Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AUGNLÆKNINGAR Notkun le.ysigeisla til augnlækninga að ryðja sér til rúms Morgunblaðið/Kristinn HJONIN Margrét Árnadóttir og Eyþór Karlsson, augnlækn- ir, ásamt einu þriggja barna sinna, dótturinni Kristínu Evu. heim samdægurs. „Aðgerðin sjálf er minnsta málið,“ segir Eyþór, „útreikningarnir sem gerðir eru áður eru mikilvægastir. Tækið sér svo um aðgerðina.“ Þegar aðferðin er notuð til að lækna augnsjúkdóma reynir hins vegar meira á augn- lækninn við stjórn tækisins. Eyþór segir að enn hafi ekki gefíð góðan árangur að reyna að laga fjarsýni með þessari aðferð, en tilraunir lofi góðu. Önnur nýjung er að nú ráði nýrri tæki við tölu- verða sjónskekkju, þó svo að slíkt geri aðgerðina flóknari. Eyþór seg- ir að þegar sjónskekkja og nærsýni fari samari þurfi bæði að gera horn- himnuna flatari og breyta lagi hennar úr ávölu í kringlótt. Það hafi hins vegar ekki gengið eins vel að meðhöndla Ijarsýna mann- eskju með sjónskekkju. „Þetta er örugg aðferð," segir Eyþór. „Engin aðgerð er hins vegar hættulaus og brýnt er að fólk hafi það í huga.“ Hann segir að fyrir fólk með nærsýni lægri en mínus sex sé um 1-2% hætta á að sjónin versni ef allir sjónlagsgallar eftir aðgerðina eru fjarlægðir með gler- augum. Sjónlagsgallar eru nær- sýni, fjarsýni og sjónskekkja. Aftur á móti sjá um 3% betur eftir aðgerð- ina, mælt fyrir og eftir aðgerð. Við meðhöndlun á meiri nærsýni en mínus sex, eykst áhættan lítið. Um 95% fá svipaða sjón fyrir og eftir aðgerð, en munurinn er sá að lang- flestir þurfa ekki gleraugu lengur. Þó svo að aðgerðin taki stuttan tíma þá fylgir henni löng eftirmeð- ferð. Eyþór segir að það þurfi að meðhöndla augað með steradropum í allt að þijá mánuði. Slíkir dropar geti aukið augnþrýsting og þá væri notkun steranna hætt. Við það gæti nærsýnin aukist á ný og þá þyrfti stundum aðra aðgerð. Eyþór segir að allt að 20-30% sjúklinga geti fengið þessi einkenni. Tæki af þessu tagi eru ekki til hér á landi og segir Eyþór að lík- lega séu Bretar komnir með mesta reynslu á þessu sviði. Þá hafi ráð- gjafanefnd Matvæla- og lyfjaeftir- litsstofnunar Bandaríkjanna nýlega mælt með að gefið yrði leyfi fyrir því að nota leysitæki til að laga nærsýni á þennan hátt í Bandaríkj- unum. Því býst hann við að aðferð- in nái talsverðri útbreiðslu á næstu árum. Laga nærsýni og ýmsa augnsjúkdóma Eyþór Karlsson, augnlæknir í Svíþjóð, hefur undanfarið unnið við að laga nærsýni og ýmsa augnsjúkdóma með leysitækni og seg- _____ • > ir árangurinn lofa góðu. Aslaug Asgeirs- dóttir kynnti sér málið. EIN HELSTA nýjungin á sviði augnlækninga und- anfarin ár er leysimeð- ferð á augum og segir Eyþór Karlsson, augnlæknir í Upp- sölum í Svíþjóð, að tæknin nýtist helst til tvenns konar aðgerða, til að brenna burt örvef utarlega á hornhimnu og til að lækna nær- sýni. „Það er frábært að tala við fólk sem áður hefur haft þykk gler- augu en þarf nú engin,“ segir hann. „Nú teygir þetta fólk höfuðið á móti rigningunni í stað þess að beygja höfuðið. Sennilega mun ég aldrei skilja þessa tilfinningu sjálf- ur.“ Eyþór hefur aldrei þurft að nota gleraugu, en hann hefur und- anfarin ár unnið við svona aðgerðir í Svíþjóð. „Þessi aðgerðartækni hefur verið þekkt í mörg ár en ekki í þessu formi,“ segir Eyþór. Hornhimnur í mönnum voru fyrst brenndar með leysi árið 1988 og tæknin kom til Svíþjóðar tveimur árum síðar. Ey- þór segir að síðan hafi alit að 20 þúsund augu verið meðhöndluð þar í landi. „Þetta er engin bóla sem hverfur,“ segir hann. „Þessi aðferð mun festa sig í sessi.