Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Söfnunin Samhugur í verki 180 milljónir króna komnar inn UM 180 milljónir af 240 sein loforð fengust fyrir í söfnuninni Samhugur._ í verki hafa skilað sér inn á söfnunar- reikning, að sögn Péturs Kr. Haf- stein formanns stjómar söfnunarinn- ar. Segir Pétur að hluti framlaganna hafí verið greiddur með krítarkort- um, greiðslur berist væntanlega um næstu mánaðamót og því horfí vel með framhaldið. Magnús Erlingsson sóknarprestur er kominn heim frá Færeyjum þar sem hann tók við þjóðargjöf Færey- inga, sem verður varið til þess að byggja við grunnskólann í Súðavík. Fjárhæðin mun vera um 20 millj- ónir og segir Jón Gauti Jónsson sveit- arstjóri í Súðavík að hreppsnefndin hafí gert tillögu að beiðni Paul Mohr, ræðismanns Islendinga í Færeyjum, hvemig verja mætti fénu. Hafí það verið niðurstaða nefndarinnar að því yrði varið til að byggja við gmnnskól- ann í Súðavík, sem að hluta til sé rekinn í bráðabirgðahúsnæði. Einnig ætli Lionshreyfíngin að styrlq'a fyrirhugaða' byggingu leik- skóla við gmnnskólann, en ekki sé hægt að hefjast handa við þær fram- kvæmdir fyiT en búið sé að stækka grunnskólann. 108. gr. hegningar- laganna afnumin RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt, að tillögu Þorsteins Pálssonar dóms- málaráðherra, að leggja fram fmm- varp um að nema úr gildi 108. grein hegningarlaga um æmmeiðingar í garð öpinberra starfsmanna. Fmm- varpið er samið að tilhlutan nefndar sem fjallaði um lögleiðingu mann- réttindasáttmálans. „Að mínu áliti er það svo að þessi sérstaka vemd á ekki lengur við. Það em engin rök fyrir því lengur að opinberir starfsmenn njóti hennar og því tímabært að fella hana burt úr hegningarlögum,“ sagði Þorsteinn. Þessi grein hegningarlaga hefur verið nokkuð umdeild og talsverðar umræður um hvort rétt sé að afnema hana. Greinin hljóðar þannig: „Hver, sem hefur í frammi skammaryrði, aðrar móðganir í orðum eða athöfn- um eða æmmeiðandi aðdróttanir við opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfí sínu, eða við hann eða um hann út af því, skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 ámm. Aðdróttun, þótt sönnuð sé, varðar sektum, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt.“ Morgunblaðið/RAX Dagur elskendanna DAGUR elskendanna, Valentín- usardagurinn, var í gær, 14. febr- úar. Þessi dagur hefur verið í miklum metum meðal Breta og Bandaríkjamanna, en hin síðari ár hafa vinsældir hans breiðst út. Á íslandi verður dagurinn sífellt fyrirferðarmeiri í fjölmiðlum og töluvert er um það hér að ástfang- ið fólk gefi hvort öðru gjafir á þessum degi, hjartalaga konfekt- kassa og fleira í þeim dúr. FRÉTTIR Breiðafell Hrossaskál — Nýjareða^;..