Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 9
\ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 9 FRÉTTIR Atvinnulausum fækkaði um 9,3% í janúar frá sama tíma í fyrra Efnalitlir fá opinbera réttaraðstoð ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráð- herra hefur lagt fram í ríkisstjórn- inni frumvarp um opinbera réttarað- stoð. Þorsteinn segir að í frumvarp- inu séu aðstoðinni sniðin ákveðin takinörk sem koma eigi í veg fyrir að kostnaður við hana fari úr bönd- unum. Gert er ráð fyrir að aðstoðin kosti ríkissjóð 30-50 milljónir króna á ári. „Frumvarpið felur í sér mikið nýmæli. Lagt er til að tekin verði upp opinber réttaraðstoð þannig að fólk með lítil efni eigi þess kost í ríkari mæli en nú er að fá lögfræði- aðstoð þar sem ríkið greiðir megin- hluta kostnaðarins. Þessu eru sniðin ákveðin takmörk þannig að það er ekki gert ráð fyrir því að hlutir fari úr böndunum eins og sumstaðar hefur átt sér stað þar sem slíku fyrir- komulagi hefur verið komið á,“ sagði Þorsteinn. Frumvarpið er samið af nefnd, sem var undir forystu Daggar Páls- dóttur skrifstofustjóra í heilbrigðis- ráðuneytinu, en í henni áttu einnig sæti fulltrúar frá Lögmannafélaginu og fjármálaráðuneytinu. Frumvarpið gerir ráð fyrir að sýslumenn hver á sínu sviði fari með þessi mál. Aðstoðinni er skipt í tvennt, almenn aðstoð og sérstök aðstoð. Almenna aðstoðin er tak- mörkuð við ákveðinn tímafjölda. Tekjur og eignir viðkomandi ráða því alfarið hvort menn geta fallið undir ákvæði laganna. 6,8% atvinnuleysi í síðasta mánuði ALLS voru 8.829 manns á at- vinnuleysisskrá á landinu í lok seinasta mánaðar, þar af voru 4.542 karlar og 4.287 konur. At- vinnuleysisdagar í janúar jafngilda því að 8.630 manns hafi að meðal- tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum öllum, eða 6,8% af áætluðum mannafla á vinnumark- aði samkvæmt spá Þjóðhagsstofn- unar, eða 5,9% karla og 7,9% kvenna. Að meðaltali voru 1.464 fleiri atvinnulausir í janúar en í mánuð- inum þar á undan, en hins vegar hefur atvinnuleysi minnkað sam- anborið við janúar árið 1994, eða um 9,3%, en 885 færri voru á at- vinnuleysisskrá í seinasta mánuði en í sama mánuði í fyrra. Atvinnulausum fjölgaði á höfuðborgarsvæðinu Þessar upplýsingar koma fram í yfirliti vinnumálaskrifstofu fé- lagsmálaráðuneytisins um at- Best ástand á Vestfjörðum en þó 35% verra en í fyrra vinnuástandið. Þar kemur einnig fram að þrátt fyrir minna atvinnu- leysi í janúar en á sama tíma í fyrra á landinu öllu jókst atvinnu- leysi bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Vestfjörðum miðað við janúar 1994. Atvinnulausum á höfuðborgar- svæðinu fjölgaði um 639 að meðal- tali frá desembermánuði og hefur atvinnuleysi á svæðinu aukist um 1,3% frá janúar 1994. Atvinnu- leysi á Vestfjörðum hefur aukist um 35% miðað við janúar í fyrra en þrátt fyrir það er atvinnuleysi hvergi minna á landinu en á Vest- fjörðum, þar sem meðalfjöldi at- vinnulausra er 214, eða um 4,2% af áætluðum mannafla á svæðinu. Atvinnuleysi jókst nokkuð alls staðar á landinu á milli desember og janúar, hlutfallslega langmest á Austurlandi og Norðurlandi vestra, en mest er fjölgun atvinnu- lausra frá desember til janúar á höfuðborgarsvæðinu og á Austur- landi, en þar eru atvinnulausir 12,2% af áætluðum mannafla. Venjulegar árstíðasveiflur og gæftaleysi í sjávarútvegi Félagsmálaráðuneytið telur að ástæður aukins atvinnuleysis í jan- úar frá mánuðinum á undan stafi fyrst og fremst af venjulegum árstíðasveiflum í mörgum atvinnu- greinum, gæftaleysi í sjávarútvegi og lokun fiskvinnslustöðva. Ráðu- neytið býst hins vegar við að at- vinnuleysi minnki talsvert í febrú- armánuði, einkum á landsbyggð- inni og geti orðið á bilinu 5-5,4%. Hótel Island kynnir skemmtidagskrána ÞÓ LÍÐI ÁR OG ÖLD BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - 25 ÁRA AFMÆIJSTÓNLEIKAR BJÖRGVIN UALLUÓRSSON lítur yllr dagsvcrkið setn dægurlagnsöngvari á hyómplötum i aldarljórdung, og vió heyrum ita-r 60 lög fró glæstuin l'erli - frá 1969 til okkur daga Næstu sýningar: 18. febM 4., 11., 18. og 25.mars. Matseöill Koníakstóneruð humarsúpa með rjómatopp Lamba-piparsteik meö gljáöu grænmeti, kryddsteiktum jaröepluin og rjómapiparsósu. Grand Marnier ístoppur meö hnetum og súkkulaöi karamellusósu og ávöxtum. Verd kr. 4-600 - Sýningamerd kr. 2.000 Dansleikur kr.800 Sértilboð á gistingu, sími 688999. Bordapantanir i sima 687111 Gestasöngvari: SIGRÍm R RKINTKINSDÓ' Lcikmynd og leikstjórn: BJÖRN (i. BJÖRNSSON Illjómsveitarsljórn: GI NNAR hÓRDARSON ásamt 10 manna hUómsveit Kynnir: , JON AXKL OLAFSSON Islaiuls- og Noröiirlamlanicistarar i sainktaiuisdöiisuiu Irá Dansskola Vuöar llaralds s\na dans. Til eigenda spariskírteina 1. fl. D 1990-5 ár Eftirfarandi skiptikjör eru í boði: 1. Verðtryggð spariskírteini til 4 og 5 ára, ávöxtun er 5,30%. 2. Gengistryggð ECU spariskírteini til 5 ára með rúmlega 8% ávöxtun. 3. Ríkisvíxlar til þriggja mánaða, 6,6% ávöxtun. 4. Eldri flokkar spariskírteina þar sem 1 ár, 2 ár og 3 ár eru eftir til gjalddaga. Innlausn fer fram á tímabilinu 10. - 20. febrúar 1995. Innlausnarverð pr. 100.000 kr. er 164.805 kr. Hafðu samband við Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa og pantaðu tíma hjá ráðgjafa. Þarfærð þú faglega ráðgjöf við val á ríkisverðbréfum sem henta í þínu tilviki. Síminn er 562 6040. ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið viðvHverfisgötu) síini 562 6040, fax 562 6068. Hvaö sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.