Morgunblaðið - 06.01.1995, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ
O
42 PÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
/
-kjarni málsins!
U NG BARNASUND
Ný námskeið hefjast 11. janúar.
Kennsla fer fram í sundlaug Köpavogshælis við mjög góðar aðstæður.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 643023.
Sæunn Gísladóttir íþróttakennari.
Flugeldasalan í
KR - heimilinu er opin
föstudaginn 6. janúar
frá kl. 14-21.
20-30% afsláttur
I DAG
LEIÐRÉTT
Fúkkalyf ekki á
bestukaupalista
í Víkverja blaðsins í gær
var sagt frá kaupum ís-
lenskrar móður á fúkka-
lyfjum í Bandaríkjunum og
sagt frá því að hún hafi
ekki fengið þau greidd hjá
Tryggingastofnun þar sem
lyfin er hún keypti voru
ekki á bestukaupalista.
Blaðinu hefur borist
ábending um að fúkkalyf
eru ekki niðurgreidd af
Tryggingastofnun og
skiptir þá ekki máli hvort
þau eru keypt á íslandi eða
af íslendingum erlendis.
Velvirðingar er beðist á
þessu ranghermi.
Pennavinir
ÍTALSKUR 25 ára karl-
maður með mikinn Is-
landsáhuga:
Luciano Di Paolo
Via S. Pietro n 1A,
02044-Forano (Rieti),
Italy.
BRIPS
Umsjön Guðm. Páll
Arnarson
EFTIR að austur opnar á
einum spaða á suður leikinn
með þessi villtu spil:
Norður
4
Y
♦
4
Suður
4 -
Y D1074
♦ D
4 ÁD1085432
Það er enginn á hættu.
Hvað á suður að segja?
Bretarnir Brian Robson
og Oliver Segal nota þetta
dæmi í bók sinni Partnership
bidding, sem er með athygl-
isverðustu bridsbókum síðari
tfma. Skoðun þeirra er af-
gerandi; Suður á ekki að láta
undan þeirri freistingu að
læðast með veggjum. Það er
oft lítið að segja aðeins tvö
eða þrjú lauf. Og verst af
VELVAKANDI
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Hanski fannst
SVARTUR kvenleður-
hanski fannst sl. þriðju-
dag fyrir utan Myndval í
Mjódd. Eigandinn má vitja
hans í síma 670995.
Myndavél
tapaðist
MYNDAVÉL í hulstri af
gerðinni Yafhica tapaðist
í Kolaportinu við það
tækifæri þegar unglingar
dönsuðu til styrktar alnæ-
missjúkum. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
71481.
Gleraugu
töpuðust
GULLSPANGARGLER-
AUGU í hulstri, karl-
manns, töpuðust í Set-
bergslandi í desember.
Hafi einhver fundið þau
er hann vinsamlega beð-
inn um að hringja í síma
53911.
Rúskinnsjakki
tapaðist
BRÚNN rúskinnsjakki
tapaðist á. Glaumbar á
nýársnótt. í vasa jakkans
voru m.a. gleraugu og
ökuskírteini. Viti einhver
um jakkann er hann vin-
samlega beðinn um að
hringja í síma 50061.
Mokkajakki
tapaðist
SVARTUR mokkajakki
með loðnum kraga og
loðnu á ermum tapaðist á
Laugaveginum á nýár-
snótt. í annarri erminni
var svartur trefill og gráir
fingravettlingar. Finnandi
er vinsamlega beðinn um
að hringja í síma 74435.
Kventaska
tapaðist
SVÖRT kventaska úr
gervileðri tapaðist þriðju-
daginn 27. desember á
Hótel íslandi. í veskinu
eru skilríki. Fundarlaun.
Upplýsingar í síma
881094, Hugrún.
Gæludýr
Hvolpar
VIÐ erum hér fjögur
systkini, þrír strákar og
ein stelpa sem mamma er
að verða svolítið þreytt á
og vill fara að gefa okk-
ur. Hér með auglýsum við
eftir mjög góðum heimil-
um. Úpplýsingar gefur
Drífa í síma 71950.
öllu er pass, en það var sú
sögn sem suður valdi við
borðið:
Norður
4 1074
r G9532
4 ÁK874
* -
Vestur Austur
4 KD852
V K6
4 G10952
♦ 7
4 ÁG963
4 KG96
Suður
4 -
r D1074
4 D
4 ÁD1085432
Vestur Norður Austur Suður
- - 1 spaði Pass
4 spaðai ■ Pass Pass 5 lauf
Pass Pass Dobl Pass
•Pass Pass
Fimm lauf fóru þijá niður,
500, sem er viðunandi á yfir-
borðinu, þar eð fjórir spaðar
vinnast (420). En það er
aðeins á yfirborðinu. Ef suð-
ur reynir ekki að vera snið-
ugur og segir einfaldlega
fimm lauf strax við einum
spaða, hlýtur vestur að segja
fimm spaða.
Og sannast þar enn hin
foma sagnspeki: „Fljótt inn,
fljótt út.“
Farsi
,/ 1/íSerum fcc*p'ikzlistas(/ttv,sonur saeLL.
það eresicyin dstæcfa tíL oiótammsstún þjrir
þatr."
01995 Farcu* CaitoonaAlWrlbuHd by Unövaraal Pres* Syndicale
LJAIS6>t-ASS/coúL-TUMrr
HAFNFIRDINGAR
Alfabrenna - þrettándagleði -
Fjölskylduskemmtun
Þrettándagleði veður haldin á Asvöllum í kvöld.
