Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Bjartsýni á meimingar- málþingi AUKIÐ samráð stjóm- valda við listaménn um stuðning við liststarf- semi, einfaldari og skilvirkari stjórnsýsla menningarmála og réttlátari úthlutun styrkja með auglýs- ingu alls þess sem veitt er. Þetta voru nótur sem margir slógu um helgina á fundi borgar- stjóra um menningar- mál í Reykjavík. Ingi- björg Sólrún Gísladótt- ir flutti fyrsta erindi málþingsins, sem hald- ið var í Ráðhúsinu á laugardag, og Guðrún Jónsdóttir formaður menningar- málanefndar talaði næst. Eftir há- degishlé héldu síðan fulltrúar sjö listgreina framsöguerindi og fleiri töluðu í lok dagsins. Hér verður sagt frá fyrri hluta þingsins og haldið áfram á morgun með frásögn af erindum listamanna. Húsnæðisdraumar Málþingið var vel sótt af lista- fólki, enda hagsmunir þess og að- staða í borginni til umræðu. Hvað aðstöðuna varðar bárust borgaryf- irvöldum ýmsar óskir um húsnæði; kvikmyndagerðarfólk vill Korpúlfs- staði undir myndver, tónlistarmenn langar að fá Tjamarbíói til tónleika- halds meðan beðið er eftir húsinu mikla og dansarar vilja af hrakhól- um inn í Borgarleikhús. Borgarstjóri tók vel í hugmyndina um Korp- úlfsstaði o g svaraði fyrirspurn um Iðnó, annað hús sem ekki hefur verið nýtt að undanförnu. í svarinu fólst í raun ósk um til- lögur listamanna um nýtinguna. Ingibjörg Sólrún spurði í opnunarræð- unni hver stefna borg- arinnar í menningar- málum ætti að vera, hvernig borgaryfirvöld yrðu helst að gagni í þéssum málaflokki. „Með þvi að greiða götuna,“ sagði hún svo, „við eigum ekki að vera með ríkis- eðá borgarrekna menn- ingarstefnu í stórum stíl.“ Umsvif borgarinnar í menningarmálum nema tæpum milljarði árlega, ríkis- ins til samanburðar um tveimur milljörðum, og Ingibjörg nefndi þá tilhneigingu peninganna „að stofn- anagerast. Starfsemi sem einu sinni hefur verið sett á laggimar fer að lifa sjálfstæðu lífí og kyrrsetur fjár- magn sem ella gæti farið í ein- hveija nýbreytni". Gatan greidd fyrir sjálfstæðari list Um styrkjapólitík sagði Ingibjörg Sólrún að borgin ætti að sínu viti ekki að gera eitthvað fyrir alla, heldur velja verkefni og hafna öðr- um og afmarka styrktíma. Þátttaka borgarinnar ætti að beinast að verk- efnum frekar en stofnunum og vera framlag frekar en framkvæmd. Til dæmis fái Rúrek-hátíðin ákveðna upphæð frá borginni og sé síðan alfarið í höndum djassunnenda. Ástæða er til þess, að áliti Ingi- bjargar og í samræmi við framan- sagt, að endurskoða Listahátíð í Reykjavík og gefa henni aukið sjálf- stæði. Jafnvel að skipta henni upp eftir listgreinum, þannig að eitt árið væri tónlistarhátíð, annað leik- listarhátíð og svo framvegis. Þátttaka í hátíðum og öðrum meiriháttar listviðburðum styrki auðvitað ímynd borgarinnar í menn- ingarmálum. Þar séu umsvif hennar umtalsverð en kannski ekki að sama skapi sýnileg og markviss. Meðal annars af því að málaflokkurinn standi veikt í stjórnkerfínu og hafí þar engan talsmann ennþá. Mótun menningarstefnu Guðrún Jónsdóttir sagði í sínu erindi frá starfsemi menningarmála- nefndar; stjórn listasafna, úthlutun starfslauna og ákvörðunum um listaverkakaup