Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
KEA sendir bæj ar stj ór ninni á Akureyri formlegt erindi
KE A reiðubúið að kaupa
30-35% hlutabréfa í ÚA
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga,
Akureyri, kom saman til fundar í
fyrradag, þar sem samþykkt var
erindi til bæjarstjórnar Akureyrar,
í þá veru að KEA lýsir sig reiðu-
búið til þess að kaupa 30-35% hlut
í Utgerðarfélagi Akureyringa (ÚA)
af bænum, en Akureyrarbær á 53%
hlut í fyrirtækinu, ef niðurstaða
bæjarstjórnarinnar verður að selja
hlutabréf í fyrirtækinu.
Jóhannes Sigvaldason, stjórnar-
formaður KEA, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi, að
stjórnin teldi að með þessu væri
hægt að stuðla að því að íslenskar
sjávarafurðir tækju ákvörðun um
að flytja höfuðstöðvar sínar til Ak-
ureyrar, „sem væri mikið hags-
munamál, bæði fyrir bæjarfélagið
og Kaupfélag Eyfirðinga“, sagði
Jóhannes.
KEA á nú 8,4% í ÚA, en með
slíkum kaupum ætti KEA ráðandi
meirihluta í fyrirtækinu, með sam-
starfi við bæjarfélagið, og þannig
segir Jóhannes að væri kominn
grundvöllur til þess að taka ákvörð-
un um að bjóða ÍS upp á viðskiptin
við ÚA, í stað SH.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins væri KEA þannig reiðu-
búið að kaupa hlutabréf í UA fyrir
570 til 660 milljónir króna, eftir
því hve stór hlutur yrði keyptur.
Erindi stjórnarinnar var afhent Jak-
obi Björnssyni bæjarstjóra í gær.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er markmið stjórnar
KEA með þessu erindi jafnframt,
að tryggja að allur kvóti ÚA hald-
ist á Akureyri, þótt bæjarfélagið
taki ákvörðun um að selja hluta af
eign sinni í fyrirtækinu, og tryggja
á þann veg að atvinnustig haldist
a.m.k. óbreytt.
Enn hefur engin ákvörðun verið
tekin um sölu bréfanna, eftir því
sem næst verður komist, en Jón
Ingvarsson, stjórnarformaður Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna, mun
eiga fund með bæjarstjóra Akur-
eyrar fýrir hádegi í dag, þar sem
hann mun kanna hvort bréfin öll,
eða hluti þeirra eru til sölu.
„Ég tel að það væri vel athug-
andi, ef það kæmi á daginn, að
þessi bréf bæjarins í ÚA, eða hluti
þeirra, væri til sölu, að Sölumiðstoð-
in gæti þá beitt sér fyrir því að
safna saman einhveijum fjárfest-
um, til þess að kaupa þennan
hluta,“ sagði Jón í samtali við Morg-
unblaðið.
Hann sagði jafnframt að það
væri stefna stjórnar SH að kaupa
ekki hluti í framleiðslufyrirtækjum
sem væru eigendur SH.
Vátryggingar
17 erlend
félög vilja
starfa hér
SAUTJÁN erlend vátrygg-
ingafélög hafa tilkynnt til
Vátryggingaeftirlitsins að þau
hyggist veita þjónustu hér á
landi án þess að setja upp
starfsstöð.
Samkvæmt EES-samningn-
um þurfa erlend tryggingafé-
lög sem hafa starfsleyfi í sínu
heimalandi einungis að til-
kynna að þau hyggist stunda
hér starfsemi. Með nýjum lög-
um um vátryggingastarfsemi
sem gengu í gildi í maí var
opnað fyrir þennan möguleika
hér á landi en áður þurftu er-
lend félög að sækja um leyfi
til að starfa hér.
■ Níu af alls sautján/12
Lúsifer
bjargaði
Gogga
ÞAÐ ER ekki algengt að kettir
séu í því hlutverki að bjarga
lífi smáfugla, en þannig var það
nú samt með Lúsífer, köttinn
hennar Rúnu Pétursdóttur.
Páfagaukurinn Goggi, sem
Siya ívarsdóttir á, slapp út um
gluggann á Úthlíð 18 á gamlárs-
dag og þrátt fyrir mikla leit
fannst hann ekki.
Tæpum sólarhring síðar
rakst kötturinn hennar Rúnu á
fuglinn og kom með hann í
kjaftinum heim tíl sín á Flóka-
götu 23. Fuglinn reyndist vera
svo til heill á húfi.
