Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 11 FRÉTTIR EKKI hefur tekist að ljúka gerð öryggisbúnaðar til að fylgjast með fólki á sundstöðum vegna fjárskorts. Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs Yextir af lánum til orlofs- heimila stéttarfélaga lækka MEIRIHLUTI stjómar Atvinnuleys- istryggingasjóðs ákvað í lok október síðastliðins að lækka vexti á lánum sem veitt hafa verið til orlofs- og fé- lagsheimilabygginga stéttarfélaga, að því er segir í nýjasta fréttabréfí Vinnuveitendasambandsins. Þar kem- ur og fram að VSÍ hafi mótmælt þessari ákvörðun og telji það ekki hlutverk sjóðsins að sinna lánastarf- semi, „hvað þá að niðurgreiða fé til stéttarfélaga á sama tíma og sjóður- inn er að ganga á fjármuni sína“. Samkvæmt fréttabréfinu tíðkaðist það um árabil að Atvinnuleysistrygg- ingasjóður veitti stéttarfélögum lán til byggingar orlofs- og félagsheimila. Lánin voru óverðtiyggð og báru lán til orlofsheimilabygginga 5% vexti en félagsheimilalán 10% vexti. í október samþykkti meirihluti stjórnar sjóðsins að lækka vexti á þessum lánum úr 5%'í 4% og 10% í 8% frá og með 1. nóvember síðastliðnum. Fulltrúi VSÍ var einn á móti. Að sögn Péturs Sigurðssonar, for- manns stjómar Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs, var með þessari ákvörðun verið að samræma vexti af lánum sjóðsins við almenna vaxtalækkun í landinu. Þrátt fyrir lækkunina beri lánin nú vexti sem séu nær almennu vaxtastigi í landinu en áður. Þessi lán hafi ævinlega borið lága vexti enda kveðið á um að svo skyldi vera í þá- gildandi lögum um sjóðinn. Heimild til lánveitinga af þessu tagi var felld niður með lögum 127/1993 og lána- starfseminni hætt. Sjóðurinn á nú útistandandi 54 milljónir og verður síðasta lánið greitt upp árið 2003. • • Oryggismál á sundstöðum Fé vantar tilað fullgera Lífvaka FJÁRMAGN til að ljúka við gerð öryggisbúnaðar sem ætlaður er til að fylgjast með fólki á sundstöð- um, og þá sérstaklega börnum og sjúklingum, hefur enn ekki feng- ist, að sögn Reynis Karlssonar, formanns nefndar sem gera á til- lögur um öryggisatriði á sundstöð- um. Reynir sagði í samtali við Morg- unblaðið að sótt hefði verið til menntamálaráðuneytisins um fjár- veitingu á fjárlögum ársins 1995, en hún ekki fengist. Hann sagði að fjallað yrði um málið á fundi nefndarinnar í næstu viku. „Við ætlum að ræða þetta og þá með hvaða hætti hugsanlegt væri að ýta þessu úr_ vör.“ Skortir 4 milljónir Hönnuður öryggisbúnaðarins er Guðmundur H. Guðmundsson raf- eindavirkjameistari, starfsmaður á eðlisfræði- og tæknideild Land- spítalans, og kallar hann búnaðinn Lífvaka. Búnaðurinn er hugsaður þannig að hægt verði að fylgjast með dýpi, hreyfingu, öndun og jafnvel hjartariti þess sem ber hann, en um allflókinn rafeinda- búnað er að ræða. Telur Guðmundur að hann skorti um fjórar milljónir króna til að fullgera Lífvakann, sem m.a. Slysavarnafélag íslands hefur formlega mælt með að verði tekinn til notkunar á sundstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.