Morgunblaðið - 17.01.1995, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfirlit Veðurstofu um veðurfarið á síðasta ári
1994 sólríkasta ár
Reykvíkinga frá 1979
MEÐALHITI ársins í Reykjavík
reynist vera u.þ.b. 0,2° undir með-
allagi áranna 1961-90, eða 4,1
stig. Á Akureyri varð hitinn hins
vegar í ríflegu meðaliagi eða 3,4oC
(0,2° yfir). Úrkoma á Akureyri
mældist 498 mm og er það nánast
nákvæmlega í meðallagi. Árið var
hins vegar fremur þurrt í Reykja-
vík, úrkoman mældist alls 735 mm
og er það u.þ.b. 92% meðalúr-
komu. Þetta er minnsta ársúrkoma
í Reykjavík frá 1987. Sólskins-
stundir á Akureyri mældust 1.026
og er það í rétt tæpu meðallagi.
Árið varð hið sólríkasta í Reykja-
vík frá 1979, sólskinsstundir
mældust 1.453 og er það um 185
stundum meira en í meðalári.
í stuttu yfirliti frá Veðurstofu
íslands segir, að fyrstu mánuði
ársins hafi verið nokkuð umhleyp-
Stfty.
Fasteignamiðlun
Sigurður óskarsson lögg.fasteigna- og skipasali
Suðurlandsbraut 16,108 Rcykjavflc
SIMI 880150
Seljendur athugið!
Hef kaupanda
að vandaðri 3ja herb. íbúð á póstsvæði
101,107 eða á Seltjarnarnesi. Veröhug-
mynd 6-8,5 millj.
Hef kaupanda
að einb- eða raðhúsi í Fossvogi,
Hvassaleiti eða Bústaðahverfi.
Hef kaupanda
að sérhæð i Hlíðum eða Teigum.
Hef kaupanda
að 100-150 fm raðhúsi í Garðabæ eða
Hafnarfirði. Veröhugmynd 8-11 millj.
Hef kaupanda
aö iönaöarhúsnæöi 50-60 fm á svæði
101, 105 eöa 108.
HringiA og við skráum
eignirnar samdægurs
SÍMI 880150p
Meðalhitinn í
Reykjavík undir
meðallagi en sól-
skinsstundir rúm-
lega 400 fleiri en
á Akureyri
ingasamt, þó mjög hagstæður kafli
hafi komið í febrúar. Mars varð
hins vegar kaldur og óhagstæður.
Einnig var fremur kalt í apríl, en
þá var óvenju sólríkt í Reykjavík,
apríl varð sá sólríkasti þar frá
1935. Mikið snjóflóð féll á skíða-
og útivistarsvæði ísfirðinga 5.
apríl. Flóðið eyðilagði milli 30 og
40 sumarbústaði, olli stórfelldu
tjóni á skíðamannvirkjum og rækt-
uðum svæðum, auk mannskaða.
Maí var góðviðrasamur og fremur
hlýr og var óvenju hægviðrasamt
mikinn hluta mánaðarins. Fremur
kalt var í júní, sérstaklega norðan-
lands, en júlí var hlýr og góðviðra-
samur. Síðari hluti sumars var
einnig hægviðrasamur og var vind-
hraði lengst af undir meðallagi
allt fram yfir miðjan nóvember,
að aftur fór að bera á umhleyping-
um. September var þurr og sólrík-
ur þó hiti værí ekki fjarri meðal-
lagi. Fremur kalt var í október,
en ekki veðrasamt. Þá var úrkom-
utíð fyrir norðan, en tiltölulega
þurrt syðra. Nóvember varð hinn
sólríkasti í Reykjavík frá 1965.
Desember var nokkuð umhleyp-
ingasamur, en hiti var ekki fjarri
meðallagi. Snjóflóð eyðilagði íbúð-
arhús á Súðavík 18. desember.
