Morgunblaðið - 06.01.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 31
MINN1NGAR
vitleysu en hefði tapast ella. Þá var
bróðir minn heldur betur hróðugur.
Þeir bræður Sigurður og Sigfús
voru á sínum uppvaxtarárum í Stóru-
Mörk ákaflega samrýmdir. Eitt af
því sem tengdi þá saman var hæfi-
leiki til að setja saman orð í bundið
mál. Því miður er það mest allt glat-
að.
Það sem ef til vill tengdi okkur
Sigurð mest og best saman var sam-
eiginlegur áhugi á ferðalögum á fjöll-
um. Eitt árið gengum við saman stór-
an hluta þeirrar leiðar sem nú er
kölluð Laugavegur. Þetta var löngu
áður en nokkrar brýr komu á Ems-
truárnar. Það róaði okkur ungling-
ana að hafa með okkur mann sem
óhætt var að treysta til að finna
bestu vöðin á ánum. Maður kom
heldur ekki að tómum kofunum hvað
varðaði þekkingu á ömefnum og
sögu þeirra. Svei mér þá ef þér hef-
ur ekki tekist að yfirfæra eitthvað
af þeirri þekkingu yfir á mig ágæti
frændi minn. Ekki vorum við alltaf
sammála um allt hvað varðaði tilhög-
un þessara ferða. Engu að síður hef
ég ekki eignast traustari og örugg-
ari ferðafélaga á lífsleiðinni.
Á árunum frá 1975-81 dvaldi ég
erlendis við nám. Þegar heim kom
vildi ég að sjálfsögðu taka upp þráð-
inn að nýju og ég er viss um að Sig-
urður hefur verið sama sinnis. En
þá var kippt undan honum fótunum
í bókstaflegum skilningi. Vinnuslys
sem hann lenti í sumarið 1982 varð
þess valdandi að taka þurfti af hon-
um annan fótinn fyrir neðan hné.
Ég hef oft hugsað til þess að ég
hefði þurft að vera nokkrum árum
eldri til að geta notið samvistanna
við þennan frænda minn svolítið
lengur. Segja má að eftir þetta slys
hafi hallað undan fæti. Nokkrum
sinnum hefur maður haldið að nú
væri kallið að koma. Nú er Sigurður
hvorfinn yfir móðuna miklu. Minn-
ingin um góðan eiginmann, föður,
frænda og félaga lifir.
Leifur Þorsteinsson.
+ Ólafur Jóhann-
esson fæddist í
Hafnarfirði 25.
mars 1927. Hann
andaðist á Land-
spítalanum 31. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Sigurveig
Guðmundsdóttir og
Jóhannes Gunnars-
son kaupmaður í
Hafnarfirði. Þau
eru bæði látin. Olaf-
ur var elstur af 5
börnum þeirra
hjóna. Systkini hans
eru Hólmfríður, Ólafía, Gunnar
og Guðrún. Þann 17. júlí 1948
kvæntist Ólafur eftirlifandi
konu sinni Bergþóru Þorvalds-
dóttur. Þau eignuðust þijá syni,
Þór Siguijón, f. 23. ágúst 1949,
Jóhannes, f. 19. sept. 1952,
Gunnar, f. 5. okt. 1958. Barna-
börnin eru 4 og barnabarna-
börnin 2. Ólafur verður jarð-
settur í dag.
MIG LANGAR aðeins til að minn-
ast Óla frænda míns, eða Óla afa
eins og hann var alltaf í mínum
huga.
Ekki samt að ég sé hrædd um
að hann gleymist nokkrum. Hann
hafði átt við veikindi að stríða í þó
nokkur ár, en þó hann legðist inn
á spítala á jóladag býst ég við að
flestir hafa átt von á að hann sneri
aftur heim fljótlega. Það sterkur
var lífsvilji hans að hann var alltaf
staðráðinn í að lifa lífinu meðan
þess var kostur. Stundaði sína vinnu
í gestamóttökunni á Hótel Esju og
ferðaðist víða um heim með Berg-
þóru konu sinni
(Beggu ömmu), sem
ég veit að hann elskaði
allt til síðustu stundar.