svo eitthvað sé nefnt. Hún benti á hvernig mál skarast milli nefnda í stjórnkerfínu og velti upp nokkrum leiðum til að einfalda mótun menningarstefnu: Að allar styrkbeiðnir fari gegnum menningarmálanefnd, en ekki ýmist til borgarráðs eða nefndarinnar án heildaryfirsýnar. Að nefndin ráð- stafí, eins og þegar hefur verið ákveðið, öllu fé borgarinnar til lista- verkakaupa. Að stofnaður verði ráð- gjafarhópur nefndarinnar um tónlist og ef til vill fleiri listgreinar. Að skoðuð verði skipan listaverkaiauna, væntanlegar niðurstöður nefndar um geymsluhúsnæði og vinnustofur listamanna, og þörfín fyrir tónlistar- safn. Margar hugmyndir og allt öðru- vísi komu fram hjá frummælendum seinni hluta dagsins. Á þeim verður stiklað í annarri grein enda óþarft að afgreiða umræðu um menning- armál í borginni á einu bretti. Fund- armönnum á laugardaginn varð tíð- rætt um þörfína á að halda henni stöðugt áfram og koma á nánari samstarfí stjórnvalda og listamanna. Þeir sögðust margir bjartsýnir um árangur af slíkri samvinnu og settu kúrs á framhaldsfund í febrúar um miðlun listar og menningar. NOKKRIR fundarmanna á menningarmálþinginu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs íslands 1995 birtir niðurstöður sínar Asdís o g Júlíus fengu styrki ÁSDlS Thoroddsen og Júlíus Kemp fagna styrkjum sínum. KVIKMYNDASJÓÐUR íslands hefur birt niðurstöður úthlutunar- nefndar 1995. Fjárveiting til Kvik- myndasjóðs 1995 er kr. 100 millj. Til úthlutunar voru kr. 65.500.000. í úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs 1995 eiga sæti: Egill Helgason, Ingibjörg Briem og Ragnheiður Steindórsdóttir. Draumadísir og Blossi Gjóla hf. fær 12 milljónir til að gera kvikmyndina Draumadísir. Leikstjóri og handritshöfundur er Ásdís Thoroddsen. Áætlaður heildarkostnaður við gerð myndar- innar er 47 millj. kr. og nemur fram- lag Kvikmyndasjóðs 25% af heildar- kostnaði. Kvikmyndin er fullfjár- mögnuð og er samframleidd af Gjólu hf., Islensku kvikmyndasam- steypunni hf. og sjónvarpsstöðvum í Þýskalandi og Frakklandi. Tökur verða í Reykjavík og fara af stað þegar í mars og standa yfir í sex vikur. Vinnslutími myndarinnar er áætlaður tólf mánuðir. Um 150 manns munu vinna að gerð Draumadísa. Kvikmyndafélag íslands fær 10,5 miiljónir til að gera kvikmyndina Blossa. Leikstjóri er Júlíus Kemp, handritshöfundur Lars Emil Árna- son. Áætlaður heildarkostnaður við gerð myndarinnar er 35 millj. kr. og nemur framlag Kvikmyndasjóðs 30% af heildarkostnaði. Fjármögn- un Blossa er vel á veg komin og verður myndin samframleidd _af Kvikmyndafélagi íslands og ís- lensku kvikmyndasamsteypunni. Fyrirhugað er að forselja myndina í sjónvarp. Tökur fara fram í Reykjavík og vítt og breitt um land- ið í júní. Tökur standa yfir í fímm vikur. Vinnslutími myndarinnar er áætlaður 18 mánuðir. Um 120 manns munu vinna við gerð Blossa. Pegasus hf. fær 28,5 milljónir króna fyrir Agnesi sem staðfestingu á vilyrði frá 1994, en áður hefur myndin fengið 1,5 milljónir. Sagafilm fær 300.000 kr. fram- lag tii handritsgerðar bíómyndar- innar Gauragangs. Framlög til framleiðslu heimildarmynda fá Andrá hf. (2 milljónir), Ágúst