Morgunblaðið - 17.01.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 33
við þann ljóta hildarleik sem stjórn-
málamenn heyja, en aldrei hall-
mælti hann samt svo ég heyrði.
Með Ingibjörgu eignaðist hann þrjú
börn. Indriða, Ásu Maríu og Ing-
veldi. Þau hafa öll veitt þeim mikla
gleði og fjölskyldur þeirra. „Á með-
an hjörtun sofa býst sorgin heiman
að og sorgin gleymir engum.“ Ingi-
björg og Valdi urðu fyrir þeirri
miklu sorg að standa við hlið yngsta
barnsins í stríði hennar og fjöl-
skyldu hennar við illvígan sjúkdóm
sem leiddi hana til brottfarar úr
jarðlífinu. Á þessu tímabili sá ég
þann mesta dugnað og æðruleysi í
einni fjölskyldu sem ég hef kynnst
á lífsleiðinni. Þessi tími lifir í huga
mér sem fagur og göfugur því svo
voru allir samhentir um að gera
sitt besta til aðstoðar. Auðvitað var
það tengdasonurinn, Ingibjörg og
Valdi, sem báru mestan þungann á
þessum baráttutímum og hefur það
eflaust gengið nærri þreki þeirra.
Líkamsþrek Valda var minna en
við vonuðumst eftir og nú er hann
kominn til heima foreldra sinna og
dóttur.
Aftur kynntumst við göfug-
mennsku Ingibjargar á þessum erf-
iðu tímum. Ég dáist að henni og
bið Guð um að blessa hana og leiða
á þessum sáru tímamótum. Ég bið
Guð um að styrkja börn hennar,
tengdabörn, barnabörn, barna-
barnabarn og móður. Ég þakka
fyrir að hafa fengið að vera sam-
ferða fjölskyldunni allri.
Selma Júlíusdóttir.
Er við lítum um öxl
til ljúfustu daga
liðinnar ævi,
þá voru það stundir
í vinahópi
sem veittu okkur
mesta gleði.
(Nico)
Það kom mér mjög á óvart er
hringt var til mín um áttaleytið að
morgni þess níunda janúar sl. og
mér tjáð að Valdimar Indriðason
vinur minn hefði látist þá fyrir
skammri stundu á heimili sínu. Öll
vissum við að hann hafði ekki geng-
ið heill til skógar um nokkurt skeið,
en hann hafði nýlega gengist undir
alvarlega hjartaaðgerð, sem hann
virtist þó ætla að komast vel frá.
Hann var bjartsýnn og jákvæður,
er hann sagði mér að nú væri búið
að kalla hann til endurþjálfunar á
Reykjalundi 15. janúar og hlakkaði
til að takast á við það sem þar færi
fram, fullviss um að þá myndi batinn
taka stökk upp á við svo að hann
gæti tekist á við lífið eins og áður.
Fyrstu kynni okkar Valdimars
urðu haustið 1941 er við urðum
skólafélagar í Flensborgarskóla í
Hafnarfírði, en þangað hafði hann
komið til að leita sér frekari mennt-
unar, sem þá var ekki enn mögulegt
í hans heimabæ, Akranesi. Þarna
vorum við saman einn vetur og tókst
þá þegar með okkur góður kunnings-
skapur. Eftir þennan vetur skildu
leiðir og Valdimar hvarf til síns
heima til frekari undirbúnings undir
lífsstarfið, eins og ungra manna er
siður.
Næst bar fundum okkar saman
er við urðum aftur skólafélagar árið
1946 í nýjum og glæsilegum skóla
sjómannastéttarinnar, hann í Vél-
skóla íslands, en ég í Stýrimanna-
skólanum. Þarna endurnýjuðum við
fyrri kynni og eftir það vissum við
ætíð hvor af öðrum.
I byijun árs 1955 kom ég til
Akraness til að taka við skipstjórn
á nýsköpunartogaranum Akurey,
sem Bæjarútgerð Akraness hafði
fest kaup á í Reykjavík. Þar var
Valdimar þá yfírvélstjóri skipsins og
urðu með okkur fagnaðarfundir og
vinátta sem hefur þróast alla tíð síð-
an og orðið meiri og dýpri eftir því
sem árin hafa liðið.
Það var ekki ónýtt fyrir ungan
skipstjóra að hafa sér við hlið vel
menntaðan og reynsluríkan vél-
stjóra, enda tókst þá strax með okk-
ur mjög góð samvinna er haldist
hefur æ síðan.
