Morgunblaðið - 06.01.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 13
VIÐSKIPTI
Krókur á móti bragði í átökunum um yfirráð yfir Stálsmiðjunni hf.
Slippfélagið hefur keypt
meirihlutann ífyrirtækinu
Reykjavíkurhöfn vildi breiðari hóp
eigenda heldur en fyrir var
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
meirihluta hlutabréfa í Stálsmiðj-
unni hf. eftir átök tveggja hópa um
yfirráð yfír fyrirtækinu sem staðið
hafa undanfarinn mánuð. Slippfé-
lagið í Reykjavík og fleiri aðiiar
hafa keypt stærstan hluta bréfa af
Darra Gunnarssyni og fleirum, sem
tryggðu sér meirihluta í Stálsmiðj-
unni í desember. Boðað hefur verið
til hluthafafundar 20. janúar, þar
sem væntanlega verður kosin ný
stjórn, að sögn Ragnars Hall, lög-
manns Stálsmiðjunnar. Hinn nýi
meirihluti mun væntanlega styðja
Ágúst Einarsson, fráfarandi for-
stjóra Lýsis hf., til að taka við stöðu
framkvæmdastjóra.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun afstaða Reykjavíkur-
hafnar hafa vegið þungt við eig-
endaskiptin. Forsvarsmenn hennar
hafi ekki viljað ganga til samninga
við Stálsmiðjuna um kaup á dráttar-
brautum fyrirtækisins við núver-
andi stjórn fyrirtækisins, þar sem
sá hópur sem stæði að Darra væri
ekki nógu breiður til að fullnægja
skilyrðum hafnarinnar.
„Við höfum leitað eftir sem breið-
astri hlutafjáreign. Við
höfum beðið menn að
halda áfram að vinna að
því marki og núna er
komin niðurstaða sem
við teljum ásættanlega,“
sagði Hannes Valdimarsson hafnar-
stjóri. „Menn verða svo bara að
meta hvaða áhrif okkar afstaða
hefur haft.“
Slippfélagið með 42%
Ragnar Hall staðfesti að nýir aðil-
ar væru komnir í meirihluta í Stál-
smiðjunni eftir að Slippfélagið og
aðrir hefðu keypt hlutabréf af Darra
Gunnarssyni og fleirum. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins á
Gauloises
ekki lengur
ríkiseign
París. Reuter.
FRANSKA stjórnin hefur stigið
mikilvægt skref í þá átt að af-
nema tóbakseinkasölu franska
ríkisins, Seita, með birtingu til-
skipunar um að hafizt verði
handa um að einkavæða hana.
Seita er kunnust fyrir vindlin-
gategundirnar Gauloises og Gita-
nes, sem urðu tákn ýmissa
kunnra Frakka, allt frá Edith
Piaf til Jean-Paul Sartre.
Seita hefur einokun á dreif-
ingu allra tegunda tóbaks og
vindlinga. Samkvæmt góðurn
heimildum verður næsta skrefið
að Edmond Alphandery efna-
Slippfélagið nú um 26% hlut í Stál-
smiðjunni eftir kaupin og hlutafjár-
aukningu um 40 milljónir króna. Þá
eiga Ásgeir Pálsson og Valgeir Hall-
varðsson, formaður og varaformað-
ur stjórnar Slippfélagsins um 8%
hlut hvor, þannig að þeir og félagið
eiga samtals yfir 42%
hlut. Aðrir stærstu hlut-
hafar eru Hraðfrysthús
Eskifjarðar, Björgun hf.
og Ágúst Einarsson með
5-6% hlut hver.
Darri og faðir hans, Gunnar H.
Bjarnason, sem var framkvæmda-
stjóri gömlu Stálsmiðjunnar þar til
fyrir rúmum áratug, eiga ennþá
0,5% hlut hvor. Þeir og fleiri aðilar
keyptu 52% af hlutafé Stálsmiðj-
unnar snemma í desember og fengu
þar með forkaupsrétt að hlutafjár-
aukningunni. Ný fimm manna
stjórn var kjörin á hluthafafundi
27. desember og var Darri kjörinn
þar á meðal.
hagsráðherra biður nefnd um
einkavæðingu að áætla fyrirtæk-
ið til verðs.