Jak- obsson (2 milljónir), Magnús Magn- ússon (800.000) og Þorfinnur Guðnason (2.800.000). Framlög til framleiðslu stuttmynda fá Litla gula hænan (4 milljónir) og Inga Lísa Middleton (eina milljón). Fram- lag til framleiðslu hreyfimyndar fær Kristín María Ingimarsdóttir (eina milljón). Ungfrúin góða og Djöflaeyjan Vilyrði til framleiðslu bíómynda 1996 fá Umbi hf. fyrir Ungfrúna góðu ög húsið (20 milljónir) og undirbúningsstyrk (300.000). ís- lenska kvikmyndasamsteypan fær fyrir Djöflaeyjuna (20 milljónir) og undirbúningsstyrk (300.000). Ungfrúin góða og húsið byggist á samnefndri sögu Halldórs Lax- ness. Leikstjóri og handritshöfundur er Guðný Halldórsdóttir. Djöflaeyjan byggir á skáldsögu Einars Kárason- ar. Leikstjóri er Friðrik Þór Friðriks- son og er hann einnig handritshöf- undur ásamt Einari Kárasyni. Umsóknir sem bárust Kvik- myndasjóði að þessu sinni voru 88. Nýi músíkskólinn Kennsla að hefjast KENNSLA er að hefjast í Nýja músíkskólanum á nýju ári. Sérstök áhersla er lögð á að kenna rytmíska tónlist eins og rokk, popp og blús. Kennt er á eftirfarandi hljóðfæri: Rafgítar, gítar, rafbassa, trommur, saxófón, flautu og söng. Á vorönn hefst svo nám í hljómborðsleik. Námstilhögun í skólanum er í námskeiðsformi. Er hvert námskeið 10 vikur í senn og hljóta nemendur prófskírteini að því loknu. Kennt er með almennar tónlistarkennslu- námskrár til hliðsjónar. Nýi músíkskólinn býður einnig upp á hóptíma og samspila- kennslu. Innritun er hafin og kennsla hefst mánudaginn 23. janúar. Kennarar eru allir tón- listarmenn og tónlistarkenn- arar. Má þar nefna gítarkenn- arana Björn Thoroddsen, Jón Elvar Hafsteinsson og Hilmar Jensson, trommukennarann Ásgeir Óskarsson, bassa- kennarana Gunnar Hrafnsson og Róbert Þórhallsson, söng- kennarann Ingveldi Ýr, píanó- kennarana Jónas Þóri og Gunnar Gunnarsson, saxófón- og tónfræðikennarann Stefán S. Stefánsson. Nýi músíkskól- inn er til húsa á Laugavegi 163 og innritun stendur yfir. Doug Raney á tónleikum EINN af kunnustu gítarlei- kurum djassins, Doug Raney, leikur hér á landi í þessari viku. 1993 lék hann á opnun- artónleikum RúRek djasshá- tíðarinnar í félagsskap Jazz- kvartetts Reykjavíkur og nú mun hann leika með Birni Thoroddsen gítarleikara, Tómasi R. Einarssyni bassa- leikara og Einari Vali Sche- ving trommara. Doug er sonur gítarleikar- ans fræga Jimmy Raney, sem m.a. hljóðritaði mikið með Stan Getz. Þeir halda tónleik- ana klukkan 22 á miðviku- dagskvöld á Kringlukránni og eftirmiðdagstónleika á fimmtudag í Menningarstofn- un Bandaríkjanna. Heijast þeir kl. 17.30. * Operusöngur í Ráðhúsinu TVEIR tónlistarmenn frá rússneska sjálfstjórnarlýð- veldinu Tatarstan koma fram í Tjarnarsal Ráðhússins við Vonarstræti í dag, þriðjudag, kl. 18. Listamennirnir eru báðir í fremstu röð, Vladimír Efímov óperusöngvari og Rem Uras- in, ungur og upprennandi píanóleikari, og eru þeir komnir hingað til lands í til- efni „Rússneskra daga í Hafnarfirði“. UTSALA 10-60% AFSLATTUR Vetrarfatna&ur, skíbagallar, dúnúlpur, íþróttaskór, íþróttagallar o.ffl. Opiö laugardaq kl. 10-16 » hummel 'TS SPORTBÚÐIN Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.