Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Listabókstafur Þjóðvaka RættumF eða J Á STJÓRNARFUNDI Þjóðvaka sl. sunnudag var rætt um hvaða bók- staf bæri að velja til að einkenna framboðslista flokksins fyrir kom- andi kosningar. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins hölluðust fundarmenn helzt að F eða J. Bókstafurinn F hefur verið notað- ur áður, síðast af Fijálslyndum í síð- ustu kosningum og áður af Samtök- um fijálslyndra og vinstri manna. Stafurinn J telst hins vegar vísa í margt, sem þjóðvakamenn telja tengjast flokki sínum, t.d. jafnaðar- stefnu, jákvæðni eða nafn flokks- formannsins, og munu margir þjóð- vakamenn fremur hallast að J-inu. ----------» ♦ ♦---- Ekið á gang- andi mann EKIÐ var á gangandi vegfaranda, mann á áttræðisaldri, á Hringbraut við JL-húsið, um kl. 13 í gær. Maður- inn missti meðvitund og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Á slysadeild fengust þær upplýs- ingar að maðurinn hefði ekki slasast illa en væri lurkum laminn. Þrír bílar skullu saman á gatna- mótum Hringbrautar og Njarðar- götu skömmu eftir hádegi. Flytja þurfti ökumenn tveggja bifreiða og og tvo farþega á slysadeild. Meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg. DIDDÚ og Egill á æfingu með kór Menntaskólans. Spilverkið saman á ný Morgunblaðið/Kristinn TÓNLEIKAR til styrktar fötluð- um nemendum Menntaskólans við Hamrahlíð verða haldnir í kvöld. Þar koma fram nokkrir gamlir nemendur Menntaskól- ans, þar á meðal Spilverk þjóð- anna, sem hefur ekki leikið sam- an opinberlega í 18 ár. Tónleikarnir eru haldnir á vegum nemendafélags skólans og námsráðgjafar fatlaðra og verður ágóða af tónleikunum varið til kaupa á tækjuni til að létta fötluðum nemendum nám- ið. Á tónleikunum kemur Spil- verk þjóðanna, sem skipað var Agli Ölafssyni, Sigrúnu Hjálm- týsdóttur, Diddú, Valgeir Guð- jónssyni og Sigurði Bjólu, fram í fyrsta sinn síðan 1977, og að- eins þetta eina sinn. Einnig syngja Diddú og Egill með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og Diddú syngur með Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, sem er einnig fyrrum nemandi skól- ans. Annar fyrrum nemandi, bróðir Diddúar, Páll Óskar, treður einnig upp með hljóm- sveit sinni Milljónamæring- unum. Einnig kemur fram hljómsveitin Unun. Boðað verkfall hjá Kf. Fáskrúðsfirðinga Sáttasemj- ari fer til Egilsstaða SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu Verkalýðs- og sjómannafélags Fá- skrúðsfjarðar og Kaupfélags Fá- skrúðsfirðinga verður haldinn á Eg- ilsstöðum á morgun, fimmtudag, kl. 10. Ríkissáttasemjari féllst á ósk verkalýðsfélagsins um að halda samningafund fyrir austan og er lík- legt að Geir Gunnarsson, vararíkis- sáttasemjari, komi til fundarins, að sögn Eiríks Stefánssonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Fá- skrúðsfjarðar. Vinnustöðvun næði til á annað hundrað starfsmanna Verkalýðs- og sjómannafélag Fá- skrúðsfjarðar hefur boðað vinnu- stöðvun hjá kaupfélaginu í tvær vik- ur og hefst það á miðnætti næstkom- andi föstudagskvöld hafi samningar ekki náðst fyrir þann tíma. Verkfall- ið nær til á annað hundrað starfs- manna hjá kaupfélaginu, og starfa flestir þeirra í hraðfrystihúsi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga. Að sögn Eiríks hefur enginn samningafundur verið haldinn frá því að ákvörðun var tekin um boðun verkfalls og sagði hann líklegt að fulltrúar Vinnumálasambandsins kæmu austur til að taka þátt í samn- ingaviðræðunum fyrir hönd kaupfé- lagsins. Nefndarálit minnihluta allsheijarnefndar Alþingis Ráðherra hafi hótað starfsfólki Norska snjóflóðaskýrslan kynnt ríkisstjórn Rannsóknarstöð á snjóflóðasvæði í SKÝRSLU norsku jarðtæknistofnunarinnar