Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
.... ' 1 " T
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJÖRN LEVÍ SIGURÐSSON
húsasmiðameistari,
Ljárskógum 25,
andaðist í Landspítalanum 14. janúar.
Sigrfður Jóhannsdóttir,
Marfa Björnsdóttir,
Jóhanna Björnsdóttir, Óskar Bergsson,
Guðbjörg H. Björnsdóttir
og börn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SMÁRI GUÐMUNDSSON
frá Hólum,
Rein, Ölfusi,
sem lést í Landspítalanum 13. janúar, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju mánudaginn 23. janúar kl. 13.30.
Guðrún ída Stanleysdóttir,
Perla Hlíf Smáradóttir,
Sigrún Lilja Smáradóttir,
Guðrún Birna Smáradóttir,
Heiðar Stanley Smárason,
Kristrún Ollý Smáradóttir,
Guðjón R. Guðjónsson,
Jón K. Guðmundsson,
Ragnar G. Ragnarsson,
Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir,
Hörður F. Bjarnason,
Guðmundur Birgir Smárason, Margrét H. Hallmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma,
MARGRÉT TÓMASDÓTTIR,
Sólvallagötu 32,
Keflavík,
andaðist á dvalarheimilinu Garðvangi 14. janúar sl.
Útförin auglýst síðar.
Sigurður Þorsteinsson,
Valgerður Sigurðardóttir, Árni Júlíusson,
Jónas Sigurðsson, Ingibjörg Ólafsdóttir,
Þórleif Sigurðardóttir
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
VIKTORÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Aðalbóli,
Vestmannaeyjum,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, 12. janúar.
Útförin fer fram frá Landakirkju, Vest-
mannaeyjum, 21. janúar
kl. 14.00.
Fyrir hönd fjölskyldna okkar,
Betsý Ágústsdóttir, Böðvar Jónsson,
Elín Agústsdóttir Sighvatur Bjarnason,
Viktoría Ágústa Ágústsdóttir, Einar Ólafsson,
Guðmundur Ágústsson.
t
Elskulegur sonur okkar,
ÞRÖSTUR ÓSKARSSON,
Skólavörðustíg 38,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn
15. janúar.
Fyrir hönd fjölskyldu okkar.
Sigríður Benjamínsdóttir,
Óskar Guðmundsson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR MAGNÚSSON
frá Reykjavík,
167 Glenwood Street,
Malden Mass., Bandaríkjunum,
lést á heimili sínu þann 12. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Joan Magnússon,
Ómar Bergþór Magnússon,
Pétur Hauksson, Halldóra Árnadóttir,
Örn Hauksson,
Erla Hauksdóttir,
Kevin Hauksson, Ragnheiður Guðjohnsen
og barnabörn.
MJÖLL BORGÞÓRA
SIG URÐARDÓTTIR
+ Mjöll Borgþóra
Sigurðardóttir
fæddist í Reykjavík
29. ágúst 1937. Hún
lést á St. Jósefssp-
italanum í Hafnar-
firði hinn 4. janúar
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Hafnarfjarðar-
kirkju 13. janúar.
VIÐ vitum það sem
misst höfum ástvini
okkar, að dauðinn er
erfiður þeim sem eftir
lifa og sárt sakna lífs-
fömnautar og móður, sem kvatt hef-
ir þessa jarðvist endanlega. Auðvitað
má segja sem svo að við fæðumst
öll með feigðaról um hálsinn. Dauðinn
er því einfaldlega sá veruleiki, sem
við vitum fyrir víst að hittir okkur
öll fyrir, fyrr eða síðar. Við vitum
að hann kemur og tekur okkur að
lokum í arm sinn og ber okkur á vit
nýrra heimkynna í ríki Drottins. Samt
er reynsla okkar flestra sú að þrátt
fyrir þessa vissu og vitneskju um
dauðann eru fá okkar fyllilega búin
undir þá staðreynd að missa að lokum
samband við elskulegan ástvin og
maka.
