Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 39 FRÉTTIR Skoðanakönnun DV Sijórnar- flokkar styrkja fylgið DV BIRTI í gær skoðanakönnun um fylgi flokkanna. í samanburði við niðurstöðu sambærilegrar könnunar í nóvember eru breyt- ingar þær helstar að fylgi Þjóð- vaka minnkar um 4,5 prósentu- stig, fylgi Alþýðubandalags um 1,6 prósentustig og fylgi Kvenna- lista um 0,7 prósentustig. Fylgi Framsóknarflokks eykst um 1,9 prósentustig og stjórnarflokkanna Alþýðuflokks um 1,6 prósentustig og Sjálfstæðisflokks um 3,3 pró- sentustig. Afstöðu tóku 59,8% aðspurðra. Af þeim reyndust 5,6% styðja Al- þýðuflokkinn, 20,9% Framsóknar- flokkinn, 37,9% Sjálfstæðisflokk- inn, 10,3% Alþýðubandalag, 6,4% Kvennalista og 18,9% Þjóðvaka. Úrtakið var 600 manns sem skiptist jafnt á milli kynja sem og milli búsetu í höfuðborginni og úti á landi. Tveimur bílum stolið LÖGREGLAN í Reykjavík leitar upplýsinga vegna tveggja bíla sem stolið var í Reykjavík síðustu daga. Á nýársnótt var rauðri Lödu station, R-73417, stolið frá Grettisgötu. Aðfaranótt 3. janúar var rauð- um Saab 99, árgerð 1982 stolið frá Grettisgötu. Bíllinn fannst síð- an á Suðurlandsvegi við Bláfjalla- afleggjara þar sem hann hefur orðið bensínlaus á austurleið. Ef einhveijir hafa tekið mann eða menn upp í þá nótt á Suður- landsvegi og ef einhveijir geta gef- ið upplýsingar um það hvar Ladan er niðurkomin eru þeir beðnir að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Þrettánda- brenna í Seljahverfi SKÁTAFÉLAGIÐ Segull í Selja- hverfi, Skátafélagið Eina í Bakka og Stekkjahverfi Reykjavík og Kór Seljakirkju halda með leyfi Lög- reglustjórans í Reykjavík sína ár- legu þrettándabrennu föstudaginn 6. janúar 1995 á auðu svæði niður af Ölduselsskóla við Öldusel. Athöfnin hefst með blysför kl. 19.45 frá skátaheimilinu, Tindas- eli 3 og verða kyndlar til sölu við upphaf blysfararinnar. Kveikt verður á bálkestinum kl. 20. íbúar hverfisins, skátar og aðr- ir, eru hvattir til þátttöku í undir- búningi/söfnun og til að mæta í viðeigandi búningum við athöfn- ina. t Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES GUNNAR GÍSLASON, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 7. janúar kl. 11.00 f.h. Fyrir hönd vandamanna, Hjálmar Þór Jóhannesson, Erna Margrét Jóhannesdóttir, Sveinbjörn Hjálmarsson. t Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför JÓNS JÓHANNESSONAR, Ásgarðsvegi 14, Húsavík. Sigrfður Jóhannesdóttir, Rakel Jóhannesdóttir, Einar Fr. Jóhannesson og fjölskylda. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför VALBORGAR INGIMUNDARDÓTTUR, Ægisgötu 5, Akureyri. Erla Ásmundsdóttir, Guðjón Ásmundsson, Ólöf Tryggvadóttir, Helga Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t ' Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför MARÍU ELÍSABETAR OLGEIRSDÓTTUR, Vogatungu 83, Kópavogi. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Gísli Guðmundsson. SJONARHORN Eyrnabólga tengd fæðuofnæmi Eyrnabólga er algeng- ur kvilli hjá ungum börnum. Nýjar rann- sóknir þykja benda til að matarofnæmi geti valdið síendurteknum sýkingum. Margrét Þorvaldsdóttir kann- aði málið. ÞAÐ EITT að heyra eyrna- bólgu nefnda fær marga foreldra ungra barna til að kippast við. Sýking í miðeyra virðist vera mjög algeng hér á landi sem víða annars staðar. í Bandaríkjunum fær tveit- þriðju barna sýkingu í miðeyra áður en þau ná tveggja ára aldri og er hún ein helsta orsök heyrnarmissis hjá börnum. Mörg þeirra fá eyrna- bólgu aftur og aftur þrátt fyrir sýklalyfjameðferð. Þrátt fyrir að eyrnabólga taki sig upp aftur og aftur fylgja henni ekki alltaf eyrnaverkir, en vökvi sem safnast upp bak við hljóð- himnuna í miðeyra getur dregið úr heyrn og síðan valdið heyrn- arskaða. Af þeim ástæðum hefur sú leið oft verið farin að koma fyrir mjóum pípum í kokhlust eða göngin sem liggja frá nefi að mið- eyra til að halda þeim opnum og fyrirbyggja að vökvi safnist þar fyrir. Eyrnabólga er víða mjög kostnaðarsöm fyrir heilbrigðis- kerfið, í Bandaríkjunum nemur kostnaðurinn t.d. 3,5 milljörðum dollara á ári. Ofnæmisfræðingur við „Georg- estown University School of Medicine" í Washington D.C., Tal- al M. Nsouli, segir í grein sem hann og samstarfsmenn hans birtu í „Annals of Allergy" í september síðastliðnum, að í mörgum tilfell- um geti matarofnæmi valdið