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdastjori
KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltur fasteignasau
Til sýnis og sölu m.a. athyglisverðra eigna:
Gott einbýlishús - skipti möguleg
Steinhús ein hæð, um 150 fm á vinsælum stað í Vogunum. 5 svefn-
herb. m.m. Bflskúr 23,3 fm nettó. Glæsileg lóð. Skipti möguleg á góðri
3ja-4ra herb. íb. helst með bílskúr.
Skammt frá Háskólanum
Ný úrvals neðri hæð í tvíbýlish. 4ra herb. 104,3 fm nettó. Parket. Allt
sér. Góður bílskúr. Langtímalán kr. 4,6 millj. Vinsæll staður.
Suðurendi - sér þvottahús - bflskúr
Mjög góö 4ra herb. íb. á 2. hæð miðsv. við Hraunbæ um 100 fm.
Ágæt ný endurgerð sameign. Skipti möguleg á lítilli íb.
Góð eign á góðu verði
Ný endurbyggt timburhús miðsv. við Digranesveg Kóp. með 5 herb. íb.
á hæð og í kj., alls 139,5 fm. Stór lóð. Há tré. Mikið útsýni.
Skammt frá Vesturbæjarskóla
Rúmgóð sér efri hæð í þríbhúsi, byggðu 1967. Hæðin er 2 stórar stof-
ur, 3 svefnh. m.m. Tvennar svalir. Rúmg. innb. bílsk. Ræktuð lóð.
Skipti æskileg á góðri 3ja-4ra herb. íb. (borginni eða nágr. Tilboð óskast.
• • •
Viðskiptunum fylgir ráðgjöf
og traustar upplýsingar.
Auglýsum á morgun ________________________________
og á laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASAL AH
- kjarni málsins!
Um er aö ræða fasteign og rekstur 320 fm veitinga- og skemmtistaöar.
Nýlegar, glæsilegar innréttingar. Staðurinn hefur vínveitinga- og skemmtanaleyfi.
Einstakt tækifæri.
Til afhendingar strax (til greina kemur að selja reksturinn sér). Eignaskipti möguleg.
Upplýsingar veita Arnar Sölvason og Jón G. Sandholt í símum 683884 og 683886.
Til sölu TYyggvagata 8
veitingastaður
Morgunblaðið/Sverrir
EINN liður í lokaundirbúningi fyrir opnun heimilisins var að
koma fyrir rólu fyrir fæðandi konur á heimilinu. Á heimilinu
eru tvær fæðingarstofur og vonast er til að brátt verði komið
fyrir vatnspotti til verjameðferðar meðan á útvíkkun stendur.
Fæðingarheimili Reykjavíkur opnað í dag
Sex milljóna kr.
aukafjárveiting
FÆÐINGARHEIMILI Reykjavíkur
hefur verið opnað og er almenningi
til sýnis milli kl. 14 og 16 í dag.
Sex milljóna króna aukafjárveiting
varð til að greiða fyrir opnun heimil-
isins. Aðstaða verður til fæðinga
og sængurlegu í 14 rúmum.
Sængurlegan er í eins og tveggja
manna herbergjum og eykst með
því möguleiki á sólarhringssamveru
móður og barns og samveru nán-
ustu fjölskyldunnar að sögn Guð-
rúnar Bjargar Sigurbjörnsdóttur
yfirljósmóður á kvennadeild Land-
spítalans.
Heimilið verður rekið sem hluti
kvennadeildar Landspítalans.
Starfsmenn verða átta ljósmæður
og fjórar ósérhæfðar aðstoðarkon-
ur. Deildarlæknar á kvennadeild,
annaðhvort læknar í sérnámi eða
ungir sérfræðingar í fæðingar-
fræði, sinna heimilinu. Þeir verða
nálægir við hveija fæðingu og ráð-
færa sig eftir þörfum við sérfræð-
inga á kvennadeildinni. Barnalækn-
ar skoða öll börn að degi til svo sem
venja hefur verið. Miðað við mann-
afla er talið að hægt verði að anna
um 300 fæðingum á ári á heimilinu
og taka bókanir mið af því.