Mig langar að minnast minnar
kæru mágkonu með nokkrum orð-
um, en ég og mín börn eigum marg-
ar ógleymanlegar minningar um
Mjöll. Mjöll var gæfukona, átti fal-
legt heimili, þar sem gott var að
koma, indæl börn, tengdabörn og
barnabörn, sem hún unni af öllu
hjarta. Síðast en ekki síst átti hún
sinn trausta og góða eiginmann, sem
mikið hefir reynt á nú í veikindum
hennar. Kannski skiptir ekki höfuð-
máli hversu lengi við dveljum hér
heldur hitt, hvað við skiljum eftir.
Höfum við haft bætandi áhrif eða
hefur okkur mistekist?
Hún Mjöll tilheyrði
fyrri hópnum. Hún var
ein af þessum hógværu
konum sem auðvelt var
að treysta og virða og
mér er óhætt að segja
að öllum sem kynntust
henni þótti vænt um
hana. Hún var stórvel
gefin og ákaflega blíð-
lynd. Hún gumaði ekki
af neinu og var bæði
auðmjúk og lítillát þeg-
ar hana sjálfa bar á
góma.
Mjöll er nú farin á
vit feðra sinna og ég veit að hennar
bíður góð heimkoma í ríki Drottins
en við sem kveðjum þessa ágætu
öðlingskonu í dag, eigum eftir að
sakna hennar mikið sökum mann-
kosta hennar og elskulegrar nær-
veru. Eg þakka henni af öllu hjarta
þær ánægjustundir sem ég átti með
henni.
Eg vil að lokum senda eftirlifandi
ættingjum Mjallar og Ragnari, eigm-
manni hennar, samúðarkveðjur. Ég
veit að góður Guð leggur líknararm
sinn utan um Ragnar og styður hann
áfram til lífs, sem bíður hans eftir
þessa sáru en óumflýjanlegu breyt-
ingu. Guð styrki hann og börnin við
fráfall elskulegrar eiginkonu hans
og besta vinar.
Ég kveð mágkonu mína með virð-
ingu. Blessuð sé minning hennar.
Þuríður Jóhannesdóttir.
Nú er hún Mjöll amma dáin og
ekkert er lengur eins og það var. Þá
á svo margt eftir að verða öðruvísi,
því hún skipaði svo stóran sess í lífi
okkar. Hún var svo blíð og góð og
hafði svo mikinn áhuga á öllu sem
við vorum að gera. Alltaf tók hún á
t
Móðir okkar,
MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR
frá Snorrastöðum,
Hnappadalssýslu,
lést 15. þessa mánaðar.
Útförin auglýst síðar.
Börn hinnar látnu.
Sigurður K. Brynjólfsson, Unnur Einarsdóttir,
Þorbjörn Brynjólfsson,
Stefán H. Brynjólfsson, Svava Þorsteinsdóttir,
Jón Brynjólfsson, Grethe Have,
Magnús Brynjólfsson, Sigrún Karlsdóttir,
Guðmundur Brynjólfsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BRYNJÓLFUR ÞORBJARNARSON
vélsmfðameistari
frá Geitaskarði,
Mánastíg 2, Hafnarfirði,
er lést á heimili sínu 14. janúar sl., verð-
ur jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 24. janúar kl. 13.30.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
LOVÍSA JÓNSDÓTTIR,
Merkigerði 2,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 18. janúar kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er
bent á Sjúkrahús Akraness og dvalar-
heimilið Höfða.
Axel Sveinbjörnsson,
Jóna Alla Axelsdóttir,
Gunnur Axelsdóttir, Steinþór Þorsteinsson,
Lovisa Axelsdóttir, Ægir Magnússon,
Axel Gústafsson, Kristín Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
móti okkur með bros á vör og sagði:
„Ert þetta þú, fallegi strákurinn
minn?“ eða „duglega stelpan mín?“
Hún tók eftir öllu, hrósaði okkur í
hástert og hvatti okkur til dáða. Hún
hafði einstakt lag á að láta okkur
finnast sérhvert okkar vera dálítið
„númer“. Ef eitthvert okkar veiktist,
var Mjöll amma jafnóðum komin,
búin að fara í bakaríið eða kaupa ís
til að hressa upp á sjúklingana sína.
