Morgunblaðið - 17.01.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 13
FRÉTTIR SiyiÓFLÖÐ ÖG VE0UR
Flekaflóð algengustu snjóflóðin
SNJÓFLÓÐ eru ákaflega mismun-
andi en auðþekkjanlegasti munurinn
á þeim er hvort um er ræða svonefnd
lausasnjóflóð eða flekahlaup.
Flekaflóð eru algengustu snjóflóð-
in á íslandi. Snjóflóðið á Súðavík var
þurrt flóð og hefur líklega verið sam-
bland af flekahlaupi og kófhlaupi,
samkvæmt upplýsingum snjóflóða-
varna á Veðurstofu íslands.
Ef snjór í snjóflóði er ekki mjög
blautur og fer tiltölulega hratt yfir
getur hent að einstaka hlutar hans
þeytist í loft upp og fari niður hlíðina
sem snjóský eða kóf. Er því snjóflóð-
um skipt í flæðihlaup og kófhlaup.
Hér á landi er sjaldgæft að hrein
kófhlaup falli en stundum falla flæði-
hlaup fyrir kletta og verða þannig
kófhlaup um stund.
Halli lands og tegund snjóþekju eru
samverkandi þættir sem ráða því
hvort snjóflóð fellur. Miklu máli
skiptir hvort snjóflóð eru þurr eða
vot. Þá skiptir skriðflöturinn máli og
ræður hann miklu um hraðann á flóð-
inu.
Á meðfylgjandi teikningum er
sýndur munurinn á mismunandi teg-
undum snjóflóða auk þess sem þeir
þættir sem hafa áhrif á gerð flóð-
anna eru skýrðir. Myndirnar og text-
inn eru fengin upp úr lokaverkefni
Jóns Gunnars Egilssónar við bygg-
ingadeild Tækniskóla íslands og birt
með góðfúslegu leyfi hans.
a HALLI OG VÆTA VERKA SAMAN b LAUSASNJÓFLÓÐ C FLEKAHLAUP
d KÓFHLAUP 6 SKRIÐFLÖTURINN f FERLISNJÓFLÓÐA
a HALLI lands og tegund snjóþekju eru samverkandi
þættir sem ráða því hvort snjóflóð fellur. Miklu máli skipt-
ir hvort snjóflóð eru þurr eða vot. Þurrari flóð eru léttari í
sér en þau votu og það hefur áhrif á rennsli þeirra. Þurru
flóðin fara hraðar yfír og eru ekki eins næm fyrir hindrun-
um sem verða á vegi þeirra. Vot flóð fylgja betur landslag-
inu og þurfa ekki eins brattar brekkur til þess að skríða
af stað. Stærstu flóðin falla í þjöppuðum snjó í tæplega 30
til rúmlega 50 gráðu halla. b LAUSASNJÓFLÓÐ er það
nefnt þegar samloðun snjókornanna á einhveijum einstök-
um stað í snjóþekjunni verður það lítil að nokkur þeirra
skríða af stað. Það eykur álagið fyrir neðan þannig að
meiri snjór skríður af stað. Slík keðjuverkun gengur svo
niður eftir hlíðinni og flóðið breikkar smám saman.
Lausasnjóflóð eru algengust í nýföllnum snjó og falla oft-
ast af sjálfu sér þó mannaferðir hafi einnig komið slíku
af stað. Lausasnjóflóð má þekkja á því hvernig þau líta
út, þ.e. byija í einum punkti og breiða síðan úr sér. Þau
eru fátíð hér á landi og yfirleitt lítil og valda því sjaldan
tjóni. C FLEKAHLAUP er það nefnt þegar stór hluti snjó-
þekjunnar skríður af stað í einu og skörp brotlína mynd-
ast. Þessi snjóflóð myndast í snjóþekju sem náð hefur að
bindast saman, t.d. í foksnjó eða í snjó sem tekinn er að
setjast. Hefur þá öll snjóþekjan náð að mynda eina heild
sem nýtur sameiginlegs stuðnings. Þegar svo álagið verður
styrknum yfirsterkara á einhveijum stað skríður öll þekjan
af stað. Flekasnjóflóð verða því oftast stærri en lausasnjó-
flóð og að sama skapi hættulegri. Flekasnjóflóð eru auð-
þekkt á hinni skörpu brotlínu, þau eru algeng hér á landi,
enda snjóþekjan hér oftast samanbarin. d EITT einkenni
kófhlaupa er að á undan þeim niður hlíðina fer loftbylgja
sem getur í sumum tilfellum orðið mjög öflug. Algengast
er að snjóflóð falli sem blanda af flekahlaupi og kóf-
hlaupi, þ.e. hluti þeirra skríði með jörðu og hluti ferðist í
loftinu. Þannig var um flóðið sem féll á Seljalandsdal 5.
