Morgunblaðið - 17.01.1995, Page 29
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 29
J®nr0mtilílal»Í
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SÚÐAVÍK
ÞAU ERU ORÐIN mörg sjávarplássin á íslandi, sem hafa
orðið fyrir þungum áföllum vegna náttúruhamfara.
Flest eigum við, með einum eða öðrum hætti, rætur í þessum
plássum. Þar er fólkið í mestu návígi við náttúruöflin. Þar
hefur lífsbaráttan verið hörð en sjórinn gjöfull.
í samtali við Morgunblaðið í dag um þessa hörmulegu
atburði segir Vigdís Finnbogadóttir, forseti ísjands, m.a.:
„Það er þjóðarharmur, þegar heilt byggðarlag á íslandi verð-
ur fyrir slíkum náttúruhamförum. Land og þjóð eru samofin
á ættjörð okkar og atburðir af þessu tagi snerta okkur öll.
Ég grét í hjarta mínu með þeim landsmönnum, sem eiga
um sárt að binda. Á slíkum stundum bið ég Guð að veita
öllum styrk, sem þurfa að horfast í augu við það, sem orðið
er og ekkert fær breytt.“
Undir þessi orð forseta íslands tekur þjóðin öll. Hugur
íslendinga nær og fjær er hjá Súðvíkingum og sá samhugur
verður þeim vonandi til styrktar á þeim erfiða tíma, sem
framundan er. Oft skiljum við ekki, hvernig fólk, sem stend-
ur andspænis mikilli sorg, lifir af. Atburðirnir í Súðavík í
gærmorgun eru einhver mesti mannlegi harmleikur, sem hér
hefur orðið um langt árabil. Harmleikur, sem snertir margar
fjölskyldur með þeim hætti, að við hin getum tæpast skynj-
að það eða skilið. Þannig háttar til hjá mörgum Súðvíkingum
og ættmennum þeirra nú. En á slíkum stundum kemur í ljós,
að fólk býr yfir þreki, sem enginn skilur en gerir því kleift
a§ horfast í augu við óblíð örlög. Sigríður Hrönn Elíasdótt-
ir, sveitarstjóri í Súðavík, segir í Morgunblaðinu í dag: „Við
erum öll mjög hljóð og döpur. Áfallið kemur sjálfsagt síðar
. . . Og það versta gerðist, sem getur gerzt í svona, börn
misstu foreldra sína og foreldrar misstu börn.“
Herra Ólafur Skúlason, biskup, segir í Morgunblaðinu í
dag: „Hvað sem sagt verður um okkur íslendinga, einstak-
lingshyggjumenn eins og við oft erum, þegar eitthvað kem-
ur upp á, þá á þjóðin eina sál. Það er enginn vafi á því, að
það er að gerast nú.“ Þjóðin mun sýna Súðvíkingum samhug
og samstöðu í verki. En sum sár gróa aldrei.
Björgunarmenn, hjúkrunarfólk og aðrir þeir, sem komið
hafa að björgunarmálum í Súðavík frá því í gærmorgun,
hafa unnið þrekvirki við ótrúlega erfiðar aðstæður. Þetta
fólk hefur lagt sig í lífshættu, bæði á sjó og landi. Þegar
óveður geisar og blind náttúruöflin fara hamförum dugar
tækni nújímans skammt eins og komið hefur í ljós í Súðavík.