Eftir eðlilega meðgöngu
Sængurlegan verður fyrir konur
sem fætt hafa á kvennadeild og á
heimilinu. Ekki verður hins vegar
tekið á móti fæðandi konum á heim-
ilinu nema meðganga hafi verið
eðlileg. Óskað verður eftir því að
konur komi til bókunarviðtals hjá
ljósmæðrum og skrái sig til fæðing-
ar á heimilinu um það bil mánuði
fyrir væntanlegan fæðingardag og
helst ekki síðar en tveimur vikum
fyrir fæðingu. Um leið geta verð-
andi foreldrar kynnt sér húsakynni,
aðstæður, starfshætti og þá val-
möguleika sem heimilið býður upp
á.
Guðrún Björg sagði að með opn-
un heimilisins væru valkostir fáeð-
andi kvenna þrír: áfram yrði hefð-
bundin starfsemi á fæðingargangi,
MFS-eftirlit sem byggðist upp á því
að sömu ljósmæður fylgdust með
meðgöngu, fæðingu og sængurlegu
yrði á sama stað og áhersla yrði
lögð á heimilislegt umhverfi á fæð-
ingarheimilinu.
Aðspurð sagðist Guðrún Björg
ekki geta svarað því hvort loka
þyrfti heimilinu tímabundið í sumar
vegna fjárskorts.
Andlát
BRYNJÓLFUR
ÞORBJARNARSON
BRYNJÓLFUR Þor-
bjarnarson, vélsmíða-
meistari, lést á heimili
sínu í Hafnarfirði 14.
janúar síðastliðinn, 77
ára að aldri.
Brynjólfur fæddist
6. janúar 1918 á Heiði
í Gönguskörðum,
Skarðshreppi. Foreldr-
ar hans voru Þorbjörn
Björnsson, bóndi þar
og síðar á Geitaskarði,
og Sigríður Ámadóttir
húsfreyja.
Brynjólfur lærði vél-
smíði í Iðnskóla Hafn-
arfjarðar og starfaði hann sem
verkstjóri hjá Vélsmiðju Sig. Svein-
björnssonar til ársins 1944. Ilann
vann tímabundið hjá Steðja hf. við
smíðar á vatnstúrbínum og setti
hann upp vatnsaflsstöðvar á ýmsum
bæjum í Húnaþingi, en árið 1945
hóf hann störf hjá Rafha hf. í Hafn-
arfirði þar sem hann var m.a. yfir-
maður í mótasmíði.
Árið 1951 tók Brynjólfur við
stöðu yfirverkstjóra í Rafha hf. og
gegndi hann því starfi til 1966 þeg-
ar hann hóf störf í Vélsmiðjunni
Kletti hf. Frá 1969 til 1976 starf-
aði hann sem verkstjóri
hjá Ofnasmiðjunni hf.,
en þá hóf hann á ný
störf hjá Vélsmiðjunni
Kletti hf. og starfaði
hann þar til ársloka
1989 er hann komst á
eftirlaunaaldur.
Brynjólfur var einn
af stofnendum Félags
óháðra borgara í
Hafnarfirði, og var
hann einn af þrem full-
trúum félagsins sem
kosnir voru í bæjar-
stjórn 1966 og mynd-
uðu meirihluta með
sjálfstæðismönnum o.fl. flokka sem
hélst í 20 ár. Hann var formaður
rafveitunefndar um árabil, sat í
stjórn Iðnskóla Hafnarfjarðar og
var formaður hitaveitunefndar þau
ár sem hún starfaði, en Brynjólfur
var einn af helstu forvígismönnum
fyrir lagningu hitaveitu í Hafnar-
Qörð.
Eiginkona Brynjólfs var Sigríður
Sigurðardóttir, sem lést 22. septem-
ber 1988, og eignuðust þau sex
syni, Sigurð Kjartan, Þorbjörn,
Stefán Heiðar, Jón, Magnús Björn
og Guðmund.