Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BJÖRGUNARSTARFIÐ í SÚÐAVÍK Vaknaði við háan hvell á neðri hæð verkstæðishúss síns Hélt í fyrstu að gas- kútur hefði sprungið „ÉG VAKNAÐI við mikinn hvell og var smástund að átta mig, hélt fyrst að það hefði sprungið gaskútur," segir Helgi Bjarnason, bifvélavirki í Súðavík. Hann var sofandi í herbergi á efri hæð verkstæðishúss síns við Njarðargötu þegar snjóflóðið féll á húsið. „Kona mín og bam eru úti í Noregi sem betur fer,“ segir Helgi. Þau voru að koma sér fyrir í fjöl- býlishúsinu í Súðavík en voru ekki flutt inn. Helgi dvaldi því í herberginu í verkstæðishús- inu. Snjóflóðið féll á verkstæðið og braut gluggana sem snúa upp að hlíðinni og braut út stóra hurð á neðri hliðinni. Hann segir að það hafí tekið sig tvær eða þijár mínút- ur að átta sig á því hvað hafði gerst. Hann hefði þá hringt í nokkur hús fyrir ofan þar sem hann vissi af fólki en engin svör fengið og þá hringt í björgunar- sveitarmann. „Ekkert stendur fyrir“ „Ég fór fijótlega út að Shell-stöðinni. Þar var þá þrennt sem komist hafði úr flóð- inu af eigin rammleik, dálítið slasað. Fljót- lega hófst leit. Við vorum hundlausir og frekar vanbúnir, höfðum þó stang- ir. Farið var skipulega í leitina og fljótlega fundum við fullorðinn mann og bam, bæði án meðvitund- ar og eru þau látin,“ segir Helgi. Hann segir að sum húsin séu þannig að gaflamir standi eftir en hliðarnar farnar, bæði þær sem sneru upp að hlíðinni og niður að sjónum. Hliðarnar vom almennt með stómm gluggum. Allt voru þetta steinhús og segir Helgi steypuklossa úr þeim, allt upp í 40 sinnum 40 sentímetrar að stærð, liggja eftir. „Það virðist ekkert standa fyrir þegar snjóflóð em annars vegar,“ segir 'nann. Segist Helgi hafa far- ið að athuga með fólk í húsum sem virtust heilleg að sjá en þar hefði enginn verið, fólkið hafi komist í burtu eða grafist undir snjónum. Helgi telur að allt hafí verið gert sem mögulegt var til bjargar eftir að hörmungarnar dundu yfír. „Allir sem til einhvers gagns máttu verða fóm til leitar, meðal annars margar konur.“ Hann seg- ir að miklu hafí munað að fá hjál- pina frá ísafírði, ekki síst leitar- hundana. Afar erfítt var að leita í gærmorgun vegna veðurs. Aðeins lægði milli klukkan 10 og 12 en síðan versnaði veðrið allan daginn og var orðið vemlega slæmt í gærkvöldi. Erfítt var að leita í snjóflóðinu vegna braks og gler- brota. Einn leitarhundurinn skar sig til dæmis á gleri fljótlega eftir að hann kom á svæðið. Endurskoðar búsetu sína Helgi var í gærkvöldi að vinna við rafstöð Orkubús Vestfjarða. Staðurinn var þá orðinn að mestu rafmagnslaus vegna snjóflóðsins sem féll eftir kvöldmat. Helgi sagðist ekki vita hvað gerst hefði í því flóði sem féll í Traðargili, en taldi að það hefði sópað með sér nokkmm húsum, öllum mannlaus- um. Spurður um hug hans til áfram- haldandi búsetu á staðnum eftir þessar hörmungar segist Helgi ætla að skoða hug sinn vel og bjóst við að fleiri Súðvíkingar væra í sömu sporum. Helgi Bjarnason Á fjórða hundrað manns víða af landinu tengist björgunarstarfinu í bígerð að rýma svæðið er flóðin féllu Morgunblaðið/Þorkell BJÖRGUNARSVEITARMENN ferma Tý af björgunarbúnaði áður en skipið lét úr höfn í Reykjavík síðdegis í gær. ALMANNAVARNIR ríkisins hafa yfímmsjón með skipulagi björgun- arstarfs á landsvísu vegna snjó- flóðsins í Súðavík og em 12 manns á sólarhringsvakt í stjómstöðinni í kjallara lögreglustöðvarinnar í Reykjavík. Guðjón Petersen framkvæmda- stjóri Almannavama ríkisins segir að stjómstöðin hafí verið opnuð kl. 6.50 í gærmorgun. Vaktmaður Almannavarna hafði þá verið í sambandi við Súðvíkinga frá því kl. 2.30 aðfaranótt mánudagsins vegna yfírvofandi snjóflóðahættu og einnig að kvöldi