Fleiri íslendingar hafa látið lífið í snjóflóðum en nokkrum
öðrum náttúruhamförum, að sjóslysum undanskildum. Vitað
er um yfir 600 manns, sem farizt hafa í snjóflóðum á ís-
landi, þar af um 130 á þessari öld. í samtali við Morgunblað-
ið í dag, segir Davíð Oddsson, forsætisráðherra, aðspurður
um snjóflóðin, sem féllu utan kortlagðra hættumarka: „Þetta
er mikið áhyggjuefni og einnig hvað snjóflóð hafa aukizt
mikið að undanförnu. Ég held, að menn hafi reynt að sýna
árvekni, en þegar náttúran fer slíkum hamförum og þarna
gerðist vill margt bresta, líka sú þekking, sem menn hafa
búið yfir. Það er, hins vegar enginn vafi á því, að þessir
atburðir verða til þess að menn munu endurmeta þessa hluti.“
Lýsing sveitarstjórans í Súðavík á því, _sem við augum
blasti eftir að snjóflóðið féll, er átakanleg. í Morgunblaðinu
í dag segir: „Hún lýsir aðkomunni að snjóflóðasvæðinu eins
og eftir kjarnorkusprengju. Brak úr húsunum hefði verið
niður alla götuna, einnig bílar. Og slasað fólk. Sést hefði í
hendur fólks upp úr snjónum. Ein slösuð kona hafði komið
sér fyrir í bíl, sem hafði oltið og gat notað bílflautuna til
að láta vita af sér. Þetta var hreinasta hörmung, sagði hún.
Flestir hefðu verið sofandi í rúmum sínum, þegar flóðið
kom, og var fólkið því illa klætt, á náttfötum eða nærklæð-
um einum fata.“
Island er harðbýlt land og hættulegt, þótt það eigi einnig
blíða og vinalega ásjónu. Mannskaðar hafa orðið í sjóslysum,
eldgosum, landskjálftum og vatnavöxtum, auk snjóflóða.
Þjóðin þarf að horfast í augu við óblíða náttúru. Varðstaða
er því nauðsynleg, hvort sem er á sjó eða landi.
Um alla Vestfirði var í gær unnið við að rýma hús og
koma fólki fyrir í öruggari vistarverum. Reynslan sýnir, að
það getur verið lífshættulegt að búa á Vestfjörðum að vetri
til og ferðast um Vestfirði að vetri til, að ekki sé talað um
að sækja sjó frá Vestfjörðum að vetri til. Samt hafa íslend-
ingar búið á Vestfjörðum í meira en þúsund ár og á því
verður engin breyting. Atburðirnir í Súðavík hljóta hins veg-
ar að leiða til þess, að snjóflóðavarnir um alla Vestfirði og
víðar verði endurskoðaðar og leiða leitað til þess að gera
búsetu á landsbyggðinni öruggari en hún er nú.
Morgunblaðið flytur þeim, sem nú eiga um sárt að binda,
innilegar samúðarkveðjur.
Jr
Snjóflóðið mikla sem féll
kl. 6.25 í gærmorgun og
hreif með sér 15 hús
Snjóflóð sem féll
ídesemberá
siðasta ári
Kaupfélagið
Póstur
& sími
Stjórn-
sýsluhús
Snjóflóðið sem
féll úr Traðargili
kl. 21.00 í gær-
kveldi sleit niður
raflínu og náði
suður að Kaup-
félagi og eitthvað
norðurá við
Snjóflóð sem féll
árið 1983 og snjóflóða
hætta var miðuð við
Eyrardalur
Leikskóli
Línan afmarkar það svæði sem skil
greint er sem snjóflóðahættusvæði
Frystihúsið
o o
; . —/-1..t n (/.., .x\
SUÐAVIK við Alftafjörð
Stjornstöð björgunar-
aðgerða er nú í Fagranesinu
250 m
Magnús Már Magnússon snjóflóðasérfræðingnr
Mörk hættusvæða
þarf að endurskoða
Fá húsanna í Súðavík voru
talin vera á hættusvæði
MAGNÚS Már Magnússon, yfir-
verkefnisstjóri snjóflóðavarna á
Veðurstofu íslands, segir að taka
þurfi mörk hættusvæða vegna snjó-
flóða til endurskoðunar, þar sem
flóðið sem féll á Súðavík hafi farið
út fyrir mörk þess svæðis sem skil-
greint hafði hefði verið sem hættu-
svæði vegna snjóflóða. Því hefði
ekki komið til að yfirgefa þau hús
sem flóðið féll á, þar sem aðeins fá
þeirra hefðu verið á skilgreindu
hættusvæði.
