Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ RAÐAUGIYSINGAR Leikskólakennarar og aðstoðarfólk óskast Byggðasamlagið Árbær auglýsir hér með lausar stöður leikskólastjóra, leikskólakenn- ara og aðstoðarfólks við leikskólann Árborg á Selfossi. Um er að ræða V2 dags leikskóla fyrir 48 börn á aldrinum 2-6 ára. Leikskólinn mun hefja rekstur innan tíðar og er til húsa á Kirkjuvegi 3, Selfossi, í nýuppgerðu húsnæði. Nánari upplýsingar veitir undirrituð í síma 98-21408. Umsóknir skulu berast til undirritaðrar í síðasta lagi þann 23. febrúar 1995. Félagsmálastjórinn á Selfossi, Ólöf Thorarensen. * Fjármál/bókhald - fulltrúi Fyrirtæki á sviði hljómflutningstækja og tölvubúnaðar í Reykjavík óskar eftir starfs- manni til að sinna bókhaldi og innflutnings- málum. Viðkomandi þarf að hafa viðskiptafræði- menntun eða hliðstæða menntun og reynslu í innflutningsmálum, tollskýrslugerð, verðút- reikningum og bókhaldi. Um er að ræða lifandi starf í fjármáladeild fyrirtækisins þar sem hlutirnir ganga hratt fyrir sig og krafist er árangurs í starfi. í umsóknum þurfa að koma fram nákvæmar upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðar- mál og öllum umsóknum verður svarað. Þeim, er telja sig uppfylla þær kröfur sem að ofan greinir, er boðið að senda inn um- sóknir til KPMG Sinnu hf. fyrir 21. febrúar 1995. nHHsinna hf. REKSTRAR- OG STJÓRNUNARRÁÐGJÖF Bæjarhrauni 12 Sími 91-653335 220 Hafnarfjörður Telefax 91-651212 KPMG Sinna hf veitir ráðgjöf á ýmsum sviðum stjórnunar- og starfsmannamála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu. KPMG Sinna hf er í samstarfi við KPMG Management Consulting. Vélfræðingar Okkur vantar mann með þekkingu á kælikerf- um til að annast viðgerðir, uppsetningu og eftirlit kælikerfa hjá viðskiptavinum okkar. Starfið er sjálfstætt og felur í sér að sjá um kælideild okkar. Óskað er upplýsinga um námsárangur og fyrri störf. Góð vinnuaðstaða. Framtíðarstarf. Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra, sími 94-3092. Póllinn hf., Aðalstræti 9, ísafirði. Norræna listamiðstöðin Dalsásen Nordiskt Konstnárcentrum Dalsásen (l\IKD) NKD er stofnun, sem veriö er að koma á fót í mjög fögru umhverfi í Fjaler f Sogn- og Firðafylki í Noregi, og er áformað að taka hana í notkun í haust. Norraena ráðherranefndin veitirfé til reksturs NKD á norrænu fjárlögunum. Norræna myndlistar- og listiðnaðarnefndin (NKKK), sem f eiga sæti 10 manns, tveir frá hverju Norðurlandanna, fer með stjórn miðstöðvarinnar. NKD mun reka gistivinnustofur (5 vinnustofur + 5 íbúðir) og að auki verða þar trévinnu- og grafík- verkstæði. NKD er hluti af norræna gistivinnustofukerfinu, sem stjórnað er af Nordiskt Konstcentrum f Helsingfors. Við leitum að forstjóra fyrir NKD Fyrstu árin eru mikilvæg. Þú átt að byggja upp starf og ímynd NKD frá byrjun. Starf- semi NKD í framtíðinni og hlutverk í norrænu myndlistarlífi mun að miklu leyti ráðast af framlagi þínu. Þú átt að vera vel að þér í norrænni myndlist og hönnun (listiðnaði, hönnun, arkitektúr) og hafa staðfesta reynslu af stjórnun. Kunnátta í einu Norðurlandamál- anna, dönsku, norsku eða sænsku, svo og ensku, er nauðsynleg. Starfið er s.k. norrænt starf, sem ráðið er í til fjögurra ára með möguleika á ákveðinni framlengingu. Laun eru samkvæmt samningum. Embættis- maður, sem ekki er norskur, fær styrk til að koma sér fyrir, staðaruppbót, sem skattlögð er samkvæmt reglum aðseturslands, ásamt flutningsstyrk. Embættisbústaður fylgir. Nánari upplýsingar veitir formaður NKKK, Stefán Snæbjörnsson, Reykjavík, sími 91- 609500 og ritari NKKK, Berndt Arell, settur forstjóri Nordiskt Konstcentrum í Helsinfors, sími 358-0-668143. Starfsbyrjun samkvæmt samkomulagi. Umsókn skal hafa borist NKKK/Nordiskt Konstcentrum í síðasta lagi 12.03.1995. Nordisk Konst- och Konstindustrikommitté Nordisk Konstcentrum, Sveaborg B 28, FIN-00190 Helsingfors. Eldri borgarar - þorrablót í Sigtúni 3 föstudaginn 17. febrúar kl. 19.30. • Glæsilegt þorrahlaðborð. • Danssýning. • Gamanmál: Þjóðarsálin. • Tvísöngur: Sigríður og Ingibjörg Hannes- dætur.. • Dans: Tíglarnir leika. „Siffi" leikur af fingr- um fram á nikkuna. Miða- og borðapantanir í síma 624822 eða 19824. Ath. að selt verður inn á dansleikinn eftir kl. 22.30 ef húsrúm leyfir KIPULAG RÍKISINS Bræðratunguvegur nr. 359 yfir Hvítá, milli Hrunamannavegar og Biskupstungnabrautar Mat á umhverfisáhrifum Niðurstöður frumathugunar og úrskurður skipulagsstjóra ríkisins Samkvæmt lögum nr. 63/1993 Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað sam- kvæmt 8. grein laga nr. 63/1993 um mat á umhverfisáhrifum. Gögn þau, sem fram voru lögð af hálfu framkvæmdaraðila við tilkynn- ingu, ásamt umsögnum og athugasemd, hafa verið yfirfarin. Fallist er á framkvæmdina eins og hún er kynnt í frummatsskýrslu Vegagerð- arinnar með þeim skilyrðum að: 1. Endanleg staðsetning og stærð efnistöku- staða verði ákveðin að höfðu samráði við Náttúruverndarráð. 