Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
UNGLINGAR
Hvar eru þau og hvað eru þau að gera?
Urðu Islandsmeistarar
í sínum flokki í fyrra
ÆR BERGLIND Kristjáns-
dóttir og Eva Stefánsdóttir eru
báðar í stúlknaflokki í körfubolta
hjá UMFN. Þær ræddu við okkur
um það hvernig það er að spila
körfubolta og hvort það er munur
á því að vera stelpa eða strákur í
sportinu. Þær eru báðar 14 ára
og hafa náð góðum árangri með
sínu félagi.
Af hverju körfubolti?
Berglind: Þetta er mitt helsta
áhugamál.
Eva: Þetta er líka svo gaman
og skemmtileg íþrótt. Það er líka
míkill áhugi á körfubolta hérna í
Njarðvík þannig að maður er alin
upp við þetta.
Spila margar stelpur körfu-
bolta í Njarðvík?
Eva: Ekki mjög margar, mér
finnst þær eiginlega vera of fáar.
Þær sem spila hafa heldur ekkert
mjög mikinn áhuga, þær spila
bara af því að körfubolti er í tísku
núna.
Berglind: Áhuginn var mjög
mikill, en hann hefur minnkað.
Það getur verið að stelpum fínnist
þetta of dýrt. Við þurfum að kaupa
okkur skó og æfingaföt.
Eva: Svo eru auðvitað æfinga-
gjöldin.
Eruð þið búnar að æfa lengi?
Berglind: Ég er búin að æfa í
þiju ár, þetta er þriðja árið mitt.
Eva: Ég er búin að æfa í fjögur
ár, síðan ég var tíu ára gömul.
Hvað gefur körfuboltinn ykk-
ur?
Eva: ánægju og gleði.
Berglind: Það er gaman að vera
í svona hóp, fara út á land og
spila og svoleiðis. Við erum allar
góðar vinkonur.
Eva: Mórallinn er góður.
Berglind: Það er aðalatriðið að
við séum allar góðar vinkonur en
ekki einhver ein sem er útundan
eða eitthvað svoleiðis.
Hvert er markmiðið með æf-
ingunum hjá ykkur?
Eva: Það er að komast í
landsliðið.
Berglind: Það og verða alltaf
betri og betri, æfingin skapar
meistarann.
Hvernig er hægt að vekja
áhuga almennings á kvennak-
örfubolta?
Eva: Það er of lítið ljallað um
fyrstu deild kvenna í fjölmiðlum.
Berglind: Allavega miðað við
karladeildirnar.
Ef þið mættuð ráða í körfu-
boltadeild UMFN, hvernig
mynduð þið þá hafa hlutina?
Berglind: Það er erfitt að svara
því svona í fljótu bragði.
Eva: Stjórnin er ágæt, en ég
myndi vilja gera meira úr kvenna-
boltanum, það er meira gert fyrir
strákana en okkur.
Berglind: Það er þannig í öllum
félögum held ég.
Eva: Forráðamenn félaganna
þyrftu að sýna kvennaboltanum
meiri áhuga og virðingu. Þeir
mættu hrósa okkur meira. Við
urðum til dæmis íslandsmeistarar
í fyrra.
Berglind: Það bjóst enginn við
því að við yrðum meistarar, flestir
héldu að það hefði bara verið grís
hjá okkur.
Eva: En við hefðum ekki orðið
íslandsmeistarar ef við hefðum
ekki getað neitt... en ef strákarn-
ir hefðu orðið íslandsmeistarar þá
hefði sko örugglega verið haldið
partí eða eitthvað fyrir þá.
Berglind: Við urðum auðvitað
Islandsmeistarar af því við æfðum
vel og mikið en ekki vegpia þess
að við grísuðum á það.
Viljið þið segja eitthvað að
lokum?
Berglind: Æfmgin skapar
meistarann.
Eva: Ætli ég segi það ekki bara
líka.
Leikur aðalhlutverkið
í Bæjarbíói
LEIKLISTARÁHUGI á meðal
unglinga er mikill og víða eru
leikfélög komin með sérstakar
unglingadeildir. Leikfélag Hafnar-
fjarðar er eitt þessara leikfélaga,
27. janúar næstkomandi er frum-
sýning hjá unglingadeildinni í
Bæjarbíói. Við hittum að máli
Þóri Sæmundsson, 14 ára, en hann
er einn hinna ungu leikara hjá
félaginu og hann segir okkur hér
hvað er að gerast.
