Morgunblaðið - 17.01.1995, Side 11

Morgunblaðið - 17.01.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 11 Læknadeild Þriðjungur að reyna í fyrsta sinn INNAN við þriðjungur læknanem- anna 33 á fyrsta ári, sem fá að halda áfram námi í læknadeild HÍ að þessu sinni, er að reyna við sam- keppnisprófin í fyrsta sinn. Segir Helgi Valdimarsson deildarforseti að rúmlega tveir þriðju þeirra sem komust áfram að þessu sinni séu að reyna í annað, þriðja og jafnvel sjötta sinn. Greint var frá því í Morgunblaðinu í síðustu viku að 33 nemendur hefðu komist áfram vegna þess að fjórir nemendur höfðu meðaleinkunnma 8,33. Háskólaráð ákvað á sínum tíma að 30 nemendur mættu stunda nám í deildinni. Var einkunnin 8,33 sú þrítugasta lægsta að þessu sinni en þar sem ekki er heimilt að varpa hlutkesti til að velja milli nemend- anna fjögurra, sem hiutu sömu ein- kunn, var sú ákvörðun tekin í lækna- deild að hleypa þeim áfram, en ekki í háskólaráði eins og hermt var í blaðinu. Helgi segir að fjöldi þeirra sem þreyttu samkeppnisprófið í ár sé vel á annað hundrað og hafi margir farið fram á að farið verði aftur yfir próf þeirra. Segir Helgi að það verði gert og reynist einhver annar nemandi hafa náð 8,33 verði honum hleypt í gegn, venju samkvæmt. Biskupinn vísiterar BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, vísiterar nú Reykja- víkurprófastsdæmi vestra. Þetta mun vera í fyrsta sinn í 200 ár, sem biskup Islands vísiterar þetta prófastsdæmi og messaði hann í Dómkirkjunni á sunnudag. ----» ------ Próflausir á ómerktum sleðum LÖGREGLAN hafði mikil afskipti af vélsleðamönnum um helgina. Talsvert var um að menn ækju rétt- indalausir á númerslausum sleðum. í gærmorgun var vélsleða stolið frá fyrirtæki við Smiðshöfða. Á sunnudag þurftu lögreglumenn fjórum sinnum að hafa afskipti af akstri vélsleða. Tvisvar voru rétt- indalausir ungir menn stöðvaðir í akstri á númerslausum vélsleðum á Ártúnsholti og fjarlægja þurfti vél- sleða af vettvangi með dráttarbif- reið eftir að réttindalaus maður á óskráðum vélsleða hafði verið að gera sér það að leik að aka innan um fólk á skautum á Rauðavatni. Um helgina bar talsvert á kvörtun- um fólks vegna aksturs vélsleða við Rauðavatn. Óku vélsleðamenn m.a. yfir viðkvæman gróður. Þá kvört- uðu hestamenn nokkuð yfir tillits- leysi vélsleðamanna á reiðleiðum ofan við borgina. FRÉTTIR Bíll féll fjóra metra niður af brú ÖKUMAÐUR slapp ótrúlega lítið meiddur þegar bíllinn sem hann ók féll niður af brú í Kópavogi síðdegis á sunnudag. Bílnum var ekið suður Hafnar- fjarðarveg og lenti á vegriði sem er á brúarstólpa á brúnni yfir Kársnesbraut vestan megin. Bíll- Morgunbiaðið/Júiíus inn klifraði upp eftir vegriðinu og BILLINN sem fór fram af brúnni yfir Kársnesbraut er mikið fór síðan fram af. Bíllinn féll niður skemmdur, ef ekki ónýtur, en ökumaðurinn slapp ótrúlega vel. á grasflöt sem er í halla og end- aði á þakinu á gangstétt sem er samsíða Kársnesbraut. Bíllinn endaði um 14 metrum frá brúnni og er fallið um fjórir metrar. Konan, sem ók bílnum, var kom- in út úr honum þegar lögreglan kom að. Hún var flutt á slysadeild en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Bíllinn er mjög mikið skemmdur, ef ekki ónýtur. pu 1 BLAOSIIMS I DAG UM PITT SRARIFÉ? Verðbréfasjóðir Skandia bjóða fjölbreyttar leiðir tíl að ávaxta sparifé þitt \Ierðbréfasjóðir Skandia eru góður kostur fyrir þá sem vilja spara markvisst og jjárfesta til lengri eða skemmri tíma. Þegar þú jjárfestir í verðbréfasjóðum Skandia getur þú verið viss um að alltaf er leitast við að ná hœstu ávöxtun sem mögulegt er, án þess að mikil vN > áhætta sé tekin með peningana þína. * Á áiinu 1994 nam munávöxtun sjóða Skandia aUtaðll.1%. Skandia býður upp á 5 sjóði sem hver um sig er sniðinn að mismunandi þörfum jjárfesta: Kjarabréf Tekjubréf Markbréf Skyndibréf og Fjölþjóðabréf. Ráðgjafar Skandia eru ávallt reiðu- búnir til að leiðbeina þér við val á rétta verðbréfasjóðnum jýrir þig. Tryggðu þér góðar fréttir i blaðinu á morgun og jjárfestu i verðbréfa- sjóðum Skandia. * Skandia Löggilt veröbrófafyrirtæki • Laugavegi 170 Simi • 56197 00 Fjárfestingarfélagið Skandia hf er alfarið í eigu Skandia

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.