um snjóflóðaskilyrði á íslandi til Össurar Skarphéðinssonar umhverfisráðherra er lagt til að komið verði á fót sérstakri rannsóknarstöð snjóflóða og að hún verði staðsett á snjóflóða- svæði. Hugmynd stofnunarinnar er að stöðin verði jafnframt veðurathugunar- stöð og sinni undirstöðurannsóknum á snjóflóðum og snjóflóðaspám fyrir sérstök svæði eða vegi þar sem snjófióða gætir. UMHVERFISRÁÐHERRA er í nefndaráliti minnihluta allsheijar- nefndar Alþingis sakaður um að hafa reynt með hótunum, m.a. um brott- rekstur, að hefta málfrelsi starfs- manna veiðistjóraembættisins vetur- inn 1993. Þá er gefið í skyn að ákvörðun um að flytja embættið til Akureyrar eigi sér rætur í ágreiningi ráðherrans og starfsmannanna. Minnihluti allsheijamefndar hefur skilað áliti um tillögu Hjörleifs Gutt- ormssonar þingmanns Álþýðubanda- lagsins um að Alþingi skipi rann- sóknamefnd til að kanna embættis- færslu Össurar Skarphéðinssonar umhverfisráðherra gagnvart starfs- mönnum veiðistjóraembættisins. Meirihlutinn hafði áður lagt til að tillagan verði felld þar sem engin rök væru fyrir rannsókn. í nefndaráliti minnihlutans segir ÖSSUR Skarphéðinsson umhverfís- ráðherra segist engan þátt hafa átt í því að Þóroddur Þóroddsson hvarf úr starfi framkvæmdastjóra Nátt- úruvemdarráðs, og minnist þess ekki að hafa minnst á hann í samtali við veiðistjóra á Þorláksmessu árið 1993. „Ég óskaði ekki eftir því við for- mann Náttúruvemdarráðs eða nokk- urn annan að hann hyrfi úr starfi. Þessi maður, sem að því ég best veit fór úr starfi af fúsum og fijáls- um vilja, sótti um starf hjá Skipulagi ríkisins sem ég hef ráðningarvald yfir og þar var hann valinn úr hópi að vegna málsmeðferðar á Alþingi sé nauðsynlegt að draga fram upp- lýsingar sem rökstyðji að óeðlilega hafi verið að málum staðið og kalli á frekari athugun á embættisfærslu ráðherrans. Er síðan rakið að Össur Skarphéðinsson hafi lent í harkaleg- um árekstrum við starfsmenn stofn- ana umhverfisráðuneytisins eftir að hann tók við embætti um mitt ár 1993. Sé að sjá að hann hafi viljað hefta frelsi þeirra til að tjá sig. Yfir grensuna <9 Það sé á margra vitorði að ráð- herra hafi tekið Þórodd Þóroddsson þáverandi framkvæmdastjóra Nátt- úruvemdarráðs til bæna út af viðtali í Morgunblaðinu. Hafi íhlutun ráð- herrans leitt til þess að Þóroddur sagði nokkru síðar starfi sínu lausu. Hliðstætt atvik hafi gerst þegar 60 umsækjenda," sagði Össur. Hann staðfesti að hafa talað við Amór Þ. Sigfússon og Pál Hersteins- son vegna umrædds máls, og hefði m.a. gert grein fyrir þeim samtölum í Morgunblaðinu í febrúar 1994. Össur sagði aðspurður að mjög óvenjulegt væri að í nefndarálitum þingnefnda væri vitnað innan gæsa- lappa í orð þriðja aðila. „En ég er hættur að undra mig á því hvað Hjörleifur Guttormsson tekur sér fyrir hendur. Hann hefur persónu umhverfisráðherra bersýnilega á heilanum." Amór Þ. Sigfússon starfsmaður veiðistjóra tjáði sig í blaðaviðtali um íjúpnaveiðibann sem umhverfisráð- herra setti haustið 1993- í álitinu segir síðan: „Hringdi ráðherra þenn- an dag í Arnór, minnti á að hann væri starfsmaður ráðuneytisins.-og sagði hann hafa farið „yfir grens- una“ í blaðaviðtalinu. Jafnframt tók ráðherra fram að þessu máli væri ekki lokið af sinni hálfu. Þetta upp- lýsti Amór á fundi umhverfisnefndar Alþingis 15. apríl 1994. ' Fyrr þennan sama dag, f. . . ] hringdi umhverfisráðherra í Pál Her- steinsson veiðistjóra og hafði uppi aðfinnslur út af viðtalinu við Arnór. Veiðistjóri bar það fyrir umhverfis- nefnd Alþingis 15. apríl 1994 að hann hefði svarað ráðherra á þá leið að hann teldi þessar deilur vissulega óheppilegar. Rjúpur og ijúpnaveiði heyrðu hins vegar ekki undir veiði- stjóraembættið og ekki væri eðlilegt að hann legði hömlur á málfrelsi starfsmanns síns um slíkt efni þar sem hann tjáði sig sem meðlimur í Skotveiðifélagi íslands á vettvangi félagsins. Þá á ráðherra að hafa sagt: „Þú stjórnar Amóri. Ég stjórna þér. Þessi ráðherra er ekki hræddur við að beijast. Ég minni þig í þessu sam- bandi á framkvæmdastjóra Náttúru- verndarráðs sem nú er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Gleðileg jól.