apríl sl. e FLÓÐUM er skipt eftir því hvar skriðflöturinn
liggur. Ef hann liggur í snjóþekjunni, þ.e. aðeins efri hluti
hennar skríður fram, er talað um yfirborðshlaup. Ef hins
vegar öll snjóþekjan skríður fram er það nefnt grunnhlaup
og er þá jörðin sjálf skriðflöturinn. Ekki liggur neinn eðlis-
munur í rennsli þessara flóða, nema hvað grunnflóð sem
fara eftir grófu jarðaryfirborði ná ekki eins miklum hraða
og geta jafnvel stöðvast fljótlega. f FERLI snjóflóða má
skipta í þrennt; upptakasvæði, fallbraut og tungu. Upptaka-
svæði er það svæði nefnt þar sem snjórinn skríður fyrst
af stað, þ.e. efsti hluti ferilsins. Gil og skálar geta verið
mikilvirk upptakasvæði því þar er oft mikil snjósöfnun,
sérstaklega ef vindur blæs snjónum til. Upptakasvæði geta
legið hátt til fjalla og því erfitt að koma auga á þau. Það
er mjög slæmt, því ástandið á upptakasvæðinu segir mest
til um hvort hætta sé á snjóflóðum. Fallbraut tekur við
af upptakasvæði, yfirleitt um 100 metrum frá brotlínu eða
upphafspunkti. Hraði snjóflóða er mestur í fallbraut og
einnig eyðileggingarmáttur þeirra. Tunga tekur við af fall-
brautinni og er yfirleitt miðað við að tunga byiji þar sem
halli lands er orðinn 20-25 gráður.
Lægðin sem óveðrinu olli kom frá Nýfundnalandi og var mjög djúp og kröpp
Onnur j afndj úp
lægð á leiðinni
Ferill lægðarinnar frá föstudegi
j
L
c
Mánud. kl. 12.00:
948 millibara,
og grynnist og
Á miðnætti, ki. 0.00:
945 mb. Nokkru
hreyfist í suðvestur þj síðar 940 mb.
T
Seinnipart á föstudag:
1015 millibara lægð
V
Sunnud.
kl. 18.00:
956 mb.
Laugard. kl. 6.00:
1012 millibara
Laugard. kl. 18.00:
1000 millibara
Sunnud. kl. 12.00: 970 mb.
\
Sunnud. kl. 6.00:
983 millibara
ÚTLIT er fyrir að óveðrinu sem stað-
ið hefur yfir síðustu tvo daga sloti
ekki á næstunni og slæmt verður
verði víða á landinu í þessarar viku.
Afram er gert ráð fyrir roki eða
hvassviðri af norðan og norðaustan
á Vestfjörðum í dag og um miðja
vikuna er gert ráð fyrir að ný lægð
komi upp að landinu sem veldur
áframhaldandi hvassri norðaustan-
átt, en þessi lægð kemur hingað úr
suðaustri frá Skotlándi.
Myndaðist yfir Nýfundnalandi
Lægðin sem olli óveðrinu hér í gær
og í fyrradag var bæði mjög djúp,
eða 940 millibör þegar hún varð dýpst
í fýrrinótt, og kröpp, það er stutt er
á milli þrýstilína og því mikill vindur
skammt frá lægðarmiðju. Lægðin
myndaðist yfir Nýfundnalandi á
föstudaginn. Haraldur Eiríksson veð-
urfræðingur á Veðurstofu íslands
sagði í samtali við Morgunblaðið að
lægðin hefði verið orðin greinileg á
kortum hjá þeim á fóstudagskvöld og
hefði þá verið yfir Nýfundnalandi
1.015 millibör. Til að byija með var
lítil hreyfing á henni, en hún þokaðist
í austurátt og klukkan 6 á laugar-
dagsmorgunin var hún komin austur
af Nýfundnalandi og var þá 1.012
millibör. Hún stefndi í austnorðaustur
og klukkan 18 er hún 1.500 kíló-
metra suðvestur af landinu og er eitt
þúsund millibör. Þá fer hún að dýpka
hraðar og á miðnætti er hún á norð-
usturleið og orðin 985 millibör.
Sex tímum seinna, eða klukkan 6
á sunnudagsmorguninn, er lægðin
700 kílómetra suður af Vestmanna-
eyjum og á hádegi sama dag 500
kílómetra suður af Hornafirði og er
þá orðin 970 millibör. Eftir það fer
hún mjög hratt í norðurátt og dýpk-
ar mikið og klukkan 18 á sunnudag
er lægðin yfir suðausturlandi og er
orðin 956 millibör. Hún fer norður
yfir landið og staðnæmist við norð-
austurströndina, þar sem hún er á
miðnætti og er þá 945 millibör. Þá
átti hún eftir að dýpka enn frekar
en talið er að hún hafi orðið 940
millibör þegar hún varð dýpst.
Á hádegi í gær var lægðin yfir
Grímsey og var þá farin að grynnast
aðeins en þá var hún 948 millibör.
Hún fer í suðvesturátt yfir vestan-
vert landið_ og heldur áfram að
grynnast. Áfram verður hvasst af
norðri og norðaustri á Vestfjörðum,
en seinnipartinn í gær var veður far-
ið að ganga niður um austan- og
norðanvert landið.
Illviðri áfram
í dag er því spáð að lægðin haldi
áfram í suður yfír vestanvert landi
og því verði áfram hvassviðri og
snjókoma á Vestfjörðum og um vest-
anvert landið. Gert er ráð fyrir að
áttin verði norðaustlæg 9—10 vind-
stig, ofankoma og skafrenningur en
austan kaldi á austanverðu landinu.
Lægð er í uppsiglingu suður í hafi
sem gert er ráð fyrir að verði jafn-
djúp og sú lægð sem er nú yfir land-
inu. Reiknað er með að hún verði
vestur af Skotlandi í dag og verði í
kvöld orðin 940 millibör. Hún fer
síðan í norðvestur í átt til landsins
og kemur upp að suðurströndinni ef
spáin gengur eftir. Á miðvikudag er
spáð hvassri norðanátt, snjókomu og
skafrenningi og áfram á fimmtudag
hvassri norðaustanátt og snjókomu
vegna nýju lægðarinnar.