Morgunblaðið - 06.01.1995, Side 41
®MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
N eftóbaksmenn
hættulegri en
drykkjusvolar
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
LAGT hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til tóbaksvarnalaga og
er það góðra gjalda vert. Þar er
mjög ítarlegt bann við hvers konar
tóbaksauglýsingum. Bannaðar eru
meðal annars „hvers konar sölu-
hvetjandi tilkynningar til almenn-
ings eða sérstakra markhópa, þar
á meðal útstillingar, skilti og
„svipaður búnaður“. Einnig er
bönnuð „umfjöllun í fjölmiðlum um
einstakár vörutegundir". Fleira
gott og þarflegt um auglýsinga-
bann er í frumvarpi þessu til laga.
Til dæmis er klykkt út með því
að tóbaki skuli „þannig komið fyr-
ir á útsölustöðum að það beri ekki
fyrir augu viðskiptavina“. Þá er
rétt að geta þess að ÁTVR mun
samkvæmt lögum þessum sjá um
að geyma tókbáksbirgðir og dreifa
til smásala.
Ekki þarf nema smá gönguferð
niður Laugaveginn til að sannfær-
ast um að fíkni- og vímuefnið
áfengi virðist njóta meiri hylli en
fíkniefnið tókbak sem þó er ekki
vímuefni. Hver bjórsjoppan af ann-
arri auglýsir bjór á skiltum og í
gluggum. Bílar frá brugghúsum
og umboðsmönnum erlendra
bruggara eru skreyttir beinum
áfengisauglýsingum, og sérstakur
fulltrúi áfengisauðvaldsins í Evr-
ópusambandinu, Mál og menning,
gefur út handbók um varning þess
og stillir umbúðum utan af offram-
leiddum og niðurgreiddum afurð-
um þess í glugga sína. Og að sjálf-
sögðu er hugrekki yfirmanna lög-
reglustjóraembættisins í Reykja-
vík í réttu hlutfalli við réttlætis-
kenndina.
Yfirvöld halda að sér höndum
Þá eru haldnar sýningar á þessu
vímuefni og kynningar og þeir sem
græða á sölu þess gera allt sem
í þeirra valdi stendur til að telja
þeim sem fátækastir eru í anda
trú um að það sé hámark allra
fínheita að kunna skil á áfengis-
tegundum. Og ekki heyrist hósti
né stuna frá yfirvöldum.
Maður skyldi halda að það væri
fólk sem hefði reykt nokkrar sígar-
ettur sem gerðist hættulegt sam-
borgurum sínum í umferðinni.
Maður gæti farið að trúa því að
það væru forfallnir vindlareyk-
ingamenn sem réðust að fólki með
ókvæðisorðum og ofbeldi, myrtu
jafnvel fólk og bæru fyrir sig
minnisleysi á eftir. Kannski eru
það stórhættulegir neftóbaksmenn
sem fara um götur með ópum og
háreysti, skemma eignir manna
og bijótast inn í híbýli þeirra og
fyrirtæki. Og ætli það sé ekki
vegna of mikilla reykinga að ferm-
ingarstúlkur liggja í óviti fyrir
hunda og manna fótum og er
nauðgað af umhlaupandi strákum
'og rumpulýð.
Að minnsta kosti virðast sumir
alþingismenn hafa mikla trú á að
auka svokallað frelsi í áfengismál-
um á sama tíma og tókbak skal
helst hvergi bera fyrir augu manna
fremur en kókaín og ópíum. -
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshólum 6, Reykjavík.
Skammdegisárátta
Frá Þresti J. Karlssyni:
MARGT skrítið á sér stað þegar
sólarglætan hér á Fróni er í lág-
marki. Það er eins og glætan í
sumu fólki slökkni þar með. Brott-
vikningar úr störfum eiga sér stað
og hinn græni logi sem lætur
krauma í potti öfundarinnar breið-
ist út sem „eldur í sinni“.
Mér segir svo hugur að með
þeirri aðför sem gerð hefur verið
að Jakobi Frímanni Magnússyni,
menningarmálafulltrúa við ís-
lenska sendiráðið í London, sé
verið að klúðra gullnu tækifæri til
að kynna íslenska menningu í
London og í víðara samhengi þar
með.
Jakob er óvenjulegur að því leyti
að hann brýtur upp gamlar hefðir
á sinn sérstæða hátt þegar list er
annars vegar. íslenska sendiráðið
er því ekki á „þyngri nótunum"
eins og alltof algengt er með slík-
ar stofnanir, heldur vinalegt og
skemmtilegt og kærkomin til-
breyting fyrir erlenda sem inn-
lenda að sækja það heim, spjaJla
saman, njóta íslenskrar menningar
og þýða klakann.
Ef slökkt verður á þessari
menningarglætu sem við Islend-
ingar eigum þó eftir með því að
skera niður útgjöld til menningar-
mála, hvort sem það er til kynning-
ar á erlendri grundu eða til þeirra
sem skapa listina, er illa komið
fyrir þjóðinni.
Og svona til „gamans": Ef for-
pokaður kerfiskarl yrði nú settur
í Jakobs stað sem menningarfull-
trúi í London þá bara... góða
skemmtun.
