Morgunblaðið - 06.01.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 7
FRÉTTIR
Hlutur Tryggingastofnunar í lyfjakostnaði 1991-1994
Heildarsparnaðurinn
talinn 3,5 milljarðar
Hlutur tryggingastofnunar ríkisins
í lyfjakostnaði 1984-95 4200
í milljónum kr. á verðlagi 1991 © 3-700
Tölurfrá 1993 eru áætlaðar 3.300 3.300
•tO —2-900 2.830
^ 2.600 2.567 2.560
2.250
1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995
HEILDARSPARNAÐUR Trygg-
ingastofnunar ríkisins í lyfjakostn-
aði á árunum 1991-1994 lætur
nærri að vera um 3,5 milljarðar,
að sögn Einars Magnússonar, skrif-
stofustjóra í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. Er þá miðað
við þau útgjöld sem talin voru fyrir-
sjáanleg við upphaf tímabilsins.
Á þessu tímabili hefur hlutur
sjúklinga í lyíjakostnaði hækkað
úr um 18% í 32%, og hefur heil-
brigðisráðherra lýst því yfir að hann
verði ekki aukinn frekar. Mestur
hluti sparnaðarins er að sögn Ein-
ars vegna minni lyfjaneyslu sem
orðið hefur á tímabilinu, notkunar
ódýrari lyfja, aukinnar samkeppni
og lækkunar á álagningu.
13% hækkun frá 1993
Að sögn Einars hefur á undan-
förnum þremur árum tekist að
halda útgjöldum sjúkratrygginga
vegna lyfja undir kostnaði ársins
1990. Miðað við fyrstu 11 mánuði
ársins 1994 er útlit fyrir að lyfja-
kostnaður á árinu verði um 2.930
milljónir króna, sem er um 13%
hækkun frá árinu 1993. Eru þá
meðtaldar um 100 milljónir vegna
svokallaðra hjálpartækjalyfja sem
farið var að reikna með í heildarút-
gjöldum árið 1992, en ekki eru tal-
in með á meðfylgjandi súluriti.
Ef miðað er við þróun á árunum
fyrir 1990 og þróun lyfjakostnaðar
í næstu nágrannalöndum væri lyfja-
kostnaður sjúkratrygginga hér á
landi hins vegar að öllum líkindum
um 4.200 milljónir fyrir árið 1994
ef til engra aðgerða hefði verið
gripið á undanförnum 3-4 árum. í
fjárlögum fyrir árið 1994 var hins
vegar gert ráð fyrir að kostnaður
sjúkratrygginga vegna lyfja yrði
2.600 milljónir króna, en það er
sama upphæð og eytt var árið 1990.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
án nokkurra aðgerða verði útgjöldin
um 3.300 milljónir króna, sem er
um 13% hækkun milli ára. Fjárlög
1995 gera hins vegar ráð fyrir að
útgjöld Tryggingastofnunar vegna
lyfja verði 3.180 milljónir króna.
Til þess að ná því markmiði verður
því að skera niður kostnað um 220
milljónir króna, en þar af nást tæp-
lega 100 milljónir með lækkun
álagningar um 5% um síðustu ára-
mót og öðrum aðgerðum sem enn
hafa ekki verið útfærðar.
13% hækkun talin eðlileg
Að sögn Einars hefur um 13%
kostnaðarhækkun milli ára talist
eðlileg þróun bæði hér á landi og
í öðrum Evrópulöndum þegar til
engra aðgerða hefur verið gripið til
að halda niðri kostnaði eða að þær
aðgerðir sem gripið hafi verið til
hafi ekki borið tilætlaðan árangur.
Þyngst í hækkuninni vegur aukinn
kostnaður vegna nýrra lyfja, þá
vegur fjölgun aldraðra sem á lyfjum
þurfa að halda einnig þungt og síð-
an koma til verðlagshækkanir.
EIN véla Flugleiða tafðist á Keflavíkur-
flugvelli í gær vegna sprengjuhótunar.
Sprengjuhótun
í Leifsstöð
127 farþegar með vél Flugleiða
til Ósló og Stokkhólms töfðust um
2 klukkustundir í gærmorgun
vegna ítrekaðra hótana sem bár-
ust Flugleiðum um að sprengju
hefði verið komið fyrir um borð í
vélinni. Ekki er vitað hver stóð
að baki hótuninni.
Að sögn Eddu Bjarkar Boga-
dóttur, aðstoðarstöðvarstjóra
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli,
bárust Flugleiðum þijú símtöl með
15-20 mínútna millibili um klukk-
an sjö í gærmorgun þar sem til-
kynnt var um sprengju í vél félags-
ins. Talið er að sama konan hafi
hringt í öll skiptin. í þriðja símtal-
inu tiltók sá sem hringdi sérstak-
lega vélina sem átti að leggja af
stað skömmu síðar til Osló og
Stokkhólms og því var för hennar
stöðvuð og að sögn Eddu Bjarkar
gripið til aðgerða samkvæmt sér-
stakri öryggisáætlun.
Farþegum var snúið inn í flug-
stöðina, farangur þeirra tekinn úr
vélinni og hver farþegi látinn bera
kennsl á sínar föggur. Eftir ítar-
lega leit þar sem ekkert athuga-
vert kom í ljós fór vélin í loftið
klukkan 9.15, tveimur stundum
síðar en áætlað hafði verið.
Edda Björk sagði að flestir far-
þegarnir hefðu tekið töfinni vel en
nokkrir um borð hefðu fýrir vikið
misst af framhaldsflugi eða orðið
seinir á fundi og því tekið röskun-
inni þunglega, sem eðlilegt væri.
Flug á öðrum leiðum til og frá
Keflavíkurflugvelli gekk eðlilega
fyrir sig meðan á leitinni um borð
í Óslóarvélinni stóð.
Lögregla á Keflavíkurflugvelli
hefur tekið við rannsókn málsins
og vinnur að því að hafa upp á
konunni, sem talið er að hafi stað-
ið að baki hótununum af ókunnum
ástæðum.
K