-; fyrirhugaðar ' sjkiðalyfttir" -—Gömlu skiðalyfturnar Skíbheimar Gullhóll Nýjar eða fyrir- hugaðar skíðalyftur ISAFJÖRÐUR SandfelJ Sumar- bústaða- isvæðL- Munnur jarð- { gangna Nýr skíðaskálj og bílastæði lOOOm Sýslumaðurinn á ísafirði efast um réttmæti uppbyggingar á Seljalandsdal Ekkí á að byggja upp á hættusvæðum ÓLAFUR Helgi Kjartansson, sýslumaður á Isafirði, telur að ekki eigi að byggja mannvirki á svæðum þar sem snjóflóðahætta er fyrir hendi. Hann telur fulla ástæðu til að taka mark á viðvör- unum í skýrslu snjóflóðasérfræð- inga um snjóflóðahættu á Selja- landsdal og segir að verði um frek- ari uppbyggingu á skíðasvæðinu að ræða leggi það ríkar skyldur á bæjarsjóð Isafjarðar. Aðalatriðið sé þó að efla þurfi eftirlit með snjóalögum líkt og áformað sé að gera. Fyllsta aðgát „í sjálfu sér eru það ekki ný tíðindi að Seljalandsdalur sé snjó- flóðasvæði. Það fengum við að sjá því miður í fyrra. Aðalatriðið í skýrslunni er að snjóflóðasérfræð- ingamir telja að skíðalyftur fjögur og fímm, þar á meðal önnur þeirra sem búið er að byggja, séu á helsta snjóflóðahættusvæðinu. Miðað við núverandi aðstæður ráðleggja þeir að þær verði ekki endurbyggðar. Full ástæða til að taka mark á við- vörunum í skýrslu Það er, eins og skýrslan segir, mjög mikilvægt að þama sé höfð fyllsta aðgát og að eftirlit með snjóalögum og hugsanlegri snjó- flóðahættu verði mjög eflt. Því til viðbótar kann að vera að almanna- vamanefnd þurfi að fylgjast sér- staklega með svæðinu ef þannig ber undir.“ Leggur skyldur á bæjarsjóð Ólafur Helgi mælti gegn upp- byggingu skíðasvæðisins á Selja- landsdal á almannavarnanáms- stefnu á ísafírði fyrr í október. „Mín skoðun er sú að það eigi ekki að reisa mannvirki á snjó- flóðahættusvæðum ef nokkur kostur er annar. Ég tel að það eigi að taka fullt mark á þessari skýrslu. í henni felst svo eindregin viðvörun. Ef menn vilja halda áfram með framkvæmdir á þessu svæði þrátt fyrir skýrsluna þá leggur það mjög ríkar skyldur og ábyrgð á eiganda svæðisins, þ.e.a.s. bæjarsjóð, að efla verulega eftirlit með því. Skýrsluþpfundar telja að búast megi við að eitt stórt snjóflóð falli á svæðið á 40 ára tímabili eða _ jafnvel skemmri tíma,“ sagði Ólafur Helgi. í reglum um snjóeftirlit á skíða- svæðinu, sem kynntar voru í vik- unni, er gert ráð fyrir að það verði ekki opnað nema í samráði við snjóathugunarmann. Ólafur Helgi sagði þetta mikilvægt atriði og það fæli í sér að daglega yrði fylgst með snjóflóðahættu á svæðinu. Skýrsla snjóflóðasérfræðing- anna var tilbúin í lok október í fyrra, en efni hennar hefur ekki verið gert opinbert fyrr en nu á síðustu dögum. Ólafur Helgi fékk hana í hendur í fyrradag. Hann sagðist ekki líta svo á að reynt hefði verið að leyna efni hennar, en sagðist hefði viljað fá að sjá hana fyrr. > > I > > I I I ) Frumvarp til laga um grunnskóla afgreitt úr menntamálanefnd Alþingis Fresta gildis- töku til áramóta MENNTAMÁLANEFND Alþingis hefur afgreitt frumvarp um grunn- skóla. Meirihluti nefndarinnar leggur til að gildistöku frumvarps- ins verði frestað til næstu áramóta og að ríkið greiði áfram fyrir námsbækur. Minnihluti nefndarinnar segir fráleitt að afgreiða frumvarpið þar sem ekki liggi fyrir hvaða breyt- ingar verði á réttindum kennara og fjárhagslegum skuldbindingum sveitarfélganna, en samkvæmt frumvarpinu færist rekstur grunn- skólanna frá ríki til til sveitarfé- laga. Engin samstaða Sigríður A. Þórðardóttir þing- maður Sjálfstæðjíflokks og for- maður menntamálanefndar sagði að