Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 31 MINNINGAR JÓNAS GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON + Jónas Guðmundur Hall- dórsson var fæddur í Bol- ungarvik 28. júlí 1912. Hann lést á sjúkrahúsinu á ísafirði 1. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hólskirkju 11. febrúar. JÓNAS var elstur bama hjónanna Agnesar Veróniku Guðmundsdótt- ur, sem uppalin var í Hörgshlíð í Mjóafirði, og Halldórs Þorgeirs Jón- assonar úr Svansvík í ísafírði. Jón- as ólst upp í Bolungarvík og stund- aði öll venjuleg störf til sjós og lands. Hann reri um tíma á eigin bát er Nói hét og um nokkurra ára skeið var hann formaður á happa- fleyinu Ölveri. Jónas giftist 25. desember 1937 Sigríði Magnúsdóttur, mikilli dugn- aðarkonu, sem látin er fyrir fáum árum. Þeim varð þriggja bama auð- ið. Þau em Þorbjörg Maggý, Hall- dór Agnar og Gylfí. Vorið 1942 keyptu þau Sigríður jörðina Minni-Bakka í Skálavík og hófu þar búskap. Þar byggðu þau upp flest hús og ræktuðu túnin og varð Minni-Bakki í þeirra höndum hið snotrasta býli. Þau Jónas og Sigríður gengu saman til allra úti- verka. Þau reru á árabát og öfluðu þannig alls físks, sem heimilið þurfti. Ekku þurfti að kaupa annað til heimilis af matvöm en mjöl og kom. Fyrstu árin í Skálavík hafa verið erfíð, engar vélar en hestar og hendur það, sem treysta varð á og svo var allt til ársins 1951, en þá keypti Jónas Land-Rover jeppa, sem brátt varð ómissandi til allra verka. Jónas var mjög verkséður og var fljótur að sjá út hvernig hægt var að létta sér starfíð. Jónas keypti og kom upp rafstöð og byggði stóra fyrstigeymslu til að geta verið sjálfum sér nógur um sem flest. Jónas vann alla tíð að því að bæta jörðina og búa í haginn þar til hann flutti til Bolungarvíkur haustið 1963. Þegar til Bolungarvíkur kom starfaði Jónas í mörg ár í sfldar- mjölsverksmiðju Einars Guðfínns- sonar og síðan í Verslun Jóns Fr. Einarssonar. Eftir að Jónas hætti þar fýrir aldurs sakir, reri hann í nokkur sumur á trillu með Halldóri syni sínum. Jónas hafði frábært minni og einstaka frásagnargáfu. Hann bjó sögur sínar í þann búning að áheyr- endiim fannst sem þeir sjálfír hefðu lifað atburðina. Það var unun að hlusta á hann. Ég man þegar hann sagði okkur frá því þegar hann fór til Svíþjóðar með fískiskipinu Guð- mundi Péturs frá Bolungarvík. Þótt ég hafí aldrei til Svíþjóðar komið var frásögn hans af Gautaborg og siglingunni upp Gautelfi svo lifandi að hún verður mér alveg ógleyman- leg. Eftir að Jónas hætti búskap gaf hann sér tíma til að ferðast og fræð- ast um siði annarra þjóða, og fór t.d. í skógræktarferð til Noregs, en hvar sem hann fór, hvort sem það var innanlands eða utan, skoðaði hann landið sem bóndi. Þegar hann ferðaðist um ísland, dáðist hann að stórum túnum og velgrónum hlíðum. Hann hætti í raun aldrei að vera bóndi. Jónas átti fallegt fé og duglegt og hafði gaman af að lýsa hvemig hann beitti fé að vetri í fjöru og fram til fjalla ef veður var gott. Jónas fór að taka og safna skuggamyndum eftir að hann hætti búskap og ófá kvöld sat ég hjá honum og hann sýndi mér og fleir- um þessar myndir. Hann átti til sögu við hveija mynd, jafnvel vísu. Hann sá margt út úr myndunum, lítið blóm eða fugl, sem ekki sást í fljótheitum. Jónas var einu sinni spurður að því hvort ekki hefði verið afskekkt í Skálavík. Hann svaraði spuming- unni svona: „Ég var fýrir stuttu staddur suður í Hafnarfirði og bjó í blokk. Þar heilsaðist fólk ekki þó það mættist á stigagöngum. Þar þótti mér afskekkt. Ég fann aldrei til þess að það væri afskekkt í Skálavík.“ Jónas átti gott með að sætta sig við nýjar aðstæður og una við þær. Þegar hann fór að vinna í Sfldar- mjölsverksmiðjunni þótti honum það starf gott og sagði um það: „Ja, þar er nú alitaf hlýtt og maður þarf ekki að vera að beijast úti í hvaða veðri sem er.“ Þegar hann fór að vinna í Verlsun Jóns Fr., sagði hann: „Ja, það er ómetanlegt að vera laus úr pestinni í verksmiðj- unni.“ Og þegar hann fór að róa á trillunni, sagði hann: „Það er gott að geta ráðið sínum tíma sjálfur. Jónas hafði yndi af ljóðum og las þau oft fyrir gesti, tók kannski Davíð eða Einar Ben., las tvö, þijú ljóð, leit upp, brosti og átti til að segja: „Óskaplega er þetta nú vel sagt.