum til og frá Húsavík fjölg- aði um 11,5%, mest um sumarmán- uðina. Flugleiðir fluttu 10.375 far- þega til og frá Húsavík á nýliðnu ári, en þeir voru 9.303 árið á und- an. Lítilsháltar samdráttur varð í vöruflutningum á Húsavíkurleiðinni. Farþegum til og frá Sauðárkróki fækkaði um 1,7% milli ára, úr 8.803 í 8.650. Mest á Norðurlandi Á árinu fluttu Flugleiðir 258.070 farþega innanlands, en farþegar voru 250.211 árið 1993, þar af voru flutningar til og frá Norðurlandi 125.810 farþegar, eða tæplega 49% af heildarfarþegaflutningi félagsins, sem er uin 4% aukning en um 45% farþegaflutninganna voru til og frá Norðurlandi árið 1993.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.