Alphandery sagði í síðasta
mánuði að Seita og tryggingafyr-
irtækið (AGF) yrðu seld í byrjun
þessa árs ef gott verð fengist.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum hyggst stjórnin
halda um 10% hlut í fyrirtækinu
og selja almenningi 47.5%, hörð-
um kjarna tryggra hluthafa
35%, starfsmönnum fyrirtækis-
ins 5% og löggiltum tóbaks-
sölum 2.5%.
Áhyggjur bænda
Alphandery hefur sagt að
Seita muni lögum samkvæmt
standa við langtima samninga
um kaup á tóbaki frá frönskum
bændum. Ottazt hefur verið í
tóbakshéruðum Suðvestur-
Frakklands við ána Dordogne að
sala ríkiseinokunarinnar muni
stofna franskri tóbaksfram-
leiðslu í hættu.
Kaup þeirra Darra og Gunnars
á meirihluta í Stálsmiðjunni mun
hafa komið sumum núverandi eig-
endum á óvart og mun Ágúst Ein-
arsson meðal annars hafa stefnt á
stöðu framkvæmdastjóra í Stál-
smiðjunni þegar hann lét af störf-
um hjá Lýsi. Eftir kaup-
in í desember var rætt
um að Darri tæki við
stöðu framkvæmda-
stjóra af Skúla Jónssyni,
en nú eru sem sagt aftur
talið líklegt að Agúst verði valinn
í starfið.
Tilboð Reykjavíkur lykilatriði
Stálsmiðjan hefur verið í
greiðslustöðvun síðan snemma árs-
ins 1994, en í september gaf
Reykjavíkurhöfn út viljayfirlýsingu
um að hún myndi kaupa dráttar-
brautir fyrirtækisins fyrir 70 millj-
ónir króna og leigja Stálsmiðjunni
aftur að uppfylltum ákveðnum skil-
FYRIRTÆKIÐ F&A við Fossháls í
Reykjavík hefur ákveðið að hætta
smásölu og snúa sér að innflutningi
og vörudreifingu til smærri kaup-
manna í Félagi dagvörukaup-
manna. F&A hefur rekið smásölu-
verslun undanfarin þijú ár og hefur
lagt áherslu á lágt verð á vörum
sem fyrirtækið flytjr sjálft inn.
Á félagsfundi skömmu fyrir ára-
mót var samþykkt að ganga til
samninga við F&A um samstarf um
innkaup. Stefna kaupmenn að því
að knýja fram leiðréttingu á meintri
mismunum í kjörum heildsala og
framleiðenda gagnvart smærri
verslunum.
yrðum, þar á meðal gerð nauða-
samninga við kröfuhafa og hluta-
íjáraukningu. Var þá Aflvaka
Reykjavíkur m.a. falið að hálfu
hafnarinnar að leita leiða til þess
að koma á frekari hagræðingu eða
sameiningu fyrirtækja innan skipa-
smíðaiðnaðarins sem gæti stuðlað
að sterku íslensku fýrirtæki er hefði
burði til að mæta erlendri sam-
keppni.
Kauptilboð Reykjavíkurhafnar
var talið algert lykilatriði til þess
að hægt væri að tryggja rekstur
fyrirtækisins, en hinn nýi hópur
eigenda undir forystu Darra átti,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, við ramman reip að draga
við að fullnægja skilyrðum Reykja-
víkurhafnar. Þeir hafi því ákveðið
að semja um að selja hlutsinn hópn-
um sem Slippfélagið og Ágúst Ein-
arsson stóðu að.
Sameinast skipasmíðastöðvar?
Morgunblaðinu er kunnugt um
að viðræður hafa staðið yfir í nokk-
urn tíma um hugsanlega samein-
ingu Stálsmiðjunnar við Þorgeir
og Ellert á Akranesi og hugsanlega
fleiri aðila í skipasmíða-
iðnaðinum. Hinir nýju
eigendur munu hafa
gefið út yfirlýsingu um
að þeir væru reiðubúnir
til að ganga til viðræðna
um hagræðingu og ef til vill sam-
einingu innan iðnaðarins. Þeir voru
einnig tilbúnir að bjóða starfs-
mönnum Stálsmiðjunnar forkaups-
rétt að 4 milljónum í hinu nýja
hlutafjárútboði. Þessi atriði munu
einnig hafa haft áhrif á framvindu
mála.