Þau hjónin voru alveg
einstaklega samrýnd.
Ein af síðustu ferðun-
um var farin til Lúx-
emborgar í fyrra. Með
í förinni voru tvö af
barnabörnunum, þær
Thelma og Anna Hlín,
sólargeislarnir í lífi
Óla. Hann hafði gaman
af því að fylgjast með
þeim vaxa og dafna og
veittu þær honum
ómælda gleði hin síðari ár.
Nú er ferðin bara lengri, en ég
veit að hvert sem förinni var heitið
í þetta sinn var vel tekið á móti
honum af foreldrum hans (afa mín-
um og ömmu) sem og öðrum ætt-
ingjum og vinum sem þegar eru
farnir yfir.
„Þegar maður hefur tæmt sig
af öllu, mun friðurinn mikli koma
yfir hann. Allir hlutir koma fram í
tilvistina, og menn sjá þá hverfa
aftur. Eftir blóma ævinnar fer hvað
eina aftur til upphafsins.
Að hverfa aftur til upphafsins
er friðurinn. Það er að hafa náð
takmarki tilvistar sinnar.“
(Ur Bókinni um Veginn.)
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til
þín Begga, og til allra sem voru
það lánsamir að fá að kynnast hon-
um meðan hann dvaldist í þessum
heimi. Sigurveig Káradóttir.
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert
bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns sínS.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(23. Davíðssálmur)
Á síðasta degi ársins, sem var
að líða, fengum við þá þungbæru
frétt, að Ólafur Jóhannesson, vinur
okkar og samstarfsmaður til
margra ára, hefði látist þá um
morguninn.
' Það er mikil eftirsjá að þessum
félaga okkar, sem í tvo áratugi
helgaði krafta sína gestamóttöku
Hótel Esju. Mikill sjónvarsviptir er
að glæsimenninu Óla úr gestamót-
tökunni, enda hafði hann staðið sína
vakt með virðuleik og reisn.
Hann var alitaf boðinn og búinn
að leysa hvers manns vanda, hvort
sem um var að ræða gesti hótelsins
eða okkur hin. Stutt var í glens og
gaman, heillandi kímnin var alltaf
á sínum stað og naut hann sín vel
umvafinn „stelpunum sínum“ á
Esju.
Við kveðjum nú kæran vin með
sárum söknuði og minnumst hans
með hlýhug. Skarð Óla verður vand-
fyllt.
Við sendum eiginkonu hans,
Bergþóru, okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur, svo og sonum hans,
barnabörnum og öðrum aðstand-
endum.
Blessuð sé minning þín kæri vin-
ur.
Samstarfsfólk
gestamóttöku Esju.
t
Ástkær eiginkona mín,
MJÖLL SIGURÐARDÓTTIR,
Suðurgötu 76,
Hafnarfirði,
andaðist í St. Jósefsspítala miðvikudaginn 4. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd ættingja,
Ragnar Jóhannesson.
t
Elskuleg móðir okkar,
SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
Hrafnhólum 2,
áðurtii heimilis
á Blómvallagötu 10a,
lést á Borgarspítalanum að kvöldi 4. janúar sl.
Soffía Kristjánsdóttir,
Ólafía Katrín Kristjánsdóttir,
Kristján Sigurður Kristjánsson.
ÓLAFUR
JÓHANNESSON
MESTU
VINNINGSIÍKURNAR
í ÍSLENSKU STÓRHAPPDRÆTTI
25 og 10 MILLJÓNIR KRÓNA
óskiptar á einn miða, aðeins dregnar úr seldum miðum.
Það er RÍK ástæða til að
spila með í HHÍ95
Við drögum 17. janúar.
Tfyggðtt þér miða strax.
Eina stórhappdrcettið
þar sem hœsti vinningurinn
gengur örugglega út d árinu.
HAPPDRÆTTI
/ / /
Einfaldur miði kostar
aðeins 600 kr.
HASKOLA ISLANDS
vænlegast til vinnings
HHÍ er lang - lang stœrsti greiðandi happdrættisvinninga á íslandi
Meira en annar hver miði vi?7nur að jafnaði.
ARGUS / SÍA