Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR SVEINSSON + Sigurður Sveinsson var fæddur í Dalskoti i Vestur-Eyjafjalla- hreppi 30. október 1913. Hann lést á Borgarspítalanum 29. desember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guðleif Guðmundsdóttir frá Vatnahjáleigu í Landeyjum, f.’ 15. júlí 1875, d. 1967, og Sveinn Sveinsson frá Dalskoti, f. 4. apríl 1873, d. 1930. Guðleif og Sveinn eignuðust tíu börn, tvö dóu kornung en átta komust upp, fimm synir og þijár dætur: Guðríður, f. 15. maí 1900, d. 1983; Sveinn Jón, f. 30. mars 1901, d. 1969; Eymundur f. 2. apríl 1903; Ólafur, f. 30. október 1908, d. 1986; Guðrún, f. 24. júlí 1912; Sigfús, f. 22. febrúar 1916; Pálína, f. 21. júní 1921. Níu ára gamall fluttist Sigurð- ur með foreldrum og systkinum að Stóru-Mörk undir Eyjafjöll- - NÚ ER i elsku afi búinn að öðlast hvíld, og tími þjáninga hans á enda. A kveðjustundu þessari, sem er blandin bæði gleði og sorg, rifjast upp þeir tímar sem við áttum saman. Þegar ég var lítil kom ég alltaf til afa og ömmu á Hjarðarhagann eftir skóla. Þar biðu þau eftir mér með opinn faðminn, gáfu mér eitt- hvað hollt að borða og svo auðvitað graut á eftir. Það er fyrir þeirra til- stilli að grautar eru minn uppáhaids matur. Ég hjálpaði svo afa að „öngla“ og við spiluðum á spil, stund- um tímunum saman. Hann kenndi um. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskól- anum í Vestmanna- eyjum 1940. Ungur fór Sigurður til sjós og varð sjómennsk- an hans ævistarf þar til hann kom í land 1965 og starfaði eft- ir það hjá Eimskipa- félagi Islands. Arið 1982 varð Sigurður fyrir alvarlegu vinnuslysi sem varð til þess að hann hætti störfum. Sigurður kvæntist eftirlifandi konu sinni Soffíu Steinsdóttur frá Neðra-Asi 28. nóvember 1942. Dætur þeirra eru: Hrafnhildur Björk, maki Gunnar Felzmann, þau eiga eina dóttur; Guðleif, maki Haukur Þorvaldsson, þau eiga þijú börn; Soffía Steinunn, maki Ingi Orn Geirsson, börn þeirra eru þijú. Barnabarnabörn Sigurðar og Soffíu eru þijú. Útför Sigurðar fer fram frá Neskirkju föstudaginn 6. janúar. mér og systkinum mínum mann- ganginn og því var nær alltaf teflt í fjölskylduboðum. Afi hafði óskaplega gaman af að lesa og þá bakteríu fékk ég frá hon- um. Um leið og ég hafði lært starf- rófið var ég farin að lesa þjóðsögur úr hillunni hans afa. Vegna þess hvað ég dvaldist mik- ið hjá afa og ömmu, fór ég að taka inn stöku orð og orðasambönd sem þau notuðu á heimilinu. Þessi „gömlu" orð hafa geymst í orðaforða mínum síðan, og ég nota þau óspart. Ég hef því ótal sinnum lent í því að MINNINGAR fólk skellir uppúr þegar orðum eins og „útstáelsi" og „glænepjuleg“ bregður fyrir í setningum mínum. Þeim stundum sem við áttum sam- an, elsku afi, mun ég aldrei gleyma. Nú ertu þar sem augað ekki sér og höndin ekki finnur, en samt muntu alltaf lifa í hugum okkar og hjörtum. Þín afastelpa, Inga Björk. I dag kveðjum við elsku afa okk- ar, Sigurð Sveinsson. Okkur langar til að þakka honum allt það sem hann gerði fyrir okkur. Afi var umhyggjusamur og bar alltaf velferð okkar fyrir brjósti. Hann var einstaklega athugull mað- ur, tók vel eftir öllu í umhverfi sínu og hafði ákveðnar skoðanir á þjóð- félagsmálum. Hafði hann gaman af að ræða þau þegar tími vannst til. Afi var víðlesinn og mikill visku- brunnur. Nutum