Hélt hann væri dáinn
Silja vissi ekkert hvað hafði
orðið af Gogga og reyndar taldi
mamma hennar víst að fuglinn
hefði króknað úr kulda um nótt-
ina. í gær þegar hún kom í skól-
ann sagði hún vinkonu sinni,
Silju Glömmi, frá Gogga. Silja
var þá nýlega búin að frétta af
því að kötturinn hennar Rúnu
frænku hennar hefði komið
heim með fugl í kjaftinum. Það
kom síðan í ljós að þar var
Goggi kominn.
Silja var að vonum glöð og
sagðist hafa talið að hann væri
dáinn vegna þess að það hefði
verið svo kalt um nóttina. Svo
hefði hann líka sjálfsagt verið
mjög hræddur við hávaðann frá
sprengingum á gamlárskvöld.
Kom einu sinni með dúfu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SILJA Glömmi heldur á kettinum Lúsífer og vinkona hennar, Silja ívarsdóttir, heldur á Gogga.
Rændi veski
af konu
UNGUR maður vatt sér að tæplega
sextugri konu við Iðnskólann síð-
degis í gær, hrifsaði af henni veski
og hljóp á brott.
Konan slapp ómeidd og komst inn
í verslun í nágrenninu og lét lög-
regiu vita. Hún var færð á aðalstöð
lögreglunnar til viðtals og síðan til
rannsóknarlögreglu. I veskinu voru
um 10 þúsund krónur í reiðufé,
bankabók, greiðslukort, húslyklar
og ýmsir persónulegir munir.
----------» ♦ ♦
Sjúkraliðar
fá alls 7,02%
GERÐARDÓMUR, sem skipaður var
í samræmi við kjarasamning sjúkra-
liða og ríkisins frá 30. desember,
hefur úrskurðað sjúkraliðum 3,52%
launahækkun. Þessi niðurstaða þýðir
að kjarasamningurinn færir sjúkra-
liðum 7,02% hækkun launa.
Dómnum var falið að bera saman
laun sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga,
ljósmæðra, meinatækna, röntgen-
tækna, sálfræðinga, sjúkraþjálfara,
iðjuþjálfara, fastráðinna lækna og
þroskaþjálfa, læknaritara, læknafull-
trúa, matvælafræðinga og mat-
artækna sem starfa á heilbrigðis-
stofnunum.
Heilbrigðisráðherra kynnir drög að tilvísanakerfi sem spara á 100 milljónir
Sérfræöingar segja ekkert
samráð hafa verið haft
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
skiptið sem kötturinn Lúsífer
•kemur heim með fugla, því hann
hefur margsinnis komið heim
með lifandi fugla.
Sumir hafa reyndar verið
slasaðir. Eitt sinn kom Lúsífer
meira að segja með dúfu handa
Rúnu. Ætíð fer hann með fugl-
ana til Rúnu, sem hefur yfirleitt
verið óánægð með þetta fram-
tak kattarins.
SIGHVATUR Björgvinsson heil-
brigðisráðherra átti fundi með sér-
fræðingum í gær og heimilis- og
heilsugæslulæknum í fyrradag til að
kynna þeim drög að reglugerð um
nýtt tilvísanakerfí í heilbrigðisþjón-
ustunni. Á fundunum komu fram
athugasemdir og hörð mótmæli af
hálfu lækna.
Ráðherra hyggst koma aftur á til-
vísunum til sérfræðinga. Fari sjúkl-
ingur til sérfræðings án þess að hafa
tilvísun, eftir að tilvísanakerfi verður
komið á, greiðir hann fullan kostnað
vegna heimsóknarinnar. í íjárlögum
er gert ráð fyrir að þessi breyting
skili um 100 millj. kr. sparnaði á ári.
Sérfræðiþjónustan ódýr
Gestur Þorgeirsson, formaður
Læknafélags Reykjavíkur, sagði hátt
á annað hundrað manns hafa mætt
á fund heilbrigðisráðherra með sér-
fræðingum síðdegis í gær. Þar komu
fram hörð mótmæli við tilvísanakerf-
inu. Gestur segir að ekkert samráð
hafa verið haft við læknasamtökin
við undirbúning þessa máls.
Gestur óttast að tilvísanamálið
valdi ákveðnum erfíðleikum fyrir
læknastéttina. „Við höfum búið við
blandað kerfi, hluti af sjúklingum
kemur með tilvísanir frá heimilis-
læknum og hluti kemur beint til sér-
fræðings. Þetta hefur gengið mjög
vel hér á íslandi þar sem sérfræði-
þjónustan er ódýr og skilvirk."
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Félags heimilislækna, segir ekki gert
ráð fyrir að tilvísanakerfi valdi auknu
vinnuálagi á heimilislækna, nema
rétt til að byija með. Kerfíð eigi að
mæta því með þróun og ekki sé gert
ráð fyrir tekjuaukningu hjá heimilis-
læknum, enda geti þeir ekki bætt á
sig vinnu.
■ Ákvörðun fljótlega/4