Mjöll amma og Raggi afi tóku
okkur oft með í sumarbústaðinn
sinn, þar sem okkur þótti öllum svo
gott að vera. Amma spilaði við okk-
ur og las sögur, tíndi með okkur
blóm og jurtir og kenndi okkur að
þekkja tegundirnar og Raggi afi fór
með okkur út á vatn á bátnum og
hjálpaði okkur að veiða.
Við vitum að við erum heppin að
hafa átt svona góða ömmu, en samt
fínnst okkur ósanngjarnt að hún
hafi þurft að deyja svona fljótt. Við
hefðum viljað hafa hana hjá okkur
svo miklu lengur.
Um leið og við þökkum þér fyrir
allt, amma mín, biðjum við góðan
Guð að vera með Ragga afa á þess-
ari erfiðu stundu.
Elsku amma, við söknum þín sárt.
María Mjöll, Hanna Borg,
Jón Ragnar og Friðrik Dór.
Elsku amma Mjöil. Það er erfitt
að kveðja og erfitt að skilja af hverju
góður Guð tók þig frá mér svo fljótt.
Ég skildi ekki alveg hvert leiðin þín
lá. Þakka þér, amma mín, allar góðu
stundirnar sem þú gafst mér. Ég
vildi óska að þær hefðu orðið svo
miklu, miklu fleiri. Hjá þér var ég
duglegasti strákurinn og besti og
þú varst fallegasta og besta amman.
Ég vona, elsku amma mín, að þér
líði betur núna. Ég trúi að þú hvílir
á glitrandi stjörnu með Borgu ömmu
og Sigga afa þér við hlið. Og alltaf
þegar ég sé svo skínandi stjörnu,
þá ætla ég, amma, að senda þér
koss og hugsa til þín.
Þakka þér, elsku amma mín, fyrir
faðmlagið hlýja og brosið þitt blíða.
Þakka þér fyrir hjartað þitt stóra,
sem af örlæti veitti og umvafði mig.
Guð blessi Ragga afa og veiti
honum styrk.
Viktor Aron.
Okkur langar með örfáum orðum
að minnast frænku okkar, Mjallar
B. Sigurðardóttur, sem er látin eftir
löng og ströng veikindi.
Sterkustu minningar okkar eru
þegar Mjöll sem lítil stúlka dvaldi á
sumrin hjá ömmu okkar og
langömmu sinni, Elínborgu Þor-
bjarnardóttur á Gufuskálum, en hún
var fyrsta langömmubarn ömmu
okkar. í hjörtum okkar geymum við
mynd af ljúfu og glaðværu barni.
Frá henni stafaði mikil hlýja og þau
kærleiksbönd sem bundin voru þá
slitnuðu aldrei þótt árin liðu. Eftir
að amma okkar hætti búskap dvaldi
Mjöll á heimilum foreldra okkar á
Hellissandi sitthvort sumarið.
Við erum þakklátar fyrir ótal
ánægjulegar samverustundir sem
við áttum á heimili og sumarbústað
þeirra hjóna, Mjallar og Ragnars
Jóhannessonar.
Mjöll var mjög greind kona, hag-
mælt og rithönd hennar var nánast
listaverk. Fágun og yfirlætisleysi var
það sem ávallt einkenndi fas hennar.
Einstök var sú ferð sem við frænk-
urnar fórum þegar bautasteinn var
afhjúpaður af ömmu okkar og
langömmu hennar á Gufuskálum.
Þau hlýju og fallegu orð ásamt frum-
sömdu ljóði sem hún flutti við það
tækifæri eru öllum sem á hlýddu
ógleymanleg.
Innilegar samúðarkveðjur sendum
við eiginmanni hennar Ragnari,
börnum og öðrum aðstandendum.
í minningu okkar mun Mjöll ávallt
vera sem dýrmæt perla og því finnst
okkur þessi erindi úr ljóði Tómasar
Guðmundssonar lýsa hug okkar til
hennar mjög vel.
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,