við oft góðs af vitn- eskju hans, því afi mundi vel ýmis atriði og tilvitnanir úr þeim bókum sem hann las. Afi naut sín hvergi betur en í faðmi íslenskrar náttúru. Þær eru ófáar ferðirnar sem hann fór um öræfi Islands. Við vorum ekki há í loftinu þegar afi fór að taka okkur með sér í ferðalög. Hann brýndi það fyrir okkur að vera athugul og ferðast um landið okkar með opnum huga. Við eigum honum því mikið að þakka. Sumarið 1989 gekk hluti fjölskyld- unnar svo kallaðan Laugaveg, frá Landmannalaugum til Þórsmerkur. Aðrir í fjölskyldunni tóku á móti göngugörpunum, er þeir konu niður í Þórsmörk. Þrátt fyrir að afi hafi ekki getað tekið þátt í göngunni, var hann í broddi fylkingar við móttöku á hálsinum milli Húsadals og Langa- dals við Snorraríki. Á þessum æsku- slóðum afa, þar sem hann þekkti hveija þúfu, fræddi hann okkur um hin ýmsu kennileiti og atburði liðins tíma. Minningin um afa mun lifa með okkur alla ævi og þegar við hittumst RÝMINGARSAIA Stórí fjölskyldupokinn tyrir aðeins Kr 1.990,- HÉR ERUM VID Þetta færðu aðeins hjjá flugeldasölunni Jarðhúsunum Ártúnsholti Opið 10-18 Sími 886018 INGvAR HELGASON aftur eftir þetta jarðlíf munu verða fagnaðarfundir. Elsku afi, takk fyrir allar yndislegu og lærdómsríku sam- verustundimar. Um vetrarsólhvörf, urfdir stjörnum og norðurljósum, er hinsta hvíla hans gjörð í Gufuneskirkjugarði/ Elsku amma, megi Guð styrkja þig á þessari sorgarstund. Anna María og Sigurður Páll. Sennilega hefur engin kynslóð í íslandssögunni upplifað aðrar eins breytingar á högum sínum og sú sem fædd er á fyrstu tveim áratugum þessarar aldar. Einn þessara manna kveðjum við í dag. Sá heitir Sigurður Sveinsson, frændi minn, fæddur í Dalskoti undir Eyjafjöllum 1913 en alinn upp í Stóru-Mörk í sömu sveit, greindur dugnaðarforkur. Þegar Sig- urður er að alast upp í Stóru-Mörk eru stórvötnin Markarfljót og Þverá enn óbrúuð. Þegar menn áttu erindi yfir þessi vötn var ekki um annað að ræða en treýsta á þarfasta þjón- inn. Það sem ekki skipti síður máli var þekking á rennsli og straumlagi vatnanna. Það gat skipt sköpum ef vel átti að takast. Segja má að Sig- urður hafi fengið allt þetta með móðurmjólkinni. Seinni hluta vetrar 1930 missti Sigurður föður sinn. Þrír eldri bræð- ur hans voru þá allir farnir á vertíð til Vestmannaeyja. Sigurður var því sá sem næstur stóð móður sinni við undirbúning útfararinnar. Boð barst um aðstoð við bakstur frá húsfreyj- unni á Barkastöðum í Fljótshlíð vegna erfidrykkjunnar sem þá var vani að hafa ekki síður en nú á dög- um. Sveinn faðir Sigurðar hafði ver- ið þar vinnumaður áður en hann og Guðleif móðir hans gengu í hjóna- band. Margréti húsfreyju hefur sennilega fundist sér renna blóðið til skyldunnar. Sigurður, þá 16 ára, var sá eini sem móðir hans hafði til að senda eftir meðlætinu. Til þess að komast yfir að Barkastöðum þarf að fara yfir Markarfljót. Þetta mun hafa verið í mars, hluti vatnsins und- ir ís og því mun vandasamara að komast yfir. Sigurður mun hafa ver- ið með þijá hesta og brotnaði ísinn undan einum þeirra. Allt fór betur en á horfðist. Hestar og maður sluppu með skrekkinn, ráku erindið á Barkastöðum og komust klakk- laust aftur heim að Mörk. Margrét húsfreyja á Barkastöðum lét þau orð falla eftir þessa ferð að það mundi verða maður úr honum