Morgunblaðið - 06.01.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjúkdómar at-
hugaðir hjá
starfsstéttum,
Niðurstöður í 204 verk-
efnum verða kynntar á
ráðstefnu um rannsókn-
ir í læknadeild Háskóla
íslands sem hófst í Odda
í gær. Þar á meðal eru
upplýsingar um at-
vinnusjúkdóma ýmissa
starfsstétta svo sem
sjómanna, lækna, lög-
fræðinga og físk-
vinnslufólks.
LUNGNAKRABBAMEIN, maga-
krabbamein og hvítblæði er tíðara
meðal sjómanna en annarra íslend-
inga. Ennfremur er dánartíðni lægri
hjá læknum en lögfræðingum, þótt
þeim fyrmefndu hætti meira til þess
að stytta sér aldur. Þetta eru niður-
stöður rannsókna á þremur starfs-
stéttum sem atvinnusjúkdómadeild
Vinnueftirlits ríkisins og Rann-
sóknastofa í heilbrigðisfræði við
Háskóla íslands hafa gert. Rann-
sóknina gerðu Vilhjálmur Rafnsson
Tilfellum íjölgar eftir
starfsaldri
RANNSÓKN Vinnueftirlitsins
sýndi ennfremur að magakrabba-
mein og hvítblæði reyndist tíðara
því lengur sem menn höfðu stund-
að sjómennsku. „Hvað krabba-
mein í öndunarfærum snertir má
benda á miklar reykingar en einn-
ig er því velt fyrir sér hvort asb-
esti geti verið um að kenna þótt
ekki séu til upplýsingur um slíka
mengun í fiskiskipum. Há tíðni
húðkrabbameins er líka sambæri-
leg við það sem þekkist hjá bænd-
um vegna útiverunnar," segir
Hólmfríður Gunnarsdóttir hjúkr-
unarfræðingur.
Ennfremur var rannsakað
hvort sjómönnum væri hættara
við slysum í landi en öðrum körl-
um. Var starfstími þeirra skil-
greindur með tilliti til þess hversu
lengi þeir greiddu í lífeyrissjóð
en þess ber að geta að sjómenn á
bátum undir 12 tonnum greiða
ekki í Lífeyrissjóð sjómanna.
Var fjöldi dauðaslysa athugað-
ur í þrennu lagi, það er meðan
greitt var í sjóðinn, fyrsta árið
eftir að greiðslur hættu og ári
eftir að þeim lauk. í Ijós kom að
sjóslys voru tíð sem dánarorsök á
tímabilunum en eftir að greiðslum
lauk til sjóðsins fjölgaði dauðsföll-
um vegna annars konar slysa. „Ef
litið er á síðastliðið ár hjá þeim
sem hættu að greiða í Lífeyrissjóð-
inn fyrir ári var dánartíðni vegna
drukknana, ýmiss konar eitrana
og sjálfsmorða mjög há. Einnig
er fjöldi slysa í flokknum önnur
slys, þar á meðal bílslys," segir
Hólmfríður.
Læknar langlífari
DÁNARMEIN lækna og Iögfræð-
inga var einnig til rannsóknar með
því að bera kennitölur 862 lækna
og 678 lögfræðinga við Dánar-
meina- og Krabbameinsskrár. Er-
lendar rannsóknir hafa sýnt lægri
dánartiðni af völdum krabbameins
meðal lækna en annarra karl-
manna og það meðal annars skýrt
með því að þeir standi ofarlega í
Morgunblaðið/Þorkell
Niðurstöður eru kynntar með
erindum og á veggspjöldum.
og Hólmfríður Gunnarsdóttir en
framkvæmdin var þannig að kenni-
tölur 27.884 karla sem greitt höfðu
í Lífeyrissjóð sjómanna frá 1958-
1986 voru bornar saman í tölvu við
Dánarmeinaskrá og Krabbameins-
skrá með hliðsjón af tíðni krabba-
meins hjá íslenskum körlum. Rúm
70% sjómanna á landinu greiða í
sjóðinn og reyndist krabbamein al-
gengara hjá þessari "starfsstétt en
vænst var, einkum í lungum, maga,
endaþarmi, barkakýli og húð.
þjóðfélagsstiganum. Hafa nýrri
rannsóknir því miðast að því að
bera saman hópa í svipaðri stöðu
þjóðfélagslega eins og segir í nið-
urstöðu.
Leiddi rannsóknin hérlendis,
sem gerð var með hl'ðsjón af dán-
armeini og tíðni krabbameina, í
Ijós að læknar væru langlífari en
lögfræðingar. Höfðu færri þeirra
dáið vegna krabbameina, heila-
blóðfalla og öndunarfærasjúk-
dóma. Aftur á móti eru sjálfsmorð
60% algengari í læknastétt, heila-
krabbamein 150% tíðara en meðal
löglærðra og ristilkrabbamein tíð-
ara en hjá öðrum íslenskum karl-
mönnum samkvæmt rannsóknun-
um. Kalli þessar niðurstöður á
frekari rannsóknir.
„Dánartíðni hjá læknum er
mjög lág þegar borið er saman
við aðrar starfsstéttir og hlýtur
að benda til þess að þeir njóti
góðs af þekkingu sinni. Sama má
segja hvað sjálfsmorðin varðar,
þótt í neikvæðri merkingu sé, því
algengt er að þeir taki Iyf. Hið
sama hefur komið fram hjá hjúkr-
unarfræðingum, sem fremja frek-
ar sjálfsmorð en aðrar konur og
allar með lyfjum," segir Hólmfrið-
ur. Auk þess var að hennar sögn
leidd í ljós hærri dánartíðni meðal
lækna án sérfræðiviðurkenningar
og hærra hlutfall heilakrabba-
meins og sjálfsvíga en hjá öðrum
íslendingum og lögfræðingum.
Nýir kvillar hjá
fískvinnslufólki
KVILLAR af völdum vinnuálags í
fiskvinnsluhúsum voru einnig til
rannsóknarhjá Vinnueftirlitinu
og Háskóla Islands en um rann-
sóknina sá, auk Vilhjálms Rafns-
sonar, Hulda Ólafsdóttir. Niður-
staðan er sú að breytingar hafi
orðið á álagseinkennum sem sam-
kvæmt könnun frá 1987 komu
fram í olnbogum, úlnliðum, efra
baki, mjóbaki, höfði og fingrum
en síður í herðum, hnjám og ökkl-
um. Flæðilínur geri að verkum að
dregið hafi úr álagi á ökkla en
aukin einhæfni með tilkomu
þeirra leiði til meira álags á fing-
ur og olnboga.
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR1995 5
o
Hversu stór verður "ann?
Tvöfaldur fyrsti vinningur á laugardag!
MERKISMENN