Morgunblaðið - 06.01.1995, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. JANÚAR 1995 51
DAGBÓK
VEÐUR
JiL h
vA/V
& & &
P* * * no
# * # U
& & ® #
& $ sSs $v #
sS # # &
$ # & # &
# # # # so
<S $ * $ #
í)i # & # &
* ^ & * :& &
sjs & & & sCs & *
® % » & »■É ÉL.
•v^Sw' ð
jrO^S^ ■ ' *4^
i! -2° '"
* é * * R'9nin9 y Skúrir | v-
: é «* slYdda y Slydduél 1 st<
% % %Í Snjókoma U Él / ™
V'Ö'Öi_____________Viii . ,.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað # » 1 Snjókoma \J
Sunnan, 2 vindstig. -|0° Hitastig
Vindörin sýnir vind- ___
stefnu og fjöðrin sss Þoka
vindstyrk,heilfjöður ^ t ,
er 2 vindstig. t '■>u,d
VEÐURHORFUR í DAG
Yfirlit: Við suðausturströndina er víðáttumikil
960 mb lægð á hreyfingu norðaustur og síðar
norður. Norðaustur af Nýfundnalandi er vax-
andi 978 mb lægð sem hreyfist norðaustur.
Spá: í nótt gengur norðanáttin niður, fyrst
vestanlands og veður fer kólnandi. Vaxandi
suðaustan- og austanátt á morgun og hlýn-
andi veður; fyrst suðvestanlands. Síðdegis
verður slydda eða snjókoma á Suður- og Vest-
urlandi og um kvöldið fer einnig að snjóa norð-
austantil.
VEÐURHORFUR IMÆSTU DAGA
Laugardagur: Suðvestan strekkingur syðst á
landinu en hægari breytileg átt annars staðar.
Él víða víða um land. Frost 2 til 7 stig.
Sunnudagur: Norðanátt með éljagangi norð-
anlands og einnig á stöku stað sunnanlands.
Frost 3 til 9 stig.
Veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 6.45, 7.30,
10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími
Veðurstofu Islands - Veðurfregnir: 990600.
Fyrir ferðamenn: 990600 og síðan er valið 8.
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Á Vesturlandi er ófært um Bröttubrekku og
þungfært um Fróðárheiði. Á Vestfjörðum er
ófært um Steingrímsfjarðarheiði, Breiðdals-
heiði og til Suðureyrar. Skafrenningur er á
Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Óxnadals-
heiði. Slæmt veður er á Siglufjarðarvegi í Fljót-
um og vart ferðaveður. Austan Akureyrar er
ekkert ferðaveður og lítið vitað um færð. Á
Austfjörðum er þungfært um jökuldal og norð-
an Egilsstaða.
Helstu breytingar til dagsins í dag: Lægðin við suðaustur-
land fer norðaustur og síðar norður. Lægðin við Nýfundna-
land hreyfist norðaustur.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að fsl. tíma
Akureyri -2 snjókoma Glasgow 9 léttskýjað
Reykjavík 0 snjókoma Hamborg -7 þokumóða
Bergen vantar London 4 súld
Helsinkl 0 iéttskýjað Los Angeles 13 léttskýjað
Kaupmannahöfn -4 skýjað Lúxemborg -6 léttskýjað
Narssarssuaq snjókoma Madríd 9 þokumóða
Nuuk -5 snjókoma Malaga 16 léttskýjað
Ósló vantar Mallorca 12 skýjað
Stokkhólmur -3 lóttskýjað Montreal -18 skýjað
Þórshöfn 7 rign. á síð. klst. NewYork -9 heiðskírt
Algarve 17 skýjað Orlando 7 skýjað
Amsterdam -3 hálfskýjað París -2 skýjað
Barcelona 6 hálfskýjað Madeira 18 skýjað
Berlín -6 léttskýjað Róm 8 skýjað
Chicago -18 heiðskírt Vín -4 snjókoma
Feneyjar 3 hálfskýjað Washington vantar
Frankfurt -5 léttskýjað Winnipeg -17 heiðskírt
6. JANÚAR FJara m Flóð m Fjara m FlóS m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl í suðri
REYKJAVÍK 3.30 0,6 9.50 4,0 16.02 0,6 22.14 3,6 11.10 13.32 15.54 17.56
ÍSAFJÖRÐUR 5.36 0,5 11.49 2,2 18.15 0,4 11.51 13.38 15.26 18.02
SIGLUFJÖRÐUR 2.09 1A 7.49 Cþ3 14.14 1,3 20.23 0,2 11.34 13.20 15.06 17.43
DJÚPIVOGUR 0.37 0,3 6.53 2i1 13.08 0,5 19.07 1,9 10.46 13.02 15.20 17.25
Siávarhæð miöast við meðalstórstraumsfjöru (Morqunblaöið/Sjómælingar fslands)
fHnr&nmfclaftift
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 skaði, 4 dreng, 7 líf-
færin, 8 kærleiksþel, 9
elska, 11 vinds, 13
svara, 14 fjandskapur,
15 talað, 17 flanir, 20
blóm, 22 verkfærin, 23
land í Asíu, 24 ójafnan,
25 gabba.