sunnudagsins. Guðjón segir að samband hafí ver- ið milli Almannavama ríkisins, ísfírðinga, Súðvíkinga, Siglfírð- inga á sunnudagskvöld og Súðvík- inga aftur aðfaranótt mánudags- ins. „Við létum rýma hættulegasta svæðið, Traðargil, aðfaranótt mánudagsins. Það sást ekkert til þess svæðis sem flóðið hljóp á núna þannig að ekki var hægt að fylgjast með snjósöfnuninni. Um leið og vindátt fór að snú- ast í norðvestur fóram við að hafa áhyggjur af því og ætlunin var að fara að huga að því að rýma svæðið þegar snjóflóðin féllu. Það var búið að minnast á að taka afstöðu til að rýma fleiri svæði. En það sást ekkert og menn höfðu ekkert fyrir sér í því að snjóflóð gætu, samkvæmt hættumatinu, fallið svo langt þama. En það átti að skoða og var verið að velta fyrir sér hvort efstu húsin við Túngötu gætu verið í hættu. Það var ekki komið lengra þegar flóðið féll. Þetta gerist í lok þess sem verið er að ljúka því að rýma hús- in á svæðinu fyrir neðan Traðargil- ið sem flóðið fellur. Verið var að koma fólkinu fyrir þegar flóðið fellur,“ sagði Guðjón. 70 manna varasveit til taks í Reykjavík „Núna miðast starfsemi okkar við það að vera þeim til ráðuneyt- is og hjálpar fyrir vestan hvað varðar faglega úrlausn á þessum málum og að koma til þeirra allri hugsanlegri hjálp sem við getum veitt,“ segir Guðjón. Sjö skip, togarar og varðskip, vora í fömm frá Reykjavík, Sauðárkróki, og Vestfjörðum til Súðavíkur. Varðskipið Týr fór með björgunarlið að sunnan, alls um 120 manns, laust fyrir kl. 15 í gær. Auk áhafnar varðskipsins, sem er undir stjóm Höskuldar Skarphéðinssonar skipherra, era með skipinu 50 sérþjálfaðir björg- unarsveitarmenn, sem eru þjálfað- ir í að fást við björgun úr snjóflóð- um. Þeir hafa með sér þijá snjó- bíla og ýmsan búnað sem ætlað er að auðvelda leit við aðstæður sem þessar og er mun betri en það sem fyrir er á staðnum. Þá er í skipinu ijölmennt lækna- og hjúkr- unarlið, átta manna áfallahópur, sem veita mun sálræna áfalla- hjálp, og tíu sérþjálfaðir sjúkra- flutningamenn frá Slökkviliði Reykjavíkur. Týr hreppti aftakaveður og sótt- ist ferðin seint. í gærkvöldi kom það upp að skipið yrði að koma við á Patreksfirði að sækja veikt barn, sem færi á sjúkrahúsið á ísafirði. Búizt var við að það myndi seinka skipinu enn. Þá fór 78 manna björgunarlið með Engey RE kl. 19 í gær- kvöldi, Júlíus Geirmundsson ÍS lagði af stað í gærkvöldi með björgunarlið af Tálknafirði og Bíldudal, Margrét EA átti að taka lið á Flateyri en fékk á sig brot út af Barða. Allir gluggar í brú brotnuðu og skipinu var snúið aft- ur til Þingeyrar. Björgunarlið var komið um borð í Múlafoss á Skagaströnd en óvíst var talið hvenær skipið gæti lagt úr höfn vegna óveðurs. Þá er Bessi ÍS, Stefnir ST og Fagranesið í fömm í Djúpinu. „Við sjáum að þetta verk verður til nokkurra daga og björgunarfólk er fljótt að þreytast við þessar aðstæður. Það þarf því að koma óþreyttu fólki inn á svæðið til hjálpar.“ Guðjón segir að á fjórða hundr- að manns víðs vegar af landinu sé viðriðið hjálparstarfið, flestir af norðanverðum Vestfjörðum. „Það hefur gengið illa að koma björgunarsveitarmönnum á svæðið út af veðri. Næsta skref er að draga að björgunarlið frá Suður- fjörðunum og síðan af fjarlægari stöðum. Við emm með varasveitir til taks hér í Reykjavík þegar færi gefst til flugs. Við erum bún- ir að binda stóran hóp björgunar- marina í varðskipinu og Engey og þess vegna skildum við eftir í Reykjavík liðsafla, lækna, hjúkr- unarfólk og björgunarsveitarmenn til að fara flugleiðis um leið og færi gefst. Það er um sjötíu manna hópur af Suðumesjum og Árnes- sýslu,“ segir Guðjón. Eimskip tilbúið Guðmundur Pedersen yfirmað- ur innanlandsdeildar Eimskipafé- lags íslands segir að beiðni