Valdimar var mjög félagslyndur
maður, glaður og reifur á góðri
stundu og kunni vel að laða að sér
menn til góðrar samvinnu, bæði í
MINNINGAR
leik og starfi, maður með meðfædd-
an hæfíleika til mannlegra sam-
skipta.
Því miður naut ég hans ekki við
sem vélstjóra nema í rúmt ár, en
þá varð hann verksmiðjustjóri hjá
Síldar- og fískimjölsverksmiðju
Akraness og síðar framkvæmda-
stjóri þess sama fyrirtækis til ársins
1991.
Valdimar var eins og áður er sagt
mikill félagsmálamaður. Hann sat í
bæjarstjórn Akraness árin 1962-
1983, var varaþingmaður Sjálfstæð-
isflokksins í Vesturlandskjördæmi
frá 1979 ogþingmaður 1983-1987.
Hann var einnig kjörinn til ýmissa
annarra trúnaðarstarfa, enda traust-
ur, öruggur og sérlega tillögugóður
félagsmaður. Við gengum báðir ung-
ir til liðs við Oddfellowregluna og
höfum átt þar alla tíð mjög gott
samstarf, sem ekki hefur borið
skugga á í hartnær 40 ár.
Eftirlifandi eiginkona Valdimars
er elskuleg vinkona okkar Ingibjörg
Ólafsdóttir Björnssonar ritstjóra.
Þau eignuðust þijú börn, Indriða
prentsmiðjustjóra, Ásu Maríu kenn-
ara og Ingveldi bankaútibússtjóra
sem er látin.
Kæra Ingibjörg, við hjónin send-
um þér og fjölskyldunni allri okkar
innilegustu samúðarkveðjur og erum
þess fullviss að sá sem öllu ræður
mun styrkja ykkur og styðja öll um
ókomin ár.
Blessuð sé minning mæts vinar
og félaga.
Elín og Kristján Kristjánsson.
Við fráfall Valdimars Indriðason-
ar munu margir sakna vinar í stað
og verða þess áskynja, að nú er
stórt skarð fyrir skildi, þar sem
áður fór góður drengur og höfðingi
í sjón og raun. Ég veit, að hans
verður minnst af mörgum samferða-
mönnum, því að hann kom víða við
sögu til sjós og lands í heimahéraði
og víðar. Hann var borinn og barn-
fæddur Akurnesingur og óx upp á
þeim stað, sem breyttist á skömm-
um tíma úr fámennu kauptúni í fjöl-
mennan og blómlegan kaupstað. Þar
vann hann sitt ævistarf og gegndi
fjölmörgum trúnaðarstörfum, m.a.
bæjarfulltrúa og foreta bæjarstjórn-
ar.
Fundum okkar Valdimars bar
fyrst saman, þegar búið var að gera
Vesturland allt að einu kjördæmi
frá Hvalfírði í Gilsfjörð árið 1959.
Var hann þá sem jafnan í forustu-
sveit sjálfstæðismanna á Akranesi.
Það reyndist erfítt verk og vanda-
samt að ná samstöðu um val fram-
bjóðenda á lista til alþingiskosninga.
Margs konar ágreiningsefni þurfti
að leysa, svo sem raunar verða vill
enn í dag. En Valdimar var slíkur
maður, að hann hlaut að verða orð-
aður við framboð til Alþingis fyrr
eða síðar. Hann varð varaþingmaður
fyrir Vesturlandskjördæmi 1979 og
þingmaður 1983-1987. Frá þeim
árum er margs að minnast. Það var
ómetanlegt að hafa við hlið sér á
Alþingi mann, sem þekkti svo vel
til alls, er laut að sjávarútvegi og
vinnslu sjávarafurða. Og það var
mjög mikilvægt fyrir þingflokk
sjálfstæðismanna að njóta krafta
og kunnáttu Valdimars.
Sérstakar þakkir er mér ljúft og
skylt að flytja Valdimar fyrir þau
skipti, er hann kom inn á þing sem
varamaður minn. Þá stóð hann sem
klettur úr hafínu á hveiju sem gekk
og reyndist mér drengur hinn besti
og traustur samheiji í hvívetna.
Margar ferðir fórum við saman
um Vesturland á öllum tímum árs.
Þau ferðalög urðu ógleymanleg og
hjálpuðu okkur tii að kynnast betur
lífsháttum og högum fólksins, sem
hafði falið okkur að fara með um-
boð sitt á Alþingi. Eitt sinn um
hásumardag komum við að Hellnum
á Snæfellsnesi. Ferðinni var heitið
til Borgamess með viðkomu í Laug-
argerði. Matthías í Gíslabæ vildi
endilega bjóða okkur í róður. Við
slógum til, þó að tími væri naumur.