Hvað getur þú sagt okkur um
unglingadeild Leikfélags Hafnar-
fjarðar? Þetta er mjög skemmtileg
vinna. Þetta er náttúrulega áhuga-
manna leikfélag, það fær enginn
borgað. Þetta er mest sjálfboða-
vinna, við þurfum að vinna í leik-
myndinna sjálf og allt, þannig en
þetta er mjög skemmtilegt.
Hvað er skemmtilegt við þetta?
Það er í rauninni allt, að vinna
með öllum þessum krökkum, þetta
eru allt skemmtilegir krakkar og
leikstjórarnir eru mjög skemmti-
legir. Þetta er nýtt fyrir manni að
vera í þessu og það er skemmti-
legt.
Hvað gefur svona starf í leikfélagi
unglingi eins og þér?
Það gefur manni mikið held ég.
Ég hef leikið í Borgarleikhúsinu
og hérna áður og mér fnnst rosa-
lega gaman að leika. Og eftir
þessa vinnu í leikhúsi langar mig
til að verða leikari og það er mjög
gott að vera búinn að prófa.
Hvaða verk eruð þið að setja upp
núna?
Við erum að setja upp; Leiðin til
hásætis. Það fjallar um 17 ára
strák sem langar að verða konung-
ur í landinu Katoríu og hann fer
til ráðherra og spyr þá hvað hann
þurfí að gera til að vera konung-
ur.. Þeir leggja fyrir hann sjö
þrautir og hann þarf að leysa þær
til að verða konungur, svo finnur
hann náttúrulega stelpu og þið
vitið hvernig það er. Ég leik Stark-
að sem er strákurinn.
Áttu þér einhver önnur áhugamál
en leiklistina?
Já, já mörg, náttúrulega stelpur
og handbolti, körfubolti og ég hef
tíma til að sinna þessu öllu núna,
en þegar ég var að byija þá gekk
mér illa í skólanum og þetta var
allt rosalega erfitt. En núna er ég
búin að læra að skipuleggja tíma
minn og þetta gengur allt upp
núna, sagði þessi ungi leikari að
lokum.
Stefni að því að
ná árangri í því
sem ég tek mér
fyrir hendur
Nafn: Hrafnhildur
Hallgrímsdóttir
Heima: Akureyri
Aldur: 15 ára
Skóli: Glerárskóli
Getur skólinn verið
betri en hann er?
Kannski kennslan í
sumum fögum, en
ekki öllum, en ég er
mjög ánægð með
skólann eins og hann
er.
Hveiju vilt þú
breyta í þjóðfélag-
inu?
Ég veit það ekki, fá
betra og meira félags-
líf fyrir unglinga.
Er til unglinga-
vandamál?
Já, það er náttúrlega
vandamál ef krakkar
drekka of mikið og ef
fólk fer út í vitleysu og
P-
Er til foreldrava
mál?
Já, það er öruggk
til einhversstaðar,
ekki hjá mér.
Hvernig er fyrir
myndarunglingur?
Hann reykir ekki,
drekkur ekki,
stundar íþróttir er
ekki í neinu veseni
og er góður félagsskap-
ur.
Hvernig eru fyrirmyndarfor-
eldrar?
Þeir sem geta talað við mann
og treyst manni, eru vinir
manns og ekki ósanngjarnir.
Hvað vilt þú ráðleggja þeim
sem umgangast unglinga?
dó-
Að sýna þolinmæði.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir?
Að spila fótbolta.
Hvað er það leiðin-
legasta sem þú gerir.
Laga til.
Hvað ætlar þú að
verða þegar þú verður
stór?
Ég hef ekkert hugsað um
það, ná góðum árangri í
sem ég tek mér fyrir
hendur.
Hver myndir þú vilja vera
ef þú værir ekki þú?
Bara einhver allt annar.
Hver er munurinn á lækni og
Legó-kubbi?
Læknirinn er náttúrlega lifandi
og Legó-kubburinn er bara ein-
hver hlutur.
Hvernig eru strákar/stelpur?
Hörður,
14 ára,
Þær eru fínar,
skemmtilegar
og fallegar.
íris J.,
14 ára,
Þeir eru ágætir sumir,
en ég hef ekkert álit
á þeim. Sumir eru
skemmtilegir og
fyndnir, en samt geta
þeir verið ógeðslega
leiðinlegir... bara eins
og Andri. Þeir sem eru
eldri en ég eru sætir,
ég hrífst meira af eldri
mönnum.