Ekki náðist í Darra Gunnarsson
í gær og Gunnar H. Bjarnason sagð-
ist ekki vilja tjá sig um málið á
þessu stigi.
Friðrik G. Friðriksson, kaupmað-
ur í F&A, sagði að sá möguleiki
væri fyrir hendi að fyrirtækið gæti
í samstarfi við Félag dagvörukaup-
manna tekið að sér dreifingu á öll-
um vörum. Kaupmenn myndu hins
vegar eiga kost á að sækja vörur
til F&A eða að samið yrði um dreif-
ingu við einstaka heildsala og fram-
leiðanda.
„Samkeppnisstofnun ætlar að
skila áliti sínu í janúar og við höf-
um vissar væntingar um hver
niðurstaðan verður. Við ætlum að
vera tilbúnir að gera magninnkaup
og fá þannig sama afslátt og aðr-
ir.“
Svíar með
stærsta
trjávöru-
fyrirtækið
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKA fyrirtækið
Svenska Cellulosa AB (SCA)
hefur skýrt frá því að það
muni kaupa 1.2 milljarða
marka hlut í Papierwerke
Waldhop-Aschaffenburg
(PWA) í Þýzkalandi og mynda
stærsta tijávörufyrirtæki
Evrópu.
Svenska Cellulosa mun
kaupa 60% hlut í PWA, að-
altijávörufyrirtæki Þjóðveija.
Hlutabréfin eru keypt af Bay-
enwerk, dótturfyrirtæki fýrir-
tækjahópsins VIAG, Bayer-
ische Hypotheken und Wác-
hselbank og fleiri aðilum.
Sænska fyrirtækið boðar
víðtæka endurskipulagningu
á rekstri SCA og PWA. Hjá
fyrirtækjunum starfa 35,000
manns og samanlögð sala
þeirra nemur 56 milljörðum
sænskra króna eða 7.5 millj-
örðum dollara.
Umsvifamestir
Samkomulagið er háð sam-
þykki eftirlitsstofnana Evr-
ópusambandsins. SCA segir
að kaupverðið hafi verið um
20% yfir markaðsverði. Ake
Rietz, aðstoðarforstjóri SCA,
segir ekki standa til að kaupa
öll hlutabréf í PWA, sem er
þriðja mesta fyrirtæki á sínu
sviði í Evrrópu með 13%
markaðshlutdeild.
Compaq
stærst í heimi
COMPAQ Computer er
stærsta tölvufyrirtæki í heimi
og hefur tekið við forystunni
af IBM. Áttu þessi umskipti
sér stað á síðasta ári en þá
töpuðu IBM og Apple veru-
legri markaðshlutdeild en
Compaq og Packard Bell
Electronics juku sína.
Talið er, að sala einkatölva
hafi aukist um 27% á síðasta
ári eða helmingi meira en
áður hafði verið búist við. Er
það ekki síst margmiðlunar-
byltingin, sem hefur ýtt undir
meiri kaup.
Áætlað er, að Compaq hafi
selt 4,8 milljónir einkatölva á
síðasta ári og er hlutur fyrir-
tækisins á heimsmarkaði þá
kominn í 10% en var 8,1%
1993. Þá var það í þriðja
sæti. Compaq hefur hagnast
á ýmsum inistökum IBM og
svo nefnt sé dæmi þá spáði
fyrirtækið réttilega fyrir um
mikla jólasölu meðan IBM
vanmat hins vegar söluna
verulega.
Ágúst líklegur
framkvæmda-
stjóri
Kauptilboð
hafnarinnar
lykilatriði
Verslun
F&A ísamstarf við
dagvörukaupmenn
Flugeldasala Kiwanisklúbbsins Esju - Opin frá ki. 10-I8, Laugavegi 164