“ Leysitækið byggir á geislum með stuttri bylgjulengd og er talsvert stórt í sniðum, en það er á bilinu 4-5 metrar á lengd og l'/z metri á breidd og hæð. Tæki af þessu tagi eru dýr og segir Eyþór að það kosti uppsett tæpar 80 milljónir íslenskra króna. Aðgerðir til að lækna nærsýni eru því talsvert dýrar, en aðgerð til að laga nærsýni kostar tæpar 100 þúsund íslenskar krónur fyrir hvort auga. Tryggingastofnun borgar ekki slíkar aðgerðir og þær eru ekki gerðar hér á landí. Eyþór segir að hugsanlega lækki verðið eitthvað á næstu árum, samanber hversu mikið verð tölva hafi lækkað á undanförnum 10 árum. Hann segir að auk þess að aðgerðirnar séu dýrar þá þurfi fólk að geta þolað sársaukann. Líklega reyni þó mest á þolinmæði fólks, því það geti tekið allt að þrjá mánuði að ná góðri sjón. Þrátt fyrir að leysitæki séu mest notuð til að laga nærsýni segir Eyþór að mest sé byltingin á sviði augnsjúkdóma. „Til dæmis er hægt að nota hana til að lækna sjúklinga sem áður þurftu að fá ígræðslu nýrrar hornhimnu." Hins vegar eru þessar aðgerðir einungis um 2-4% af heildaríjölda aðgerðanna, af- gangurinn er til að laga nærsýni. Eyþór Ieggur áherslu á hversu mikil bylting þessi nýja tækni sé til lækninga á ýmsum augnsjúk- dómum. Þá sé örvefur sem liggur utarlega á hornhimnunni fjarlægð- ( ur, en slíkur örvefur er oft afleiðing slysa eða arfgengra augnsjúkdóma. Leysirinn brennir burt örverfinn sem hindrar eðlilega sjón og sjúk- lingurinn fær sjón aftur. Hann segir að tii að Iaga nær- sýni þurfi að brenna burt hluta hornhimnunnar þannig að ljós Morgunblaðið/Þorkell Hjá nærsýnum er augað lengra en eðlilegt er. Brennipunktur Ijóssins er þá tyrir framan sjónhimn- una og myndin sem varp- ast á hana er því óskýr. Leysigeislinn brennir burt hluta hornhimnunnar og þynnir hana. Aðgerðin nær einungis til svæðis sem er um 6 millimetrar í þvermál og brotabrot úr millimetra á dýpt. Brennipunktur Ijóssins er nú á sjónhimnunni og mynd sem varpast á hana er skýr. Það opnast fyrir manni nýr heimur MARGRÉT Árnadóttir, eiginkona Eyþórs Karlssonar, hafði notað gleraugu í 22 ár þegar hún fór í aðgerð seint á síðasta ári til að láta laga nærsýni upp á um mínus þrjá á hvoru auga. Segist hún nú sjá betur en með gleraugunum áður. „Ég var svolítið hikandi fyrst,“ segir hún, „en síðan ákvað ég að slá til og sé ekki eftir því. Mér finnst ég vera frjáls núna. Maður losnar við þennan stöðuga ramma og það opnast fyrir manni nýr heimur. Gleraugu eru til dæm- is viss hindrun í samskiptum við börn og nú finnst mér ég geta komist nær börnunum mínum." Við upphaf aðgerðarinnar var augað deyft með dropum. Síðan lagðist Margrét í stól þar sem höfuðið var skorðað og spenna var sett á augnlokið til að halda því opnu. Síðan var Margrét Iátin horfa á leiðapunkt sem mældi þann stað á hornhiinnunni sem gera átti aðgerðina á og þá var ysta lag hornhimnunnar skafið í burtu. Síðan var innra lag horn- himnunnar brennt. Aðgerðin tók einungis um eina mínútu og á eftir var augað fyllt með deyfikr- emi, leppur settur yfir og fór Margrét heim sama dag. brotni í miðgróp sjónhimnunnar aftast í auganu. Hjá nærsýnu fólki er augað of langt og brennipunktur þess fyrir framan sjónhimnuna. Eyþór segir að dýptin fari eftir því hversu nærsýnn einstaklingurinn Hún fór í fyrri aðgerðina í byij- un nóvember en þá síðari í byijun desember. Eyþór segir að einung- is sé hægt að gera aðgerð á öðru auganu í einu. Seinna augað megi laga viku seinna, en mælt sé með að það líði allt að fjórar vikur á milli aðgerða. „Þessu fylgir mikill sársauki þrátt fyrir verkjalyfin,“ segir Mar- gi'ét. Deyfikremið virkaði í um þijá tíma, en eftir það tók hún verkjalyf til að deyfa sársaukann. Einnig bólgnuðu augnlokin tals- vert, en hún segir að allt hafi ver- ið komið í samt lag á fimm dögum. „Á fimmta degi gat ég lesið texta í sjónvarpinu og það var frábær tilfinning," segir hún. í