Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 35 . FRÉTTIR Aðalfundur Heimilis og skóla Komið verði í veg fyr ir kennaraverkfall NEMENDUR 7. bekkjar Ölduselsskóla. Söfnuðu fyrir skólasystur sína AÐALFUNDUR Heimilis og skóla var haldinn í Litlubrekku fimmtu- daginn 9. febrúar sl. Þar urðu að vonum miklar umræður um yfir- vofandi verkfall kennara og voru eftirfarandi ályktanir samþykktar samhljóða: Aðalfundur Heimils og skóla, haldinn 9. febrúar 1995, krefst þess að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir yfirvofandi verkfall kenn- ara. Aðalfundur Heimilis og skóla Málþing um launamyndun og kynbundin launamun í TILEFNI af nýútkominni skýrslu um launamyndun og kynbundin launamun efnir jafnréttis- og fjöl- skyldunefnd Sjálfstæðisflokksins til málþings sem ber yfirskriftina: Vanmat - Ofmat! í Valhöll fimmtu- daginn 16. febrúar kl. 17-19. Leitast er við að svara spurning- unum: Hvers vegna eru konur með 70% af launum karla, hvers vegna eykst launamunur með aukinni menntun, hvað veldur launamun kynjanna og hveiju er hægt að breyta? Ræðumenn verða: Friðrik Soph- usson, fjármálaráðherra, Hrafnhild- ur Stefánsdóttir, lögfræðingur VSÍ, Bryndís Hlöðversdóttir, lögfræðing- ur ASÍ, Hrund Hafsteinsdóttir, full- trúi sjálfstæðra kvenna og Andri Þór Guðmundson, fjármálastjóri Lýsis. Patrice Noli á íslandi I PATRICE Noli, vökumiðill og leiðbeinandi, er væntanleg til ís- lands til starfa í febrúar. Þetta er í sjötta skipti sem Patrice heimsæk- . ir ísland. í fréttatilkynn- ingu segir m.a.: „Patrice Noli hef- ur, auk þess að vera sjálfstætt starf- andi, verið einn aðal aðstoðarmaður Sanaya Roman og Duane Parker, en íslendingum eru að góðu kunnar bækur þeirra: Lifðu í gleði, Auktu styrk þinn og Þjálfun miðilshæfi- skorar á foreldra og foreldrafélög að gangast fyrir fundum í hverri bekkjardeild til að ræða yfirvof- andi verkfall kennara með hags- muni og öryggi nemenda að leiðar- ljósi. Aðalfundur Heimilis og skóla beinir þeim tilmælum til forsvars- manna sveitarfélaga að þeir leiti leiða til að tryggja öryggi yngstu nemendanna ef til kennaraverk- falls kemur, t.d. með því að skipu- leggja gæslu í samvinnu við for- eldra. leika, auk þess sem enska útgáfan af bókinni „Creating Money“ hefur notið gífurlegra vinsælda. Frá fræðsluöflun þeirra er meðal annars komin aðferðin Að vekja ljóslíka- mann. Patrice vinnur mikið í anda þeirra aðferða sem þau kenna og hafa gefið gífurlegum fjölda fólks um allan heim hvatningu til aukins þroska." Patrice heldur fimm námskeið á meðan hún dvelur á íslandi. Laug- ardaginn 18. febrúar er það Sköpun allsnægta á öllum sviðum, sunnu- daginn 19. febrúar Að vera eigið sálarljós, þriðjudagskvöldið 21. febrúar Konur, kynlíf og völd, fimmtudagskvöldið 23. febrúar Karlar, kynlíf og völd og helgina 25. og 26. febrúar heldur hún nám- skeið um Samskipti fólks. Einnig býður hún upp á einkatíma en allar nánari upplýsingar um námskeið svo og skráning á þau og í einka- tíma fer fram í versluninni Betra líf. Patrice Noli mun starfa á Akur- eyri 27. febrúar til 6. mars. 6 ára börn við messu í Kálfa- tjarnarkirkju SÓKNARNEFND Kálfatjarnar- sóknar bauð öllum börnum í sókn- inni, sem verða 6 