Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
EGLA
t •
-ROÐ OG
REGLA
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi
fást í öllum helstu
bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SlBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
Námskeið sem borgar sig frá fyrsta degi:
UmsjónTölvuneta
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Þorkell
KJARTAN Kárason, framkvæmdastjóri Vottunar, afhendir
Tryggva Sveinbjörnssyni, framkvæmdastjóra Össurar, viðurkenn-
ingfu um að fyrirtækið hafi hlotið vottun skv. ISO 9001-stöðlunum.
• •
Ossur fær vottun
á gæðakerfi
ÖSSUR hf. stoðtækjaverkstæði
veitti nýlega viðtöku viðurkenn-
ingarskjali því til staðfestingar
að fyrirtækið starfrækir gæða-
kerfi sem samræmist kröfum ISO
9001 staðlanna. ISO 9001 tekur
til allrar starfsemi fyrirtækisins
eða hönnunar, viðgerða og smíði
stoðtækja og íhluta í stoðtæki
ásamt endursölu á vörum ann-
arra framleiðenda. Vottunin tek-
ur einnig til framleiðslu stoð-
tækja og ihluta í stoðtæki. Undir-
búningur fyrir vottunina hefur
tekið um eitt ár og verið unninn
í samvinnu við Ráðgarð, segir í
frétt frá Össuri.
Með vottun á starfsemi fyrir-
tækisins og þar með talið hönn-
unar- eða þróunarferlið er Össur
hf. betur búið undir samkeppni
innanlands jafnt sem utan. Vöru-
þróunin hefur spilað stórt hlut-
verk í velgengni fyrirtækisins og
skiptir gríðarlega miklu máli að
allt sé unnið eftir vottuðum al-
þjóðlegum stöðlum.
Sérstaklega þykir vottunin
koma sér vel vegna þeirra
ströngu reglna sem heilbrigði-
skerfi hinna mismunandi landa
selja þeim fyrirtækjum sem selja
vörur inn á þann markað.
Össur hf. hefur stofnað dóttur-
fyrirtæki í Ameríku og hófst
framleiðsla þar á silikonhulsu í
byrjun þessa mánaðar. Sú starf-
semi mun einnig verða sam-
kvæmt gæðakerfi ISO 9001.
Verslun
Þyrping
kaupir
Vöruhúsið
Eiðistorgi
NÝLEGA var gengið frá samning-
um um kaup Þyrpingar hf., dóttur-
fyrirtækis Hofs sf., á Vöruhúsinu
við Eiðistorg á Seltjarnarnesi sem
áður var í eigu eignarleigufyrirtæk-
isins Lýsingar hf. Hof er jafnframt
eigandi Hagkaups sem rekur versl-
un í þessu húsnæði.
Þyrping keypti þtjár hæðir í hús-
inu, þ.e. fyrstu hæð þar sem verslun
Hagkaups er til húsa, aðra og þriðju
hæð. Jón Pálmi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Þyrpingar, segir
að tilgangurinn með kaupunum
hafi verið sá að tryggja hagsmuni
Hagkaups í þessu húsnæði, en fyrir-
tækið hefði einungis haft leigu-
samning um húsnæðið til næstu
tveggja til þriggja ára. Jón Pálmi
sagði að ákvörðun hefði ekki verið
tekin um hvernig húsnæðinu á ann-
arri og þriðju hæð yrði ráðstafað.
Annars vegar kæmi til greina að
halda áfram með verslunarrekstur
þar en þá þyrfti að gera viðeigandi
breytingar á aðgengi að því. Hins
vegar kæmi til greina að hætta
með verslun í húsnæðinu og nýta
það undir aðra starfsemi.
ÁTVR keypti í sumar kjallara
hússins en auk þess hafa verið
þarna til húsa nokkrar smærri
verslanir. Þeim hefur hins vegar
farið fækkandi og um næstu mán-
aðamót verða einungis eftir Bóka-
verslun Eymundssonar og snyrti-
vöruverslunin Evita.
TBS ogNBC sömdu ekki
Atlanta. Reuter.