LÓÐRÉTT:
1 á húsi, 2 ósannindi, 3
framkvæma, 4 sauða-
tað, 5 rótarleg, 6 veslast
upp, 10 bor, 12 sorg,
13 skel, 15 fótþurrka,
16 læst, 18 kaldur, 19
rás, 20 yndi, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárótt: - 1 bágstadda, 8 frísk, 9 doppa, 10 nía, 11
skata, 18 norpa, 15 stolt, 18 ómerk, 21 ull, 22 gátan,
23 andar, 24 hafurtask.
Lóðrétt: - 2 álíta, 3 sakna, 4 aldan, 5 dapur, 6 ofns,
7 lama, 12 tel, 14 orm, 15 segg, 16 ostra, 17 tunnu,
18 ólatt, 19 eldis, 20 korg.
í dag er föstudagur 6. janúar,
6. dagur ársins 1995. Þrettánd-
inn. Orð dagsins er: Ritað er:
Úlfaldanum og mýflug-
unni, Ármúla 17a. Allir
velkomnir. Veglegir
vinningar. Parakeppni á
mánudagskvöld.
„Eigi lifir maðurinn á einu
saman brauði.“
Skipin
Reykjavikurhöfn: í
fyrradag fór Hákon og
í gær fóru Helgafell,
Bakkafoss og Mælifell.
Hafnarfjarðarhöfn: í
gærkvöldi kom Hofs-
jökull að utan frá
Bandaríkjunum.
Fréttir
í dag 6. janúar er þrett-
ándinn, þrettándi og
síðasti dagur jóla. I
Sögu Daganna segir að
hann heiti upphaflega
opinberunarhátíð og
hafi verið tengdur ýms-
um kristnum trúarat-
burðum, einkum skím
Krists og Austurlanda-
vitringum. Hérlendis
hefur hann öðru fremur
verið lokadagur jóla.
Þrettándanótt átti sér
líka heitið draumnóttin
mikla því að þá átti
Austurvegskonunga að
hafa dreymt fyrir fæð-
ingu Jesú. Þar sem
þrettándinn var síðasti
dagur jólanna var oftast
nokkuð um dýrðir og
það borið fram sem eftir
var af jólamat og drykk.
Þetta var líka síðasta
mikla spilakvöldið og
var á öllu landinu talað
um að „spila jólin út“.
Einnig að „brenna jólin
út“ og þá kveiktu menn
á þeim kertastubbum
sem eftir voru. Söngur-
inn „Nú er glatt í hverj-
um hól“ eftir Sæmund
Eyjólfsson og Helga
Helgason var saminn
(Lúk. 4, 4.)
fyrir þrettándabrennu á
Áusturvelli í Reykjavík
árið 1891.
Vegamálasljóri aug-
lýsir lausa stöðu tækni-
forstjóra í Reykjanes-
umdæmi með aðsetur í
Reykjavík. Umsóknir
þurfa að berast Vega-
gerðinni fyrir 27. janúar
nk.
Mannamót
Félag eldri borgara í
Rvík. og nágrenni. Fé-
lagsvist í Risinu kl. 14
í dag. Göngu-Hrólfar
taka á móti Hana-Nú
hópnum á morgun laug-
ardag. Ganga, veitingar,
söngur og gleði. Dans-
kennslan hefst á laugar-
dag kl. 13 fyrir byrjend-
ur og kl. 14.30 fyrir
lengra komna.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Spiluð verð-
ur félagsvist í Fannborg
8, Gjábakka, í kvöld kl.