ára á árinu, að vera sérstakir gestir við messu í Kálfatjarnarkirkju fyrir nokkru. Öllum börnum fædd árið 1989 og foreldrum þeirra var sent bréf og þeim boðið til messu í kirkjunni. Að sögn Sesselju Sigurðardóttur, formanns sóknarnefndar, var börn- unum gefin bók sem er eins og útrétt hönd kirkjunnar til barnanna og foreldra þeirra og er hugsuð sem stuðningur við trúarlegt uppeldi. Hún sagði að börnunum hefði verið boðið í kirkjuna og bókin gefin með táknrænni athöfn og í næstu messu í kirkjunni verður þeim sem ekki komust nú afhent bókin. NEMENDUR 7. bekkjar Öldu- selsskóla stóðu fyrir viðamikilli söfnun til styrktar fyrrverandi skólasystur sinni, Hjördísi Kjart- ansdóttur, en hún hefur átt við mikla vanheilsu að stríða undan- farin ár og gekk hún nýverið undir hjartaígræðslu í Gauta- borg. Skólasystkinin vildu sýna hug sinn til hennar og fjölskyldunnar og með sameiginlegu átaki stilltu Islensk tón- listarvika á Tveimur vinum Á TVEIMUR vinum verður haldin íslensk tónlistarvika og hefst hún í kvöld, miðvikudaginn 15. febrúar, með tónleikum hljómsveitanna Þusl og Pile frá Keflavík ásamt Reykja- víkurhljómsveitinni Kusk. Hljómsveitin Þusl leikur rokk í anda Þursaflokksins sáluga en Pile er aftur á móti rokkhljómsveit í anda Pearl Jam og Soundgarden. Hljómsveitin Kusk leikur rokk und- ir áhrifum frá fýrstu plötum hljóm- veitarinnar Cult. Tónleikarnir hefjast kl. 22.30 og standa til kl. 1. Vitni vantar VITNI vantar að árekstri sem varð miðvikudaginn 8. febrúar sl. um kl. 16.20 á gatnamótum Bæjarháls og Bitruháls. Mitsubishi-fólksbíl, DU 434, var ekið austur Bæjarháís og í beygju- rein inn á gatnamótin við Bitruháls þau saman strengi sína og héldu m.a. diskótek þar sem allur ágóði af miðasölu fór i söfnunina. Þá stóðu þau fyrir skemmtun i skól- anum og höfðu kökubasar. Þess má geta að nemendur fengu stuðning ýmissa fyrirtækja sem gáfu sælgæti og gosdrykki sem síðan var selt. Einnig voru frjáls framlög nemenda, kennara og starfsfólks skólans. Alls hafa safnast 144.606 kr. með akstursstefnu til vinstri, norður Bitruháls, og Toyota-fólksbíl, IC 850, var ekið vestur Bæjarháls þeg- ar þeir lentu saman. Okumennina greinir á um stöðu umferðarljósa þegar áreksturinn varð. Þeir sem kynnu að hafa orðið vitni að þessum árekstri eru vin- samlegast beðnir að gefa sig fram við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Kvartett Tómasar R. á Kringlukránni KVARTETT bassaleikarans Tóm- asar R. Einarssonar leikur í kvöld, miðvikudaginn 15. febrúar, djass á Kringlukránni. Tónleikarnir hefjast kl. 22. Hljómsveitina skipa auk Tómasar Óskar Guðjónsson, saxófónleikari, Gunnar Gunnarsson, píanóleikari, og trymbillinn Matthías M.D. Hemstock. Þeir félagar munu leika lög af Landsýn, síðasta geisladiski Tómasar, ásamt tónlist eftir Elling- ton, Parker, Coltrane o.fl. Baráttufundur kennara SAMTÖK kennara í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi halda baráttu- fund í dag, miðvikudaginn 15. febr- úar, kl. 17.30 í Bíóborginhi (áður Austurbæjarbíó) við Snorrabraut í Reykjavík. Þar flytja ávörp Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags, og Hrund Hjaltadóttir, kennari. Björk Jónsdóttir, söngkona, syngur