VIÐRÆÐUR kapalsjónvarpsins
Turner Broadcasting System í Atl-
anta við General Electric um hugs-
anlegan samruna TBS og NBC
hafa farið út um þúfur vegna
ágreinings um hver eigi að stjórna
fyrirtæki því sem fyrirhugað er að
koma á fót.
TBS, sem er fyrirtæki Teds Turn-
ers og eigandi CNN (Cable News
Network), sagði í tilkynningu að
fyrirtækið mundi halda áfram að
kanna tækifæri, sem kynnu að bjóð-
ast, til þess að hlutabréf þess hækk-
uðu í verði. NBC í New York er í
eigu General Electric.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum snerust viðræðurnar fremur
Ted Turner heldur
samningaumleit-
unum áfram
um að TBS og NBC sameinuðust
en að Turner hreinlega keypti NBC.
En aðilum kom ekki saman um
hvort GE eða TBS ætti að eiga
meirihluta í sameinuðu fyrirtæki.
Fyrri viðræður
NBC hefur átt í viðræðum við
Turner um að draga úr kostnaði
og samvinnu í dreifíngu frétta-,
íþrótta- og annars efnis.
GE hefur sagt að samruni NBC
og fyrirtækja hafi verið ræddur á
fundi 16. desember. Engin tilkynn-
ing var gefin út, en talið að GE
hefði því aðeins áhuga á samkomu-
lagi að það mundi auka verðmæti
NBC. Það benti til þess að GE setti
það skilyrði að eiga meirihluta í
nýju fyrirtæki.
Turner hefur reynt um eins árs
skeið að kaupa sjónvarpsnetkerfi
til þess að treysta stöðu CNN,
skemmtisjónvarpsins TNT, teikni-
myndasjónvarpsins Cartoon Netw-
ork og TBS-risastöðvarinnar. Hann
hefur nokkrum sinnum áður leitað
hófanna hjá NBC og CBS.
Hollywood
Nýja kvik-
myndaverið
færnafn
Námskeið fyrir þá sem vilja lengra:
NútímaForritun
hk 95012
Ef þú vilt minnka rekstrarkostnað við tölvunetið þitt
er þetta námskeið fyrir þig. Námskeið
fyrir þá sem vilja sjá um rekstur tölvuneta!
48 klst námskeið, kr. 49.900,-stgr.
Dagskrá:
• Windows 3.1 kerfistjómun
• Novell 3.12 netstjómun
• Tengingar við önnur tölvukerfi
• Innkaup og val á búnaði
Námskeið á þriðjudögum og laugardögum
Tolvu- og verkfræðiþjonustan
Tölvuráðgjöf • námskeiö • útgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
RaðgreiÖslur Euro/VISA
VisualBasic er kjaminn í nútima forritun í gluggaumhverfi.
Enginn sem á annað borð vill nýta tölvuna og forritin
betur getur verið án þekkingar á VisualBasic!
60 klst námskeið, kr. 69.900,- stgr.
Dagskrá:
• Undirbúningur forritunar, greining og hönnun
• Forritun með VisualBasic
• Access og notkun hans við forritagerð
• VisualBasic í Excel, Access og Word
hk 95011
Námskeið á fimmtudögum og laugardögum
Tolvu- og verkfræðiþjonustan
Tölvuráögjöf • námskelð • útgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
RaðgreiÖslur Euro/VISA
Los Angeles, Reuter/Variety.
ÞRÍSTIRNIÐ Steven Spielberg,
Jeffrey Katzenberg og David Gef-
fen í Hollywood hafa gefið kvik-
myndaveri því sem þeir komu á fót
í október nafnið Draumverkið eða
DreamWorks SKG.
Nafngiftin var auglýst í fagritunum
Hollywood Reporter og Daily Vari-
ety undir slagorðinu „Framtíð tæki-
færa.“ ,
Síðan Spielberg kvikmyndagerð-
armaður, Katzenberg, fyrrum einn
æðsti maður Disney-fyrirtækisins,
og tónlistarjöfurinn Geffen kunn-
gerðu stofnun kvikmyndavers síns
12. október hafa þeir komið á fót
sameignarfyrirtæki ásamt Capital
Cities/ABC til framleiðslu á sjón-
varpsefni til sýninga í stöðvum
ABC.