Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 15 LANDIÐ ILLVSÐRS OO ÓFÆRD Samgöngur aö miklu leyti úr skorðum SAMGÖNGUR í lofti og á landi á vestan- og norðanverðu landinu hafa farið meira og minna úr skorðum vegna illviðrisins sem ver- ið hefur undanfarna daga, og aflýsa varð skólahaldi í gær víða á norðanverðu landinu. Innanlandsflug lá að miklu leyti niðri um alla helgina og fram eft- ir degi í gær. Þá komust Flugleið- ir tvær ferðir til Egilsstaða og ema i ferð til Vestmannaeyja, og í gær- kvöldi var flogið með þotu til Akur- eyrar. Islandsflug fór tvær ferðir til Vestmannaeyja. Verulegar tafir á innanlandsflugi Hjá Flugleiðum fengust þær upplýsingar að veruleg röskun og I tafir hefðu orðið á innanlandsflugi í vegna ófærðar og illviðris alveg frá því á föstudaginn, og var t.d. * aðeins hægt að fljúga eina ferð til Akureyrar á sunnudaginn. Hjá íslandsflugi var það sama uppi á teningnum, en þaðan var flogið einu sinni til Vestfjarða á laugardaginn. Samkvæmt upplýsingum frá vegaeftirliti Vegagerðarinnar var meira og minna ófært um allt vest- an- og norðanvert landið um helg- ina vegna óveðursins, og í gær var snjókoma og skafrenningur í þess- um landshlutum og því vart ferða- veður. Lítið var hægt að aðhafast í gær og þess einungis beðið að veðrinu slotaði, en áformað er að moka aðalleiðir í dag. í gær var hins vegar fært um Suðurnes, Hellisheiði og Þrengsli, og vegir á Suðurlandi voru færir og einnig með suðurströndinni til Austfjarða, en þar var ófært um Vatnsskarð eystra. Á Vesturlandi var ófært um Snæfellsnes og Dali vegna veðurs, og allir vegir á Vestfjörðum voru ófærir. Þá var ófært um Holta- vörðuheiði og Öxnadalsheiði, og einnig var ófært um Mývatns- og Möðrudalsöræfi. Aftakaveður í Kaldrananeshreppi ’ Hús rýmd í Drangsnesi Laugarhóli - Sex hús vestantil í Drangsnesi hafa verið rýmd eftir að snjór féll úr brekkunni þar fyrir ofan og hlóðst upp í eldhús- glugga á einu húsanna, en á þessu svæði er einnig skólinn og i bókasafnið. L Sökum þess og einnig vegna þess að þarna féll snjóflóð úr I hlíðinni fyrir um 30 árum var gripið til þess ráðs að rýma hús- in svo ekki yrði slys ef meiri snjór félli úr brúninni fyrir ofan þorpið. Síðan á sunnudag hefur verið aftakaveður og algerlega ófært um Kaldrananeshrepp á Strönd- um, og var skólinn á Drangsnesi lokaður í gær vegna stórhríðar. Undir miðnætti á sunnudag fór rafmagn af og er vart von á því aftur í bráð, en nægilegt raf- magn fyrir þorpið er frá vara- aflsstöð á Drangsnesi. Símalínan til Hólmavíkur bil- aði í Bitrufirði í óveðrinu, og því erfitt að ná þangað símasam- bandi að sunnan, en eðlilegt símasamband innan sveitar og þorps. 