og stjórnar fjöldasöng við píanóundir- leik og Baldvin Halldórsson, leikari, les ljóð. íslandsmeistara- keppni í köku- skreytingum LANDSSAMBAND bakarameist- ara, Klúbbur bakarameistara og Bakarasveinafélag íslands standa fyrir íslandsmeistarakeppni í köku- skreytingum dagana 17. og 18. febr- úar nk. á Hótel íslandi. Þetta _er fyrsta keppni sinnar tegundar á ís- landi og hafa 9 keppendur skráð sig til leiks. Keppnin fer þannig fram að fyrri daginn vinna keppendur alla undir- búningsvinnu og seinni daginn munu þeir skreyta tertur, kransakökur og konfekt fyrir opnu húsi. Almenningi verður boðið að koma og sjá keppn- ina milli kl. 13 og 16 laugardaginn 18. febrúar. Þá um kvöldið verða úrslit kynnt og verðlaun veitt. ■ HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð í kvöld, mið- vikudaginn 15. febrúar, yfír nesið (gamla Seltjarnarnesið) á milli Kolla- fjaðrar og Skerjafjarðar og áfram upp í Fossvogsdal eftir mikið til opnu svæði í miðri borg. Mæting er við Hafnarhúsið kl. 20. Eftir að hafa hresst sig á gamla sýrudrykknum eða molakaffí verður farið niður á Miðbakka. Þar verður val um að ganga suður með tjörn um Hljóm- skálagarðinn og nýja leið um Vatns- mýrina suður í Oskjuhlíð og Nauthól- svík, síðan með Fossvoginum og upp dalinn að Fossvogsskóla en þar verð- ur litið inn í lok göngunnar. Strætis- vagnar verða teknir til baka niður í miðbæ. Einnig er hægt að velja styttri gönguleið og fara frá Mið- bakkanum í almenningsvagna og úr við Tjaldhól í Fossvogi, ganga þaðan upp í Fossvogsskóla og vera þar um svipað leyti og fyrri hópurinn. Fylgdarmenn verða með báðum hóp- unum. ■ HALDIÐ verður námskeið í vinnuvistfræði í grunnskólum á vegum Iðjuþjálfafélags íslands á Reykjalundi í Mosfellsbæ fímmtu- daginn 16. febrúar nk. Leiðbeinandi er Donna Benjamin iðjuþjálfí, sem starfar í Árósum í Danmörku. Hún hefur gengt starfi skólaiðjuþjálfa á vegum sveitarfélags Árósa frá 1987. Patrice Noli RADAUGÍ ÝSINGAR Eldhús og matur fgamla daga Hallgerður Gísladóttir, safnvörður, flytur erindi í Norræna húsinu í dag, miðvikudaginn 15. febrúar, kl. 20.30. | Allir velkomnir. Ókeypis aðgangur. Manneldisfélagið. TILSÖLU Bíóstólartil sölu Vegna breytinga fást stólar úr kvikmynda- húsi keyptir. Henta t.d. fyrir samkomuhús, félagsheimili eða ráðstefnusali. Allar nánari upplýsingar fást í síma | 587-8900. Y SJALFSTÆÐISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Kópavogsbúar Fjárhagsáætlun Kópavogs 1995 Sjáifstæðisfélag Kópavogs boðar til opirts fundar í Hamraborg 1,3. hæð, fimmtudag- inn 16. febrúar nk. kl. 20.30. Fundarefni: Fjárhagsáætlun Kópavogs- kaupstaöar árið 1995. Framsögumaður: Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs. Fundarstjóri: Sveinbjörn Strandberg. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins svara fyrirspurnum. Allir Kópavogsbúar velkomnir. Hvöt - tilvísanakerfið Sjálfstæðikvennafélagið Hvöt boðar til almenns félagsfundar í Val- höll í kvöld kl. 20.30. FUndarefni: Tilvfsanarkerfið. Frummælendur: Lára Margrét Ragnars- dóttir og Guðjón Magnússon. Fundarstjóri: Ellen Ingvadóttir. Allir velkomnir. Stjórnin. Sjálfstæðisféiag Kópavogs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.