Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 9 FRÉTTIR Kvennalistinn í Reykjavík Ríkisreikningur 1993 kominn út Fjárhæðir lagðar í afskriftasjóð RÍKIÐ lagði fjárhæðir í afskrifta- sjóð árið 1993 til að mæta hugsan- legum töpum á útistandandi skattkröfum þótt viðkomandi fyrir- tæki væru ekki komin í gjaldþrota- meðferð. Þetta leiddi til þess að niður- stöðutölur ríkisreiknings þess árs sýndu 19 milljarða króna halla. Fjármálaráðuneytið segir það ekki endurspegla afkomu ársins 1993 en á greiðslugrunni var ríkissjóður rekinn með 9,6 milljarða króna halla. Aður hefur verið beitt þeirri aðferð varðandi útistandandi skattakröfur að kröfur hafa verið afskrifaðar að fullu á fyrirtæki þar sem gjaldþrotaskiptum er lokið en kröfur hafa verið færðar niður um 75% hjá fyrirtækjum sem hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta. Á þessu ári hefur verið unnið að mótun heildstæðra reglna um nið- urfærslur á kröfum og framlögum í afskriftarsjóði. Minni tekjur — meiri útgjöld Ríkisreikningur 1993 var gefinn út um áramótin en samkvæmt honum námu heildartekjur ríkis- sjóðs það ár 100,2 milljörðum króna, sem eru nærri sex milljörð- um minni tekjur en árið áður. Fjár- málaráðuneytið segir að ástæðurn- ar megi rekja til minni skatttekna vegna erfiðari stöðu fyrirtækja og minni tekna einstaklinga. Þá séu afskriftir skattkrafna 4,2 milljörð- um hærri en árið áður vegna áður- nefndra breytinga. Loks hafi virð- isaukaskattur að fjárhæð 1,4 millj- arðar verið ranglega færður til tekna árið 1992 og er það leiðrétt til lækkunar 1993. Gjöld ríkissjóðs námu 119,2 milljörðum árið 1993 sem er 2,6 milljörðum meira en árið áður. Útgjöld samgönguráðuneytis hækkuðu um tvo milljarða, einkum vegna framkvæmda í vegagerð til að efla atvinnu. Útgjöld heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytis hækk- uðu um 1,7 milljarða, og kom sú hækkun að stærstum hluta fram hjá sjúkrastofnunum og heilsu- gæslustöðvum. Þá hækkuðu út- gjöld fjármálaráðuneytis um 1,2 milljarða vegna hærri vaxta og líf- eyrisskuldbindinga. Á móti þessu lækkuðu greiðslur til landbúnaðar- mála um þijá milljaðra en útgjöld annarra ráðuneyta breyttust minna. Uppstill- ing inn- an tíðar Kristín Á. í 1. sætinu BÚAST má við að tillaga að upp- stillingu á framboðslista Kvenna- listans í Reykjavík liggi fyrir innan skamms. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins verður Kristín Ástgeirsdóttir alþingismaður í efsta sæti listans en ekki mun liggja endanlega fyrir hveijar skipa næstu sæti. Nefnd fimm kvenna vinnur nú að uppstillingartillögu í Reykjavík og sagði Guðrún Agnarsdóttir, sem er í nefndinni, að tillagan yrði birt fljótlega. Skoðanakönnun ekki bindandi Gerð var skoðanakönnun meðal liðsmanna Kvennalistans í Reykja- vík til að hafa til hliðsjónar við uppstillingu á listann. Guðrún sagði að skoðanakönnunin væri ekki bindandi en ávallt hefði verið ætlunin að hafa hana mjög til hlið- sjónar við uppstillingu á listann. Guðrún vildi ekki gefa upp hver úrslit skoðanakönnunarinnar hefðu verið, en samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins fékk Krist- ín Ástgeirsdóttir afgerandi stuðn- ing í efsta sætið. Að öðru leyti mun lítill munur hafa verið á kon- um