““ Fljótræði í nefndarálitinu segir að ráðherra hefði ekki ' minnst orði á flutning veiðistjóraembættisins í þessum sím- tölum en hálfum mánuði síðar hefði veiðistjóri verið boðaður á fund ráð- herra og tilkynnt þar að ákveðið væri að flytja embættið til Akureyrar og færa það undir setur Náttúru- fræðistofnunar íslands. Hvorki veiði- stjóri né forstöðumaður setursins hafi þá heyrt ávæning um að flutn- ingur stæði fyrir dyrum. Umhverfisráðherra óskaði eftir skýrslu norsku jarðtæknistofnunar-. innar um snjóflóðavamir á íslandi í framhaldi af snjóflóðunum sem féllu á Súðavík 16. janúar. Skýrslan var lögð fram á ríkisstjómarfundi í gær. Fjórir til fimm starfsmenn Norðmennirnir leggja til að snjó- flóðarannsóknir og ráðgjafastörf verði falin Veðurstofu íslands. Starf stofnunarinnar byggist á snjóflóða- spám, mati og kortlagningu hættu- svæða vegna snjóflóða, þróun skrið- líkana og hönnun varnarmannvirkja gegn snjóflóðum. Talið er nauðsyn- legt að fjórir til fimm vísindamenn eða verkfræðingar starfi á snjóflóða- deild Veðurstofunnar, en þar starfa í dag tveir menn. Jafnframt verði skipulagðar u.þ.b. tíu athugunar- stöðvar til að styrkja flóðaspár og MEIRIHLUTI bæjarráðs Hafnar- fjarðar hefur samþykkt að segja Sverri Ólafssyni umsjónarmanni með Listamiðstöðinni í Straumi upp störf- um með þriggja mánaða fyrirvara. Að sögn Magnúsar Jóns Árnason- ar bæjarstjóra, er það gert til að skapa svigrúm til breytinga í rekstr- inum. Ekki standi til að leggja Straum niður en tæplega 4 millj. kr. séu áætlaðar til reksturs á árinu. „Sverrir Ólafsson hefur unnið kraftaverk við uppbyggingu í Straumi,“ sagði Magnús Jón. Sagði hann að uppbyggingin hefði byijað árið 1987 og kaus bæjarstjórn þá sérstaka stjórn fyrir listamiðstöðina og réði Sverri tímabundið sem for- ein þeirra verði rannsóknarmiðstöð. Lögð er áhersla á að gerðar verði meiri háttar tilraunir til að stuðla að þróun reikningsaðferða vegna skriðlengdar snjóflóða og kortlagn- ingu hættusvæða allstaðar þar sem hætta er á snjóflóðum. Þá sé nauð- synlegt að endurskoða bygginga- reglugerðir varðandi snjóflóðahættu en núverandi hættumörk í séu of há. Gagnabanki mikilvægur í skýrslunni er bent á ýmsar leiðir til að bæta snjóflóðaspár hérlendis. Lögð er áhersla á að bæta kerfi veð- urathugunarstöðva. Slíkar stöðvar þurfí að vera í sérhveiju byggðarlagi þar sem meiri háttar snjóflóðahætta sé fyrir hendi. Tii að meta stað- bundna snjóflóðahættu sé nauðsyn- legt að hafa nákvæmar upplýsingar um öll söguleg snjóflóð. stöðumann. Sú stjóm var lögð af og sett á starfsstjórn skipuð embættis- mönnum bæjarins. Þeim var falið að gera tillögur að framtíðarskipulagi stjórnar listamiðstöðvarinnar. Niður- staða þeirra er að um fjóra mögu- leika sé að ræða; bæjarstjóm kjósi áfram í stjórn Straums; Straumur falli undir stjóm Hafnarborgar, að reksturinn verði falinn einkaaðiium og loks að menningarmálanefnd taki við rekstrinum. „Uppbyggingu er lokið en með uppsögninni skapast svigrúm til breytinga," sagði Magnús Jón. „Síð- an verður að ráða úr því hvernig framtíðin verður." • • Ossur Skarphéðinsson Atti engan þátt í uppsögn Þórodds Umsjónarmanni Straums sagt upp störfum i i i i i [ 1 I [ í ■ I I I í I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.