ÞIiÖSTUR J. KARLSSON,
rithöfundur.
Hvað er kripalujóga?
Frá Ásmundi Gunnlaugssyni:
FLESTIR nútímamenn eru mjög
ómeðvitaðir. Ómeðvitaðir um lík-
ama sinn og huga. Flest okkar eru
nánast aldrei í núinu. Hugurinn
er á fleygiferð, annaðhvort í fortíð
eða framtíð. Gjarnan er hugurinn
upptekinn af áhyggjum af framtíð-
inni eða að velta sér uppúr fortíð-
inni. Hugurinn er nefnilega þeim
eiginleikum gæddur að geta búið
til óþarfa ótta, áhyggjur og vanda-
mál ef við ekki lærum að hafa
stjórn á honum.
Kripalujóga er kerfi sem er
byggt á þekkingu hinna fornu ind-
versku jógameistara en hefur verið
sniðið að þörfum Vesturlandabúa
þannig að flestir geta stundað það
á aðgengilegan og hættulausan
hátt og miðar að því að auka með-
vitund okkar og kyrra hugann.
Lykilatriði í kripalujóga er svo-
kölluð vitnisvitund (choiceless
awareness). Líkaminn er settur í
ýmsar stöður sem teygja á hinum
ýmsu svæðum líkamans þar sem
spenna og fyrirstaða eru fyrir
hendi. Við notum síðan öndun og
athygli (vitnisvitund) til þess að
slaka smám saman á inní teygj-
una. Þetta leiðir til þess að smám
saman losum við um fyrirstöður í
líkama okkar og huga.
Samkvæmt kenningum yogi
Amrit Desai sem er upphafsmaður
kripalujóga er óijúfanlegt sam-
band milli líkama, hugar og öndun-
ar. Allt sem við verðum fyrir hefur
áhrif á öndun okkar og huga. Þeg-
ar lífið birtist okkur sem sársauka-
fullt eða erfitt þá yfirleitt verður
öndunin grunn og óregluleg og við
spennum upp líkamann. Þegar við
tökumst á við lífið með þessum
hætti safnast smám saman upp
fyrirstöður í líkamanum og hugan-
um. Samkvæmt kenningum jóga
trufla þessar fyrirstöður orkuflæði
líkamans og geta orðið undirrót
sjúkdóma með tímanum.
Lært að slaka á
í kripalujóga lærum við að slaka
á þó staðan verði erfið. í stað þess
að flýja af hólmi eða detta inní
vanabundin viðbrögð, þá höldum
við stöðunni, við öndum, slökum
á, fylgjumst með án þess að dæma.
Þetta er ekki auðvelt til að byija
með en árangur skilar sér þó furðu
fljótt. Með þessari aðferð lagfær-
um við smám saman orkuflæði
líkamans sem skilar sér í heilbrigði
og vellíðan.
Regluleg ástundun jóga ásamt
heilbrigðum lífsháttum kemur lík-
amanum í toppástand, víst er um
það.
En það er samt ekki allt. Reglu-
leg ástundun yfir lengri tíma gerir
okkur kleift að stíga útúr takmörk-
unum okkar á nánast því hvaða
sviði sem er. Viljastyrkur, hug-
rekki, einbeiting, athygli, úthald,
þolinmæði, umburðarlyndi; allir
þessir eiginleikar styrkjast með
reglulegri ástundun jóga.
Það er einungis einn galli á jóga,
það verður að ástunda það. Það
er ekki nóg að lesa um það, tala
um það eða stúdera forna jóga-
heimspeki.
Hver og einn verður að ástunda
það nægilega lengi til þess að finna
virkilega fyrir þeim andlega og lík-
amlega árangri sem jóga gefur og
ég er ekki að tala um eitthvað sem
ég hef lesið af bókum heldur hluti
sem ég hef upplifað sjálfur. Megi
friður vera með okkur öllum.
ASMUNDUR GUNNLAUGSSON
jógakennari,
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði.
UNGBARNASUND
Ný námskeið hefjast 11. janúar.
Kennsla fer fram í sundlaug Kópavogshælis við mjög góðar aðstæður.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 643023.
Sæunn Gísladóttir íþróttakennari.
Komdu og vertu meö á þessu frábæra námskeiöi.
Árangurinn á fyrri námskeiðum hefur veriö frábær.
Flestar ná aö missa 5-10 aukakíló og læra aö haldai
þeim árangri varanlega! , ’
Þjálfun 3-5x í viku
Fitumælingar og viktun
Matardagbók
Uppskriftabæklingur aö fitulitlu fæöi
Mappa m. fróðleik og upplýsingum
Mjög mikið aðhald
Vinningar dregnir út í hverri viku
Frítt 3ja mán. kort fyrir þær 5
samviskusömustu!
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868
Framhaldshópur
- fyrir allar þær sem hafa veriö
áöur á námskeiöunum okkar.
Nýtt fræösluefni.
Mikiö aöhald.
^ Morgunhópur
► Daghópur
► Kvöldhópar
► Barnagæsla
friáfhm
að sett
Nýtt og enn fullkomnara 8-vikna
fitubrennslunámskeið
Hefst 9. janúar.