í efstu sætum, raunar svo lítill að atkvæðin voru talin tvisvar. Kvennalistinn á nú þrjá þing- menn í Reykjavík, Kristínu Einars- dóttur, sem hættir nú vegna út- skiptareglu flokksins, Kristínu Ástgeirsdóttur og Guðrúnu J. Hall- dórsdóttur. Átökin í Tsjetsjníju hörmuð til að leita friðsamlegra lausna og leggur sérstaka áherslu á mikilvægi þess að grundvallarmannréttindi íbúa Tsjetsjníju verði höfð í heiðri. Sendiherra Islands í Moskvu hef- ur verið falið að koma þessum at- hugasemdum á framfæri við rúss- nesk stjórnvöld. UTANRIKISRAÐHERRA harmar þau mannskæðu átök sem átt hafa sér stað í Tsjetsjníju í rússneska ríkjasambandinu og afleiðingar þeirra á líf óbreyttra borgara á því Iandsvæði, segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Utanríkisráðherra hvetur jafn- framt rússnesk stjórnvöld eindregið Kennsla hefst laugardaginn 7. janúar 1995 kl. 10.00 f.h. Nýir hópar alla næstu viku. Verið með frá byrjun. DANSSKÓLI HERMANNS RAGNARS Faxafeni 14, Nútíð, 108 Reykjavík, símar 687480 og 687580 Árni og Helga Þóra, meistarar mörgum sinnum. KENNSLUSTAÐIR: Gerðuberg - Frostaskjól - Faxafen 14. KENNSLUHÓPAR: Jassleikskólinn (3-5 ára) - Barnadansar - Stepp - Samkvæmis- dansar, standard og latin - Keppnisdansarar (allir aldurshópar) - Latin 10-12 ára. Fullorðnir, einstaklingar og pör. EINKATÍMAR eftir samkomulagi. FÉLAGASAMTÖK 0G SMÆRRIHÓPAR, litlir og stórir salir. ERLENDIR GESTAKENNARAR koma þrisvar fram á vor. STUTT NÁMSKEIÐ - HRAÐNÁMSKEIÐ (sérsamið). GRÍMUBALL 0G LOKADANSLEIKUR Hverjir fá silfurskóna í vor? (nemendasýning) innifalið í skólagjaldinu. Gleðilegt nýtt ár 1995 - Kennararnir. Allar nánari upplýsingar í síma 687480 og 687580 daglega frákl. 13-19 - innritun alla helgina. Fjölskylduafsláttur 10% - Stúdentaafsláttur, Raðgreiðslur Euro - Visa. ÞRETTÁNDAGLEÐI í HÁSKÓLABÍÓI Loksins, gamanmynd sem mun breyta því hvernig þú hugsar, talar, syngur og síðast en ekki síst... ... klæðir Þ«g* TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA SEM BESTA MYNDIN OG TERENCE STAMP SEM BESTI AÐALLEIKARI. Fólk er alltaf að vinna íGullnámunnk 74 milljónir Vikuna 29. desember tii 4. janúar voru samtals 74.856.235 kr. greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þar bar hæst Gullpottinn en einnig voru greiddir út veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum vinningum. Gullpottur í vikunni: Dags. Staður: Upphæö kr.: 4. jan. Fláspenna, Laugavegi......7.120.840 Silfurpottar í vikunni: Dags. Staður: Upphæö kr.: 30. des. Háspenna, Laugavegi........ 228.491 30. des. Hótel Saga.................... 53.439 30. des. Mónakó........................ 90.378 30. des. Feiti dvergurinn.............. 65.743 2. jan. Háspenna, Laugavegi....... 245.200 2. jan. Háspenna, Laugavegi....... 84.115 3. jan. Ölver...................... 132.752 3. jan. Háspenna, Hafnarstræti.... 111.525 3. jan. Kringlukráin................ 88.238 3. jati. Mónakó...................... 52.187 4. jan. Háspenna, Laugavegi....... 93.872 5. jan. Mónakó...................... 134.005 Staöa Gullpottsins 5. janúar, kl. 13:00 var 2.141.954 krónur. Silfurpottarnir byrja alltaf t 50.000 kr. og Gullpottarnir I 2.000.000 kr. og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.