Magnús sagði að snjóflóðið á
Súðavík hefði verið svonefnt þurr-
flóð. Það hefði verið flekasnjóflóð
þegar það hefði farið af stað, en
ekki væri ólíklegt að það hefði líka
orðið kófflóð, enda hefði verið kalt
og eyðileggingarmáttur snjóflóðsins
mikill. Magnús sagði að snjóflóð
hefði fallið á þessum sama stað
1983, en það hefði ekki náð til
bæjarins heldur staðnæmst í jaðri
hans og eyðilagt fjárhús sem þar
hefðu verið.
Óvenjulegt hversu Iangt
flóðiðfór
Ekki væri vitað nákvæmlega
hvaðan flóðið kæmi, því það sæist
ekkert vegna veðurs. Áætlað væri
að flóðið væri um 200 metra breitt.
Það væri ekki óvenjulegt, en það
sem væri óvenjulegt væri hversu
langt flóðið hefði farið. Flóðið 1983
hefði farið niður að 2-3 húsum við
efstu götuna og hann teldi að þetta
flóð hefði fallið á svipuðum slóðum,
en fyrra flóðið hefði ekki komist í
námunda við að fara
jafnlangt og þetta flóð.
Um skýringuna á því
að þetta flóð hefði orðið
svona mikið sagði
Magnús að snjósöfnun
hefði verið mjög mikil
og hröð. Viðloðun í
snjónum hefði sennilega
verið nokkur og snjórinn
hlaðist mikið upp áður
en flóðið fór af stað.
Þegar það gerðist væri
því um mikið magn að
ræða, þó tíminn væri
ekki langur. Uppsöfnunin hefði ekki
tekið lengri tíma en sólarhring og
jafnvel aðeins frá því kvöldið áður
en flóðið féll.
Meiri skriðþungi
í blautum flóðum
Hann sagði að snjóflóð gæt,u fall-
ið í hvernig veðri sem væri. í þessu
tilfelli hefði verið mjög hvasst, ofan-
koma og vindáttin verið óhagstæð.
Blaut flóð færu hægar yfir en þurr
flóð en oft væri meiri skriðþungi í
þeinr og þau löguðu sig eftir lands-
laginu. Þurru flóðin færu hraðar,
en landslag hefði minni áhrif á
rennsli þeirra. Að hans mati hefði
hraðinn á þessu flóði verið um 50
metrar á sekúndu.
Aðspurður hvort hægt væri að
koma við einhveijum viðvörunum
við þessar aðstæður sagði hann að
ýmislegt væri hægt að gera. Hægt
væri að fylgjast með snjóalögum
og fylgjast með þeirri uppsöfnun
sem ætti sér stað. Þeg-
ar þetta gerðist jafn-
hratt og í þessu tilviki
yrði að fara eftir veð-
urspá og öðru. Hins
vegar hefði þetta flóð
farið út fyrir skilgreind
hættusvæði og því hefði
ekki komið til að tæma
þau hús sem urðu fyrir
flóðinu. Aðeins lítill
hluti þessara húsa hefði
verið innan marka skil-
greinds hættusvæðis.
Magnús sagði að
taka yrði mörk allra
hættusvæða til endur-
skoðunar, annars vegar
í ljósi þessa flóðs og
flóðsins sem féll úr Traðargili í des-
ember, auk flóðsins sem hefði fallið
í Tungudal við ísafjörð í fyrra. Öll
þessi flóð hefðu farið út fyrir mörk
skilgreindra hættusvæða. Hins veg-
ar þyrfti hvort eð er að taka hættu-
matið til endurskoðunar vegna til-
komu nýrrar reglugerðar um snjó-
flóðavarnir.
