Morgunblaðið - 15.02.1995, Side 1
64 SÍÐUR B/C/D
38. TBL. 83. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ofbeldisgenið
Lundúnum. The Daily Telegraph.
VISINDAMENN geta nú rann-
sakað hvort fóstur eru með gen
sem tengist árásarhneigð. Slíkar
genarannsóknir eru nú möguleg-
ar eftir að hollenskir vísindamenn
rannsökuðu karlmenn úr sömu
fjölskyldu í Hollandi sem voru
ofbeldishneigðir og með ýmsa
skapgerðarbresti.
Mennirnir voru með gallað gen
vegna svokallaðs monoamine
oxidase A, ensíms sem stjórnar
magni boðefna eins og serótón-
Ný skoðanakönnun
Jospin
sækir á
París. Reuter.
LIONEL Jospin, frambjóðandi
franska sósíalistaflokksins við for-
setakosningarnar í vQr, nýtur svip-
aðs fylgis og Edouard Balladur for-
sætisráðherra, samkvæmt skoðana-
könnun sem birt var í gær. Ballad-
ur hefur hins vegar nokkru meira
fylgi í tveim öðrum könnunum.
Samkvæmt könnun Ifop-stofn-
unarinnar fyrir vikuritið l’Express
fengi Jospin 23% atkvæða í fyrri
umferð forsetakosninganna, sem
fram fer 23. apríl, en Balladur 22%
og Jacques Chirac, borgarstjóri í
París, 17%.
Jospin sagði í gær, að hann
myndi stöðva einkavæðingaráform
stjómar Balladurs og efna til þjóð-
aratkvæðis um að stytta kjörtíma-
bil Frakklandsforseta úr sjö árum
í fimm, næði hann kjöri.
Hæðst að Balladur
Franskir leiðarahöfundar hæddu
stefnuskrá þá sem Balladur birti á
mánudag, sögðu hana einke'nnast
af varfæmislegum umbótum en
skorta nýja hrífandi framtíðarsýn.
Fjármálablaðið Les Echos sagði að
þær úrlausnir sem hann boðaði
gegn atvinnuleysi líktust miklu
fremur bragðlausum kokkteil en
kröftugum töfradrykk.
------» ♦ ♦
Kim Jong-il
af himn-
um ofan
Seoul. Reuter.
ÍBÚAR Norður-Kóreu tigna vænt-
anlegan leiðtoga kommúnistaríkis-
ins, Kim Jong-il, og telja að hann
sé ættaður af himnum, ef marka
má ijölmiðla landsins. Leiðtogaefn-
ið verður 53 ára á morgun.
Sagt var að veðurfræðingar og
íbúar í grennd við fjall, sem Kim
er sagður hafa fæðst á, hafi séð
ótrúlega ljósadýrð þar á sunnudag,
sólin og síðar tunglið hefðu verið
umlukin geislandi litabaugum.
Himnarnir hefðu virst fagna af-
mæli „Leiðtogans kæra“ sem væri
greinilega „mestur allra mikil-
menna sem komið hafa af himnum
ofan“.
íns, noradrenalíns og dópamíns í
líkamanum.
„Hegðunin ræðst af nokkrum
öðrum þáttum, þar af nokkrum
sem markast algjörlega af um-
hverfínu,“ sögðu vísindamennim-
ir.
Fæddur morðingi?
Niðurstaðan kann brátt að
hafa áhrif á bandaríska dóms-
kerfíð. Stephen Mobley, sem hef-
ur verið dæmdur til dauða fyrir
LENDINGARHJÓL, sem vegur
um 250 kílógrömm, féll af Boeing
757 þotu leiguflugfélagsins Diam-
ond International er hún var í
aðflugi við Strassborg í Frakk-
landi í gær og hrapaði niður um
þak á matvælaverksmiðju
skammt frá borginni. Hjólið eyði-
fundíð
morð, hefur áfrýjað dómnum á
þeirri forsendu að hann sé „fædd-
ur morðingi“ vegna gena sinna.
Lögfræðingar Mobleys vísuðu
til hollensku rannsóknarinnar og
óskuðu eftir heimild til að leggja
fram gögn sem sýndu að glæpur-
inn kynni að hafa verið framinn
vegna galla í boðefnum heilans
og því bæri að milda dóminn.
Beiðninni var hafnað en málinu
var áfrýjað til hæstaréttar
Bandarílqanna.
lagði lager af tilbúnum réttum.
Engan sakaði og þotan, sem var
á leið frá Le Bourget-flugvellin-
um í París, lenti heilu og höldnu
þótt þjólið vantaði. Meðal farþeg-
anna var breski auðkýfingurinn
og stjórnmálamaðurinn sir James
Goldsmith.