helstu breytingar sem meiri- hluti nefndarinnar legði til, væru að horfíð væri frá því að sveitarfé- lögin kosti námsgögn, og því verði það hlutverk ríkisins. Þá væri lagt til að fresta gildistöku laganna til næstu áramóta en þá er gert ráð fyrir að ný lög um tekjustofna sveitarfélaga taki gildi. Menntamálanefnd klofnaði í afstöðu sinni til frumvarpsins og standa þingmenn stjórnarand- stöðunnar ekki að tillögum stjórnarmeirihlutans. Kristín Ast- geirsdóttir þingmaður Kvenna- lista sagði að lítill tími hefði gef- ist til að ræða málið eínislega í menntamálanefnd og stjórnar- flokkarnir hefðu ekki reynt að teygja sig til samkomulags. „Það er mjög slæmt með svona stórt mál eins og grunnskólann að ekki skuli vera samstaða um það,“ sagði Kristín. Kristín sagði áð frumvarpið hefði í för með sér ýmsar breyt- ingar á störfum og réttindum kennara, m.a. lengingu skólaárs- ins, sem kennarar hefðu bent á að semja þyrfti um sérstaklega. Þá lægi heldur ekki fyrir hvaða byrðar væri í raun og veru verið að færa yfir á sveitarfélögin. Sigríður Anna sagðist ekki telja að mikill ágreiningur væri í menntamálanefnd um grunn- skólafrumvarpið sjálft, enda væri þar um geysilega mikið framfara- mál að ræða í skólastarfi og tekið á flestum þeim atriðum sem þar hefðu verið gagnrýnd undanfarin ár. Ágreiningurinn í nefndinni sneri að öðrum hlutum: réttinda- og lífeyrissjóðsmála kennara sem verða ekki lengur ríkisstarfs- menn, og fjármálalegu hliðinni varðandi sveitarfélögin. Fyrirvarar sveitarfélaga Svavar Gestson þingmaður Al- þýðubandalagsins sagði að fulltrú- ar stjómarandstöðunnar í mennta- málanefnd hefðu án árangurs ósk- að eftir því að afgreiðslu frum- varpsins yrði frestað þar til í dag og þingflokkar fengju þá að skoða málið, bæði með tilliti til yfírvof- andi kennaraverkfalls en þó sér- staklega með tilliti til afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem ekki hefði fengið ráðrúm til að fjalla endanlega um málið áður en nefndin afgreiddi frumvarpið. Sigríður Anna sagði að Sam- band íslenskra sveitarfélaga hefði skilað umsögn til nefndarinnar í haust og fulltrúar sambandsins hefðu komið á fund nefndarinnar. „Þeir lögðu þar fram ákveðna fyr- irvara og ég tel að það sé búið að koma verulega til móts við sjón- armið þeirra með breytingu á gild- istöku laganna,“ sagði Sigríður. Jónasar G. Rafnar minnst á Alþingi JÓNASAR G. Rafnar fyrrverandi alþingisþingmanns var minnst á Alþingi í gær, en Jónas lést á sunnudaginn, 74 ára að aldri. Salome Þorkelsdóttir forseti Al- þingis rakti æviágrip Jónasar, en hann sat meðal jmnars á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1949 til 1971 og gegndi þar um tíma starfi forseta efri deildar. Salome sagði meðal annars að Jónasi hefði verið lagið að fylgja málum fram til sigurs, verið hóf- stilltur og gagnorður i ræðustól og greint vel kjarna hvers máls. „I forsetastörfum á Alþingi var hann röggsarriur og réttsýnn. Hann var kjörinn í stjórnir og nefndir og átti í þeim störfum sín- um dijúgan þátt í lagasmíð og umsýslu fjár,“ sagði Salome.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.