Farið var í svo sem hálftíma róður
fram undir Göltinn og komið að
landi með 27 fiska að mig minnir,
sem við veiddum á handfæri. Síðan
var ferðinni fram haldið. Þetta er
aðeins eitt lítið dæmi, sem fyllti
hugann gleði yfir því, að þrátt fyrir
allt værum við þó að reyna að vinna
eftir bestu getu fyrir lífvænlegt
byggðarlag og gott fólk með ríka
sjálfsbjargarviðleitni. Valdimar var
skemmtilegur ferðafélagi, árrisull
og ötull, og áhugasamur um sögu
lands og þjóðar og velferðarmál
vinnandi fólks. Hann átti fallegt
heimili á Akranesi, þar sem alltaf
var hægt að kveðja dyra og njóta
gestrisni og hollráða.
Að leiðarlokum kveð ég góðan
vin og_ samstarfsmann þakklátum
huga. Ég og fjölskylda mín sendum
frú Ingibjörgu og allri fjölskyldunni
innilegar samúðarkveðjiir og árnað-
aróskir á komandi tímum.
Friðjón Þórðarson.
Fleiri minningargreinar um
Valdimar Indriðason bíða birt-
ingar og munu birtast hér í
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
GUNIMAR TÓMAS JÓNSSON,
Hjarðarhaga 33,
lést á heimili sínu mánudaginn 16. janúar.
Signý Hermannsdóttir,
börn og barnabörn.
t
Sambýlismaður minn, faðir og tengdafaðir,
EINAR STEFÁN SIGURÐSSON,
Hólabraut 18,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli sunnudaginn 15. janúar.
Hulda Guðnadóttir,
Sigurður Einarsson, Birna Jóhannsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi
og langafi,
HELGI EINARSSON,
Rauðalæk 45,
lést föstudaginn 13. janúar.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Kristín Friðriksdóttir,
Björg Helgadóttir,
Oddný Helgadóttir, Kristján Sigurðsson,
Erla Helgadóttir, Haraldur Eyjólfsson
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KARL ÞORLEIFUR KRISTJÁNSSON
verkstjóri,
Seljahlíð,
(áður Hrefnugötu 7),
lést 13. janúar í Borgarspítalanum.
Útför hans verður gerð frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 20. janúar kl. 13.30.
Svava Lárusdóttir,
Ragnheiður Karlsdóttir, Örn Árnason,
Svala Karlsdóttir, Jón Þórðarson,
Hafdis Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
LOFTUR ÁMUNDASON
eldsmiður frá Sandlæk,
til heimilis á Hlíðarvegi 23,
Kópavogi,
sem lést 10. janúar, verður jarðsung-
inn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
18. janúar kl. 1 5.00.
Ágústa Björnsdóttir,
Halla Lovísa Loftsdóttir, Völundur Þ. Hermóðsson,
Páll Gunnar Loftsson, Hrönn Benónýsdóttir,
Ámundi Hjálmar Loftsson, Unnur Garðarsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengamóðir og amma,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
Norðurbraut 4,
Höfn, Hornafirði,
andaðist á heimili sínu aðfaranótt laugardagsins 14. janúar.
Útförin ferfram frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 19. janúarkl. 14.00.
Sigfús Benediktsson,
Ásþór Guðmundsson, Elín Helgadóttir,
Benedikt Sigfússon, Ólöf Gunnarsdóttir,
Guðbjörg Sigfúsdóttir, Jón Gunnsteinsson,
Ásta Sigfúsdóttir, Oddur Sveinsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk-
ar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR B. ÞORSTEINSSON
Miðvangi 137,
Hafnarfirði,
lést í Borgarspítalanum 13. janúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju
fimmtudaginn 19. janúar kl. 13.30.
Hanna Kristín Pálmarsdóttir,
Pálmar Sigurðsson, Arndis Heiða Einarsdóttir,
Gisli Sigurðsson, Jóna Guðmundsdóttir,
Rakel Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR ÁRNI
KRISTMUNDSSON,
Skipasundi 30,
lést á heimili sínu 14. janúar.
Jarðarförin verður gerð frá Áskirkju
mánudaginn 23. janúar kl. 13.30.
Fyrir mína hönd, barna og barnabarna,
Steinunn Jónsdóttir.
*
t
Systir okkar,
LILJA JÖRUNDSDÓTTIR,
sem lést á Hrafnistu 11. janúar, verður
jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn
19. janúar kl. 13.30.
Systkini hinnar iátnu.