Áfram snjóflóðahætta á
Vestfjörðum
Magnús sagði að á meðan sama
veðrið héldist væri áfram snjóflóða-
hætta á Vestfjörðum. Full ástæða
væri til að fara varlega, en hættan
væri mest hlémegin, þ.e. að sunnan-
verðu. Meðan snjókoman héldi
áfram væri hætta á snjóflóðum fyr-
ir hendi og nú væri að minnsta
kosti ekki útlit fyrir að ástandið
breyttist mikið á næstunni. „Það
er full ástæða til að hafa allan vara
á,“ sagði Magnús að lokum.
Magnús Már
Magnússon
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Fimmtán hús undir flóðið
HÚSIN efst í Súðavík hurfu öll undir snjóflóðið. Á í flóðið. Utar í Súðavík fór snjóflóðið yfir húsin að
myndinni má sjá, frá vinstri, Túngötu 2, 4, 6, 8 og Nesvegi 1, 3 og 7. Loks skemmdi siyoflóðið svo hús-
10, en að auki skemmdist húsið númer 12. Fyrir ið að Njarðargötu 10, sem stóð niðri við höfnina.
neðan götuna hurfu einnig húsin númer 1, 3, 5, 7 og 9 í gærkvöldi var sjö manns enn saknað.
Yfir 600 farist í snjóflóðum
YFIR 600 manns hafa farist í
snjóflóðum hér á landi og um
130 frá því um aldamót. Mannsk-
æðustu snjóflóðin hér á landi
urðu árin 1885, 1910, 1919, 1974
og 1983.
Mannskæðasta snjóflóð sem
vitað er um hér á landi varð
þegar tuttugu og fjórir fórust í
snjóflóði á Seyðisfirði 10. febr-
úar 1885. Á þriðja tug manna
fórst í snjóflóðum í Hnífsdal og
Skálavík veturinn 1910. Níu
árum síðar týndu átján manns
lífi í fjórum snjóflóðum í ná-
grenni Siglufjarðar.
Neskaupstaður
Tólf fórust í snjóflóðum í Nes-
kaupstað 20. desember árið
1974. Flóðin voru tíu talsins og
ollu tvö þeirra tjóni.
Fyrra flóðið, Innra flóðið, féll
úr svokölluðum Bræðslugjám,
gilskorum þrem ofan við bæinn.
Síðara flóðið féll örlítið utar, nær
byggð í bænum, og kom úr svo-
kölluðu Miðstrandarskarði þar
sem fjallið er nokkuð lægra.
Upptökin voru í nálægt 700 m
hæð yfir sjó og á um 350 m breiðu
svæði. íbúðarhús og fyrirtæki
eyðilögðust í flóðunum. Einn
bjargaðist eftir að hafa hafa ver-
ið grafin í tuttugu tima í þröngri
síldarþró.
Patreksfjörður
Hinn 22. janúar árið 1983 fór-
ust fjórir í tveimur snjóflóðum á
Patreksfirði. Fyrra flóðið var um
65 metra breitt þar sem það skall
á byggðina. Flóðið eirði nánast
engu sem á vegi þess varð og
rann alla leið út í sjó. Flóðið kom
úr Geirseyrargili og um tveimur
tímum síðar fylgdi annað flóð
úr Litladal og rann eftir farvegi
Litladalsár allt til sjávar. Flóðin
voru mjög vatni blandin enda
asahláka og úrhelli.
Isafjörður
Einn maður fórst í snjóflóði í
Tungudal við Isafjörð í apríl í
fyrra. Um 40 sumarbústaðir
skemmdust, skóglendi sópaðist
burt og skíðalyftur og önnur
mannvirki skíðamanna skemmd-
ust.