20.30. Öllum opin.
Aflagrandi 40, félags-
starf 67 ára og eldri.
Bingó {dag kl. 14. Sam-
verustund við píanóið
með Fjólu og Hans kl.
15.30.
Furugerði 1. Aðstoð við
böðun kl. 9. Smíðar og
útskurður. Kl. 14 Stund-
in okkar (Guðlaug).
Félagsvist SÁÁ. Spila-
mennskan hefst á laug-
ardagskvöldum kl. 20 í
Hana Nú, Kópavogi.
Gönguklúbbur fer í
morgunverðarboð til
Göngu-Hrólfa í Reykja-
vik á morgun laugardag.
Lagt af stað frá Gjá-
bakka kl. 10. Skráning
í síma 43400.
Kvenfélag Óháða
safnaðarins verður með
jólatrésskemmtun á
morgun, laugardag, í
Kirkjubæ kl. 15.
Kirkjustarf
Langholtskirkja. Aft-
ansöngur kl. 18.
Laugarneskirkja.
Mömmumorgunn kl.
10-12.
Sjöunda dags aðvent-
istar á íslandi: Á laug-
ardag:
Aðventkirkjan, Ing-
ólfsstræti 19. Biblíu-
rannsókn kl. 9.45. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðu-
maður David West.
Safnaðarheimili að-
ventista, Blikabraut 2,
Keflavík. Guðsþjónusta
kl. 10.15. Biblíurann-
sókn að guðsþjónustu
lokinni. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Safnaðarheimili að-
ventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Hvíldar-
dagsskóli að guðsþjón-
ustu lokinni. Ræðumað-
ur Halldór Ólafsson.
Aðventkirkjan, Breka-
stíg 17, Vestmannaeyj-
um. Biblíurannsókn kl.
10. ^
Aðventsöfnuðurinn,
Hafnarfirði, Góð-
templarahúsinu, Suð-
urgötu 7. Samkoma kl.
10. Ræðumaður Stein-
þór Þórðarson.
Skarðsheiði
HROSSAHÓPUR fældist og hvarf vegna sprenginga á nýársnótt. Þau
fundust á öðrum degi í Skarðshyrnu 923 m y.si í sunnanverðri Skarðs-
heiði og komin í sjálfheldu. Skarðsheiði er hrikalegur fjallabálkur sunnan
við Borgarfjörð, milli Svínadals og Leirársveitar að sunnan og Andakils
og Skorradals að norðan, austur að Geldingadraga. Talið er að nafnið sé
dregið af þjóðleiðinni milli Skorradals og Leirársveitar er lá vestan undir
Heiðarhorninu. Var það kallað að fara Skarðsheiði. Skarðsheiði er skorin
skörðum og giljum með háum hvassbrýndum tindum og kömbum. Hæstu
tindar hennar eru Heiðarhorn 1053 m y.s. og Skessuhom 967 m y.s. Þjóð-
saga hermir að í öndverða íslandsbyggð hafi tröllskessa búið í Skarðs-
heiði sem var hin versta meinvættur. Eftir að ísland var kristnað og kirkja
var reist á Hvanneyri vildi hún eyða kirkjunni með því að kasta að henni
stórgrýtisbjargi. Skotið geigaði og lenti þjargið í flóa alllangt fyrir austan
kirkjuna. Heitir það Grásteinn og kvað enn sjást. Skessan sat fyrir ferða-
mönnum á leið um heiðina og réðist að þeim. Loks réð bóndinn á Grund
í Skorradal niðurlögum skessunnar eftir harða viðureign.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, fréttir 691181, fþróttir 691156, sér-
blöð 691222, auglýsingar 691110, skrifstofa 681811, gjaldkeri 691115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuói innanlands. I lausasölu 125 kr. eintakið.
Útsala - útsala
Gardínuefni 10-50% afsláttur.
Kappar mikið úrval, verð frá 390 kr. metrinn.
Dúkar með 30% afslætti.
Suðurveri, sími 889440