2. Kannað verði hvort vatnsból er að finna á áhrifasvæði framkvæmdarinnar. 3. Fornleifar verði kannaðar á því svæði, sem framkvæmd mun raska (þar er átt við bæði vegarstæði og efnistökustaði, sem ákveðnir verða í samráði við Náttúruvernd- arráð) og niðurstöður leiði í Ijós að ekki sé að finna fornleifar í fyrirhuguðu vegarstæði eða á fyrirhuguðum efnistökustöðum. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en ofan- greindum skilyrðum hefur verið fullnægt og gerð hefur verið grein fyrir niðurstöðum ofan- greindra kannana til embættis skipulagsstjóra ríkisins. Úrskurðurinn í heild sinni fæst hjá embætti skipulagsstjóra ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn má kæra til umhverfisráðherra og rennur kærufrestur út þann 14. mars 1995. Skipulagsstjóri ríkisins. MOougl) /singor Forstjóri óskast til að sjá um 2-3 mjög arðsöm tímaritog sjá um dreifingu. Hann verður að vera vanur tölvum, hafa góða stjórnunarhæfileika, vera skapandi og hafa mjög góð meðmæli. Góð laun. Björgvin Ómar Ólafsson, Váglandsgatan 71, 50246 Borás, Svíþjóð. Jógastöðin Heimsljós Kripalujóga. Byrjendanámskeið hefjast: Mánudaginn 20. febrúar kl. 16.30. Leiðbeinandi: Kristín Norland. Mánudaginn 20. febrúar kl. 20.00. Leiðbeinandí Helga Mogensen. Innifalinn er aðgangur að opnum jógatímum, hugleiðslu og mjúku jóga. Jógastöðin Heimsljós, Skeifunni 19, 2. hæð, sími 889181, einnig símsvari . I.O.O.F. 7 = 176 2158Vz =BRK. O HELGAFELL 5995021519 VI 2 - Frl. I.O.O.F. 9 = 1762158V2 =. □GLITNIR 5995021519 II 4 FRL. Fjallið mannræktar- stöð, Sogavegi 108, 2. hæð, sími 882722, Leiðsögn í sjálfsrækt m.a. unnið með tilfinningalíka- mann í kvöld frá kl. 20.15-22.30. Aðgangseyrir kr. 1.000. Meðlimir Fjallsins kr. 500. Leiðbeinandi Jón Jóhann. ÉSAMBAND ÍSLENZKRA * KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl. 20.30 ( Kristniboðssalnum. Ræðumenn: Andreas Johansson og Leifur Sigurðsson. Allir velkomnir. Sálarrannsóknafélagið í Hafnarfirði heldur fund í „Gúttó" á morg- un, fimmtudaginn 16. febrúar, kl. 20.30. Dagskrá: Sigurður Ingi Jónsson frá Bahá'ía-samtökunum í Hafn- arfirði flytur fyrirlestur sem hann nefnir „Lífið eftir dauðann". Fastir liðir að venju. Öllum er heimill ókeypis aðgangur. Stjórnin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12 ára krakka. Almenn samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Barbro Wallin frá Svíþjóð. Lofgjörð, kennsla og fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 68253^ Helgarferð í Tindfjöll 17.-19. febrúar. Ath. takmarkaður fjöldi. Gist I skála Aplaklúbbsins. Frábært skíðagönguland. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, Mörkinni 6. Ferðafélag fslands. Hörgshlíð 12 Bænastund I kvöld kl. 20.00. REGLA MU5TERISRIDDARA Aðalstöðvar KFUM og KFUK, Holtavegi 28 Kristið líf og vitnisburður [ kvöld hefst siðasta yfirferð á námskeiðinu Kristið líf og vitnis- burður. Kennt verður í kvöld og næstu þrjú miðvikudagskvöld. Kennslan fer fram í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg og hefst kl. 20.00 öll kvöldin. Námskeiðið er öllum opið. Ekkert námskeiðsgjald. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 SÍMI 682533 Kvöldvaka F.í. Inndalir—Austurlands Fimmtudagskvöldið 16. febrúar nk. verður kvöldvaka í Breiðfirð- ingabúð, Faxafeni 14, og hefst stundvíslega kl. 20.30. Ágúst Guðmundsson, jarðfræðingur, mun fjalla um Inndali-Austur- lands (Jökuldal og Fljótsdal). Lýsir hann landslagi og jarð- fræðilegri uppbyggingu svæðis- ins inn að Snæfelli, meðfram Jökulsá á Brú og austur á Hraun að Geldingafelli (hluti gönguleið- arinnar: Snæfell-Lónsöræfi). Fróðlegt og skemmtilegt erindi með myndasýningu. I lokin verð- ur myndagetraun. Kaffi og með- læti í hléi. Aðgangur kr. 500. Ferðafélag fslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.