hafí borist félaginu frá björgunarsveit- inni á Sauðárkróki um að björgun- arsveitarmenn fengju far með Múlafossi sem liggur við festar á Skagaströnd. „Þeir ætluðu að leggja fram lið- sinni sitt og við tókum jákvætt í beiðnina. Skipið kemst bara ekki af stað vegna veðurs. Reykjafoss er hérna í Reykjavík og það hefur ekki borist nein beiðni um aðstoð hans. Ég á ekki von á öðru en bmgðist verði vel við slíkri beiðni,“ sagði Guðmundur. Skipið er á leið til ísafjarðar en getur ekki lagst að bryggju í Súðavík vegna stærð- ar. Miðnætti ► Sveitarstjóri Súðavíkur hefur samband við vaktmann Almanna- vama vegna snjóflóðahættu. Ákveðið að rýma 5 hús syðst í bænum. Kl. 6.25 ► 200 metra breitt snjóflóð fe|Iur á mitt þorpið í Súðavík. Flóðið féll á 11 hús við Túngötu, 3 við Nesveg og eitt hús við Njarðarbraut. 26 manns vom í húsunum. Kl. 6.29 ► Tilkynning bersttil lögreglu. Heimamenn hefja strax björgunar- störf. Almannavörnum á Isafirði gert viðvart. Kl. 6.30 ► Komið er upp björgunarmiðstöð í hraðfrystihúsinu Frosta. Öllum íbú- um safnað saman í frystihúsinu. Fjórir íbúar sem lentu í snjóflóðinu fínnast strax og aðrir 11 næstu kiukkustundir. Fimm vom látnir og 7 manns slasaðir, 11 saknað. Komið er með slasaða í Frosta. Kl. 8.30. ► Almannavamanefnd ísafjarðar kemur saman til fundar og ákveður að rýma hús í Hnífsdal. Reynt að fá aðstoð frá Bolungarvík en veður hamlar lendingu þar. Hætt við til- raunir til að senda björgunarsveitar- menn landleiðina frá Bolungarvík. Kl. 10.00 ► 44 björgunarsveitarmenn, 3 lækn- ar og 2 hjúkmnarfræðingar ásamt 4 leitarhundum koma til Súðavíkur með Fagranesinu frá ísafírði og hefja strax leit og aðhlynningu. Kl. 10.00 ► Almannavamaráð kemur saman til fundar í Reykjavík. Kl. 10.00-12.00 ► Togarinn Bessi kemur inn til Súðavíkur og reynir að lýsa upp leit- arsvæðið. Togarinn Stefnir heldur frá ísafírði til Súðavíkur með björg- unarmenn. Bessi fer með íbúa til ísafjarðar upp úr hádegi. Kl. 11.15 ► Ríkisstjómin kemur saman til skyndifundar. Kl. 15.00 ► Varðskipið Týr fer frá Reykjavík með björgunarlið og búnað. Skuttog- arinn Stefnir kemur til Súðavíkur með björgunarsveitarmenn sem að- stoða við leit. Togarinn Júlíus Geir- mundsson safnar leitarmönnum af suðurfjörðunum. Kl. 15. 20 ► Fagranesið kemur til ísafjarðar með 94 menn sem fluttir vom frá Súðavík, þ.á m. 10 sem bjargað var úr spjóflóðinu. Sjö slösuðum komið fyrir á Sjúkrahúsinu. Skipið heldur aftur til Súðavíkur með fleiri björg- unarmenn, búnað og vistir. Kl. 16.00 ► Almannavamaráð kemur aftur saman til fundar. Kl. 18.00 ► Stefnir kemur frá Súðavik til ísa- fjarðar með 33 konur og börn. Alls búið að flytja 125 manns burt. Kl. 18.30 ► Fagranesið fer til ísafjarðar með íbúa. Ms. Múlafoss bíður færis að komast út úr höfninni á Skagaströnd áleiðis til Súðavíkur með 31 björgun- ármann um borð. Togarinn Bessi strandar í innsiglingunni við Sunda- höfn á leið frá Súðavík. Síðar um kvöldið tekst að losa skipið af strand- stað. Kl. 19.00 ► Togarinn Engey leggur af stað frá Reykjavík með 70 manna lið. Kl. 19-22 ► Leitarmenn fínna 4 íbúa til viðbót- ar í Súðavík, ein stúlka er á lífi en 3 era látnir. Sjö er enn saknað. Kl. 20-21.00 ► Togarinn Margrét EA sem hafði safnað björgunarmönnum á suður- fjörðunum fær á sig brotsjó út af Dýrafírði. Enginn slasast en skipið sigldi í var. Kl. 20.30-21.00 ► Snjóflóð fellur úr Traðargili á svipuðum slóðum og flóð sem féll í desember. Stórskemmdir verða á nokkrum húsum en ekki manntjón. Þorpið verður að mestu rafmagns- laust. Stjórnstöð hjálparstarfs flutt í Fagranesið. Kl. 23.30 ► Haffari frá Súðavík fer frá ísafirði með búnað. 140 manns skiptast á við leit í bænum í nótt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.