Snjóflóð féll á svipuðum slóðum 1983
en staðnæmdist í útjaðri bæjarins
Mannskaðar ekki
orðið áður í snjó-
flóðum á Súðavík
NOKKUR dæmi eru um að snjóflóð hafi fallið úr fjallinu fyrir ofan
Súðavík og þar í grennd á síðustu áratugum, þó þau hafi ekki
verið mannskæð til þessa. Snemma í janúar árið 1983 féll snjóflóð
úr fjallinu fyrir ofan bæinn á svipuðum stað og nú. Það snjóflóð
tók með sér Ijárhús, en flóðið staðnæmdist í útjaðri bæjarins.
Nýjasta dæmið um snjóflóð á þess-
um slóðum er aðeins tæplega mán-
aðargamalt en sunnudaginn 18. des-
ember síðastliðinn féll snjóflóð á
bæinn Saura í útjaðri Súðavíkur.
íbúinn Karl Georg Guðmundsson,
76 ára gamall, komst lífs af, en var
orðinn mjög kaldur þegar hann
fannst. íbúðarhúsið á Saurum, sem
var gamalt timburhús, fór af grunn-
inum og gjöreyðilagðist. Flóðið kom
úr svonefndu Traðargili, sem er rétt
fyrir sunnan bæinn.
í bókunum Skriðuföll og snjóflóð
eftir Ólaf Jónsson, Sigurjón Rist og
Jóhannes Sigvaldason, þar sem er
að finna samantekt á snjóflóðum á
íslandi, er fyrst getið um snjóflóð á
þessum slóðum í janúarmánuði árið
1931, nánar tiltekið hinn 22. Þá féll
snjóflóð í Sauradal milli Súðavíkur
og Arnardals og braut það átta síma-
staura. Næst er getið um snjóflóð á
þessum slóðum rúmum íjörutíu árum
seinna eða 9. febrúar 1971. Þá voru
talin um það bil þrjátíu snjóflóð milli
ísafjarðar og Súðavíkur og um 70
milli ísafjarðar og Bolungai-víkur
þennan sama dag, en nokkuð al-
gengt er að snjóflóð falii á veginn
milli ísafjarðar og Súðavíkur.
Flóð úr Traðargili
í síðar hluta febrúarmánaðar 1973
féllu mörg snjóflóð úr Traðargili í
Súðavíkurhlíð, sem er fyrir sunnan
staðinn sem snjóflóðið féll nú. Þá
hafði slæmt veður geisað í hálfan
mánuð. Safnast mikil snjór í gilið í
norðaustanátt og voru komnar mikl-
ar hengjur áður en allt brast fram.
Gekk snjóflóðið lengra niður en áður
höfðu verið dæmi um, segir í blaða-
fregnum á þessum tíma, og stöðvað-
ist flóðið ekki langt fyrir ofan húsin,
þó tjón yrði ekki annað en að ein
fjárhúshlaða brotnaði.
Kindur drápust
í janúarbyijun 1983 var versta
veður á landinu, hvasst og fannkoma
og féllu þá snjóflóð viða á Vestfjörð-
um. Á Súðavík féll snjóflóð ofan
þorpsins á fjárhús og eyðilagði þau
og drapSt margt fé. Flóðið féll á
svipuðum stað og flóðið sem féll nú.
Einnig tók flóðið spennubreyti Orku-
bús Vestfjarða fyrir hluta Súðavíkur
og var þar rafmagnslaust um tíma.
Þá var fólk flutt úr húsum vegna
snjóflóðahættu. Þar sem snjóflóðið
féll er ekki vitað til að flóð hafi fall-
ið áður.
Um mánaðamótin janúar/febrúar
1990 féllu mörg snjóflóð á veginn
milli Súðavíkur og ísafjarðar úr
Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð og
lokaðist vegurinn nær daglega á tíu
daga tímabili af þessum sökum. Þá
féllu í norðanáhlaupi í nóvember
1991 mörg snjóflóð á veginn milli
ísafjarðar og Súðavíkur.