því að eyrnabólga taki sig upp aftur • Sneiðmynd, séð að ofan frá höfði, sýnir fivernig ofnæmis- valdandi fæða getur haft áhrif á miðeyra. Stíflað nef veldur því að vökvi frá hálsi þrýstist um kokhlust í miðeyra. Vökvi frá nefi rennur inn í kokhlust eða að kokhlust bólgnar og lok- ast vegna ofnæmisviðbragða og orsakar þrýsting í miðeyra. og aftur. Þeir gerðu ofnæmispróf á 104 börnum sem fengið höfðu síendurtekna eyrnabólgu. Um það bil þriðjungur þeirra reyndist hafa ofnæmi fyrir mjólk, annar þriðj- ungur sýndi ofnæmisviðbrögð gagnvart hveiti. Um 80 börn sýndu ofnæmisviðbrögð við fæðu- tegundum sem þau borðuðu oft. Foreldrarnir voru fengnir til að halda frá börnunum þeim fæðu- tegundum sem þau sýndu ofnæmi- sviðbrögð við, í fjóra mánuði. Að þeim tíma liðnum sýndu sjötíu þeirra bata og segir Nsouli að þau börn sem höfðu sniðgengið þessar fæðutegundir hafi sýnt áberandi bataeinkenni. Foreldrarnir bættu síðan matartegundunum aftur í fæðið og eftir fjóra mánuði höfðu 66 barnanna fengið nefstíflu á ný og vökva bakvið hljóðhimnuna í miðeyra. Vísindamennirnir segja það benda sterklega til þess að tengsl geti verið á milli síendurtek- innar eyrnabólgu og fæðuofnæm- is. _ Á meðan rannsóknin stóð yfir skoðuðu þeir reglulega eyru barn- anna, hljóðhimnu og mældu vökvamagn í miðeyra með sér- stöku tæki (typanometer) og reyndu að meta hvaða þættir gerðu lækningu svo erfiða. Niðurstöðurnar þykja gefa til kynna að vert sé fyrir sérfræðinga í háls-, nef- og eyrnasjúkdómum að líta á þessa sjúklinga sem fá eyrnabólgu aftur og aftur með til- liti til mögulegs ofnæmis. Sé um fæðuofnæmi að ræða gætu að- gerðir á eyra orðið óþarfar og hægt væri að hindra varanlega skaða á heyrn. Forðast má verki í fótum með því að reima skóna á ákveðinn hátt MARGIR gætu forðast verki í fótum með því að reima skó sína á viðeigandi hátt og losa alltaf vel um reimarnar áður en þeir fara í þá. Þessar upplýsingar koma fram í fréttabréfi „Ámeric- an Orthopaedic Foot and Ankle Society" í september síðastliðn- um. Nýjar leiðir til að reima skó er einnig sagðar vera mjög hjálpleg- ar. Þeir sem eru með grannan fót ættu að þræða reimar í stærri og ytri reimagötin á skónum svo hægt sé að herða betur að, mynd (a). Aftur á móti ættu þeir sem hafa breiða fætur að þræða reim- ar í þau göt sem eru nær tung- unni á skónum mynd ( b). Fólki sem er með breitt táberg og mjóan hæl gæti hentað vel að að nota tvær reimar þar sem önnur reimin end- ar neðst í gataröð- inni: er önnur reimin fest að ofan til halda að hælnum en hin neðst til að halda að tábergi eins og kemur fram á mynd (c). Ef hnúður er á fæti eða ristin er há er ráð að sleppa reimargati eða reima eins og rnynd (d) sýnir. Einnig geta þeir sem hafa háa rist sleppt að reima í kross og fylgt þess í stað einfaldri upprei- mun sbr. mynd (e). Þeir sem eru með hamartá (næsta tá við stóru tá er lengi), líkþorn eða aðra tá sem kreppt er að, ættu að þræða reimina frá einu gati til annars eins og sýnir á mynd (f) og draga síðan í reimina, þá myndast rúm skón um að framan. Til að koma í veg fyrir eymsli í hæl er ráð að festa reimar vel að eins og sýnt er mynd (g). BRIDS llmsjón Arnör G. Ragnarsson Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Miðvikudaginn 28. desember var haldið tvímenningsmót í tilefni af 75 ára afmæli Einars Júlíussonar. Var vel mætt til leiks og.margir sem vildu greinilega heiðra þennan síunga spil- ara því 22 pör spiluðu. Voru honum færðar gjafir frá Bridsfélagi Suður- nesja og félögum úr Bridsfélaginu Munin auk þess að boðið var upp á snittur, gos og kaffi. Tveir frændur Einars úr Reykjavík mættu honum til heiðurs og annar með konuna sína. Úrslit í mótinu urðu sem hér segir. Árni Guðmundsson (frændi Einars) - Margrét Þórðardóttir 213 Birkir Jónsson - Bjöm Dúason 202 Víðir Jónsson - Halldór Aspar 201 Svala Pálsdóttir - Guðjón Jensson 196 Siguijón Jpnsson - Dagur Ingimundarson 195 Einar Júlíusson - Bemharð Guðmundsson (frændi Einars) 174 Sigurður Davíðsson - Skúli Sigurðsson 17 4 Stjórn félagsins óskar öllum félög- um og velunnurum þess gleðilegs nýs árs og farsældar á koniandi ári og þakkar samstarfið á liðnu ári. Mið- vikudaginn 4. janúar hófst tveggja kvölda einmenningskeppni (til minn- ingar urn Sigurbjörn Jónsson).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.