“ Jónas samdi sögur og ljóð sjálfur og velti þar fyrir sér eilífð- inni og náttúmnni. Má segja að ljóð hans hafí verið óður til lífsins. Jón- as naut ekki langrar skólagöngu en hafði góða rithönd og skrifaði ágætan texta. Minni-Bakki í Skálavík var Jón- asi kær en þó seldi hann Hóls- hreppi jörðina til þess að þar ættu Bolvíkingar griðland og gætu notað sér til útivistar. Þau Jónas og Sig- ríður .byggðu sér lítið hús í Skála- vík o g áttu þar margar góðar stund- ir í ellinni. Mér er minnisstæð ferð, sem ég fór með foreldrum mínum út í Skálavík að úthallandi vetri í kring- um 1960. Við komum í lambhús, sem byggt var úr torfí og grjóti. Ég heyrði að Jónas sagði, um leið og hann horfði inn eftir húsinu: „Ertu kominn, litli vinur?“ Ég heyri þetta oft hljóma gegnum hug mér, en í holu í vegg sat lítill fugl, far- fugl, kominn sem vorboði í víkina við ysta haf. Þegar rökkvaði um kvöldið, var slökkt á ljósavélinni og kveikt á stóra tíulínu steinolíulamp- anum í stofunni og Jónas las ljóð, sem hann hafði verið að semja þá um veturinn. Sigríður húsfreyja bar fram kaffí og heimabakað rúgbrauð með nýstrokkuðu smjöri. Þessa minningu geymi ég um Minni- Bakka, um íslenskan sveitabæ, fólk og land í sátt og friði. Föðurbróðir minn Jónas Hall- dórsson á Minni-Bakka er kvaddur. Ég á um hann góða minningu. Agnar H. Gunnarsson, Miklabæ. t Elsku eiginmaður minn, elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, CARL ÞÓRÓLFUR BERNDSEN, Strandgötu 10, Skagaströnd, lést aðfaranótt sunnudagsins 12. febrúar. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju, Skagaströnd, laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeir, sem vilja minn- ast hans, vinsamlegast láti Golfklúbb Skagastrandar njóta þess. Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen, Laufey Bei ndsen, Ágúst Jónsson, Ernst Berndsen, Þórunn Óladóttir, Friðvin Ingi, EyþórÖrn, Mikael Karl, Jón Ernst og Fríða Mónika. t Ástkær móðir mín og amma okkar, GUÐRÚN KRISTJANA GUÐMUNDSDÓTTIR, kennari, Ásvallagötu 17, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar, kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Krabbameinsfélag fslands. Erfídrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og góð þjónusta. Uppiýsitigar í síma 22322 María Bjarnadóttir, Gunnar Þór og Guðrún Kristjana. t Útför ástkærs eiginmanns míns, föður míns og sonar okkar, JÓNS STEINSEN, Furugrund 76, Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudag- inn 16. febrúar kl. 10.30. FLUGLEIDIR lléTKI, MII'TI.KIIIIK Brynja Sigurðardóttir, Rakel Steinsen, Steinunn Jónsdóttir Steinsen, Eggert Steinsen. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og iangalangamma, ÁSLAUG LIUA ÁRNADÓTTIR frá Krossi, Lundarreykjadal, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 13. febrúar. Jarðsett verður að Lundi, Lundareykja- dal föstudaginn 17. febrúar kl. 14.00. Rútuferð með Sæmundi fer frá Umferð- armiðstöðinni kl. 10.00 fyrir þá sem þess óska. Sigrún Halldórsdóttir, Kári Friðriksson, Guðný Halldórsdóttir, Finnbogi Kr. Arndal, Arndis Halldórsdóttir, Reynir Björnsson, Guðrún Halldórsdóttir, Guðmundur Karlsson, Hulda Halldórsdóttir, Bjarni Þorláksson, Benóný Halldórsson, Óskar Halldórsson, Sigurður Halldórsson, Jón Halldórsson, Elisabet Benediktsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Karí Berg, Jófríður Leifsdóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SIGFÚSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, verður jarösungin frá Áskirkju fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Margrét Kristjánsdóttir Arnar, Örn Arnar, Anna Sigriður, Bernhard, Rannveig, Kristján Örn og Sólveig Anna. t Innilegar þakkirfyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför JÓNASAR HALLDÓRSSONAR frá Minni-Bakka. Halldór Jónasson, Þorbjörg Maggý Jónasdóttir, Bragi Helgason, Gylfi Jónasson, Margrét Finnbogadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. í + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls JÚLÍÖNNU BERGSTEINSDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Vera og Bergsteinn Sörensen, Maríanna Bergsteinsdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andiát og útför föður okkar, tengdaföð- ur, afa og langafa, HÉÐINS VILHJÁLMSSONAR loftskeytamanns. Birna Héðinsdóttir Carvalho, Alfred Carvalho, Rósa Héðinsdóttir, Gils Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkirtil allra þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ARNBJARGAR HJALTADÓTTUR, dvalarheimilinu Hlff, fsafirði. Hjalti Ragnarsson, Sigríður Konráðsdóttir, Jóhann P. Ragnarsson, Ragna G. Ragnarsdóttir, Jóhannes Ragnarsson, Steinunn Guðmundsdóttir, Þórunn M. Guðmundsdóttir, Stefán Ævar Ragnarsson, Agnes Óskarsdóttir, Karen Ragnarsdóttir, Kristinn Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. —

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.