þessum. Þessi spádómur reyndist réttur og heldur betur ef eitthvað er. Fyrstu misserin eftir andlát föður Sigurð'ar mæddu bústörfín mest á honum og Sigfúsi bróður hans sem var þremur árum yngri. Það leystu þeir af hendi með sóma. Þegar ég hugsa til baka til þess tíma sem við áttum saman hrannast upp minningarnar. Það sem upp úr stendur er hinn mikli hugur og kjark- ur við allt sem Sigurður tók sér fyr- ir hendur. Svo á reyndar við um öll hans systkini, átta talsins. Af þeim lifa nú íjögur. Það átti fyrir Sigurði að liggja að stunda sjóinn ýmist á bátum eða togurum. Þó held ég að hann hefði allt eins getað orðið bóndi því hann var fjárglöggur maður. Mér hefur verið sagt að þegar hann gekk til kinda hafi hann gjarnan horft á ská. Ég sé hann fyrir mér i slíkri stellingu. Konu sína sótti Sigurður norður í Skagijörð. Alla tíð stóð hún við hlið manns síns eins og klettur. Dæturn- ar þijár sem þau eignuðust fá sama vitnisburð. I mínum uppvexti var það siður minnar fjölskyldu og hans að hittast á jólum. Þá var gjarnan tekið í spil. í því sem öðru var mikill hugur í Sigurði og því eins gott að spila rétt. Gerði maður það ekki fékk maður orð í eyra. Ég man eftir einu býsna spaugilegu atviki. Þeir spiluðu hver á móti öðrum. Sturla bróðir minn og Sigurður. 1 einu spilinu varð bróður mínum á í messunni. Af einhveijum ástæðum þá vannst spilið út á þessa HREINN GUNNARSSON + Hreinn Gunnars- son bóndi á Hall- dórsstöðum í Eyja- firði var fæddur 28. febrúar 1932 á bæn- um Tjörnum í Eyja- firði. Hreinn lést 27. desember síðastlið- inn. Konan lians hét Erna Sólveig Sig- valdadóttir en hún lést árið 1985. Hreinn og Erna Sól- veig áttu eina dótt- ur, Rósu, en sambýl- ismaður hennar er Guðbjörn Elfarsson. Hreinn átti eitt barnabarn. Útför Hreins fer fram frá Akureyrarkirkju í dag. MIG LANGAR með örfáum orðum að minnast vinar míns og fyrrum húsbónda, Hreins Gunnarssonar, en margs er að minnast og af mörgu að taka. Fyrst kom ég á Halldórs- staði í byijun árs 1987 en þá var amma mín, Jóhanna, ráðskona þar. Hreinn leyfði mér að gera svo margt í sveitinni að ég hafði alltaf nóg að gera þó ég væri aðeins fimm ára gamall. Drottins lúður þegar hljómar hina miklu morgunstund. (V. Briem) Hreinn veiktist al- varlega 26. desember sl. en annars var hann alltaf fílhraustur og af- skaplega góður maður. Hann bauð mér oft á hestbak þegar ég kom á Halldórsstaði og alltaf lét hann mig vita ef hann var búinn að eign- ast nýja hesta, folöld eða eitthvað sem hann langaði til að sýna mér. Það er erfitt að sætta sig við að Hreinn skuli vera horfinn af sjónarsviðinu. Mér fannst svo gaman að koma á Halldórsstaði, þó ég væri nýkominn þaðan og væri á leiðinni heim sagði ég við ömmu að við þyrftum að drífa okkur aftur til hans Hreins á Halldórsstöðum. / Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tið. (V. Briem.) Ég sendi Rósu dóttur hans og öðrum ættingjum og vinum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Hreins á Hall- dórsstöðum. Sofðu vært hinn síðsta blund, unz hinn dýri dagur ljómar, Ólafur Jóhann Borgþórsson, Vestmannaeyjum. t . Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, DANÍEL KRISTINN KRISTINSSON, Hjaltabakka 6, lést í Landakotsspítala að kvöldi 2. janúar. Dýrley Sigurðardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.