Morgunblaðið - 06.01.1995, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-I
ERLENT
Umdeildur repúblikani, Newt Gingrich, nýr forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
Washington. The Daily Telegraph.
Clinton
leitar til
nýaldar-
ráðgjafa
Washington. The Daily Telegraph.
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti á örðugt uppdráttar
vegna persónulegra óvin-
sælda og verður framvegis
að kljást við meirihluta repú-
blikana í báðum þingdeild-
um. Hann mun nú hafa leitað
ráða hjá nýaldar-ráðgjafa
sem býður lausnir handa at-
kvæðamönnum er þjást af
„sárri þörf fyrir innri frið“.
Rit ráðgjafans, Stephen
Covey, hafa selst vel og er
hann sterkefnaður maður.
Hann segist byggja lausnir
sínar á „heildarhyggju og
áherslu á grundvallaratriði".
Clinton eyddi degi með hon-
um um jólin í sumardvalar-
stað forsetaembættisins,
Camp David, og fullyrt er
að annar rithöfundur, Anth-
ony Robbins, hafi verið til
staðar. Hann segist geta
hjálpað fólki að ná hámarks-
árangri og bók hans, „Vekið
risann innra með ykkur“,
hefur selst í risaupplögum.
Skömmu eftir að Clinton
tók við embætti sínu réð
hann tvo menn sem höfðu
það hlutverk að hvetja ráð-
herrana til að deila með sér
minningum um óhamingju-
sama bernsku til að byggja
upp gagnkvæmt traust í rík-
isstjórninni.
Sagður tillits-
laus hræsnari
HINN nýi forseti fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, repúblikaninn
Newt Gingrich, er umdeildur mað-
ur, andstæðingarnir segja hann
hrokafullan, tillitslausan hræsn-
ara. Sjálfur vill hann umbyltingu
í stjórnmálum landsins og ljóst er
að hann verður mjög í sviðsljósinu
næstu árin. Margir telja hann
stefna að því að verða forseti.
Ein af tillögum Gingrich er að
hætt verði opinberum fjárstuðningi
við CPB-útvarpsstöðina sem oft er
talin höll undir sjónarmið vinstri-
sinnaðra menntamanna. Einn af
þingmönnum demókrata, vinstri-
sinninn Barney Frank, segir um
Gingrich að hann fái engar hug-
myndir sjálfur en láti ávallt alhæf-
ingar duga.
Gingrich er sagnfræðingur að
mennt, sonur hermanns og foreldr-
ar hans skildu, hann er sagður
hafa kynnst harðneskju lífsins
snemma og líkjast oft harðsvíruð-
um götustrák í tali. Andstæðing-
arnir minna oft á það hvernig þing-
forsetinn nýi skildi á sínu tíma við
fyrri konu sína, Jackie.
Er þau kynntust var Gingrich
aðeins nítján ára gamall, hún sjö
árum eldri, hafði kennt honum flat-
armálsfræði í menntaskóla. Hún
varð honum dyggur förunautur á
pólitíska ferlinum. Þau eignuðust
tvær dætur en skildu að borði og
sæng eftir að hún varð sjúk af
krabbameini í móðurlífi.
í skjölum kemur fram að hún
kvartaði yfir því að fá aðeins 700
dala meðlag á mánuði. Gingrich
svaraði með skýrslu yfir mánaðar-
leg útgjöld sín þar sem m.a. kom
fram að hann notaði 400 dali á
mánuði í mat og fatahreinsun.
í stjórnmálabaráttunni gerir
hann ávallt mikið úr trú sinni á
hefðbundin fjölskyldugildi ogjafn-
vel nánir vinir furðuðu sig á því
hve harkalega hann kom fram við
fyrrverandi eiginkonu sína. Að
sögn hennar kom hann í heimsókn
að sjúkrabeðinum skömmu eftir
að hún hafði verið skorin upp og
dró upp rissblok til að geta rætt
smáatriði í sambandi við fyrirhug-
aðan lögskilnað. Hún rak hann
þá út. Árið 1993 höfðaði eiginkon-
an fyrrverandi mál gegn honum
og sakaði hann um að hafa van-
rækt að greiða af líftryggingu en
sátt náðist í málinu er Ginrich
hækkaði meðlagið í 1.300 dali á
mánuði.
Gingrich kvæntist á ný nokkrum
mánuðum eftir skilnaðinn. Fyrr-
verandi vinur hans og samstarfs-
maður, Kip Carter, segir hann
hafa verið hreinskilinn er hann
ræddi um skilnaðinn og sagt: „Hún
[Jackie] er ekki nógu ung eða fal-
leg til að geta verið eiginkona for-
seta. Auk þess er hún með
krabba“. Sjálfur segir Gingrich að
Carter sé aðeins að hefna sín fyrir
brottrekstur.
Reuter
NEWT Gingrich, repúblikaninn umdeildi, sver embættiseið sem
forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á miðvikudag.
Kínveijar
borga ekki
skattinn
Peking. The Daily Telegraph.
„SKATTGREIÐENDUR vaknið“
var forsíðufyrirsögn í einu helsta
dagblaðinu í Peking nýlega og í
meðfylgjandi grein sagði, að allir
Kínveijar mættu búast við að verða
skattgreiðendur vegna þess, að
skattheimta tæki ekki aðeins til
þeirra, sem væru ríkir. Endurspegl-
ar þessi grein áhuga kínverskra
stjórnvalda á því að bæta skattskil-
in, sem eru vægast sagt slæm.
Launamunur milli manna og milli
einstakra héraða í Kína hefur auk-
ist mikið á síðustu árum. Meðallaun
í Peking voru rúmlega 50.000 ísl.
kr. á síðasta ári, 53% hærri en
meðaltalið í landinu, og í Shanghai
voru þau 67% hærri en meðaltalið.
I Shanghai hefur hæsti tekjuhópur-
inn átta sinnum hærri laun en sá
lægsti.
Fær aðeins helminginn
Nýríku Kínveijarnir hafa lítinn
áhuga á að borga skatta en áætlað
er, að vegna skattsvika, vanþekk-
ingar á lögunum og ýmiss konar
spillingar hafi ríkið ekki fengið
nema helming þess skattfjár, sem
því bar á síðasta ári.
Tekjuskattslögin í KSna eru nú
þannig, að þeir, sem hafa meira en
800 júan, um 7.000 kr., í mánaðar-
laun, eru skattlagðir og fer skattur-
inn stighækkandi. Kemst hann
hæst í 45% hafí menn meira en
880.000 kr. á mánuði.
Spillingin er mikil og vaxandi.
Tvöfalt bókhald er algengt og alls
konar mútur. Veitingahúsaeigend ■
ur hafa t.d. komist að því, að það
gefur ágæta raun að bjóða skatteft-
irlitsmönnunum reglulega í mat.
Reuter
Ungur listaskrifari
SEX ára gömul japönsk stúlka, Shiori Ebina, í þjóðlegum búi
ingi beitir stórum bursta í leturgerðarkeppni í Tókýó.
EGLA bréfabindi
SKMJLAGI
Við sendum þér bækling óskir þú þess
með myndum af fjölbreyttu úrvali okkar af
þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan
getur þú pantað það sem hentar fyrirtæki þínu
og færð sendinguna.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
KJOLFESTA
ÍGÓÐU
t
i
i
I
i
i
t,
i
i
i
i
Í
Í
i
i
I
i
i