Morgunblaðið - 15.01.1995, Blaðsíða 27
■ MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR1995 B 27
AUGL YSINGAR
4^
Fatahreinsun
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir tilboðum
í hreinsun á vinnufatnaði í eigu félagsins.
Að mestu er um að ræða sloppa og hlífðar-
buxur.
Tilboðum skal skila inn fyrir 1. febrúar 1995.
Um er að ræða opið útboð þar sem félagið
áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna þeim öllum.
Sláturfélagið áskilur sér ennfremur rétt til
að skoða allar aðstæður tilboðsgjafa til að
ganga úr skugga um að þeir séu færir til að
sinna viðkomandi verkefni.
Nánari upplýsingar gefur framleiðslustjóri í
síma 98-78392.
UT
B 0 Ð »>
Eftirfarandi útboð eru til sölu eða afhend-
ingar á skrifstofu Ríkiskaupa, Borgartúni 7,
Reykjavík:
1. Útboð nr. 10216 tölvubúnaður fyrir
Ríkisspítala.
Opnun 18.1. 1995 kl. 14.00.
2. Útboð nr. 10230 utanhússklæðning
o.fl. Menntaskólinn að Laugarvatni.
Opnun 30.1. 1995 kl. 11.00.
Gögn seld á kr. 6.225,- m/vsk.
3. Útboð nr. 10233 tölvur fyrir Háskóla
íslands. Opnun 30.1.1995 kl. 14.00.
4. Útboð nr. 10229 grasfræ fyrir Land-
græðsluna.
Opnun 31.1. 1995 kl. 11.00.
5. Útboð nr. 10245 sjúkrarúm og nátt-
borð. Opnun 6.2. 1995 kl. 11.00.
Gögn til sýnis og sölu hinn 18.1.
1995.
6. Útboð nr. 10237 stoðtæki. Opnun
6.2. 1995 kl. 14.00. Gögn til sýnis
og sölu hinn 18.1. 1995.
7. Útboð nr. 10235 vegmálning fyrir
Vegagerðina árið 1995.
Opnun 7.2. 1995 kl. 11.00.
8. Útboð nr. 10238 stálborð o.fl. Opnun
7.2.1995 kl. 14.00. Gögn til sýnis og
sölu hinn 18.1. 1995.
9. Útboð nr. 10214 prentun fyrir Hag-
stofu íslands.
Opnun 9.2. 1995 kl. 11.00.
Gögn til sýnis og sölu 17.1. 1§95.
10. Útboð nr. 10217 prentun fyrir Póst
og síma. Opnun 10.2. 1995 kl. 11.00.
Gögn seld á kr. 3.000,- m/vsk./ EES.
11. Útboð nr. 10209 asphalt íblöndun-
arefni (Armin/Díamín/eða sambæri-
legt). Opnun 14.2. 1995 kl.
11.00/ EES.
Gögn seld á kr. 1.000,- m/vsk., nema
annað sé tekið fram. EES: Útboð auglýst
á evrópska efnahagssvæðinu.
Við vekjum athygli á að útboðsauglýs-
ingar birtast nú einnig í UTBOÐA,
íslenska upplýsingabankanum.
■0* RÍKISKAUP
Ú t b o & s k i I a árangril
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844,
BRÉFASÍMI 91-626739
Reyðarfjarðarhreppur
auglýsir
Óskað er eftir tilboðum í rekstur félagsheimil-
isins Félagslundar á Reyðarfirði. Skilyrt er
að reglubundin starfsemi sé rekin í húsinu.
Einnig að sú félagastarfsemi sem hefð er
fyrir hafi aðgang að húsinu.
Lysthafendur leggi inn skrifleg tilboð þar sem
tilgreint er hvernig viðkomandi hyggst
standa að rekstrinum. Tilboðum ber að skila
inn fyrir 1. febrúar nk.
Áskilin er réttur til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í
síma 97-41245.
Sveitarstjóri.
Greiðsluáskorun
Snæfellsbær skorar hér með á gjaldendur,
sem ekki hafa staðið skil á eftirtöldum gjöld-
um sem álögð voru á árinu 1994 og áður í
Ólafsvíkurkaupstað, Neshreppi utan Ennis,
Breiðuvíkurhreppi og Staðarsveit: Fasteigna-
skatti, lóðaleigu, vatnsskatti, holræsagjaldi
og sorphreinsigjaldi, útsvari, kvöldsöluleyfi,
hundaleyfisgjaldi, þjónustu áhaldahúss, lest-
ar- og bryggjugjald, vörugjöldum, 25% sér-
stöku vörugjaldi, aflagjaldi og viktargjaldi, að
greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan
15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara
vegna vangoldinna eftirstöðva gjaldanna að
þeim tíma liðnum.
Snæfellsbær, 15. janúar 1995.
Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ.
Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur
Gjöld vegna hundahalds
í Reykjavík
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að
gjald vegna hundahalds 1995 verði óbreytt
kr. 9.600,-.
Samkvæmt ákvörðun borgarstjórnar og
gjaldskrá sem umhverfisráðuneytið staðfesti
12. janúar sl. skal gjaldið greiðast í þrennu
lagi með gjalddögum 16. janúar, 15. febrúar
og 15. mars. Eindagi er einum mánuði eftir
gjalddaga og reiknast dráttarvextir frá gjald-
daga verði gjaldið eigi greitt í síðasta lagi á
eindaga.
