Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 43 BRÉF TIL BLAÐSINS Þau tvö eru eitt hold Frá Guðmundi Erni Ragnarssyni: ÁRIÐ 1986 skipaði Alþingi nefnd til að kanna réttaráhrif tækni- frjóvgunar og gera tillögur um hvernig réttarstaða aðila verði tryggð. Nefnd þessi var fyrst nú eftir meira en átta ára nefndar- störf að skila niðurstöðu í formi tveggja frumvarpa til laga um tæknifijóvgun. Nefnd þessa skorti hvorki lög- fræðing né lækni, en enginn var þar prestur eða forstöðumaður kristins safnaðar, þó má telja víst að hinar siðferðilegu spurningar hafi tafið nefndina svo lengi sem raun varð á. Lesa má í Morgunblaðinu 11. janúar að nefndarmenn hafi gert það að „aðalreglu" í báðum tillög- um sínum að aðeins verði notaðar eigin kynfrumur „parsins". í þessu landi allt frá árinu 1000 hefur kristilegt siðferðismat verið lagt til grundvallar allri lagasetningu. Það ætti því áfram að vera eina reglan sem tekið er mið af við laga- setningu eins og hér um ræðir. Hér á ekki við að tala um „aðal- reglu“ og „aukareglu" til vara. Tæknifijóvgun er nokkuð sem snertir mjög viðkvæmt svið í mannlegum samskiptum, kynlífið. Kristilegt siðferði byggist á krist- inni trú og hún byggist á Bibl- íunni, Guðs orði. Samkvæmt Guðs orði er kynlífið ætlað manninum til blessunar, til þess að þau marg- faldist og uppfylli jörðina. „Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni og þau tvö skulu verða einn maður (eitt hold).“ Kynlífið er óumræðalega mikil- vægt svið mannlegs lífs. „Gott, rétt“ kynlíf færir fólki fullnægju og hamingju í lífinu. En „slæmt, rangt“ kynlíf er því miður útbreitt böl meðal manna. Guð hefur sett strangar reglur um kynlífið. Þessar reglur einar geta tryggt mönnum hamingju. Ekkert kynlíf má eiga sér stað nema og innan hjónabands. Hjóna- bandið er órúfanlegur sáttmáli milli karls og konu frammi fyrir augliti Guðs. Að skilja tilganginn með þessum ströngu reglum er auðvelt. Kynlíf einstaklings fyrir hjóna- band verður til þess að trufla kyn- líf hans þegar til hjónabands kem- ur, vegna viðkvæmra minninga og samanburðar. Og öllum má ljóst vera að hórdómur annars eða beggja aðila að hjónabandi útilokar farsælt kynlíf milli þeirra. Og þá komum við aftur að tæknifijóvguninni. Kristilegt sið- ferði leyfir aðeins notkun tækni- fijóvgunar þegar hjón eiga í hlut, alls ekki ógift „par“ og leyfir að- eins notkun eigin kynfruma hjón- anna. Því sé þegið egg eða sæðis- fruma frá þriðja aðila hefur hór- dómur átt sér stað. Því verður ekki breytt með undirskriftum. í 16. kafla 1. Mósebókar segir Sara við Abraham: „Heyrðu, Drottinn hefir varnað mér barngetnaðar. Gakk því inn til ambáttar minnar, vera má að hún afli mér afkvæm- is.“ Þannig drýgði Abraham hór- dóm með samþykki Söru. Það átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þau tvö skulu vera eitt hold. GUÐMUNDURÖRN RAGNARSSON, prestur, Brávallagötu 10, Reykjavík. Hollráð til Hilmars Hafsteinssonar Frá Kristjáni Péturssyni: HILMAR Hafsteinsson skrifaði grein í Morgunblaðinu þann 11. janúar sl. sem bar yfirskriftina: „Sannleiksást Kristjáns Pétursson- ar“. Tilefni greinarinnar er að kenna Jóhönnu Sigurðardóttur um gjaldþrot heimilanna í landinu v/húsbréfakerfisins, sem hann nefnir skrímsli. Svona skrif dæma sig sjálf og lýsa reyndar afar