Minnast
fjöldamorðs
ÍSRAELSKIR lögreglumenn vísa
ungum Palestínumanni á brott frá
aðaldyrum mosku í Hebron þar
sem gyðingur myrti 23 múslima
fyrir ári. ísraelskir landnemar og
bandarískir ferðamenn lögðu í
gær blóm á leiði tilræðismannsins,
en öryggisverðir skutu hann eftir
ódæðið. Sumir gyðingar trúa því
að þeir fái bót meina sinna, snerti
þeir legsteininn. ísraelskir her-
menn skutu í gær Palestinumann
og særðu sjö sem tóku þátt í mót-
mælum á Vesturbakkanum er
brutust út þegar múslimar minnt-
ust fórnariambanna.
Rússnesk stjórnvöld mótmæltu
þegar á föstudag umræðum á eist-
neska þinginu um málið. I samþykkt
eistneska þingsins á mánudag var
sagt að viðurkenningin yrði að veru-
leika „eins fljótt og hægt er þegar
ástandið í alþjóðamálum gerir það
kleift".
Eistland hlaut sjálfstæði 1991 við
hrun Sovétríkjanna. Síðustu rúss-
nesku hermennirnir yfirgáfu loks
landið í ágúst sl. eftir langt þref þar
sem Rússar vísuðu til þess að þeir
teldu að traðkað væri á mannréttind-
um rússneska minnihlutans, sem er
um 30% íbúa Eistlands.
Leiðtogi Tsjetsjena, Dzhokar
Dúdajev, á eistneska konu og var
háttsettur yfirmaður í sovéska setul-
iðinu í eistnesku borginni Tartu þeg-
ar landsmenn háðu sjálfstæðisbar-
áttu sína gegn Moskvuvaldinu. Hann
Atökin í Afganistan
Takastúd-
entar völd-
in í Kabúl?
Islamabad. Reuter.
TALIÐ er, að herská stúdentasam-
tök í Afganistan muni snúast gegn
stjóminni í Kabúl eftir að hafa rek-
ið helsta stjómarandstæðinginn,
Gulbuddin Hekmatyar, og sveitir
hans á flótta.
Erlendir stjómarerindrekar spá
því, að Taleban-stúdentahreyfíngin
muni ógna Afganistanstjórn með ein-
um eða öðmm hætti en henni hefur
tekist að tjúfa þráteflið, sem hefur
verið milli stjórnarinnar og stjómar-
andstöðunnar. í fyrrinótt náði hún á
sitt vald aðalstöðvum Hekmatyars
og miklu af hergögnum en hann og
menn hans flýðu til bæjarins Sarobi,
60 km austur af Kabúl.
Blóðug valdabarátta
Taleban-hreyfingin komst fyrst í
fréttirnar þegar hún náði borginni
Kandahar í nóvember sl. og síðan
hefur hún dregið til sín fólk, sem
er orðið þreytt á blóðugri valdabar-
áttunni í landinu eftir að Rússar
voru hraktir á brott 1989. Flestir
telja, að valdadagar Burhanuddins
Rabbinis, forseta í Kabúl, séu brátt
liðnir. Ekki er vitað hvort yfírmaður
hersins, Ahmad Shah Masoud, muni
sækjast eftir æðstu völdum í landinu
eða láta sér nægja að ráða ríkjum
i sínu héraði í norðausturhluta
landsins.
sýndi með ýmsum hætti stuðning
sinn við málstað Eistlendinga og
uppskar hylli þeirra fyrir vikið.
Ekkert ríki hefur enn viðurkennt
sjálfstæði Tsjetsjena. Múslimaríki í
grennd við héraðið, þ. á m. Tyrkland,
hafa að vísu fordæmt framferði
Rússa en ekki gengið svo langt í
stuðningi við trúbræður sína að
styðja sjálfstæðisbaráttu þeirra.
Áhyggjur af blóðbaði
Er Bill Clinton Bandaríkjaforseti
ræddi við Borís Jeltsín, starfsbróður
sinn í Moskvu, í síma á mánudag
ítrekaði Clinton þá stefnu stjórnvalda
í Washington að Tsjetsjníja væri
rússneskt hérað. Á hinn bóginn lagði
hann áherslu á að þjóðir heims hefðu
áhyggjur af blóðbaðinu í uppreisnar-
héraðinu, binda yrði enda á það og
helja friðarviðræður.
Keuter
Reuter
Þotuhjól niður um þak
Stuðningur Eistlendinga við Tsjetsjníju
Sakaðir um
afskipti af
máluin Rússa
Moskvu. Reuter.
RÚSSAR sökuðu í gær þing Eistlendinga um að skipta sér af rússneskum
innanríkismálum með því að ákveða að viðurkenna sjálfstæði Kákasushér-
aðsins Tsjetsjníju. „Þessi ákvörðun er ögrun sem mun áreiðanlega hafa
mjög slæm áhrif á samskipti ríkjanna,“ sagði Grígoríj Karasín, talsmaður
utanríkisráðuneytisins í Moskvu, en útskýrði mál sitt ekki frekar.