Heilbrigðiseftirlit Reykja víkur.
Frá Lögmönnum
Höfðabakka
Þórður S. Gunnarsson, hæstaréttarlögmað-
ur, sem rekið hefur eigin lögmannsstofu í
Ármúla 17, Reykjavík, hefur frá og með 1.
janúar 1995 gerst meðeigandi að Lögmönn-
um, Höfðabakka sf. Mun hann samkvæmt
því reka lögfræðistofu þessa í félagi við Vil-
hjálm Árnason hrl., Brynjólf Kjartansson hrl.,
Ólaf Axelsson hrl. og Hrein Loftsson hrl.
Reykjavík, 8. janúar 1995.
LÖGMENN
HÖFDABAKKA
Vilhjálmur Árnason hrl.,
Brynjólfur Kjartansson hrl.,
Ólafur Axelsson hrl.,
Þórður S. Gunnarsson hrl.,
Hreinn Loftsson hrl.
Auglýsing um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála
í samræmi við reglugerð um Fræðslusjóð
brunamála nr. 1380/1993, skv. 24. gr. laga
nr. 41/1992, er hér með auglýst eftir um-
sóknum um styrki til náms á sviði brunamála.
Markmið sjóðsins er að veita þeim sem
starfa að brunamálum styrki til náms á sviði
brunamála. Stjórn Brunamálastofnunar ríkis-
ins fer með stjórn Fræðslusjóðs brunamála.
Sjóðurinn greiðir styrki til rannsókna- og þró-
unarvefkefna, námskeiðsgjöld, ferða- og
dvalarstyrki, laun á námsleyfistíma og styrki
vegna námskeiða og endurmenntunar.
Sjóðurinn mun standa fyrir námskeiðum í
slökkvistörfum fyrir yfirmenn slökkviliða.
Verða þau haldin í Reykjavík og í Sandö í
Svíþjóð, í viku á hvorum stað. Styrkir til nám-
skeiðanna verða veittir viðkomandi slökkviliði
og skulu slökkviliðsstjórar sækja um fyrir
hönd þeirra manna sem þeir hyggjast senda
á námskeiðin.
Umsóknir um styrki skal senda Brunamála-
stofnun ríkisins, Laugavegi 59, 101 Reykja-
vík, fyrir 1. mars 1995.
Nánari upplýsingar veitir Árni Árnason,
verkfr. á Brunamálastofnun, í síma 552-5350,
grænt númer 99-6350.
Reykjavík, 13. janúar 1995.
Stjórn Brunamálastofnunar rík-
isins.
Auglýsing um sérstakan
fasteignaskatt á verslunar-
og skrifstofuhúsnæði á
Akureyri
Bæjarstjórn Akureyrar hefir ákveðið að nýta
heimild til álagningar sérstaks skatts á fast-
eignir, sem nýttar eru fyrir verslunarrekstur
eða skrifstofuhald, sbr. 10. gr. laga nr. 124
frá 20. desember 1993 um breytingu á lögum
nr. 90/1990 um tekjustofna sveitarfélaga.
Skattskyldan tekur til aðila sem skattskyldir
eru skv. I. kafla laga nr. 75/1981 eða laga
nr. 65/1982 með síðari breytingum.
Gjaldstofn skattsins skal vera fasteignamat
eignar í árslok ásamt tilheyrandi lóðarmati
samkvæmt skrám Fasteignamats ríkisins frá
1. desember 1994.
Bæjarstjórn Akureyrar hefir ákveðið að
leggja skattinn á samkvæmt fyrirliggjandi
upplýsingum skráningardeildar fasteigna hjá
Akureyrarbæ. Þrátt fyrir það er gjaldendum
gefinn kostur á að koma á framfæri upplýs-
ingum um gjaldstofn hlutaðeigandi eigna
sinna. Skil á slíkum upplýsingum skulu hafa
borist fyrir 22. janúar nk.
Ennfremur er hægt að gera athugasemdir
eftir að álagning hefir farið fram. Óski gjald-
endur eftir að koma á framfæri athugasemd-
um við gjaldstofn og eða gjaldskyldu munu
liggja frammi sérstök eyðublöð í þessu skyni,
sem þeir geta fyllt út.
Gjaldstofn og upphæð skatts munu koma
fram á álagningarseðli fasteignagjalda og er
skattinum deilt á gjalddaga ásamt fasteigna-
gjöldum.
Upplýsingar um gjaldstofn, hlutfallslega
notkun húsnæðis og gjaldskyldu eru veittar
á afgreiðslu Skráningardeildar fasteigna hjá
Akureyrarbæ, Geislagötu 9, 3. hæð, sími
21000.
Verði ágreiningur um gjaldstofn má vísa
honum til Fasteignamats ríkisins og verði
ágreiningur um gjaldskyldu sker yfirfast-
eignamatsnefnd úr, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga
nr. 90/1990, sbr. 3. mgr. 10. gr. laga nr.
124/1993.
Kærufrestur er sex vikur frá birtingu áiagn-
ingar, sbr. 10. gr. reglugerðar nr,.
320/1972.
Bæjarstjórinn á Akureyri.