vel hugarheimi greinarhöfundar, sem er sýnilega búinn að tileinka sér ósannindavaðal formanns Alþýðu- flokks. Óttinn hræðir oft menn frá því að fylgja eigin samvisku og skajmr sjúklegar ímyndanir. Ofarir Alþýðuflokks samkvæmt skoðunarkönnunum virðist hafa sturlað fylgismenn hans. Jafnvel ágætismaður eins og Hilmar Haf- steinsson, sem hefur margt gott gert innan síns bæjarfélags, m.a. á sviði íþróttamála, lætur nú reiði sína bitna á mér. Orðrétt lýsir hann í greininni afskiptum mínum af lög- reglumálum þannig: „Sjaldnast kom hann að málum nema í felum, aðrir þurftu að taka á sig ábyrgð.“ Ég er nú ansi hræddur um Hilmar minn að þú fengir ekki þessa starfs- lýsingu á störfum mínum staðfesta af samstarfs- og yfirmönnum mín- um. Ég bar alltaf fulla ábyrgð í starfi og þurfti aldrei að láta neinn skýla mér né vernda. Þátttaka mín og frumkvæði í ýmsum stórfelldum sakamálum sanna þetta ótvírætt. „Sannleiksást" þín er alvarlega skert í þessum efnum og á reyndar enga stoð í veruleikanum. Sama gildir um skrif þín er ég tók við starfi ráðningastjóra 1960 og deild- arstjórastarfinu 1967. í báðum til- vikum var til mín leitað af ýmsum aðilum og óskað eftir að ég tæki að mér þessi störf. Á þessum árum fór Alþýðuflokkurinn með utanrík- ismál og því hlutskipti þáverandi utanríkisráðherra að skipa mig í þessar stöður. Ég hafði alla tíð góð samskipti við Suðurnesjamenn í mínum störfum og ekki síst þá sem næst þér standa. Mildilegt svar við reiðan mann er að hann skrifi ekki fleiri greinar á meðan hugmyrkvi lokar honum sýn. Menn geta flækst í net heimskulegra umræðna ef þeir hugsa ekki rökrænt og sjálfstætt. Ósannindum fylgir alltaf eftirsjá og kallar á tortryggni og jafnvel fyrir- litningu þeirra sem vita betur. Ég vona að þessi hollráð vísi þér veginn til heiðarlegra umfjöllunar málefna eftirleiðis og óska þér góðs gengis á komandi kosningaári. KRISTJÁN PÉTURSSON, fyrrverandi deildarstjóri. SUZUKI SWIFT GLSi Aflmikill, sparneytinn, lipur. Þab eru góð kaup í Suzuki. Verö: Beinskiptur kr. 939.000. Sjálfskiptur kr. 1.029.000. í SUZUKI ........... SUZUKI BÍLAR HF VERKSTJÓRN Námskeið ætlað öllum verkstjórnendum, bæði nýjum og þeim sem vilja bæta námi við reynslu. Verkstjórnarfræðslan á Iðntæknistofnun býr yfir meira en þriggja áratuga reynslu við fræðslu verkstjórnenda. Námsþættirnir eru alls yfir 20. Meðal þeirra eru: - Almenn samskipti, - vinnusálfræði og stjórnun, - áætlanagerð, - hvatning og starfsánægja, - valdframsal, - stjórnun breytinga. Námskeiðið er samtals 90 stundir og skiptist í tvo hluta: 6.-11. febrúar og 27. febrúar - 4. mars. Innritun stendur yfir í síma 877000. Iðntæknistofnun IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Keldnaholt, 112 Reykjavík Sími (91) 87 7000 Pósttax 87 74 09 Talskólinn Framsögn, raddþjálfun, ræðumennska. Námskeið í janúar, febrúar og mars. Innritun daglega milli kl. 17 og 19 í síma 77505. Talskóli Gunnars Eyjólfssonar. OLEANNA EGLA bréfabindi RJÖLFESTA ÍGÓÐU SKIPULAGI Við sendum þér bækling óskir þú þess með myndum af fjölbreyttu úrvali okkar af þessum vinsælu bréfabindum okkar. Síðan getur þú pantað það sem hentar fyi'irtæki þínu og færð sendinguna. Hafðu samband við sölmnenn okkar í síma 68 84 76 eða 68 84 59.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.