6. |anúa,r kl. 19.45. N
SÓNGUR, GLENS OG GAMAN
i
f
Grýla og Leppalúði, álfakóngur og álfadrottning, flugeldasýn-
ing. Jólasveinarnir kveðja. Veitingar á staðnum.
Knattspyrnufélagið Haukar
Vinningstölur — — —-
miðvikudaginn: 04.01.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
d 6a,e 0 41.050.000
ETJ 5 af 6 M+bónus 0 2.186.677
R1 5 af6 6 42.060
E! 4 af 6 215 1.860
ra 3 af 6 fJ+bónus 765 220
fjjuinningur: er tvöfaldur næst
BÓNUSTÖLUR
(j 22 39
Heildarupphæð þessa viku:
44.057.237
,ísi, 3.007.237
UPPLYSINGAR, SIMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ EYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Yíkveiji skrifar...
VÍKVERJA hefur borizt bréf frá
Jónasi Hvannberg, hótel-
stjóra á Hótel Sögu, vegna umfjöll-
unar í Víkveija í fyrradag. Fer
bréfið hér á eftir:
„Ég vísa til greinar í blaðinu í
dag um heimsóknir erlendra ferða-
manna til Reykjavíkur yfír hátíðirn-
ar-.
í greininni er minnst á skort á
þjónustu við erlendu gestina yfír
jólin og að gestir Hótels Sögu hafi
aðeins fengið samlokur að borða.
Yfír hátíðirnar gistu u.þ.b. 50
erlendir gestir á Hótel Sögu. Allir
þessir gestir höfðu verið upplýstir
um að ekki væri unnt að fá kvöld-
verð á hótelinu á aðfangadag og
jóladag. Hins vegar yrði opið á ein-
um veitingastað í borginni og gest-
um boðið að panta fyrir þá borð
þar. Gestir þáðu þetta yfírleitt, en
því miður var upppantað á þessum
veitingastað seinni hluta aðfanga-
dags. Úrræði starfsfólksins var því
að gefa þeim fjórum gestum, sem
ekki fengu heitan kvöldverð, smurt
brauð sem öðrum hafði verið ætl-
að. Gestum þessum var síðar boðið
upp á veitingar á kostnað hótelsins
og við brottför fullyrtu þeir að dvöl-
in hefði verið hin ágætasta.
Annað sem ég vildi upplýsa er
að erlendir ferðamenn hafa gist í
stórum hópum á Hótel Sögu yfír
áramót frá árinu 1989. Frá þeim
tíma hefur hótelið staðið fyrir veg-
legum áramótafagnaði fyrir er-
lenda gesti af ýmsum þjóðernum.
Fagnaður þessi og dvöl gestanna
hefur alltaf gengið mjög vel og
hafa sumir þeirra komið oftar en
einu sinni til íslands og gist á
Hótel Sögu yfír áramótin. Ára-
mótagestum hefur fjölgað í gegn-
um tíðina og þess vegna hafa fleiri
og fleiri veitingastaðir haft opið á
gamlárskvöld. Þannig er ekki rétt
hjá Víkveija að einn tiltekinn veit-
ingastaður hafí núna riðið á vaðið
og haft frumkvæði að áramóta-
fagnaði fyrir erlendagesti um þessi
áramót.
Ég fagna allri umræðu um ferða-
mál og ábendingum um bætta þjón-
ustu. Vafalaust verður umræða um
ofangreint tilvik til þess að ferða-
þjónustuaðilar setjast niður og
ræða hvort skilyrði séu fyrir að
taka á móti erlendum gestum yfir
jólin svo að vel sé.
Hins vegar óska ég eftir fag-
legri umfjöllun um þessi mál en var
í blaðinu í dag þar sem rangt var
farið með fjölda þeirra gesta sem
dvöldu í Reykjavík yfír jólin og að
tiltekið veitingahús hefði unnið
brautryðjandastarf á nýliðnum.
gamlársdegi.“
Virðingarfyllst,
Jónas Hvannberg,
hótelstjóri.
REYNSLAN af verkföllum
kennara er afar slæm, bæði
fyrir kennara sjálfa og allan al-
menning. Kennaraverkföll þau,
sem hér hafa verið háð, hafa skap-
að mikinn óróa í þjóðfélaginu.
Skólunum hefur verið lokað og
nemendur verið heima við á hefð-
bundnum skólatíma. Það hefur aft-
ur skapað truflún á vinnustöðum
vegna fjarveru foreldra, sem hafa
þurft að gæta barna sinna. Verst
er þó, að ákveðnir árgangar eins
og t.d. stúdentsárgangar hafa orðið
mjög illa úti í kennaraverkföllum.
Samkeppni er orðin mikil um að-
gang að háskólum og háskóladeild-
um bæði hér og erlendis og ein-
kunnir skipta þar verulegu máli.
Þeir sem hafa lent í kennaraverk-
föllum á stúdentsári hafa ekki set-
ið við sama borð og aðrir í þeim
efnum.
Allt hefur þetta skapað andúð í
garð kennara, sem var orðin svo
mikil, að þegar þeir voru síðast
spurðir hvort þeir vildu efna til
verkfalls var því hafnað í allsheijar
atkvæðagreiðslu. Fróðlegt verður
að sjá, hvernig atkvæðagreiðsla
meðal kennara fer nú. En það er
alveg ljóst, að verkfall kennara nú
mundi eins og áður skapa óróa og
úlfúð, sem beinist ekki síður að
þeim en viðsemjendum þeirra eins
og dæmin sanna.