fyrstu sá Margrét allt í móðu en segist alltaf hafa séð að handan hennar væri veröldin skýrari. Smám saman hafi móðan horfið og sjónin orðið eðlileg. Eyþór segir það einstaklings- bundið hversu lengi fólk sé að jafna sig en sársaukinn fari yfir- leitt eftir um þrjá daga, eða þar til ysta lagið á hornhimnunni hafi vaxið aftur yfir meðhöndlaða svæðið. Síðan taki við smápirring- ur í auganu en flestir séu orðnir góðir eftir fimm daga. er og með nýjustu tækjum sé hægt að meðhöndla fólk með nærsýni allt að mínus 12 og með sjón- skekkju upp að mínus fimm. Aðgerðin tekur einungis um eina mínútu og geta sjúklingar farið • • Or tækni- þróun KRISTJÁN Þórðarson augnlækn- ir hefur sent nokkra sjúklinga í leysiaðgerð á augum til Danmerk- ur. Hann segir tæknina þróast mjög ört á þessu sviði og aðgerðir með demantshníf á augum í sama skyni, sem gerðar hafa verið, muni væntanlega víkja fyrir leysi- tækninni í náinni framtíð. Tæknin sé til frambúðar og muni verða valkostur við hlið gleraugna og snertilinsa í framtíðinni. Lofar góðu en hefur annmarka Krislján segir að aukaverkanir af leysiaðgerðum séu færri en með demantshnífnum, og sárin eftir aðgerðina séu ögn lengur að gróa eftir síðarnefndu aðgerðina. Ein aukaverkana gömlu tækninnar sé sveiflukennd sjón, og þannig sé sjúklingur einn sem gekkst undir slíka aðgerð í Danmörku misnær- sýnn eftir því hvaða tími sólar- hrings er. Þeir sjúklingar sem gengist hafi undir aðgerð, bæði með nýju og gömlu tækninni, sjái þó ekki eftir því að hafa reynt þá leið. Niðurstöður aðgerða með leysi- tækninni lofi því góðu, en á henni séu ákveðnir annmarkar. „Það getur ekki hver sem er farið í þessa aðgerð. Þetta þarf að vega og meta í hveiju tilfelii, og þá skiptir máli aldur fólks, at- vinna þess og hvernig hornhimna augnanna lítur út. Erfiðara er að lofa árangri eft- ir því sem nærsýnin er meiri. Kjör- aldur einstaklings sem fer í slíka aðgerð er á milli tuttugu og tveggja ára til þrítugs, eða eftir að aukning nærsýni stöðvast. Ég myndi segja að gott væri að bíða með að fara í slíka aðgerð ef menn geta, því að hver mánuður eða ár sem líður í þróun tækninn- ar er til bóta,“ segir Kristján. Vafasamar aðgerðir ÁRNI B. Stefánsson augnlæknir kveðst telja að leysiaðgerðir á nærsýni og öðrum slíkum augng- öllum með leysitækni séu um margt vafasamar. „Þessi aðgerð er leysiinngrip í augu sem eru í sjálfu sér heil- brigð, hvort sem þau eru nærsýn eða fjærsýn," segir Árni. „Aðgerð- ir á heilbrigðum augum mega ekki hafa aukaverkanir, en að- gerðir með leysitækni hafa hins vegar aukaverkanir." Demantsaðgerð skárri Árni segir að þótt ný tækni sé komin fram, þýði það ekki að allir þeir sem eru nærsýnir eigi að hlaupa til og reyna hana. Forveri leysiaðgerðarinnar, rússnesk skurðaðgerð með demantshníf á augum sem kennd er við Fjod- orov, og var síðan tekin upp á Vesturlöndum, sé heldur skárri með tilliti til aukaverkanna og árangurs að hans mati. „En allir vilja reyna leysitækn- ina því að sú aðferð er ný. Leysi- tækin kosta á milli 20 og 30 millj- ónir króna og augnlæknar sera kaupa slík tæki þurfa að sjálf- sögðu að borga þau niður og um leið breytist afstaða manna til aðgerðanna. I stórum löndum geta menn keypt þennan búnað, notað á fjölda fólks og orðið rikir á skömmum tima. Forsendur fyrir aðgerð af þessu tagi eru í mínum huga, 0 g margra augnlækna þori ég að fullyrða, til- tölulega takmarkaðar: Þær eru helstar að nærsýnt fólk vilji ekki eða geti ekki notað gleraugu vegna starfs eða hugarfars, og þoli ekki linsur. Linsur eru þó miklu ódýr- ari en aðgerð og hafa minni auka- verkanir. Ég myndi ekki senda mína nánustu i siíka aðgerð og ekki fara í hana sjálfur."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.