15 klukkutíma á heiðinni PÓSTBÍLL á leiðinni norður í land fór út af veginum og valt á Holta- vörðuheiði í fyrrinótt. Ökmaður slapp ómeiddur. Bað hann um aðstoð og fór lög- reglan í Borgarnesi á staðinn. Einnig var kallaður út dráttarbíll frá Reykja- vík til að ná bílnum upp en hann komst ekki vegna veðurs og ófærðar fyrr en í gærdag. Ökumaður póstbílsins mátti ekki yfirgefa póstinn og varð hann að hafast við í lögreglubílnum, sem komst ekki til byggða vegna ófærðar og veðurs, í um 15 tíma. Mjög slæmt veður var á þessum slóðum. Upp úr hádegi í gær komst veghef- ill á staðinn og síðan dráttarbíll, sem náði bílnum upp. Morgunblaðið/Rúnar Þór VIÐA um land hefur verið kolófært og björgunarsveitir hafa hjálpað fólki að komast leiðar sinnar. Hér aðstoða björgunarsveitarmenn fólk á Akureyri að komast í vinnu á Fjórðungssjúkrahúsinu. 15jepparí hrakningfum á hálendinu MILLI 20 og 30 manns á 15 jepp- um hafast nú við í Blönduvirkjun en fólkið lenti í hrakningum í mjög slæmu veðri á leiðinni frá Hvera- völlum norður að Blöndu í gær og fyrrinótt. Fólkið var í sólarhring að bijótast frá Hveravöllum að Blöndu. Salberg Jóhannsson, sem var í einum jeppanna, segir að hóparnir hafi ákveðið að ferðast saman frá Hveravöllum þegar ljóst var að veðrið var að versna. „Megnið af tímanum vorum við í mjög vondu veðri en það keyrði um þverbak upp úr klukkan 11 á sunnudagskvöldið. Það var mjög blint upp við Hveravelli en okkur hafði þó gengið þokkalega þótt það gengi á með hryðjum. Þegar við áttum eftir um 14 kílómetra vega- lengd að virkjuninni sjálfri skall á alveg snarvitlaust veður svo við komumst ekkert áfram. Eg fór aðeins út úr bílnum og fauk strax út í kant og þurfti að skríða að næsta bíl. Þama biðum { um 12 klukkutíma eða fram undir hádegi í gær en þá gátum við haldið áfram og eftir það gekk ferðalagið greið- lega,“ segir Salberg. Þrír bílanna fóru ekki í gang { gærmorgun svo þurfti að draga þá niður að Blönduvirkjun. „Veðrið var slíkt um nóttina að það voru allar rúður farnar úr blæjujeppa í gærmorgun og blæjan sjálf í striml- um. Menn vom að vakna með mis- þykka skafla ofan á sér og einn bíllin var svo troðinn af snjó og það þurfti stórvikar skóflur til að moka úr honum,“ segir Salberg. Hann sagði að þrátt fyrir þessa hrakninga hefði ferðin gengið stóráfallalaust fyrir sig og ekkert amaði að fólkinu sem var í gær í góðu yfirlæti hjá starfsmönnunum í Blönduvirkjun. Hins vegar var ekki útlit fyrir að það gæti haldið ferðinni áfram fyrr en í dag en spáð var að veðrið gengi niður með morgninum. Þerney fékk á sig brot ÞERNEY RE fékk á sig brotsjó í Víkurál í gærmorg- un, en togarinn var þá á leið- inni til lands að leita vars í aftakaveðri. Þerney var að koma af grálúðuveiðum þegar óhapp- ið varð. Að sögn Sigurbjörns Svavarssonar útgerðarstjóra hjá Granda hf. brotnuðu fimm gluggar á tveimur dekkhæðum og komst sjór m.a. í 4-5 íbúðarklefa og loft- ræstikerfi, en mestu skemmdirnar frystikerfi skipsins. Engan í áhöfninni --------» ♦ ♦--- Bíllinn fraus í bremsunum Raufarhöfn - Hjálparsveitin á Þórshöfn undirbjó í fyrra- kvöld leit að þremur mönnum á jeppa og fólksbíl sem voru á leið frá Raufarhöfn til Þórs- hafnar, en höfðu þá ekki komið fram. Mennirnir urðu að skilja fólksbílinn eftir á Borgnabrekku þar sem hann fraus í bremsunum, en kom- ust á jeppanum að Svalbarða í Þistilfirði þar sem þeir gistu. • ’ --.“Vu " - Tæknival
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.